Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Page 17
Neytendur 17Mánudagur 5. nóvember 2012
Algengt verð 251,6 kr. 260,7 kr.
Algengt verð 251,4 kr. 260,5 kr.
Höfuðborgarsv. 251,3 kr. 260,4 kr.
Algengt verð 251,6 kr. 262,7 kr.
Algengt verð 253,9 kr. 260,7 kr.
Melabraut 251,4 kr. 260,5 kr.
Eldsneytisverð 4. nóvember
Bensín Dísilolía
Hjálplegir
starfsmenn
n Hrósið fær Fontana gufubaðið á
Laugarvatni og Hótel Geysir fyrir
góða þjónustu. „Lítill sonarsonur
minn var á ferðalagi um Suður
landi ásamt afa sínum og tveim
ur útlendingum. Þeir borðuðu á
Hótel Geysi og fóru í gufubaðið á
Laugarvatni. Ég var nýbúin að
prjóna fyrir litla manninn
svokallaða Doddahúfu
sem hann týndi. Starfs
menn á báðum stöðunum
voru mjög hjálplegir
og leituðu að húf
unni. Hún fannst í
gufubaðinu Font
ana á Laugarvatni,
merkt með dagsetn
ingunni daginn sem
hún varð þar eftir og
viðskila við eiganda sinn. Starfs
maðurinn ætlaði að senda mér
húfuna í pósti en hringdi svo á leið
sinni til Reykjavíkur. Hann lét mig
vita að húfan væri með í för og hvar
ég gæti nálgast hana. Þetta finnst
mér einstök þjónusta og alveg til
fyrirmyndar,“ segir konan.
Erfitt að fá
varahluti
n Lastið að þessu sinni fær Poulsen,
en viðskiptavinur sendi eftirfar
andi: „ Ég hef fimm sinnum versl
að varahluti hjá þeim. Í öll þessi
skipti hef ég fengið ranga varahluti.
Þeir taka niður
númer bílsins,
finna varahlut
inn og sann
færa mig um að
sá sé sá rétti, en
allt kemur fyr
ir ekki. Síðast þegar
þetta gerðist ætlaði ég
að kaupa bremsudiska
og bremsuklossa fyrir
bílinn minn. Þeir sögðu að
þeir hefðu fundið bremsukloss
ana, en það kæmu tvö diskapör til
greina. Ég keypti því bæði diska
pörin og bremsuklossana til að
vera viss. Ég átti því þá að fá að skila
þeim bremsudiskum sem voru ekki
réttir. Hvorugt diskasettið var rétt og
ekki klossarnir heldur. Í þriðju til
raun fékk ég loks varahlutina sem
ég þurfti.“
Almennt séð gengur mjög vel að
afgreiða réttu varahlutina án vand
ræða en það koma undantekningar
þar sem sumir bílar eru erfiðir hvað
þetta varðar. Það kemur ekki fram
hvort þetta tengist allt sama bíln
um en hljómar samt þannig og því
spurning hvaða bíll þetta er. Við
vinnum með upplýsingar frá fram
leiðendum vörunnar og teljum okk
ur því alltaf vera með þær eins ná
kvæmar og hægt er á hverjum tíma
og því finnst okkur mjög leitt að
heyra þetta,“ segir Ragnar Matthías
son, framkvæmdastjóri Poulsen.
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Dýrustu Dekkin best
n Continental, Goodyear og Nokian skara fram úr þetta árið
C
ontinental, Goodyear og Nokian
eiga bestu negldu dekkin í ár
með einkunnina 8,5 en dekk
frá Dunlop og Michelin koma
þar á eftir með 8,2 í einkunn. Í flokki
ónegldra dekkja er það Nokian Hakka
peliitta R sem hefur vinninginn.
Þetta eru niðurstöður árlegrar vetr
ardekkjakönnunar Félags íslenskra
bifreiðaeigenda og systurfélaga þess
á Norðurlöndunum sem má sjá á
heimasíðu félagsins.
Góð dekk auka öryggi
Mikilvægt er að vanda valið þegar
vetrar dekk eru keypt en góð vetrar
dekk eiga að veita hámarksöryggi í
snjó og á ís en auk þess eiga þau að
vera góð í bleytu. Þau eiga að ryðja vel
frá sér vatni og vera ólíkleg á að fljóta
upp þegar hraðinn er hóflegur. Þeir
framleiðendur sem láta þessa eigin
leika dekkjanna sig litlu skipta hafa lít
inn áhuga á aðstæðum og velferð okk
ar sem búum á norðlægum slóðum.
Um þetta er fjallað á heimasíðu FÍB
en þar má sjá fyrrnefnda vetrardekkja
könnun.
