Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Qupperneq 16
Björgvin Gunnarsson Sæll Páll.
Sérðu fyrir þér fleiri breytingar
hjá RÚV hvað varðar að verða
alveg sjálfstæð stofnun, þá meina ég að
það verði komið í einkaeign einhvern
daginn?
Páll Magnússon Nei, ég sé ekki
fyrir mér að RÚV verði í einkaeign.
Það virðist vera sams konar stefna
alls staðar í Vestur-Evrópu að reka
almannaþjónustuútvarp af þessu
tagi. Ég sé ekki breytingar verða á því í
nánustu framtíð.
Ólöf Skaftadóttir Hvernig
skilgreinir þú samkeppnina sem
er á milli RÚV og Stöðvar 2?
Páll Magnússon Sæl Ólöf. Hún er
takmörkuð en þó nokkur. Við keppum
að nokkru leyti um fólk og efni og
síðan um auglýsingatekjur.
Árni Þorsteinsson Sæll Páll.
Það er staðreynd að áhugi
Íslendinga á dulrænum málum
er mikill. Mikið hefur verið framleitt af
þess háttar efni erlendis sem hægt væri
að sýna hér ef áhugi væri fyrir hendi. Er
slíkur áhugi hjá stofnuninni fyrir hendi?
Páll Magnússon Já, það kemur vel til
greina að vera með efni af þessu tagi.
Og það hefur reyndar verið í útvarpi.
En það er dálítið vandasamt að finna
því almennilegt form í sjónvarpi.
Guðjón Jónsson 1. Er það ekki
skekkja að reka útvarp, og skylda
almenning til að greiða nefskatt,
gegn vilja? 2. Er ekki rétt ef það þarf að
sýna alla leiki í sjónvarpi að það sé gert á
sér rás, eða að senda þá út á sér rás sem er
eingöngu notuð í dag fyrir útvarp Rásar 2.
Páll Magnússon Jú, við stefnum
að því að koma dreifingu á sjónvarpi
í stafrænt form og þar með opnast
möguleikinn á að vera með það sem
við köllum viðburðarás – þannig að
það þurfi ekki að raska hefðbundinni
dagskrá fyrir efni af þessu tagi. En
nei, það er ekki tímaskekkja að reka
almannaþjónustuútvarp og það er
gert alls staðar í þeim löndum sem við
berum okkur saman við.
Fundarstjóri Þessi spurning
barst í tölvupósti til ritstjórnar:
Tugir sóttu nýverið um tvær
stöður dagskrárstjóra hjá RÚV. Merkir
ohf-un RÚV að útvarpsstjóri geti ráðið í
stöðurnar að eigin geðþótta eða er hann
bundinn af hæfnismati og viðmiðum um
menntun og reynslu o.fl.?
Páll Magnússon Samkvæmt lögum
ræður útvarpsstjóri endanlega ráðn-
ingum af þessu tagi. En ég leita að
sjálfsögðu eftir mati og umsögnum
miklu fleiri aðila. Í þessu tilviki er það
þriggja manna nefnd sem ræðir við
þá umsækjendur sem helst þóttu
koma til greina. Sú nefnd leggur sínar
tillögur fyrir mig.
Stefán Stefánsson Hvernig
mun Gettu betur fara fram í
vetur? Ætlið þið að halda ykkur
við persónusnauða settið sem var í
notkun á síðasta tímabili?
Páll Magnússon Það er verið
að endurskoða framsetningu og
umgjörð þessa þáttar.
Fundarstjóri Spurning sem
barst í tölvupósti til ritstjórnar:
Meðal umsækjenda er
dagskrárstjóri af Stöð 2, Skarphéðinn
Guðmundsson. Sem reyndur stjórnandi í
fjölmiðlum: Mundir þú ætla – fái
Skarphéðinn ekki stöðuna – að hann ætti
erfitt með að halda stöðu sinni á Stöð 2
hafandi sótt um sambærilega stöðu hjá
RÚV? Glata einstaklingar ekki trúnaði við
slíkar aðstæður?
