Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2012, Síða 25
Á
síðustu hrekkjavöku sótti
Kim Kardashian um skilnað
frá eiginmanni sínum, Kris
Humphries, sem hún hafði
verið gift í aðeins 72 daga.
Ári seinna segist hún njóta hamingj
unnar með nýjum kærasta sínum,
Kanye West. „Ég lærði á þessu ári
að höndla hamingjuna, sagði Kim í
hrekkjavökuveislu í New York, þann
27.október.
„Ekki hafa áhyggjur af því hvað
aðrir eru að hugsa eða tala um.
Hugsaðu bara um þína eigin vel
ferð,“ sagði Kim sem hefur augljós
lega aukið sjálfstraust.
Hún klæddist hafmeyjubúning í
anda myndarinnar Splash frá árinu
1984 og kærasti hennar Kanye mætti
klæddur sem sjómaður. Hárkollan
sem hún bar var fokdýr og kostaði
um 2.000 dollara. „Ég elska hrekkja
vökuna,“sagði Kim sem naut athygl
innar til hins ýtrasta. „Ég var vön að
halda upp á afmælið mitt á þessum
tíma þegar ég var lítil. Það er gaman
að klæða sig upp og vera einhver
annar um stund.
Fólk 25Miðvikudagur 31. október 2012
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Kim lærði af
skilnaðinum
n Kim Kardashian hamingjusöm
Með 2.000 dollara hárkollu Kim var í gervi hafmeyju á hrekkjavöku og bar á höfði rándýra hárkollu.
Hreinskilin á hrekkjavöku Fyrir
ári skildi Kim við Kris Humphries.
Hún segist vera hamingjusöm í dag.
C
issy Houston, móðir Whitney
Houston, og Bobbi Kristina
Brown, dóttir Whitney, hafa
náð samkomulagi um móður
arf þeirrar síðarnefndu.
Cissy sem hefur umsjón með arfi
Whitney óttaðist að það skipulag
sem Whitney hafði kveðið á um í
erfðaskrá sinni yrði til þess að Bobbi,
sem er 19 ára í dag, fengi of mikið
fé of snemma. Cissy taldi að dóttur
dóttir sín myndi ekki ráða við svo
mikla peninga í einu.
Þær hafa þó leyst málið sín á
milli og erfðaskráin mun standa.
Bobbi fær 10 prósent af arfinum,
eða um tvær milljónir dollara,
þegar hún nær 21 árs aldri. Um 20
prósent til viðbótar þegar hún verð
ur 25 ára og svo restina þegar hún
verður þrítug.
Bobbi Kristina Brown
fær arfinn að lokum
n Dóttir Whitney fær ekki allan arfinn fyrr en hún verður 30 ára
Erfir móður sína Bobbi
Kristina með móður sinni
Whitney Houston sem lést í
febrúar á þessu ári.
H
ann gætir sín líklega betur,
nágranni Tom Cruise,
sem klifraði yfir grindverk
á eignarlóð hans. Líklegt
þykir að hann hafi villst.
Hann var afar drukkinn og hefur ekki
komið áður við sögu lögreglu.
Lögregla greinir frá því að líf verðir
hafi tekið nágrannann villuráfandi
niður með rafbyssu. Nágranninn var
fluttur á sjúkrahús og gert að meiðsl
um hans eftir harðhenta lífverði
Toms sem var sjálfur ekki staddur á
heimili sínu þessa nótt.
Snúinn niður af
lífvörðum Toms
n Var undir áhrifum vímuefna
Lífverðir notuðu
rafbyssu Sneru
niður nágranna
undir áhrifum.