Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Qupperneq 18
18 Lífsstíll 5. nóvember 2012 Mánudagur
Hafðu
þvottinn í
sér herbergi
Það er ekki skynsamlegt að láta
blautan þvott hanga til þerris
inni í íbúðarrými. Það getur
skaðað heilsuna, ef marka má
nýlega rannsókn.
Vísindamenn benda á að
með hækkandi orkukostnaði þá
freistist fólk þess að hengja blaut
föt til þerris inni hjá sér í stað
þess að setja þau í þurrkarann.
Það er hins vegar ekki nógu
sniðugt og getur valdið myglu
og óþarfa rykmyndun í híbýlum
sem síðan getur ýtt undir astma,
bæði hjá börnum og fullorðnum.
Vísindamenn mæla með
því að blautur þvottur sé ávallt
hengdur upp í sérstöku rými en
ekki settur á ofna eða látin hanga
til þerris inni í íbúðum.
Dáleiðsla gegn þung-
lynDi og ástarsorg
n Dáleiðsluskóli opnaður n Halla himintungl ætlar að verða kennari
É
g fór á fyrsta námskeiðið sem
var haldið hér á landi í maí
árið 2011 og kláraði það með
pompi og prakt og hefur geng
ið mjög vel allar götur síðan,“ segir
Halla himintungl, dáleiðslutækn
ir og heilari. Hún lauk á síðasta
ári diplómanámi í dáleiðslu
tækni á vegum dáleiðslukennar
ans John Sellars. Hann rekur The
International School of Clinical
Hypnosis sem hefur höfuðstöðv
ar í Bretlandi en býður upp á nám
skeið um víða veröld. Skólinn
opnaði útibú hér á landi þann 1.
nóvember síðastliðinn á Hótel
Sögu, en nemendur víðs vegar að
úr heiminum munu sækja nám
skeiðin.
Fjölmargir nemendur við skól
ann verða þó íslenskir og stefnt
er að því að fyrsti árgangurinn af
dáleiðslukennurum útskrifist árið
2014. Halla vonast til að verða í
þeim hópi.
Dáleiðslan nýtist á
margan hátt
Það er John Sellars sem stýrir skól
anum ásamt Alexis Main. Þau
hafa sérhæft sig í ólíkum sviðum
dáleiðslutækninnar og eru líka
með einkastofur þar sem þau sinna
sínum skjólstæðingum í Skotlandi
og Englandi. Halla segir John hafa
áratuga reynslu af dáleiðslu. Hann
er verkfræðingur að mennt en
heillaðist af dáleiðslutækni fyr
ir um þrjátíu árum. Fór hann í
kjölfarið í þjálfun og hefur starf
að sem dáleiðslukennari síðan
og rekið eigin dáleiðsluskóla frá
2002. „Hann hefur náð stórkost
legum árangri í sjálfsdáleiðslu.
Til dæmis þegar hann fer til tann
læknis þá deyfir hann sig sjálfur
með dáleiðslutækni og sleppir al
veg tanndeyfilyfi,“ segir Halla. Þá
hefur hann þróað með sér tækni
til að aðstoða fólk sem glímir við
þunglyndi. Alexis hefur hins vegar
sérhæft sig í að vinna með kvíða,
áföll og fælni.
Halla segir að hægt sé að nýta
dáleiðsluna á óteljandi vegu. Hún
geti til að mynda nýst konum við
fæðingu í staðinn fyrir mænu
deyfingu.
Þá geti dáleiðsla einnig kom
ið í staðinn fyrir magaminnkunar
aðgerðir á borð við þær sem notað
ar eru sem neyðarúrræði fyrir fólk
sem glímir við alvarlegan offitu
vanda. „Með aðstoð dáleiðslu get
ur þú lært að strekkja magabandið
í hæfilega mikla og örugga teygju
sem hjálpar líkamanum til að að
laga sig að minni fæðuinntöku
ásamt því að gera meðvitaðar og
hollar neyslubreytingar. Þú ákveð
ur að taka við stjórn á lystaukanum
í þessari meðferð,“ útskýrir Halla
Hjálpar fólki í ástarsorg
Halla segir að allir geti lært
dáleiðslutækni. Fólk þurfi hvorki
að vera neitt sérstaklega næmt né
hafa bakgrunn í geðlækningum
eða sálfræði, þó að það sé vissu
lega jákvæður kostur.