Fylgni á milli verðs og gæða
Þar segir að val á vetrardekkjum sé
fyrst og fremst öryggismál og vænt
anlegir kaupendur þurfi að spyrja sig
hvort dekkin dugi til að stöðva bíl
inn fljótt og örugglega við verstu að
stæður. Hvort hliðargrip þeirra sé
nógu gott til að halda honum stöðug
um á veginum eða hvort hann verði
stjórnlaus og gjarn á að renna inn inn
á rangan vegarhelming. Hvort dekkin
hafi nógu gott grip til að koma bílnum
upp brekkuna að húsinu og hvort þau
séu hljóðlát eða hávaðasöm á auðum
vegi. Að lokum skuli spyrja hvert slit
þol þeirra sé.
Bíleigendur fá svör við þessum
spurningum skoði þeir könnunina og
töflur sem henni fylgja og þeim er því
ráðlagt að skoða hana áður en farið er
í að kaupa dekkin. Þá er einnig bent á
að oftast sé veruleg fylgni á milli verðs
og gæða.
Könnun systurfélaga FíB á
norðurlöndum
Hér má sjá dekkin sem lentu í efstu
sætum könnunarinnar auk umsagna
um hvert og eitt.
Negld dekk
1.– 3. sæti einkunn: 8,5
Continental Conti ice Contact
Afar gott neglt vetrardekk sem bæði
hefur gott grip í snjó og á ís. Er jafn
framt gott á bæði blautum og þurr
um vegum. Stöðugt og rásfast í hálku
og stýrissvörun er nákvæm og traust.
Hemlar með ágætum í bleytu. Rásar
lítils háttar í akstri í hjólförum. Nún
ingsmótstaða í hærra lagi.
1.– 3. sæti einkunn: 8,5
Goodyear Ultra Grip ice arctic
Nýjasta vetrardekk Goodyear er ágætt
bæði í snjó og á ís. Ekki síst vegna
þess hve bæði hemlun þess og hröð
un við þær aðstæður er með miklum
ágætum. Virkar mjög öruggt í akstri
og svarar vel og örugglega stýrinu í
hættuástandi. Á auðu malbiki virðist
það vera mjúkt og þá getur vottað fyrir
ónákvæmni í stýri. Ágætlega rásfast í
hjólförum.
1.– 3. sæti einkunn: 8,5
nokian Hakkapeliitta 7
Nokian er besta dekkið á ísilögðum og
snjóþöktum vegum. Þar hefur það frá
bært veggrip, er rásfast og stöðugt og í
neyðartilvikum eru öll viðbrögð þess
fyrirsjáanleg. Reynsluökumennirnir
meta dekkið mikils við slíkar aðstæður.
Þegar beygt er hjá hindrun bregst það
vel og eðlilega við. Hemlun í bleytu er
hins vegar ekki sú besta eins og algengt
er reyndar um þau dekk sem best eru á
ísnum. Þá er þetta dekk fremur hávært
í akstri.
4.– 5. sæti einkunn: 8,2
Dunlop ice Touch
Hefur traust og gott veggrip í snjó og
á ís, ekki síst við hemlun og hröðun.
Dekkið þótti hins vegar ekki svara stýr
ingu nægilega vel. Þá er veggrip fram
hjólanna tiltölulega fljótt að tapast
með auknum hraða. Bæði stöðugleiki
og stýrissvörun er hins vegar betri
í snjónum. Dekkið er meðal bestu
dekkja á bæði blautu og þurru mal
biki. Dálítið rásgjarnt í hjólförum en
afar hljóðlátt af nagladekki að vera.
4.– 5. sæti einkunn: 8,2
Michelin X-ice north Xin2
Engir sérstakir veikleikar þótt það nái
ekki hæstu einkunn í neinum próf
unarþátta. Gott í akstri við allar að
stæður og er ekki með neinar óþægi
legar uppákomur sem svo sannarlega
er mikilvægur og góður eiginleiki. Stýr
ingin virkar mjúk og svörunin eðlileg
við allar aðstæður sem prófaðar voru.
Rásfast í hjólförum og lágvært í akstri.
6. sæti einkunn: 8,1
Bridgestone noranza 2 evo
7. sæti einkunn: 8,0
Pirelli Winter Carving edge
8. sæti einkunn: 7,8
Gislaved nord Frost 5
9.–10. sæti einkunn: 7,7
sava eskimo stud
9.–10. sæti einkunn: 7,7
Vredestein arctrac
11. sæti einkunn: 7,0
aqi sarek
12. sæti einkunn: 6,9
nankang, nK snow sW-7
Ónegld dekk
1. sæti einkunn: 7,5
nokian Hakkapeliitta R
Hefur gott grip í snjó og á ís. Það skil
ar öruggri aksturstilfinningu og leiðir
ökumann hafi hann gert mistök við
stýrið. En í hjólförum vill það rása og
heldur ekki vel beinni stefnu og heml
ar ekki vel á auðu malbiki. Hljóðlátt og
með lága núningsmótstöðu.