Páll Magnússon Jú, miðað við stöð-
una á íslenskum fjölmiðlamarkaði þá
gæti mönnum reynst erfitt að vinna
hjá einum fjölmiðli eftir að hafa sótt
um starf hjá öðrum.
Sigurbjörg Erlendsdóttir 1.
Hvað greiddi RÚV fyrir myndina
Fjallkonan kallar á vægð? 2. Af
hverju má ekki gefa upp það verð sem
greitt er fyrir það efni sem RÚV kaupir til
sýninga? 3. Eru engar reglur um það hvað
má kalla heimildamyndir? 4. Getur maður
kallað áróðursmynd heimildamynd, þá er
ég að tala almennt?
Páll Magnússon Veit ekki nákvæm-
lega hvað greitt var fyrir þessa mynd.
Algengt verð fyrir heimildamyndir er
ein til ein og hálf milljón. Sumar heim-
ildamyndir eru á mörkum þess sem
einhverjir myndu kalla áróðursmyndir
– aðalatriðið er að jafnræðis milli
sjónarmiða sé gætt þegar á heildina
er litið.
Ástasigrún Magnúsdóttir Ef
þú værir ekki útvarpsstjóri, hvað
værir þú þá að gera?
Páll Magnússon Trillukarl í Vest-
mannaeyjum.
Róbert Þórhallsson Finnst þér
réttlætanlegt að ég borgi fyrir
þjónustu sem ég nýti mér ekki?
Páll Magnússon Samkvæmt
könnunum eru ákaflega fáir fullorðnir
Íslendingar, ef nokkur, sem aldrei nýta
sér þjónustu RÚV. En auðvitað gætir
þú verið undantekningin sem sannar
regluna.
Sigurjón Hafsteinsson Sæll
Páll. Hvað telur þú að RÚV verði
af miklum tekjum ef þið missið
auglýsingatekjurnar sem fyrir eru? Annað,
finnst þér að það eigi að einkavæða RÚV?
Páll Magnússon Nei, mér finnst
að það eigi ekki að einkavæða RÚV.
Heildartekjur RÚV af auglýsingum eru
um tveir milljarðar á ári.
Jón Karlsson Já eða nei – var
Hringekjan peninganna virði?
Páll Magnússon Það er
spurningin.
Olga Clausen Fékk fyrrverandi
dagskrárstjóri ekki tækifæri til
að velja um að ganga út, ella
vera sagt upp? Mörgum hefur verið sagt
upp á RÚV fyrir litlar eða engar sakir eins
og þú veist Páll.
Páll Magnússon
Nei, hún hafði líka val um að vera áfram.
Birna Sigurðar Nú þegar stór
hluti Íslendinga horfir á erlendar
sjónvarpsstöðvar daglega, þá
kemur Sjónvarpið illa út úr samanburði
hvað varðar fréttatíma og fréttaumfjöll-
un. Hafið þið skoðað að stytta
fréttatímana og auka fréttaskýringar-
þætti og umræður um helstu dægurmál?
Páll Magnússon Hvað áhorf og
traust snertir gerir aðalfréttatími
sjónvarps meira en að halda hlut
sínum, en í breyttu fjölmiðlaumhverfi
er hins vegar líklegt að vægi frétta-
skýringa aukist.
Anna María Karlsdóttir RÚV
hefur farið halloka í samkeppn-
inni við Stöð 2 hvað varðar
framleiðslu á leiknu íslensku efni. Hvernig
stendur á því og hvernig hyggst RÚV
takast á við það?
Páll Magnússon Það er rétt að
hlutur RÚV í frumgerðu leiknu
sjónvarpsefni hefur verið rýr síðustu
árin. Núna er hins vegar metnaðarfull
áætlun í gangi um verulega aukningu
á þessu efni – á næstu misserum.
Valur Bjarnason Smugan.is,
visir.is, dv.is og eyjan.is leyfa
lesendum að setja athugsemdir
við fréttir hjá sér. Hvers vegna ekki ruv.is?
