Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Síða 20
N
ýr þjálfari íslenska karla-
landsliðsins í handknattleik,
Aron Kristjánsson, byrjar ald-
eilis vel í starfi. Íslenska liðið
lagði á sunnudag landslið Rúmeníu
á útivelli 37–30. Liðið hefur því sigrað
í báðum sínum fyrstu leikjum í sjötta
riðli undankeppni Evrópumótsins í
handknattleik og er efst í þeim riðli.
Rúmenar reyndu sitt besta til að
setja íslensku strákana út af laginu
og fór leikurinn fram í fjallaþorpi
langt frá næstu borg. Þurfti lands-
liðið íslenska þess vegna að kúldrast
í rútu í einar fimm klukkustundir til
að komast á áfangastað og það vita
þeir sem það hafa prófað að getur
sannarlega tekið á.
Þess varð þó ekki vart í leiknum
sem var lengstum jafn og nokkuð
spennandi og hvorugt liðanna líklegt
til að ná undirtökunum. Rúmenar
leiddu þó lengst af í fyrri hálfleik en
í þegar liðin gengu til búningsher-
bergja var staðan 19–18 Íslandi í vil.
Jafnvægi hélst í leiknum langt fram
eftir síðari hálfleik þegar íslensku
strákarnir kveiktu loks á rakettun-
um. Síðustu tíu mínúturnar var að-
eins eitt lið á vellinum að heita og
það var Ísland. Á þeim kafla náði
liðið sjö marka forskoti á Rúmena
og hélst sá munur fram í leikslok.
Eftir tvo leiki er Ísland efst með
fullt hús stiga en Slóvenía er í öðru
sæti með þrjú stig en Slóvenar
gerðu 32–32 jafntefli við landslið
Hvít-Rússa á sama tíma. Rúmenar
verma svo neðsta sætið og eru án
stiga.
Guðjón Valur Sigurðsson skor-
aði 11 mörk, annan leikinn í röð, en
Ásgeir Örn Hallgrímsson fór einnig
á kostum og skoraði átta mörk úr
níu skotum. Aron Rafn Eðvaldsson
stóð allan tímann vaktina í markinu
og varði 19 skot.
albert@dv.is
20 Sport 5. nóvember 2012 Mánudagur
Tæpar 250 milljónir í vasa Poulter
n Bretinn Ian Poulter sigraði á HSBC-World Golf-meistaramótinu í golfi
U
m tíma þegar langt var liðið
á fjórða og síðasta hringinn
á HSBC-World Golf-meist-
aramótinu í golfi áttu ein-
ir sex til átta kylfingar raunhæfa
möguleika á að sigra á mótinu.
En sá sem hélt sinni mestu still-
ingu, maður sem aldrei hefur ver-
ið þekktur fyrir sérstaka stillingu,
Bretinn Ian Poulter stóð uppi sem
sigurvegari að lokum.
Þar með vann Poulter sitt fyrsta
mót á árinu ef frá er talinn Ryder-
bikarinn og í annað skiptið sem
hann hefur sigur á þessu ákveðna
móti. Mótið verður einmitt hluti
af PGA-mótaröðinni frá og með
næsta ári.
Sigurinn var þó aldrei örugg-
ur því fast á hæla Poulter voru
þeir Ernie Els, Lee Westwood,
Phil Mickelson, Louis Oosthuizen,
Adam Scott, Jason Dufner og
Scott Piercy. Sérstaklega reyndist
Mickelson heitur á lokametrun-
um en það dugði ekki til og Poult-
er sigraði með tveggja högga mun.
Sigurinn færði Poulter 250
milljónir króna í vasann en hann
hefur nú sigrað á einu eða fleiri
mótum öll árin sem hann hefur
leikið sem atvinnumaður ef frá er
skilið eitt einasta ár.
albert@dv.is
Rúmenar engin fyrirstaða
n Ísland í efsta sæti riðilsins að loknum tveimur leikjum
Fer vel af stað Aron Kristjánsson
byrjar sérdeilis vel með íslenska lands-
liðið í handknattleik.
n Fyrstu liðin geta tryggt sig áfram úr riðlakeppninni n Síðasti möguleiki margra
F
jórða umferðin í Meistaradeild
Evrópu hefst á morgun, þriðju-
dag, en það er þá sem fer að
greina milli þeirra sem raun-
verulega möguleika eiga og hinna
sem eru með upp á gamanið, ef svo
má segja.
