Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Blaðsíða 2
Viltu Vera tíkin mín?
2 Fréttir
S
igríður Hjaltested aðstoðar-
saksóknari segir að lögreglan
verði vör við áhrif klámnotk-
unar í kynferðisbrotamálum.
Sigríður var með erindi á
klámráðstefnu fyrr í þessum mánuði
þar sem hún greindi frá þessu en í
samtali við blaðamann sagði hún:
„Hingað koma ungir menn sem eru
teknir fyrir kynferðisbrot en þeir
segjast ekki hafa gert nokkurn skap-
aðan hlut af sér. Við horfum í augun
á þeim og það virðist engin lygi, þeim
finnst það ekki því þeir telja að þetta
eigi bara að vera svona, það sé eðli-
legt að taka einhvern með valdi, sýna
ógnandi framkomu og ráða ferðinni.
Það er það sem þeir hafa séð og sum-
ir alast upp við í kláminu.“
Það er því óhætt að segja að hún
hafi áhyggjur af því hvaða áhrif auk-
ið aðgengi að klámi hefur á kynferð-
isvitund ungmenna. „Á sama hátt er
talað um að það sé samhengi á milli
þess að ungir drengir sem spila of-
beldisleiki verði agressífari, sumir
vilja meina að það liggi ekki fyrir
klárar niðurstöður um það en það
virkar samt svolítið „kommon sens“.
Þá velti ég því fyrir mér hvort við
stöndum frammi fyrir sama vanda
varðandi drengi sem byrja ungir að
horfa á klámefni og eru fastir í því án
þess að fá nokkurn tímann að kynn-
ast því að kynlíf sé eitthvað þar sem
tveir einstaklingar njótast. Þá verður
klámið eðlilegt fyrir þeim.
Stundum fara þeir í sálfræðimat
og með einhverri vinnu tekst kannski
að leiðrétta þessi viðhorf en þegar
þeir brjóta af sér þá eru þeir fullir af
ranghugmyndum. Við sjáum menn
sem eru bara svona og hafa verið
svona síðan þeir voru tólf ára. Þannig
að strákar sem eru komnir í þennan
pakka þurfa að fá aðstoð,“ segir Sig-
ríður en í DV á miðvikudag var bréf
frá ráðþrota móður 18 ára drengs
sem vissi ekki hvernig hún ætti að
bregðast við klámfíkn sonarins og
sagðist vonast eftir frekari úrræðum.
Sigríður tekur undir það og segir að
það séu ekki næg úrræði í boði, það
sé ekki næg eftirfylgni og kostnaður-
inn falli gjarna á foreldrana sem séu
ekki allir með burði til þess að bera
hann. „Það er ekki oft sem við fáum
játningu en þegar það gerist þá reyn-
um við að grípa það strax og senda
strákana til sálfræðings.“
Ginna þá sem eru auðveldastir
Hér á landi er einnig algengt að
menn sem teknir eru fyrir vörslu á
barnaklámi komist aftur í kast við
lögin síðar á ævinni þegar þeir hafa
brotið á barni eða gert tilraun til
þess. Þetta segir Sigríður sem hef-
ur áhyggjur af þessari þróun. Ný-
lega var ungur piltur dæmdur fyrir
að brjóta gegn systurdóttur sinni en
sá hafði sankað að sér barnaklámi
frá ellefu ára aldri. „Hvað þetta varð-
ar þá virðist sem menn stígi út fyrir
rammann og sækist eftir einhverju
meira þegar þeir hafa verið að horfa
á barnaklám.“
Sigríður hefur hins vegar ekki séð
þá þróun sem prófessor að nafni Gail
Dines talaði um á klámráðstefnu fyrr
í þessum mánuði. Þar sagði Gail að
klámbransinn væri í auknum mæli
að gera út á klám sem er barngert,
sem myndi þýða að menn sem ánetj-
ast klámi myndu í auknum mæli
sækjast eftir klámefni þar sem börn
koma við sögu og þar af leiðandi
myndi þeim fjölga sem brjóta á börn-
um. Máli sínu til stuðnings sagði hún
frá viðtölum sínum við fanga sem
voru dæmdir fyrir kynferðisbrot
gagnvart börnum án þess að sýna
nokkur merki þess að vera haldn-
ir barnagirnd. Þessir menn lýstu því
fyrir henni hvernig þeir misstu tökin
þegar klámfíknin tók yfir og stjórn-
leysið varð algert og þeir sem í fyrstu
hefðu ekki viljað sjá barnaklám
hefðu smám saman farið að fikra sig
í átt til þess konar myndbanda. Í kjöl-
farið hefðu þeir farið að fantasera um
börn og það endað með því að þeir
brutu á börnum.
