Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Side 11
Fréttir 11Mánudagur 5. nóvember 2012
hefur fækkað
um 10 prósent
O
pinberum störfum fækkaði
mikið í hruninu en þeim
hafði áður fjölgað talsvert.
Opinber störf á Íslandi voru
rúmleg sextán þúsund tals
ins árið 2011 en það er sambærilegt á
við fjölda opinberra starfa árið 2005.
Tölurnar birtast í svari fjármálaráðu
neytisins við fyrirspurn Unnar Brár
Konráðsdóttur, þingkonu Sjálfstæð
isflokksins, frá því í september. Sé
litið á tímabilið frá 2005 til 2011 kem
ur í ljós ríkið hafði flesta starfsmenn
árið 2007 en þá störfuðu tæplega
nítján þúsund hjá ríkinu. Tölurnar
miðast við launagreiðslur sem Fjár
sýsla ríkisins sér um.
Margvíslegar ástæður liggja að
baki breyttum fjölda ríkisstarfs
manna og má meðal annars nefna að
árið 2006 færðu heilbrigðisstofnanir
á landsbyggðinni launaafgreiðslu
sína yfir til launaafgreiðslukerfis
Fjársýslunnar. Þá fækkaði líka störf
um um 870 árið 2011 þegar mál
efni fatlaðra voru færð undir sveitar
félögin. Tölurnar sem koma fram í
svarinu gefa þó nokkuð góða mynd
af fjölda starfa hjá ríkinu á tímabilinu
sem þær ná yfir.
Flest störf í Reykjavík
Tölurnar í svarinu eru flokkaðar eftir
skattaumdæmum eins og þau voru
í árslok árið 2009 en þá voru um
dæmin níu talsins. Samkvæmt því
voru langflest ríkisstörf í Reykja
víkurumdæmi eða 12.183 talsins.
Næst á eftir höfuðborginni var Norð
urlandsumdæmi eystra með 1.106
störf og Reykjanesumdæmi með
1.095. Sveitarfélögin á höfuðborgar
svæðinu tilheyra flest Reykjanes
umdæmi. Önnur umdæmi voru með
færri en eitt þúsund ríkisstörf. Ein
hver skekkja er í tölunum þar sem
störf eru flokkuð eftir umdæmum
þar sem höfuðstöðvar viðkomandi
stofnana eru staðsettar. Þannig rað
ast til að mynda öll störf hjá ÁTVR,
Þjóðkirkju og Vegagerð undir Reykja
víkurumdæmi.
Sé dæminu stillt þannig upp að
skoðuð séu störf hjá ríkinu á höfuð
borgarsvæðinu, Reykjanesumdæmi
þar með töldu, og síðan utan þess
kemur í ljós að tæplega 81 prósent
starfa eru í Reykjavík. Rúm 19 pró
sent er því að finna á landsbyggð
inni. Það er óhagstæðari skipting
gagnvart landsbyggðinni en á ár
unum 2006 til 2010. Tölur fyrir árið
2005 gefa ónákvæma mynd þar sem
störf innan heilbrigðiskerfisins víða
úti á landi eru ekki réttar þar sem
árið 2006 voru launagreiðslur vegna
slíkra færðar undir Fjársýslu ríkisins.
Reykjavíkurumdæmið er líka eina
landsvæðið þar sem starfsmenn í
heilbrigðisgeiranum eru ekki í fjöl
mennasta flokknum sem þiggur laun
frá ríkinu. Í höfuðborginni er það
óskilgreindi flokkurinn „önnur störf“
sem er fjölmennastur.
Fækkar undir stjórn
vinstri flokkanna
Óumdeilt er að störfum hjá ríkinu
fjölgaði í aðdraganda hrunsins þrátt
fyrir að tölur vegna ársins 2005 séu
ófullnægjandi. Störf voru hvað flest
árin 2007 og 2008 á meðan ríkis
stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylk
ingar var við völd. Viðsnúningur hef
ur orðið og hefur ríkisstarfsmönnum
fækkað talsvert frá hruni. Frá því að
ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri
grænna tók við árið 2009 hefur
starfsmönnum sem þiggja laun frá
Fjársýslu ríkisins fækkað um tíu pró
sent, úr 18.243 í 16.433. Hluti þeirra,
eða tæplega þúsund, er nú starfs
menn sveitarfélaga en fækkunin er
þó talsverð. n
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
n Langflestir ríkisstarfsmenn á höfuðborgarsvæðinu
100
80
60
40
20
0
20000
15000
10000
5000
0
Fjöldi opinberra starfa
– eftir árum
Höfuðborg og landsbyggð
- hlutfallsleg skipting starfa
Ár 2005* 2006 2007 2008 2009 2010 2011
Störf 16.057 17.728 18.547 18.243 17.701 17.390 16.433
n Höfuðborgarsvæðið** n Landsbyggðin
*Störf innan heilbrigðiskerfisins á mörgum stöðum vantar inn í heildar-
töluna. Launagreiðslur vegna slíkra starfa voru ekki færðar undir Fjársýslu
ríkisins fyrr en árið 2006.
** Inn í tölunum eru Reykjavík og Reykjanesumdæmi en þar á meðal eru
Grindavíkurkaupstaður, Keflavíkurkaupstaður, Njarðvíkurkaupstaður og
Keflavíkurflugvöllur.
Heimild: Alþingi
2005* 2006 2007 2008 2009 2010 2011
88,54% 83,19% 80,46% 79,79% 79,56% 80,33% 80,81%
11,46% 16,81% 19,54% 20,21% 20,44% 19,67% 19,19%
Færri starfsmenn en áður Í Reykjavík er það óskilgreindi flokkurinn „önnur störf“ sem
er fjölmennastur á meðal ríkisstarfsmanna en annars staðar eru það starfsmenn innan
heilbrigðiskerfisins. Mynd SigtRygguR ARi JóHAnnSSon
Svona skiptast
störf hjá ríkinu
n Enginn landshluti er með jafn mörg störf hjá ríkinu og höfuðborgar-
svæðið. Fá landsvæði eru með meira en fimm prósent af ríkisstörfum.
Þessar tölur miðast við launagreiðslur sem Fjársýsla ríkisins sér um.
Austurlandsumdæmi 2%
Norðurlandsumdæmi eystra 7%
Vesturlandsumdæmi 4%
Norðurlandsumdæmi vestra 2%
Reykjanesumdæmi 7%
Reykjavíkurumdæmi 74%
Suðurlandsumdæmi 2%
Vestfjarðaumdæmi 1%
Vestmannaeyjaumdæmi 1%