Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Page 10
10 Fréttir 5. nóvember 2012 Mánudagur
n Skinney-Þinganes eignaðist 5,6 milljarða eignir í sumar n Halldór á lítinn hlut
Ú
tgerðarfélagið Skinney-Þinga-
nes á Höfn í Hornafirði, sem
í september keypti þúsund
tonna þorskkvóta af Brimi,
eignaðist 5,6 milljarða króna eignir
í sumar þegar dótturfélag þess, Fjör-
ur ehf., rann inn í Skinney. Fjörur
hagnaðist um 2,6 milljarða króna
á viðskiptum með hlutabréf í Vá-
tryggingafélagi Íslands (VÍS) á árun-
um 2002 til 2006.
Þau hlutabréf höfðu áður verið í
eigu ríkisbankans Landsbanka Ís-
lands. Þau voru seld til Skinneyjar,
Kaupfélags Skagfirðinga og tengdra
félaga, áður en eignarhaldsfélagið
Samson keypti Landsbankann í
árslok 2002. Samruni Skinneyjar
og Fjara gekk í gegn í sumar sam-
kvæmt samrunaáætlunum félag-
anna tveggja. Við samrunann átti
Fjörur 5,6 milljarða eignir en skuld-
aði einungis 60 milljónir.
Skinney-Þinganes er í eigu ná-
inna ættingja Halldórs Ásgrímsson-
ar, fyrrverandi utanríkis- og forsætis-
ráðherra, og á hann sjálfur lítinn hlut
í því. Halldór beitti sér fyrir því sem
ráðherra árið 2002 að ríkisbank-
inn Landsbankinn seldi 50 prósenta
hlut sinn í VÍS áður en gengið var
frá sölunni á bankanum til Samson.
Skinney-Þinganes var einn af þeim
aðilum sem keypti þessi hlutabréf
í gegnum dótturfélag sitt Hesteyri,
sem það átti með Kaupfélagi Skag-
firðinga, og hagnaðist ævintýralega
á þeim.
Tóku loks við hagnaðinum
Samruninn þýðir í reynd að Skinney-
Þinganes hefur nú loksins tekið við
þeim milljörðum sem félagið græddi
í dótturfélagi sínu á viðskiptunum
með hlutabréfin í VÍS. Orðrétt segir
um samrunann í greinargerð stjórna
Skinneyjar-Þinganess og Fjara sem
fylgir samrunaáætlun félaganna: „Þá
telja stjórnir félaganna að rétt sé að
sameina rekstur dótturfélaganna
Fjara ehf. og Skarðsfjara ehf. þar sem
þeim verkefnum sem þau voru stofn-
uð til að sinna er nú lokið.“
Fjörur var stofnað síðla árs 2006
utan um hlutabréfaeign Skinneyjar-
Þinganess í Exista – félagið hafði fyrr
á árinu selt hlutabréf sín í VÍS í skipt-
um fyrir hlutabréf í Exista. Bókfærður
hagnaður Fjara á árinu 2006 var 2,6
milljarðar króna. Orðrétt segir í árs-
reikningi félagsins fyrir 2006: „Félag-
ið seldi á árinu allan eignarhlut sinn
í Exista, í árslok voru um tveir þriðju
hlutar söluandvirðisins ógreiddir og
hafa því ekki áhrif á sjóðstreymi.“
Þáttur Halldórs
Í minnisblaði sem Ríkisendur-
skoðun vann árið 2005 um hæfi
Halldórs Ásgrímssonar til að fjalla
um söluna á hlut ríkisins í Búnaðar-
bankanum kemur fram að Skinney-
Þinganes hafi eignast hlutabréf í VÍS
í nóvember árið 2002. Í ágúst það ár
keypti Skinney-Þinganes 50 prósenta
hlut í Hesteyri hf. af Kaupfélagi Skag-
firðinga.
Á sama tíma eignaðist Hesteyri
hlutabréf í eignarhaldsfélaginu Keri
og nam hlutabréfaeignin um 22 pró-
sentum. Ker átti síðar eftir að verða
einn af kaupendum Búnaðarbank-
ans og var Ólafur Ólafsson stærsti
hluthafi þess. Hesteyri skipti svo á
þessum hlutabréfum í Keri og 25
prósenta hlut í VÍS. Tæplega tveim-
ur vikum síðar, þann 29. ágúst, var
gengið frá því að að Landsbankinn
seldi S-hópnum helmingshlut sinn í
VÍS. Þá var S-hópurinn orðinn ein-
ráður í vátryggingafélaginu og eig-
andi alls hlutafjár í því. Skinney-
Þinganes eignaðist því bréfin í VÍS
eftir að búið var að ganga frá sölu á
hlut Landsbankans í VÍS.
Í viðtali við DV í fyrra sagði Hall-
dór aðspurður að hann hefði aldrei
heyrt minnst á félagið Fjörur: „Ég
erfði lítinn hlut hlutabréfa í félaginu
[Skinney-Þinganesi, innskot blaða-
manns] eftir foreldra mína. Faðir
minn lést 1996 og móðir mín sat
í óskiptu búi þar til hún lést 2004.