„Það geta allir gert þetta en
auðvitað er lykillinn að árangurs
ríkri dáleiðslutækni góð mann
leg samskipti, að fylgja siðfræði
reglum í hvívetna og gæta þess
að sýna fullan trúnað við skjól
stæðinga. Þetta er ákveðin tækni
og þú lærir mismunandi aðferðir.
Þetta er svipað og að læra á bíl, þú
þarft að læra akstursreglur fyrst og
kynnast því hvernig bíllinn gengur
og þá getur þú farið að keyra inn í
þína „lífsleið“, prófað að breyta út
af vananum og aka ótroðnar slóðir
sem geta mögulega fært þér meiri
almenna vellíðan og upphaf að
nýjum og betri lífsgangi.“
Sjálf hefur Halla nú stundað
tæknina í rúmt eitt og hálft ár, en
hún er með stofu á Andlega setr
inu á Suðurlandsbraut. Hún vinn
ur mikið með fólki sem þjáist af
prófkvíða og fælni, og fólk sem
vill léttast og að komast yfir höfn
un. „Það er ekki gaman að vera í
ástarsorg og fólk vill trúa því að
það verði ástfangið aftur. Það er
afar mikilvægt að vinna með það.
Vinna með hjartað sitt.“
Halla segist alltaf gæta þess að
vera heiðarleg með tilliti til þess
hvað hún treysti sér í og hvað ekki.
„Það á til dæmis ekki vel við mig
að eiga við fólk sem er að glíma
við fíkniefnavanda. Ég er bara ekki
þar. Svo kom til mín einstaklingur
um daginn sem hafði stamað dag
lega frá barnæsku og ég viður
kenndi það góðfúslega fyrir hon
um að ég hefði aldrei unnið með
það áður en væri til í að gera til
raun með honum.“ Halla segir
það hafa gengið framar vonum.
Nú þegar tveir mánuðir eru liðnir
síðan hún tók umræddan einstak
ling í 90 mínútna tíma hefur hann
einungis stamað tvisvar og við
komandi er í skýjunum yfir ár
angrinum.
Má líkja við djúpslökun
En hvað er það sem gerist með
dáleiðslunni? „Þú blandar ákveðn
um aðferðum saman. Sumar af
þeim snúa að því að fara aftur í
tímann til ákveðins tímabils þar
sem viss upplifun átti sér stað.
Mögulega hefur orðið áfall hjá við
komandi í fortíðinni sem kallar
fram, vanlíðan, fælni, kvíða, stam
eða eitthvað annað, það er allur
gangur á því,“ útskýrir Halla. Hún
segir að viðkomandi verði að líða
vel í dáleiðslunni til að meðferðin
skili árangri. „Þessu má líkja við
að vera í djúpslökun. Hugur þinn
er glaðvakandi. Þetta er ekki sama
upplifun og þegar þú sefur. Þú munt
ekki vakna úr dáleiðslu minnislaus
eftir meðferðina en halda að þú
hafir fengið lækningu. Þetta er ekki
þannig. Þú ert með fulla meðvit
und en ert að vinna djúpa og vand
aða sjálfsvinnu í undirmeðvitund
þinni.“ Halla segir viðkomandi
alltaf stjórna vinnunni í tímanum
sjálfur, hún, sem dáleiðslutæknir,
sé einungis til aðstoðar.
solrun@dv.is
„Það er ekki
gaman að
vera í ástarsorg
og fólk vill trúa
því að það verði
ástfangið aftur.
Það er afar mik-
ilvægt að vinna
með það. Vinna
með hjartað sitt.
Dáleiðir Halla lauk
diplómanámi í dáleiðslu-
tækni í fyrra og stefnir á
ljúka kennaranámi í sömu
fræðum árið 2014.
Heimasíða The International
School of Clinical Hypnosis:
tisoch.com
Snyrtivörur
geta valdið
tíðahvörfum
Ný rannsókn vísindamanna við
Washington University í St. Luis
hefur leitt í ljós að ákveðin efni
sem finnast í snyrtivörum, plasti
og húsbúnaðarhreinsi, geta
valdið tíðahvörfum hjá konum
fyrir aldur fram.
Fylgst var með tíðahring yfir
5.000 kvenna og leiddu niður
stöður rannsóknarinnar glögg
lega í ljós að áhrif efna sem kon
urnar komust í snertingu við
voru mikil.
Linda Giudice, sem fór fyrir
rannsókninni, sagði að mörg
efni sem rugluðu innkirtlastarf
semina væri að finna í okkar
nánasta umhverfi og að við viss
um í raun enn ekki hvaða áhrif
þau hefðu á heilsu fólks.