Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Page 4
4 Fréttir 5. nóvember 2012 Mánudagur
Mikill stuðningur við Betra líf
n Um 22.500 landsmanna skrifað undir kröfuna um Betra líf
S
amkvæmt skoðanakönnun
Capacent Gallup eru 78,4
prósent þeirra sem afstöðu
tóku hlynnt því að 10 pró-
sent af áfengisgjaldi renni til nýrra
úrræða fyrir áfengis- og vímuefna-
sjúklinga og fjölskyldur þeirra.
Gunnar Smári Egilsson, formað-
ur SÁÁ, segir á heimasíðu samtak-
anna að það sé í takt við það sem
einstaklingar innan samtakanna
verði varir við. Á heimasíðunni
segir hann enn fremur: „Það er mik-
ill og útbreiddur vilji meðal fólks að
ráðist verði í þjóðarátak til að færa
þolendum áfengis- og vímuefna-
vandans betra líf. Stjórnvöld hljóta
að bregðast við með viðeigandi
hætti. Það er ekki oft sem þau fá jafn
skýr skilaboð frá kjósendum.“
Samkvæmt könnuninni segjast
26,2 prósent landsmanna vera að
öllu leyti hlynnt kröfunni, 20,0 pró-
sent mjög hlynnt og 19,8 prósent
frekar hlynnt. Hins vegar segjast
7,7 prósent vera að öllu leyti andvíg
kröfunni, 4,6 prósent mjög andvíg
og 5,9 prósent frekar andvíg. Sam-
tals sögðust því 66,0 prósent vera
fylgjandi kröfunni, 18,2 prósent
voru andvíg henni en 15,9 prósent
tóku ekki afstöðu. Af þeim sem tóku
afstöðu sögðust 78,4 prósent fylgj-
andi kröfunni en 21,6 prósent and-
víg henni.
Nokkur munur er á afstöðu kynj-
anna. Þannig segjast 68 prósent
karla vera hlynntir því að 10 prósent
áfengisgjaldsins verði notað með
þessum hætti en 89 prósent kvenna.
Könnunin var gerð 25. október
til 1. nóvember síðastliðinn. Þetta
var netkönnun. Úrtakið var 1.450
manns, 613 svöruðu ekki en 837
svöruðu. Svarhlutfallið var því 57,7
prósent. Könnun var gerð fyrir SÁÁ
en greidd af velunnurum samtak-
anna.
Þorsteinn fékk 335
milljónir í arð 2011
n Þorsteinn Már á 2,8 milljarða króna n 1.450 milljóna arður á fjórum árum
F
orstjóri Samherja, Þorsteinn
Már Baldvinsson, fékk 335
milljóna króna arð inn í einka-
hlutafélag sitt í fyrra. Félag
Þorsteins heitir Eignarhaldsfélagið
Steinn. Þetta kemur fram í ársreikn-
ingi Steins sem skilað var inn til rík-
isskattstjóra þann 27. september
síðastliðinn. Samherji er stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins
og eitt stærsta útgerðarfyrirtæki
Evrópu. Félagið er með starfsemi
hér á landi, í Bretlandi, á megin-
landi Evrópu, í Afríku og víðar.
Besta rekstrarár Samherja
Steinn á tæp fjörtíu prósent í Sam-
herja en næststærsti hluthafinn er
Kristján Vilhelmsson, útgerðar-
stjóri fyrirtækisins. Steinn skilaði
hagnaði upp á rúmlega 373 millj-
ónir króna í fyrra. Félagið átti í lok
síðasta árs eignir upp á meira en
2,8 milljarða króna. Á móti þess-
um eignum voru litlar sem engar
skuldir.
Afkoma Samherja í fyrra var
með besta móti: 8,8 milljarða
hagnaður var á rekstrinum. Um er
að ræða besta rekstrarárið í sögu
fyrirtækisins. Í tilkynningu frá fé-
laginu þar sem ársuppgjörið var
kynnt kom fram að um 60 prósent
af starfseminni í fyrra hafi farið
fram erlendis.