Þá kom í minn hlut 1/5 hluti af
þeirra hlutafé, sem gefur mér hvorki
möguleika né áhuga til afskipta
eða áhrifa í félaginu. Félagið Fjör-
ur ehf. hef ég aldrei heyrt nefnt og
hef engar upplýsingar um. Félagið
Hest eyri ehf. hef ég heyrt getið um,
en hef engar upplýsingar um starf-
semi þess.“
Halldór vildi hins vegar ekki svara
spurningum blaðsins um félagið.
Selt til að grynnka á skuldum
Líkt og áður segir var kaupverð kvót-
ans sem Skinney keypti af Brimi ríf-
lega 2 milljarðar króna, nokkru lægri
upphæð en bókfærður hagnaður
Skinneyjar af sölunni á bréfunum í
Exista, sem félagið fékk sem kaup-
verð fyrir VÍS bréfin.
Guðmundur Kristjánsson, eig-
andi Brims, staðfestir að salan á
kvótanum hafi átt sér stað nú í sept-
ember. Líkt og komið hefur fram
í fréttum var kaupverðið rúmir 2
milljarðar króna. Guðmundur seg-
ir að Brim hafi selt kvótann til að
grynnka á skuldum og til að ná sér
í peninga til að fjármagna kaup á
nýju skipi sem félagið hefur fjár-
fest í. Hann segir jafnframt að Brim
eigi eftir viðskiptin um 1.200 tonna
þorskkvóta.
Slík kvótakaup eiga sér yfirleitt
ekki stað með eingreiðslu út í hönd,
um er að ræða svo háar fjárhæðir.
En ljóst er að eignir Fjara, sem stofn-
að var utan um viðskipti með hluta-
bréf sem áður voru í eigu ríkisins,
hefðu dugað fyrir fjárfestingunni.
Liður í einkavæðingunni
Samkvæmt skrifum um einkavæð-
ingu bankanna var þessi sala á
VÍS-bréfum Landsbankans liður í
einkavæðingu bankanna: S-hópur-
inn vildi eignast Landsbankann,
líkt og Samson, en til að hópurinn
sætti sig við að fá einungis Bún-
aðarbankann þurfti hópurinn að
fá eitthvað í staðinn. VÍS-hlutur-
inn gegndi þessu hlutverki og sætti
Framsókn og S-hópinn við sinn hlut
í einkavæðingunni vegna þessar-
ar sölu. Óánægja S-hópsins með þá
staðreynd að Samson fékk að kaupa
Búnaðarbankann birtist meðal
annars í því að Ólafur Ólafsson, einn
af stjórnendum S-hópsins, hringdi
í Halldór Ásgrímsson og skammaði
hann eftir að þessi niðurstaða lá fyr-
ir.
Halldór Ásgrímsson hafði svo aft-
ur bein afskipti af þessu einkavæð-
ingarferli. Líkt og kom fram í út-
tekt um einkavæðingu bankanna í
Fréttablaðinu árið 2005 hafði Hall-
dór Ásgrímsson áður hótað því að
hætta við einkavæðingarferli bank-
anna ef hlutur Landsbankans í VÍS
yrði ekki seldur.
Skipt á VÍS-bréfum og Exista
Hesteyri hélt utan um hlutabréfin í
Vátryggingafélagi Íslands næstu árin
þar á eftir. Um mitt ár 2006, keypti
eignarhaldsfélagið Exista allt hlutafé
í Vátryggingafélagi Íslands og greiddi
fyrir með hlutabréfum í Exista. Þar á
meðal var fjórðungshlutur Hesteyrar
í tryggingafélaginu. Hesteyri fékk í
staðinn 5,7 prósenta hlut í Exista.
Í lok desember 2006 var tilkynnt
um það í Kauphöll Íslands að Hest-
eyri hefði selt 1,91 prósents hlut í Ex-
ista fyrir 4,9 milljarða króna. Geng-
ið á bréfunum var þá 23. Bókfærður
hagnaður Fjara af viðskiptunum
með bréfin í Exista var rúmlega 2,6
milljarðar króna, líkt og áður segir.
Hagnaðurinn af starfsemi félags-
ins þetta ár var einnig 2,6 milljarðar
króna og námu eignir þess rúmlega
6,2 milljörðum króna. Stjórnarmenn
í Fjörum á þessum tíma voru Ing-
ólfur Ásgrímsson, bróðir Halldórs,
Aðalsteinn Ingólfsson, bróðursonur
Halldórs, og Gunnar Ásgeirsson.
Nú, sex árum eftir söluna á Exista
bréfunum og tíu árum eftir kaupin
á VÍS bréfunum, hefur þessi hagn-
aður af hlutabréfunum í VÍS loks-
ins runnið inn í Skinney-Þinganes
og mun eignarhaldsfélagið Fjörur
ehf. verða afskráð í kjölfarið á þessari
sameiningu. Skinney getur hins
vegar notað eignir Fjara ehf. til að
fjárfesta í verðmætum líkt og þorsk-
kvóta.