Aðeins fjögur félagslið eru með
hundrað prósent vinningshlutfall eft-
ir þrjá leiki en það eru Barcelona og
Malaga frá Spáni, Manchester United
frá Englandi og Porto frá Portúgal.
Þau eru öll trygg áfram í sextán liða
úrslit bæti þau einum sigri við töl-
fræðina.
Nú eða aldrei
Öllu fleiri félagslið eru þó að missa
af lestinni og munu sannarlega gera
það náist ekki sigur í leikjum fjórðu
umferðar. Það gildir til dæmis um
þau tvö félagslið sem enn eru al-
veg án stiga í riðlakeppninni á þessu
stigi en það eru Dinamo Zagreb í A-
riðli og franska liðið Lille í F-riðli. Hið
fyrrnefnda er vart talið líklegt til af-
reka gegn PSG í París.
Þau eru þó alls ekki ein um að vera
í vondum málum. Ensku meistararnir
í Manchester City eru svo gott sem úr
leik í Meistaradeildinni nái liðið ekki
þremur stigum í heimaleik sínum
gegn Ajax á morgun. Englendingarn-
ir hafa aðeins eitt einasta stig eftir þrjá
leiki og töpuðu einmitt síðasta leik
sínum gegn Ajax 3–1. Er reyndar frá-
leitt víst að sigur dugi Manchester úr
því sem komið er því á toppi þeirra
riðils eru Dortmund og Real Madrid
sem ekki gefa stig neitt að gamni sínu.
Annað franskt lið sem þarf sigur
er Montpellier sem valdið hefur tölu-
verðum vonbrigðum í vetur. Frakk-
arnir sitja neðstir í B-riðli með eitt
stig eins og Anderlecht gerir í C-riðli
og hið danska Nordsjælland í E-riðli.
Sömu sögu er að segja um Benfica og
Galatasaray.
Lumar Wenger á ás í ermi?
Þrír leikir gætu sérstaklega orðið æði
skemmtilegir á miðvikudagskvöldið.
Það er auðvitað viðureign City og
Ajax, og átök verða klárlega milli stór-
liðanna Dortmund og Real Madrid.
En stóra spurningin er hvort Arsene
Wenger, stjóri Arsenal, geti brýnt sína
menn til dáða á útivelli gegn Schalke.
Gengi Arsenal heima fyrir er í lakari
kantinum miðað við fyrri ár og liðið
tapaði 0–2 á heimavelli gegn Schalke í
síðasta leik sínum í Meistaradeildinni.
Úrslit þess leiks munu líklega ráða því
hvort þessara liða fer upp úr B-riðli
sem sigurvegari og mætir því lakari
andstæðingi í sextán liða úrslitum.
Heldur Malaga út gegn AC Milan?
Að öðrum ólöstuðum er spútniklið
Meistaradeildarinnar hingað til vafa-
lítið hið spænska Malaga sem hefur
unnið alla sína leiki hingað til og það
án þess að fá á sig eitt einasta mark.
Töluverð hætta er á að þessi fíni gangur
hjá liðinu sé úti en framundan er úti-
leikur gegn AC Milan sem er sterkasti
andstæðingur liðsins í C-riðli. Malaga
dugir eitt stig til að tryggja sig áfram en
AC Milan er í baráttu um annað sætið
við Zenit Pétursborg og það yrði óvænt
ef Ítalarnir klára það ekki. n
Úrslitastund í
Meistaradeildinni
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Ríkur
Ian Poulter
skortir ekki fé.
Leikir
þriðjudag:
Dinamo Kiev - Porto
PSG - Dinamo Zagreb
Schalke - Arsenal
Olympiakos - Montpellier
Anderlecht - Zenit
AC Milano - Malaga
Manchester City - Ajax
Real Madrid - Borussia Dortmund
Nagar neglurnar
Arsene Wenger og
liðsmenn hans eru
komnir upp að vegg.
Úrslit
Enski boltinn
Liverpool - Newcastle 1–1
0–1 Y. Cabaye (44.), 1–1 L. Suarez (67.)
QPR - Reading 1–1
0–1 Gorkss (16.), 1–1 Cisse (66.)
Man Utd - Arsenal 2–1
1–0 Persie (4.) , 2–0 Evra (67.), 2–1 Cazorla (90.)