Í tilkynningu var haft eftir Þor-
steini Má að hann væri ánægður
með síðasta rekstrarár: „Ég get
ekki annað en verið mjög ánægður
með afkomu Samherja og erlendra
dótturfélaga á árinu 2011. Félögin
hafa sótt fram á mörgum sviðum
og hefur starfsmönnum tekist afar
vel að leysa þau krefjandi verkefni
sem fylgdu auknum umsvifum á
árinu 2011, með tilkomu ÚA og yf-
irtöku reksturs félaga í Frakklandi
og á Spáni. Rekstur dótturfélaga
Samherja erlendis gekk vel á árinu
en um 60% af veltu samstæðunnar
koma frá þessum félögum.”
Meira en milljarður í arð
Á tímabilinu 2007 til ársins 2010
námu arðgreiðslur Samherja til
hluthafa sinna tæplega 3 milljörð-
um króna. Með arðgreiðslunni í
fyrra hækkar þessi upphæð í nærri
4 milljarða króna.
Eignarhaldsfélag Þorsteins tók
við arði upp á meira en 1.100 millj-
ónir króna á árunum 2007 til 2010.
Með arðgreiðslunni sem Steinn
fékk frá Samherja í fyrra hækkar
þessi upphæð í nærri 1.450 millj-
ónir króna. Eignarhaldsfélag-
ið situr því á gríðarlegum eignum
enda hefur starfsemi Samherja
gengið einkar vel síðustu ár.
Nærri hálfur milljarður
tekinn út
Í ársreikningi Steins kemur fram að
Þorsteinn tók ekki persónulega út
arð úr félaginu í fyrra. Engar arð-
greiðslur eru út úr félaginu heldur
verður hagnaðurinn af starfsemi
Samherja eftir inni í félaginu. Hins
vegar greiddi Steinn út hlutafé úr
félaginu til hluthafa sinna, sam-
tals meira en 435 milljónir króna.
Þá seldi Steinn 50 milljóna króna
eignarhlut í Samherja í fyrra.
Eftir stendur að eigið fé Steins
er rúmlega 2,8 milljarðar króna.
Um er að ræða hlutafé, lögbundinn
varasjóð og óráðstafað eigið fé. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Besta rekstrarárið
Besta rekstrarár Sam-
herja var í fyrra. Þor-
steinn Már Baldvinsson
fékk 335 miljóna arð til
einkahlutafélags síns.„Ég get
ekki ann-
að en verið mjög
ánægður með
afkomu Sam-
herja og erlendra
dótturfélaga á
árinu 2011.
Arðgreiðslur
til hluthafa
Samherja
2011: 969 milljónir
2010: 769 milljónir
2009: 657 milljónir
2008: 922 milljónir
2007: 613 milljónir
Arðgreiðslur 2007 til 2011:
3.930 milljónir króna
Líkamsárás
á Bifröst
Slagsmál brutust út á milli
nemenda við Háskólann á Bif-
röst aðfaranótt laugardags
eftir skemmtanahald í skólan-
um. Samkvæmt heimildum DV
var einn nemandi sleginn með
flösku í höfuðið með þeim af-
leiðingum að hann hlaut skurð
á höfði. Hann var fluttur á
sjúkrahús til aðhlynningar en
meiðsl hans munu ekki vera
talin alvarleg. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni í Borg-
arnesi er vitað hver gerandinn
er og mun málið vera í rann-
sókn. Ekki er vitað á þessari
stundu hvort kæra hafi verið
lögð fram í málinu.
Sækist eftir
2.–3. sæti
Þorsteinn Magnússon lögmað-
ur sækist eftir 2.–3. sæti á lista
Framsóknarflokksins í Reykja-
vík. „Meðal þeirra málefna
sem ég vil leggja áherslu á er
að bæta skilyrði fyrir atvinnu-
uppbyggingu og nýfjárfestingu
ásamt því að skapa fyrirtækjum
hagstæðara rekstrarumhverfi,“
segir meðal annars í yfirlýsingu
frá Þorsteini. Í yfirlýsingunni
segist hann vera frjálslynd-
ur miðjumaður og stjórnmála-
áherslur hans falli vel að
grunngildum og stefnu Fram-
sóknarflokksins. Þorsteinn er
nýráðinn framkvæmdastjóri
Óbyggðanefndar en hann hefur
líkað starfað sem héraðsdóms-
lögmaður á Lex og í fjármála-
ráðuneytinu.
Vill betra líf Gunnar Smári Egilsson,
formaður SÁÁ, seginn mikinn og útbreiddan
vilja meðal fólks til að ráðist verði í þjóðar-
átak til að færa þolendum áfengis- og
vímuefnavandans betra líf.