Páll Magnússon Þetta hefur stund-
um komið til tals en niðurstaðan
samt alltaf verið sú að gera þetta
ekki. Það er þó ekki óhugsandi að
þetta verði gert undir einhverjum
formerkjum í framtíðinni.
Fundarstjóri Þessi spurning
barst í pósti til ritstjórnar: Var
rétt að málum staðið þegar
íþróttafréttamanni var umsvifalaust vikið
úr starfi eftir að dóttir þín – einnig
starfandi á RÚV – sakaði hann um ofbeldi
gegn sér? Var málið rannsakað á réttan
hátt og gætt fyllstu hlutlægni af hálfu
RÚV?
Páll Magnússon Já, ég held að það
hafi verið rétt að þessu máli staðið
hjá mannauðsstjóra og viðkomandi
yfirmanni.
Guðmundur Jónsson Því heldur
Leoncie því fram að þú sért
persónulega á móti henni? Er
eitthvað í gangi á milli ykkar? Eitthvað
óuppgert ?
Páll Magnússon Nei, ég síður en svo
neitt á móti Leoncie en það er samt
ekkert í gangi á milli okkar.
Úlfhildur Þórarinsdóttir Í
þættinum Nei hættu nú alveg á
Rás 2 bendir Villi naglbítur fólki
iðulega á að hafa samband við þig beint
ef það hefur yfir einhverju að kvarta.
Hefur einhver tekið hann á orðinu? :D
(btw. þetta er frábær þáttur hjá honum).
Páll Magnússon Já, nokkrir.
Jón Karlsson Ætti ferlið í
kringum ráðningar hjá RÚV ekki
að vera faglegra, t.d. að öll störf
séu auglýst og að sérstök hæfisnefnd fjalli
um umsækjendur. Menn virðast t.d. getað
hoppað á milli sjónvarpsstöðva eins og
ekkert sé. Hér á ég einnig við tímabundin
störf.
Páll Magnússon Ráðningarferlið
ræðst af því sem við teljum þjóna
best hagsmunum RÚV hverju sinni.
Pálmi Óskarsson Er ekki
kominn tími fyrir Rás 3, þar sem
hlustendur Rásar 2 eru flestir
komnir yfir 30 ára aldurinn?
Páll Magnússon Það gæti verið og
hefur stundum komið til umræðu hjá
RÚV.
Birna Sigurðar Er það ekki
svolítið gamla Ísland að einn
maður stýri RÚV og sé einráður
um ráðningar og dagskrárhugmynda-
fræði? Og hvernig endaði þetta annars
með jeppann dýra?
Páll Magnússon Nei, það er ekki
gamla Ísland að á endanum sé einn
maður ábyrgur fyrir daglegum rekstri.
Þannig er það alls staðar sem ég
þekki til. Ég ek á mínum eigin bíl.
Þuríður Sveinsdóttir Hvernig
stendur á því að RÚV sér ekki til
þess að allir nái útsendingum án
þess kannski að þurfa að kaupa sér
þjónustu annars staðar frá?
Páll Magnússon Viðmið okkar er að
99,9% landsmanna geti náð RÚV án
þess að kaupa sér þjónustu annars
staðar frá.
Fundarstjóri Þessi spurning
barst í pósti til ritstjórnar: Er það
rétt að RÚV hafi neyðst til að
gera nokkurra ára starfslokasamning við
einn af starfsmönnum sínum þegar
yfirvofandi voru málaferli m.a. um einelti
á vinnustað og ofsóknir vegna starfa
viðkomandi sem trúnaðarmaður.
Páll Magnússon Nei.
Jón KarlssonHvernig er
sambandi ykkar Davíðs
Oddssonar háttað?
Páll Magnússon Það er ekkert
samband.
GyðaogSkúli Arsenal Hver var
ástæðan fyrir brotthvarfi Sigrún-
ar Stefánsdóttur, hreinskilið svar
takk fyrir?
Páll Magnússon Hún kaus að segja
upp störfum fremur en að taka
breytingu á starfsviði.