Sigríður segist ekki hafa séð þessa
þróun hér á landi. „Hins vegar má
segja að menn sem ætla sér að tæla
stelpur leiti frekar í fórnarlömb sem
er auðvelt að ginna, vanalega ein-
hvern sem er mun yngri en þeir. Það
er kannski vegna þess að þeir þurfa
að geta platað viðkomandi og full-
orðnir, sem hafa meiri reynslu, eru
frekar á varðbergi.“
Greinilegar stælingar
Sigríður hefur starfað sem aðstoðar-
saksóknari hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu í fjögur ár, en það
er það embætti sem fær flest kyn-
ferðisbrotamál inn á borð til sín.
„Við sjáum greinilegar stælingar á
klámmyndböndum, þar sem sömu
aðferðir og orðbragð er notað. Þær
eru kallaðar tíkur, typpasugur og
annað álíka. Það eru þessir frasar
sem eru notaðir úti. Til þess að sækja
sönnunargögn keyrum við oft út úr
tölvunum samtöl sem eiga sér stað í
aðdragandanum. Þá eru þau bara að
tala saman sem jafningar og jafnvel
að ræða hvaða hugmyndir þau hafi
um það sem þau ætli að gera. Þá spyr
hann kannski hvort hún vilji vera tík-
in hans og hún segir já. Þá spyr hann
hvort hún vilji vera tík vina hans líka
og hún gengst inn á það. Þau tala
svona saman.
Ef eitthvað þessu líkt hefur átt sér
stað í aðdragandanum þá eru minni
líkur á að þær kæri strax því þær hafa
sektarkennd yfir því að hafa tekið
þátt í þessu þótt það réttlæti ekki það
sem á eftir kemur. En það er mjög
mikilvægt að þær fái aðstoð við að
byggja sig upp aftur svo þetta endur-
taki sig ekki, að þær viti hvaða leið-
ir eru í boði því við erum ekki alltaf
að fá alveg fersk mál til okkar og þá
verður strax erfiðara að sanna það.
Eins sjáum við að stúlkur eru mun
gjarnari á að senda myndir af sér inn
á netið af fúsum og frjálsum vilja en
áður. Það fer oft úr böndunum, fyrir
utan það að eldri einstaklingar eru
oft að þrýsta á yngri börn.“
Kvalalostakynlífið þykir
spennandi
Sigríður segir að svona hafi þró-
unin verið allt frá því að hún byrj-
aði í þessu starfi fyrir fjórum árum.
Hins vegar sé það nýtt „trend“ að
stunda kynlíf með mörgum og einnig
þetta kvalalostakynlíf, BDSM. „Ef
fólk gengur viljugt og samstíga inn
í svona kynlífsleik þá er ekkert við
það að athuga. En við sjáum að fólk
er að samþykkja þetta með einhverj-
um sem það þekkir ekki í raun. Það
fer inn í agressíft og ofbeldisfullt
kynlíf án þess að þekkja mörk hvors
annars. Einhvers staðar liggja mörk-
in og viðkomandi segir stopp þegar
hlutirnir fara úr böndunum en þegar
tilgangur kynlífsins er að niðurlægja
og meiða þá lendum við ósjálfrátt í
vanda þegar kemur að því að sanna
brotið. Það er ávísun á vandamál.
Í þeim skilningi held ég að þetta
sé hættulegt „trend“ en ungmennun-
um okkar þykir þetta greinilega mjög
spennandi, þetta er í tísku og þetta er
í bókunum og svona.“
Lögreglan er líka farin að fá meira
af málum þar sem hópkynlíf hefur
farið úr böndunum. „Oftast er ein
stelpa með tveimur eða fleirum
strákum. Þá þarf svo lítið til þess að
valdahlutföllin og jafnvægið breytist.
Þegar þú ert komin þessar í aðstæð-
ur þá er erfitt að ráða við það þegar
aðstæðurnar verða agressífari en þú
kærir þig um. Þá eiga stelpurnar oft
erfitt með að bregðast við, þær frjósa
og verða hræddar.“
Ráðalausar í aðstæðunum
Reyndar á það við um mörg kyn-
ferðisbrotamál að brotaþoli segist
ekki hafa vitað hvernig hann ætti að
bregðast við. Sigríður segir það sér-
staklega erfitt þegar nauðgarinn er
einhver sem viðkomandi þekkir og
hefur alltaf getað átt eðlileg sam-
skipti við. „Þær segja gjarna, þessar
ungu stelpur, að þær hafi ekki viljað
þetta og reynt að sýna honum það en
þegar hann virtist ekki átta sig á því
vissu þær ekkert hvað þær ættu til
bragðs að taka, þannig að þær létu
þetta bara ganga yfir sig gegn vilja
sínum. Enda á enginn að þurfa að
öskra og berjast um. Flestum þætti
sjálfsagt að karlmaður áttaði sig á því
ef stúlka er ekki ástleitin við hann,“
segir Sigríður og bætir því við að
áfengi komi gjarna við sögu.
