Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Side 3
Viltu Vera tíkin mín?
Fréttir 32 Fréttir
ákærða, það er að honum hafi mátt
vera ljóst að hann væri að brjóta
gegn einstaklingi á tiltekinn hátt. Til
dæmis í aðstæðum þar sem brota
þolinn hefur við yfirþyrmandi að
stæður ekki sýnt neina mótspyrnu.“
Stelpur í þóknunarhlutverkinu
Ef aftur er vitnað í Gail þá benti hún á
að strákar fæddust ekki sem nauðg
arar. Sigríður er því sammála. „Við
sem eigum unga drengi vitum að þeir
fæðast ekki slæmir. Reyndar verðum
við foreldrarnir hálf örvæntingar
fullir yfir þessum birtingarmynd
um því þeir fá ákveðna mynd af
kynlífi á unglingsárunum. Eðli máls
ins samkvæmt eru þeir spenntir og
sanka að sér efni til að fræðast, sér
staklega á netinu og þá er þetta það
fyrsta sem margir sjá og halda þess
vegna að þetta sé eðlilegt. Þannig
að við þurfum að beina fræðslu og
forvörnum að ungmennum og ekki
síst að drengjunum okkar, því þeir
eru bara öðruvísi en stelpurnar og
sækja meira í klám samkvæmt rann
sóknum.
Stelpurnar horfa meira til ímynd
anna, þær horfa á leikarana, söngv
arana og skoða tískublöðin. Þar er
þetta ljósbláa klám núna og það sem
er svo merkilegt er að þar eru kyn
in sett í sömu hlutverk og í kláminu.
Þær eru alls staðar fáklæddar að gera
sig kynæsandi og ögrandi fyrir karl
mennina og eru oft í niðurlægjandi
hlutverkum. Þótt við séum orðin svo
samdauna þessu að okkur þyki það
ekkert tiltökumál því okkur finnst
þetta svo saklaust þá er það ekkert
endilega skárra,“ segir Sigríður.
Þótt stelpur séu sterkar á öðrum
sviðum virðist oft vanta upp á sjálfs
traustið þegar það kemur að þessu.
„Þetta gengur allt út á útlitsdýrkun
og viðurkenningu, að fá sem flest
„læk“ og allt þetta. Þær fara í það
að þóknast strákunum, láta sig hafa
það og sýna lítið mótstöðuafl þegar
þeir ganga fram af þeim. Nákvæm
lega eins og þær eiga að vera í klám
myndunum. Þetta er banvæn blanda
og við þurfum að styrkja bæði kynin
en þurfum kannski mismunandi að
ferðir til þess.“
Ljósbláa klámið í
almannarýminu
Að sögn hennar standa foreldr
ar margir ráðalausir gagnvart þess
um vanda og þurfa á meiri aðstoð
að halda. Víða hefur verið brugðið
á það ráð að styrkja forvarnarstarf
innan skólanna, í Noregi var það
til dæmis sett inn í aðgerðaráætl
un gegn nauðg unum 2012–2014 að
styrkja sjálfsmynd ungmenna og
kenna þeim að setja sjálfum sér og
öðrum mörk. „Þetta er eitthvað sem
allur heimurinn er að hugleiða,“ seg
ir Sigríður.
Það er þó ekkert einfalt við þetta.
Eins og Sigríður segir er klámið allt
í kringum okkur. Auðveldast er að
nálgast það á netinu en hér á landi
er líka hægt að fá klám í klámbúðum,
bókabúðum og í sjónvarpinu. Svo er
spurning hvað skal skilgreina sem
klám, líkt og Sigríður segir er þetta
ljósabláa klám líka í tískutímarit
um, tónlistarmyndböndum og bók
menntum. „Allt þetta ljósbláa klám er
úti í almannarýminu. Þú getur alveg
eins flett tímaritum á borð við Sports
Illustrated til að sjá þessar myndir.
Þannig að ef við ætlum að loka á allt
klámfengið efni þá þurfum við að loka
á ansi mikið,“ segir Sigríður og bæt
ir því við að nú sé sérstök nefnd að
skoða skilgreiningar á klámi í hegn
ingarlögunum og þar sé kannski hægt
að vinna betur með ákveðna þætti.
Barnaklámið forgangsmál
„Við höfum þurft að forgangsraða og
höfum fyrst og fremst reynt að vinna
gegn barnakláminu. Miðað við þann
mannskap og fjármagn sem við höf
um þá hafa kraftarnir farið í það.
Annað hefur verið á hliðarlínunni.
Það er ekki þar með sagt að við telj
um ekki að það þurfi að skoða það
betur.