Sigrún Jóna Frá Grísará Hvers
vegna er dagskrá sjónvarpsins
svona léleg?
Páll Magnússon Dagskrá sjón-
varpsins er mjög góð enda kemur það
ítrekað fram í mælingum á áhorfi.
Pétur Jónsson Norrænar
stöðvar endursýna oft gamlar
þáttaseríur. Af hverju endursýnið
þið ekki eitthvað gamalt og gott? Það er
til fullt af lögregluþáttum sem eru lausir
við ofbeldi, ganga meira út á söguþráðinn.
Páll Magnússon Við endursýnum
talsvert en það hefur auðvitað
sýnt sig að sjónvarpsþættir eldast
misjafnlega vel.
Fundarstjóri Spurning sem
barst í tölvupósti til ritstjórnar:
Margir halda því fram að þú hafir
innleitt stefnu á RÚV sem fylgi fremur
einföldum markaðslögmálum um
framboð á afþreyingu en geri
menningarhlutverki RÚV og öðru slíku
ekki hátt undir höfði. Hverju svarar þú
þessu?
Páll Magnússon
Þetta er rangt. Dagskrársetning RÚV
ræðst ekki af einföldum markaðslög-
málum.
Ragnar Tómasson Var það
eðlilegur þáttur í að gæta
hagsmuna Ríkisútvarpsins að
senda Davíð Oddssyni og 365 miðlum
þessar „sérstöku“ kveðjur á dögunum?
Páll Magnússon Svar mitt til Davíðs
var óþarflega kersknifullt. Pistill minn
um stuðning ríkisins við fjölmiðla-
rekstur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
var hins vegar fullkomlega eðlilegt
innlegg í umræður um starfsaðstæð-
ur fjölmiðla á Íslandi.
Guðmundur Sveinsson Verður nýtt jóladagatal sýnt í ár? Páll Magnússon Man ekki
alveg hvernig þetta verður.
Pétur Jónsson Af hverju er ekki
hægt að hafa skárra
sjónvarpsefni á laugardags-
kvöldum? Eitthvað meira fjölskyldu-
tengd. Varla poppar þú heima þegar
þátturinn um Merlin byrjar?
Páll Magnússon
Ég poppa þegar Dans dans dans byrjar.
Fundarstjóri Þessi spurning
barst í tölvupósti til ritstjórnar:
Hættir þú að lesa sjónvarpsfrétt-
ir að eigin frumkvæði eða hafði stjórn RÚV
einhverjar skoðanir á fréttalestri þínum?
Setti hún þér stólinn fyrir dyrnar?
Páll Magnússon Það hafa verið
ýmsar skoðanir á þessum fréttalestri
– líka innan stjórnar RÚV. Ákvörðun-
ina um að hætta þessu í bili tók ég
hins vegar sjálfur.
Sölvi Tryggvason Sæll og
blessaður Páll. Þú hefur töluvert
tjáð þig um 365 miðla. Tvær
spurningar tengdar því. 1. Telur þú að
annarleg sjónarmið ráði för í viðskiptum
365 við Landsbankann og ef svo, hverjir
hafa hagsmuni af því sem tengjast
Landsbankanum? 2. Reyndu eigendur að
skipta sér með óeðlilegum hætti af
fréttastofu Stöðvar 2 þegar þú varst þar
fréttastjóri?
Páll Magnússon 1. Ég hef varpað
fram spurningum varðandi þetta mál
og læt það duga að sinni. 2. Já, því
verður ekki neitað en þeir höfðu ekki
erindi sem erfiði.
Fundarstjóri Þessi spurning
barst í tölvupósti til ritstjórnar:
Mig langar til að spyrja hvort
einhver von sé á að endursýna hina
frábæru Hemma Gunn-þætti Á tali?
Páll Magnússon Það form sem við
notum núna til að endursýna það
besta úr þessum þáttum finnst mér
vera það rétta. Það væri vafasamt að
endursýna þættina í heilu lagi.
Eyþór Jóvinsson Af hverju eru
þið ekki með fréttamann á
Vestfjörðum?