„Það afsakar auðvitað ekki neitt
en það deyfir dómgreindina. En
eins og ég segi þá eru líka sumir sem
halda að þetta sé bara eðlilegt því
þetta er það sem þeir sjá. Þeir ætla
bara að ríða, þrykkja og fá það, þú
heyrir engan tala um að elskast leng-
ur. Þegar hann er að þrykkja stelpu
þá lítur karlmaðurinn kannski svo á
að það hljóti bara að vera eðlilegt að
hún sé ekki ástleitin. Hún er bara að
láta sig hafa það, er tekin eins og dýr.“
Hún bendir á að ákæruvaldið
þurfi að sanna að sá kærði hafi
haft ásetning til að brjóta gegn við-
komandi. „Engu að síður hafa fall-
ið dómar þar sem kynferðisbrot
er sannað og svokallað lægra stig
n Sumir sem teknir eru fyrir kynferðisbrot sjá ekkert athugavert við verknaðinn n Greinilegar stælingar á klámmyndböndum
5. nóvember 2012 Mánudagur
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Segir áhrifin greinileg Sigríður Hjalte-
sted segir að til lögreglunnar komi menn
sem hafa framið kynferðisbrot en þyki
ekkert athugavert við verknaðinn því hann
samræmist hugmyndum þeirra um kynlíf
eftir langvarandi notkun á klámi.
„Þær fara í það að
þóknast strákun-
um, láta sig hafa það.
Sex manns
í bílnum
Sex manns voru í bíl sem valt á
Akureyjarvegi í Landeyjunum um
þrjúleytið aðfararnótt sunnudags,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Hvolsvelli. Maðurinn,
sem var fluttur alvarlega slasaður
á gjörgæsludeild, er á þrítugs-
aldri en auk hans var annar far-
þegi í bílnum fluttur á slysadeild
Landspítalans. Hinir sem í bíln-
um voru fóru til skoðunar á Heil-
brigðisstofnun Suðurlands á Sel-
fossi. Fólkið í bílnum hafði áður
en slysið varð verið á dansleik í
Njálsbúð. Ekki var hálka á veg-
inum en lausamöl og bíllinn valt
með áðurgreindum afleiðingum.
Lögregla segir ekki grun um ölv-
un við akstur en vildi ekki veita
nánari upplýsingar um málið að
svo stöddu.
Skotið á álftir
Högl fundist í nærri því fjórtán
prósentum þeirra álfta sem komu
til Bretlands frá Íslandi. Þetta
kemur fram í niðurstöðum rann-
sóknar breska Veiðifugla- og
votlendissjóðsins.
Notast var við röntgentæki til
þess að skoða álftir á Bretlandi og
niðurstöðurnar sýndu fram á að á
meðal þeirra sem flugu til lands-
ins frá Íslandi hafa margar verið
skotnar en lifað af. Tvær tegund-
ir álfta lifa á Bretlandi, annars
vegar íslenska álftin, og hins vegar
dvergsvanur sem kemur frá Síber-
íu. 14 prósent íslensku álftarinnar
voru, sem fyrr segir, með högl í lík-
amanum, en hlutfallið í síberíska
dverg svaninum var hærra, um 33
prósent.
Olli skemmdum
innandyra
Stuttu eftir klukkan sjö á laugar-
dagsmorgun var maður hand-
tekinn í húsnæði fyrirtækis í
vesturborginni. Sá hafði brot-
ið rúðu og farið inn í húsið þar
sem hann var búinn að valda
einhverjum skemmdum innan-
dyra. Hann var vistaður í fanga-
geymslu í kjölfarið.
Þrír ökumenn voru teknir
grunaðir um ölvunarakstur að-
faranótt laugardags. Þar af hafði
einn ekið á vegrið á Suðurlands-
vegi við Sandskeið. Hann var
ómeiddur en grunaður um
ölvun og verður vistaður í fanga-
geymslu þar til runnið hefur af
honum. Hinir tveir voru látnir
lausir eftir skýrslutöku.