En það er alveg ljóst að allir sem
eru að pukrast með þetta fara á
netið. Við þurfum að vopnast gegn
því. Eins og staðan er í dag þá er ekki
refsivert að horfa á klám eða eiga
það, nema náttúrulega barnaklám,
það er refsivert að eiga og horfa á
það. Þannig að við erum að skoða
það hvort það séu leiðir til að tak
marka aðgengið. Þetta er náttúru
lega alþjóðlegt vandamál og vinna
sem þarf að fara þvert á landamæri.
Það er auðvitað þannig að ef það
er hægt að finna eitthvað upp þá er
hægt að loka á það líka, en það segja
sumir að þetta sé eins og illgresi sem
skýtur alls staðar upp rótum. Ef þú
plokkar á einum stað þá rýkur það
upp á öðrum.
Svo segja aðrir að það sé ekki rétta
leiðin að banna klám því það myndi
bara gera það enn meira spennandi
í hugum ungmenna. Það eru góð rök
fyrir því. Þannig að ég veit ekki alveg
hvað er til ráða.“ n
n Sumir sem teknir eru fyrir kynferðisbrot sjá ekkert athugavert við verknaðinn n Greinilegar stælingar á klámmyndböndum
Mánudagur 5. nóvember 2012
Algengar birtingarmyndir Allt í kringum ok
kur er verið að senda skilaboð um kynhlut-
verkin og Sigríður segir að þótt okkur kunni
að þykja það saklaust þá hafi það samt se
m
áður skaðleg áhrif.
Af vinsælli klámsíðu Á meðal vinsælustu myndbandanna á vinsælli klámsíðu voru
misjöfn myndbönd. Á meðal þess sem mátti sjá var myndband af manni sem gengur inn
í herbergi sofandi stúlku og kemur fram vilja sínum, barnalegar stúlkur og í enn öðrum líkam-
legu ofbeldi var beitt. Í einu slíku myndbandi sem fékk hvað mest áhorf og fjórar og hálfa
stjörnu af fimm var konu misþyrmt hrottalega með öllum mögulegum ráðum þannig að hún
var nánast fallin í yfirlið og farin að hágráta.
Ögmundur
í framboð
Ögmundur Jónasson gefur kost
á sér í 1. sæti Vinstrihreyfingar
innar – græns framboðs í Suð
vesturkjördæmi að því er kem
ur fram í yfirlýsingu frá honum
sem hann sendi frá sér á sunnu
dag. Ögmundur, sem hefur setið
á þingi frá árinu 1995, leggur í
yfirlýsingu sinni meðal annars
áherslu á jöfnuð – fyrir honum
hafi hann alla tíð barist og í
jöfnuði felist réttlæti. Jafnaðar
samfélag sé kröftugra en sam
félag ójöfnuðar og betur til þess
fallið að skapa verðmæti.
Ögmundur nefnir einnig að í
ráðherratíð sinni hafi verið sett
í forgang rannsókn á meintum
efnahagsbrotum. Þá leggi hann
ríka áherslu á að standa vörð
um auðlindir lands og sjávar.
„Ég vinn nú að endurskoðun á
lögum um eignarhald erlendra
aðila á landi en ásælni peninga
manna í jarðnæði minnir okkur
á mikilvægi varðstöðu í þessu
efni,“ segir hann í yfirlýsingunni.
Steingrímur
vill leiða
Steingrímur J. Sigfússon hefur
tilkynnt um að hann muni
sækjast eftir því að leiða lista
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Norðausturkjör
dæmi. Í fréttatilkynningu sem
hann sendi frá sér í dag kem
ur fram að hann hafi tilkynnt
formanni kjörstjórnar VG um
þátttöku sína í forvali flokksins
vegna komandi alþingiskosn
inga. Steingrímur segir 30 ára
reynslu sína af setu á Alþingi
geta verið áframhaldandi lóð
á vogarskálar baráttunnar fyr
ir samfélagi jöfnuðar og sjálf
bærrar þróunar.
„Hugur minn stendur til þess
að viðhalda í fyrsta lagi þeirri
sterku stöðu sem Vinstrihreyf
ingin – grænt framboð hefur
byggt upp, bæði í Norðaustur
kjördæmi sem og á landsvísu.“
Steingrímur segist vilja leggja
árangur ríkisstjórnarinnar í dóm
kjósenda.
Ölvun og ólæti
Mikil ölvun var í miðborg Reykja
víkur aðfaranótt sunnudags.
Töluvert var um áflog og ólæti að
sögn lögreglu, en engin alvarleg
meiðsl eða líkamsárásir, að því
er lögregla taldi. Tíu manns gistu
fangageymslur. Einnig þurfti lög
regla að hafa afskipti af tveimur
veitingastöðum þar sem dyra
verðir höfðu ekki réttindi, að því
er fram kemur í tilkynningu.