Páll Magnússon Í aðhaldsaðgerðum
undanfarinna ára höfum við því miður
þurft að fækka föstum fréttamönn-
um úti á landi en munum bæta úr því
þegar hagur okkar vænkast.
Fundarstjóri Þessi spurning
barst í tölvupósti til ritstjórnar:
Þú hefur ýjað að því að
stjórnvöld skuldi Jóni Ásgeiri Jóhannes-
syni (eiganda 365) eitthvað – eða svo
megi ætla þar sem ríkisstjórnin hyggist
ívilna 365 (fyrirtæki hans og Ingibjargar
eiginkonu hans) ef RÚV verði reistar
frekari skorður varðandi öflun
auglýsingatekna. Finnst þér eðlilegt að
stjórnandi almannamiðils (Public service)
hefji stríð til þess að efla og auka
auglýsingatekjur miðils sem rekinn er að
miklu leyti fyrir almannafé?
Páll Magnússon Ég er ekki að hefja
neitt stríð heldur einfaldlega að
varpa fram spurningum sem varða
starfsskilyrði fjölmiðla á Íslandi.
Sighvatur Jónsson Finnst þér
eðlilegt að ríkiskirkjan, eitt
trúfélaga, geti á kostnað
almennings verið með vikulegar
predikanir þar sem m.a. er vegið stórlega
að stórum þjóðfélagshópum?
Páll Magnússon Það er hluti af
mjög langri sögu og hefð að útvarpa
guðsþjónustum á sunnudögum og ég
sé enga sérstaka ástæðu til að hætta
því.
Sigurður Ragnar Guðmunds-
son Gerðu RÚV og starfsfólk þar
engin mistök í og fyrir hrun?
Hvaða breytingar hafa orðið hjá ykkur
síðan þá? Finnst þér að fjölmiðlar hafi
staðið sig vel fyrir hrun?
Páll Magnússon Jú, RÚV gerði mis-
tök eins og aðrir fjölmiðlar á þessum
tíma. Og við höfum lært af þeim.
Kristján Sigurbjörnsson
Hvernig er það, þurfið þið að
kaupa sýningarrétt á hverri
einustu mynd sem þið sýnið? Og ef svo er
megið þið sýna hana eins oft og þið viljið?
Páll Magnússon Já, við þurfum
auðvitað alltaf að borga fyrir sýn-
ingarréttinn og venjulega eigum við
einn til þrjá endursýningarrétti.
Jón Karlsson Finnst þér að
takmörk eigi að vera á því hvað
útvarpsstjóri er lengi í embætti?
Hvað hefur þú hugsað þér að vera lengi
við stjórnvölinn?
Páll Magnússon 1. Já, mér finnst það
vel koma til greina og í frumvarpi til
nýrra laga um RÚV er gert ráð fyrir því.
2. Ég hef ekkert hugsað út í það.
Sigurður Ragnar Guðmunds-
son Varðandi mistök sem RÚV
gerði í og fyrir hrun, hvernig hafið
þið lært af þeim?
Páll Magnússon Vöndum okkur bet-
ur og erum tortryggnari í samskiptum
okkar við til dæmis fjármálastofnanir.
Gunnar Gunnarsson Hvað þarf
til svo RÚV hefji aftur sýningar á
leikjum úr þýsku Bundesligunni?
Páll Magnússon Nægan áhuga og
viðunandi verð.
Hafsteinn Árnason Hvaða
pólitísku hugsjónir aðhyllist þú?
Páll Magnússon Engar. Hef
ímugust á þeim mörgum.
16 Umræða 5. nóvember 2012 Mánudagur
M
y
n
d
iR
P
R
ES
SP
H
O
TO
.B
iz
nafn: Páll Magnússon
Staða: Útvarpsstjóri
Menntun: BA í guðfræði
Aldur: 59 ára
Páll Magnússon útvarpsstjóri sat fyrir svörum á Beinni línu á sunnudag og var spurður spjörunum úr
Ákvað sjálfur að hætta að lesa