Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 5. nóvember 2012 Mánudagur
Kirkjan brást börnunum
n Þöggun innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi
E
igum við ekki bara að biðja fyrir
honum, sagði nunna við eitt
af fórnarlömbum séra George
þegar hún treysti henni fyrir því
að hann hefði misnotað sig kynferðis-
lega þegar hún var barn og var nem-
andi við Landakotsskóla þar sem hann
var skólastjóri. Þetta kemur fram í
skýrslu rannsóknarnefndar kaþólsku
kirkjunnar á Íslandi en skýrslan var
gerð opinber á föstudaginn. Í henni
má sjá að viðbrögð nunnunnar eru
dæmigerð fyrir það hvernig fólk innan
kirkjunnar brást við þegar kvartað var
undan séra George og Margréti Müller
sem kenndu við skólann í hátt í hálfa
öld; George var skólastjóri en Margrét
var kennari.
Nefndin komst að þeirri niður-
stöðu að þöggun hafi átt sér stað innan
kirkjunnar varðandi þessi mál og þrátt
fyrir að vitað sér til þess að kirkjunni
hafi verið sagt frá háttsemi þeirra þá
eru ekki til nein gögn um það.
Af þeim þrjátíu fyrrverandi nem-
endum Landakotsskóla sem rann-
sóknarnefndin ræddi við sögðu átta að
þau hefðu orðið fyrir kynferðislegu of-
beldi en fleiri lýstu líkamlegu og and-
legu ofbeldi. Í flestum tilvikunum voru
séra George og Margrét gerendurnir
en þó er sagt frá tveimur öðrum prest-
um og einum kennara sem eru sakaðir
um kynferðislegt ofbeldi.
Í skýrslunni má lesa hryllilegar
frásagnir fyrrverandi nemenda sem
lýsa því hvernig þeim var misþyrmt
og þau niðurlægð af kennurum sín-
um. Í flestum tilvikum voru það séra
George og Margrét Müller sem brutu
gegn börnunum en einnig er sagt frá
einum kennara, sem nokkrar stelp-
ur kærðu árið 1994 en kæran var látin
niður falla, og tveimur prestum sem
eru sakaðir um kynferðisbrot, þessir
þrír einstaklingar eru ekki nafngreind-
ir líkt og George og Margrét.
Fyrsta brotið sem sagt er frá í skýr-
slunni er frá árinu 1954 sem er sama ár
og George kom til landsins og yngsta
dæmið um kynferðisbrot er frá 1988.
Í skýrslunni er Margréti meðal annars
lýst af fyrrverandi nemendum sínum
sem: „illmenni,“ „bölvaðri skepnu“,
„geðveikri“, „morðingja“ og „hrein-
ræktuðum sadista.“ n
Vinnueftirlitið skoðaði
legudeild landspítala
n „Það barst ósk um að við skoðuðum þessar aðstæður“
V
innueftirlitið fór í vettvangs-
ferð á legudeild á Landspít-
alanum í síðastliðinni
viku. Ekki er enn komið í
ljóst hvort eftirlitið muni senda
frá sér einhver tilmæli til spítal-
ans vegna aðstæðna á deildinni en
eftirlitinu barst ábendingum um
mikið álag og slæma stöðu á göng-
um deildarinnar. Steinar Harðar-
son, svæðisstjóri Vinnueftirlitsins,
segir að árlega fari eftirlitið í fjölda
slíkra vettvangsathugana og að
enn sé óvíst hvort og þá hvernig
verði brugðist við heimsókninni
á Landspítalann. Hann staðfest-
ir að ábending hafi borist um að
margt fólk þyrfti að dvelja á gangi
deildarinnar en slíkt getur skapað
hættu, meðal annars ef upp kemur
eldur á deildinni.
Fara í margar vettvangsferðir
„Þetta var nú bara ósköp venjuleg
heimsókn til að kanna aðstæður
á vinnustað, sem við förum oft í.
Á grundvelli þessarar heimsóknar
voru ekki lagðar fram neinar kröf-
ur að sinni,“ segir Steinar og bætir
við að það sé mögulegt að eftirlitið
muni leggja fram ábendingar eða
óska eftir frekari upplýsingum frá
spítalanum. „Það barst ósk um að
við skoðuðum þessar aðstæður.“
Steinar segir að yfirleitt þegar
kvartanir berist vegna of margra
sjúkrarúma á göngum spítalanna sé
helst litið til þess hvort sjúkrarúmin
loki eða hefti aðgengi einstaklinga ef
rýma þarf húsnæðið. Hann segir að
oft taki eldvarnareftirlitið þátt í að-
gerðum sem þessum en hann segist
ekki hafa upplýsingar um hvort svo
hafi verið í þessu tilfelli. „Þetta eru
viðvarandi eða tímabundin vanda-
mál sem koma upp reglulega en það
liggur ekki fyrir niðurstaða úr þessari
heimsókn og við vitum ekki á þessu
stigi hvort eða hvaða fyrirmæli eða
ábendingar við gefum,“ segir hann.
Sjúkrarúmum fækkar
Í lok október greindi Ríkisútvarpið
frá því að allt að tólf manns þyrftu að
liggja í rúmum á göngum Landspít-
alans um helgar þar sem ekki væru
laus rúm á deildum. Þar kom fram
að sjúkrarúmum hefur fækkað um-
talsvert á síðustu þremur árum þar
sem breyta hefur þurft legudeildum
í dagdeildir. Sjúkrarúmum hefur
fækkað um tuttugu prósent frá
hruni, úr um það bil 840 rúmum í
tæplega 660.