Chelsea - Man Utd 2–3
0–1 Luiz sjm. (4.), 0–2 Persie (12.), 1–2 Mata (44.),
2–2 Ramirez (53.), 2–3 Hernandez (75.)
Fulham - Everton 2–2
1–0 Howard sjm. (7.), 1–1 Fellaini (55.), 1–2 Fellaini
(72.), 2–2 Sidwell (90.)
Norwich - Stoke 1–0
1–0 Johnson (44.)
Sunderland - Aston Villa 0–1
0–1 Agbonlahor (57.)
Swansea - Chelsea 1–1
0–1 Moses (61.), 1–1 Pablo (88.)
Tottenham - Wigan 0–1
0–1 Watson (56.)
West Ham - Man City 0–0
Staðan
1 Man.Utd. 10 8 0 2 26:14 24
2 Chelsea 10 7 2 1 22:10 23
3 Man.City 10 6 4 0 18:9 22
4 Everton 10 4 5 1 19:13 17
5 Tottenham 10 5 2 3 17:14 17
6 Arsenal 10 4 3 3 15:8 15
7 Fulham 10 4 3 3 21:16 15
8 West Ham 10 4 3 3 13:11 15
9 WBA 9 4 2 3 13:11 14
10 Newcastle 10 3 5 2 12:14 14
11 Swansea 10 3 3 4 15:14 12
12 Liverpool 10 2 5 3 13:15 11
13 Wigan 10 3 2 5 11:16 11
14 Norwich 10 2 4 4 8:18 10
15 Stoke 10 1 6 3 8:10 9
16 Sunderland 9 1 6 2 6:9 9
17 Aston Villa 10 2 3 5 8:14 9
18 Reading 9 0 5 4 12:18 5
19 QPR 10 0 4 6 8:19 4
20 Southampton 9 1 1 7 14:26 4
Spænski boltinn
Real Sociedad - Espanyol 0–1
0–1 Colotto (77.)
Malaga - Rayo 1–2
0–1 Piti (11.), 1–1 Demichelis (49.), 1–2 Piti (60.)
Barcelona - Celta 3–1
1–0 Adriano (21.), 1–1 Bermejo (24.), 2–1 Villa (26.),
3–1 Alba (60.)
Real Madrid - Zaragoza 4–0
1–0 Higuain (22.), 2–0 Di Maria (24.), 3–0 Essien
(88.), 4–0 Modric (90.)
Valencia - Atlético 2–0
1–0 Soldado (20.), 2–0 Valdez (95.)
Deportivo - Mallorca 1–0
1–0 Gama (30.)
Staðan
1 Barcelona 10 9 1 0 32:12 28
2 Atl.Madrid 9 8 1 0 22:9 25
3 Real Madrid 10 6 2 2 25:7 20
4 Málaga 10 5 3 2 14:7 18
5 Real Betis 9 5 1 3 13:13 16
6 Levante 9 5 1 3 12:14 16
7 R.Valladolid 10 4 2 4 15:11 14
8 Sevilla 9 4 2 3 12:11 14
9 Getafe 9 4 1 4 10:12 13
10 Rayo Vallecano 10 4 1 5 13:23 13
11 R.Zaragoza 10 4 0 6 9:15 12
12 Valencia 9 3 2 4 11:12 11
13 Mallorca 10 3 2 5 10:15 11
14 Celta 10 3 1 6 11:14 10
15 R.Sociedad 10 3 1 6 10:15 10
16 Dep. La Coruna 10 2 4 4 15:20 10
17 Espanyol 10 2 3 5 12:15 9
18 Ath.Bilbao 9 2 2 5 12:19 8
19 Granada 9 2 2 5 8:15 8
20 Osasuna 10 1 2 7 8:15 5
Nýtt met hjá
Barcelona
Hann byrjar vel nýi þjálf-
arinn hjá Barcelona. Tito
Vilanova setti um helgina
sitt fyrsta met en með sigri í
leik gegn Celta er Barcelona
með 28 stig í deildinni eftir
tíu umferðir. Aldrei hefur lið
Barcelona hafið leiktíðina
með svo góðum árangri áður
og þarf reyndar að leita aftur
til ársins 1998 þegar van Gaal
stjórnaði liðinu til að finna
viðlíka árangur. Munurinn á
leik liðsins nú og fyrir ári er
líka áberandi enda liðið nú
með breiðari hóp og ekki síst
annan markahrók í David
Villa ef Leo Messi skyldi nú
eiga slæman dag.