Telja rétt að styrkja félagið
Í samrunaáætlun Fjara og Skinn-
eyjar-Þinganess kemur fram að
stjórn útgerðarfélagsins telji rétt að
styrkja félagið, stækka það og auka
hagkvæmni í rekstrinum. Er á það
bent að breytingar á stjórn fiskveiða
gætu haft slæm áhrif á rekstur Skinn-
eyjar og að mikilvægt sé að styrkja
innviði félagsins. „Það hefur verið
mat stjórnenda SÞ að æskilegt sé að
stækka félagið, til að styrkja rekstur
þess og auka hagkvæmni í veiðum
og vinnslu […] Það þykir því til ein-
földunar að sameina þessi þrjú félög,
sem bæði hafa sama tilgang og sam-
eiginlegan rekstur, auk þess sem
fyrirhugaðar breytingar á stjórn
fiskveiða, vinna á móti þeirri skyn-
samlegu stjórnun veiðanna sem í
þessu hefur falist, gangi frumvarpið
fram í þeirri mynd sem nú er.“
Kaup á þúsund tonna þorsk-
kvóta verða að teljast liður í slíkri
styrkingu. n
VÍS-peningarnir
fóru í kvótakaup
Spurningar DV til Halldórs
Ásgrímssonar sem hann
neitaði að svara í fyrra:
„Um miðjan ágúst 2002, rétt áður en ákveðið var að selja helmingshlut Landsbank-
ans (íslenska ríkisins) í VÍS, eignaðist Skinney-Þinganes helming hlutafjár í félaginu
Hesteyri. Í lok ágúst var hlutur ríkisins í VÍS seldur til hins svokallaða S-hóps eftir tímabil
sem kallað var „Sex daga stríðið um VÍS“. S-hópurinn var þá orðinn allsráðandi í VÍS.
Samkvæmt grein um einkavæðingu bankanna sem birtist í Fréttablaðinu 2005 áttir þú
að hafa hótað því innan ríkisstjórnarinnar að ekkert yrði af einkavæðingu bankanna ef
Landsbankinn myndi ekki selja hlut sinn í VÍS. Hluturinn í VÍS var því á endanum seldur út
úr bankanum. Nokkrum mánuðum síðar, í nóvember 2002, tryggði Hesteyri sé fjórðung
hlutafjár í VÍS. Þessi atburðarás er meðal annars rakin í minnisblaði sem Ríkisendur-
skoðun vann árið 2005 um hæfi þitt til að fjalla um söluna á ríkisbönkunum. Hesteyri
hélt utan um hlutinn í VÍS þar til 2006 þegar tryggingafélagið sameinaðist Exista. Þá
eignaðist Hesteyri hlutabréf í Exista. Hesteyri var í kjölfarið skipt upp í fjögur félög.
Félagið Fjörur er eitt af þeim og er það í eigu Skinneyjar-Þinganess. Bróðir þinn, Ingólfur,
og sonur hans, Aðalsteinn, sitja í stjórn félagsins og hafa gert frá upphafi. Árið 2006 seldi
Fjörur bréf sín í Exista með 2,6 milljarða hagnaði samkvæmt ársreikningi. Félagið á eignir
í dag sem verðmetnar eru á meira en 5,5 milljarða króna.
n 1. Er þetta saga sem þú þekkir ekki?
n 2. Áttu sér ekki stað nein samskipti á milli þín og stjórnenda Skinneyjar-Þinganess um
einkavæðingu VÍS áður en Skinney keypti hlut í Hesteyri um miðjan ágúst 2002? Mér finnst
dálítið sérstakt að Skinney hafi fjárfest í Hesteyri rétt áður en hlutur ríkisins í VÍS var seld-
ur, meðal annars með þinni aðkomu. Var fjárfestingin í Hesteyri og VÍS því ekki borin undir
þig af stjórnendum Skinneyjar – bróðursyni þínum og bróður – áður en lagt var út í hana?
n 3. Þekkir þú þá heldur ekki ástæðurnar fyrir því af hverju Skinney fjárfesti í Hesteyri og VÍS?
n 4. Vissir þú ekki af hagnaði Skinneyjar á VÍS-bréfunum fyrr en ég sagði þér frá honum hér
að ofan?“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Skinney fékk VÍS-gróðann
Útgerðarfélagið Skinney-Þinganes á
Höfn í Hornafirði tók við eignum Fjara
í sumar þegar félagið sameinaðist
útgerðinni. Halldór Ásgrímsson beitti sér
fyrir því árið 2002 að hlutabréf ríkisins í
VÍS yrðu seld. Einn af kaupendunum var
fjölskyldufyrirtæki hans Skinney.„Ég erfði
lítinn hlut
hlutabréfa í fé-
laginu eftir for-
eldra mína.