Vilhelmína Haraldsdóttir,
fram kvæmdastjóri lyflækninga
á Landspítala, sagði í samtali við
RÚV, að á bilinu tveir til þrír sjúk-
lingar þyrftu að vera á göngum spít-
alans á hverri deild þar sem hvað
flestir sjúklingar væru. „Þetta er
auðvitað ekki gott vegna þess að það
er þröngt fyrir starfsfólk og sjúklinga
og hreinlega bara er ekki fólki bjóð-
andi,“ sagði hún.
Einn stærsti vinnustaðurinn
Vinnueftirlitið hefur það hlutverk
að tryggja að öryggi starfsmanna
sé gætt, viðeigandi vinnuaðstöðu
þeirra og að ráðstafanir séu fyrir
hendi til að koma í veg fyrir slys á
vinnustað. Landspítalinn er einn
stærsti vinnustaður á landinu og
fylgist eftirlitið með vinnuaðstæð-
um fólks og er því ekki óalgengt að
eftirlitið kanni aðstæður. Ekki liggja
fyrir upplýsingar um hversu margar
heimsóknir Vinnueftirlitið hefur
farið á Landspítalann á undanförn-
um mánuðum og árum en í árs-
skýrslu eftirlitsins kemur fram að
3.987 fyrir tækjaheimsóknir hafi ver-
ið farnar á árinu 2011. Samkvæmt
sömu skýrslu sendi eftirlitið frá sér
7.918 fyrirmæli og ábendingar til
fyrirtækja. n
Á ganginum Vinnueftirlitið fór á
Landspítalann eftir að þeim barst
ábending um að mörg sjúkrarúm
væru á gangi á einni af legudeild
spítalans. Hætta getur skapast af
slíku. Mynd ÁSgEir M. EinarSSon
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
rannsóknarnefndin Í skýrslunni kemur fram að starfsfólk innan kirkjunnar hafi verið
látið vita af ofbeldi í einhverjum tilvikum en þrátt fyrir það hafi ekkert verið gert. Myndin er
tekin á blaðamannafundi sem nefndin hélt á föstudag.
Fengu tilmæli
með sms
Aðfaranótt laugardags var kallaður
út liðsauki frá björgunarsveitum á
Suðurnesjum og úr Árnessýslu til
aðstoðar á höfuðborgarsvæðinu.
Um tíu aðstoðarbeiðnir bárust
vegna veðursins. Verkefnin voru af
ýmsum toga, en björgunarsveitin
fékk veður af hjólhýsum að splundr-
ast, þakplötum sem voru að fjúka á
bíla og frétti af brotnum gluggum.
Einnig urðu slys á fólki sem hrein-
lega tókst á loft í mestu hviðunum.
Björgunarsveitir á landsbyggðinni
fóru ekki varhluta af þessu veðri. Í
Staðarsveit, Hvolsvelli, Þingvalla-
sveit og Mýrdal tryggðu björgunar-
sveitir þök á íbúðarhúsum og hlöð-
um og á Kirkjubæjarklaustri var
girðingin við gervigrasvöllinn að
fjúka.
Prufa var gerð á viðvörunarkerfi
almannavarna og lögreglu á föstu-
dagkvöld þegar plötur tóku að losna
af þaki stórrar skemmu á Esjumel-
um. Óttast var að mikið af þak-
plötum myndi dreifast yfir Vestur-
landsveginn og Leirvogstunguhverfi
Mosfellsbæjar.
Viðvörunarkerfið býður upp á að
send séu hóp-sms á alla síma sem
eru innan ákveðins svæðis. Íbúar í
Leirvogstunguhverfi fengu því skila-
boð um að forðast að vera á ferli og
halda sig hlémegin í hverfinu. Tókst
þessi tilraun ágætlega en halda þarf
áfram að slípa kerfið til og sníða af
vankanta að sögn Landsbjargar.
Sex fíkni-
efnamál
Erill var hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu aðfaranótt laugar-
dags. Alls komu upp sex fíkni-
efnamál en lögreglumenn frá
fíkniefnadeild voru á ferðinni í
miðbænum. Fimm mál voru af-
greidd á vettvangi en einn aðili
vistaður í fangageymslu þar sem
ekki var unnt að ræða við hann
sökum ástands.
Einn ökumaður var tekinn
grunaður um ölvun við akstur en
hann var látinn laus að lokinni
blóð og skýrslutöku. Nokkur minni
háttar líkamsárásarmál komu upp
en í einu þeirra voru tveir karl-
menn vistaðir í fangageymslu þar
sem þeir voru ekki með skilríki og
gátu ekki gert grein fyrir sér.
Enginn
ökumaður
Umferðaróhapp varð á
Kalkofnsvegi gegnt Hörpu klukkan
fimm aðfaranótt laugardags. Þar
skemmdist ein bifreið mikið. Þrír
voru í bifreiðinni en enginn vildi
gangast við því að hafa ekið bíln-
um. Þeir voru fluttir á lögreglu-
stöðina við Hverfisgötu. Draga
þurfti bílinn af vettvangi. Málið er
nú í rannsókn að sögn lögreglu.