2.– 4. sæti einkunn: 7,4
Continental Viking Contact 5
Continental er gert fyrir ís og snjó og
er eitt hið besta á hálkunni. Það gef
ur bílnum stöðugleika og örugga
aksturseiginleika og svarar vel stýrinu
í neyðartilvikum. Virkar þó full mjúkt
á auðu malbiki og veggrip í bleytu
mætti vera betra og er síðra en hjá
sumum keppinautunum. Er rásfast í
hjólförum, hljóðlátt og með lága nún
ingsmótstöðu sem eru góðir kostir á
langkeyrslu.
2.–4. sæti einkunn: 7,4
Dunlop sP ice sport
Svarar afar vel hverri hreyfingu stýris
hjólsins sem er á sinn hátt ágætt en gef
ur um leið ökumanni snert af óöryggi.
Þá tapar það veggripinu tiltölulega auð
veldlega. Hin næma stýrissvörun auð
veldar að ná aftur valdi á bílnum og réttri
stefnu. Besta dekkið á votu malbiki,
hemlar vel í bleytunni og sömuleiðis á
þurru auðu malbiki. Hljóðlátt en rásar
lítils háttar í hjólförum.
2.–4. sæti einkunn: 7,4
Goodyear Ultra Grip ice+
Grípur vel í snjó og á ís. Við þær að
stæður er það stöðugt og öruggt í
akstri og gerir ekkert óvænt. Helst
mætti finna að því að það missir
hliðargripið (í beygjum) fremur fljótt.
Það er líka ágætt á votu auðu malbiki
og missir aldrei algerlega veggripið
þar þótt talsvert gangi á í erfiðum
beygjum frá hindrun. Mjög jafngott
dekk. Engir sérstakir veikleikar.
5.–6. sæti einkunn: 7,3
Michelin X-ice X13
Þrátt fyrir að Michelin sé svokallað
Hdekk eða háhraðadekk, er það
ágætt sem vetrardekk á norður
slóðum. Það er sérlega létt og þægi
legt við akstur og með eðlilega
aksturseigin leika hvernig sem færið
er. Það er kannski ekki hárnákvæmt
í stýri en með örugga stýrissvörun,
jafnvel í erfiðustu akstursæfingum.
Hemlunarvegalengd er stutt á ís og
í snjó en í meðallagi á votu malbiki.
Hljóðlátt, með lága núningsmót
stöðu.
5.–6. sæti einkunn: 7,3
Vredestein nord-trac-2
Eiginleikar eru í ágætu jafnvægi og
dekkið sýnir enga sérstaka veik
leika. Veggrip þess er gott á ís og í
snjó en það á til að missa hliðar
gripið full fljótt í beygjum. En þar
sem það svarar vel stýrinu næst
fljótt vald yfir bílnum á ný. Hemlun
er í meðallagi á votu malbiki. Rásar
dálítið í hjólförum.
7. sæti einkunn: 7,1
Pirelli ice-control Winter
8. sæti einkunn: 6,9
Bridgestone Blizzak Ws70
9. sæti einkunn: 6,4
Codiant Winter Drive
Öryggi í vetrarakstri
Það er mikilvægt að
vera á góðum dekkjum í
vetrarfærðinni.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Enginn áfellisdómur
Á heimasíðu FÍB segir að félagið hafi fengið fyrirspurnir um hvers vegna Toyo-harð-
skeljadekk sem eru notuð hér á landi séu ekki með í könnuninni. Svar FÍB er á þá leið að
könnunin sé mjög umfangsmikil og flókin í framkvæmd og krefjist sérþekkingar og að-
stöðu sem ekki sé til staðar hér á landi. Hún sé framkvæmd í Finnlandi og að FÍB-blaðið
hafi valið að birta þessa tilteknu könnun því hún megi teljast marktæk fyrir vetrarað-
stæður á Íslandi. Þá segir að einhverra hluta vegna virðist Toyo-vetrardekk ekki hafa náð
sömu fótfestu í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi og hér á landi og séu af þeim sökum ekki
tekin með í þessari könnun. Það sé þó alls ekki áfellisdómur yfir þeim og vitað sé að þeir
sem hafi notað Toyo-dekkin hér á landi séu flestir ánægðir með þau og svo eigi líka við
um ýmsar fleiri tegundir sem hér eru á markaði en birtast ekki í könnunni.