Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2012, Page 22
Vinnur í nettó og
skrifar fantasíur
22 Menning 5. nóvember 2012 Mánudagur
Þuríður Rós í Hafnarborg
n Kannar mörk listar og hönnunar
L
augardaginn 3. nóvember kl. 15
var opnuð sýning Þuríðar Rósar
Sigurþórsdóttur, Hinumegin, í
Sverrissal Hafnarborgar. Á sýn-
ingunni eru verk sem bera með sér
ljóðræna nálgun við hversdagslegan
efnivið og sýnir hún vel þann gald-
ur sem falist getur í vel hugsuðum
innsetningum. Þuríður sýnir meðal
annars skúlptúra úr plastefnum sem
minna á gasblöðrur auk verka sem
hún vinnur meðal annars úr fundn-
um hlutum og gleri. Efniskennd og ná-
kvæmar staðsetningar mynda heild
þar sem speglanir og endurtekningar
eru áberandi um leið og listakonan
veltir fyrir sér mörkunum á milli listar
og hönnunar.
Þuríður Rós stundaði nám við
textíldeild Myndlista- og handíða-
skóla Íslands 1995–97. Hún hélt síðan
til Bretlands og lauk BA-prófi í fata-
hönnun frá Central Saint Martins-
listaháskólanum í London. Hún
hefur starfað sem fatahönnuður bæði
á alþjóðavettvangi og hér heima og er
meðal annars hluti hönnunarteymis-
ins Víkur Prjónsdóttur. Árið 2008 lauk
Þuríður MFA-gráðu í myndlist frá
School of Visual Arts í New York þar
sem hún býr og starfar að myndlist
og hönnun. Á undanförnum árum
hefur hún sýnt verk sín á sýningum
þar í borg við góðar undirtektir. Þetta
er fyrsta einkasýning Þuríðar hér á
landi.
Fyrsta einkasýning Þuríðar
Þuríður (f. miðju) starfaði sem
fatahönnuður lengi vel og er hluti
hönnunarteymisins Víkur Prjónsdóttur.
Hún hefur helgað sig myndlist hin
síðari ár. Mynd: norræni tísKutvíæringurinn
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Listahátíðar
Auður Rán Þorgeirsdóttir hefur
verið ráðin framkvæmdastjóri
Listahátíðar í Reykjavík.
Hún hefur áður starfað sem
verkefnastjóri hjá Höfuðborgar-
stofu þar sem hún stýrði viðburð-
um á borð við Menningarnótt og
Vetrarhátíð. Hún var hvatamaður
að umsókn borgarinnar um tit-
ilinn Bókmenntaborg UNESCO
og var annar tveggja stjórnenda
verkefnisins hjá Menningar-
og ferðamálasviði Reykjavíkur.
Auður Rán tekur við starfi fram-
kvæmdastjóra Listahátíðar af
Guðrúnu Norðfjörð.
Friður Tolla
Í Smiðjunni Listhúsi stendur
nú yfir sýning á verkum Tolla
Morthens sem ber yfirskriftina
Friður. Í tilkynningu segir að verk-
in á sýningunni séu ný olíumál-
verk sem bera með sér óð til friðar
og fegurðar þar sem landslagið og
birtan leikur aðalhlutverkið. Tolli,
sem er mörgum kunnugur og hef-
ur sýnt verk sín víða um heim,
fagnar um þessar mundir 30 ára
sýningarafmæli sínu. Í lok nóvem-
ber mun hann svo opna sýningu í
sendiráði Íslands í London.
Magni með
nýja plötu
Magni sendir um þessar mundir
frá sér sína aðra sólóplötu: Í hug-
anum heim. Tvö laga plötunnar,
Heim og Augnablik, hafa notið
velgengni á útvarpsstöðvum síð-
ustu mánuði en platan inniheld-
ur tíu ný lög auk þess sem lagið
Hugarró sem Magni söng í unda-
keppni Eurovision síðasta vor
fær að fljóta með. Magni vann
og samdi plötuna að mestu í
samstarfi við Vigni Snæ Vigfús-
son upptökustjóra en auk þeirra
lögðu Ásgrímur Ingi Arngríms-
son, Rúnar Þór Þórarinsson og
Sævar Sigurgeirsson sín höf-
undarverk á vogarskálarnar.
n Elí Freysson er með Asperger-heilkenni og heillast af bókum
E
lí Freysson er þrítugur Akur-
eyringur sem hefur klárað
handrit að fjórum skáldsög-
um og er byrjaður á sinni
fimmtu. Í fyrra gaf hann út bók-
ina Meistari hinna blindu og í ár
gefur hann út sjálfstætt framhald,
Ógnarmána.
Með Asperger-heilkenni
Elí vinnur í Nettó við vöruáfyll-
ingar. Hann er með Asperger-heil-
kenni og hefur síðan í barnæsku
haft áhuga á bókmenntum. „Ég
las mikið sem barn og unglingur,
þegar ég átti fremur erfitt, þá las ég
enn meira, ætli ég hafi ekki leitað á
náðir bókarinnar,“ segir Elí.
„Ég vinn í Nettó, vinn þar við að
fylla á vörur. Þegar ég er heima, þá
les ég og skrifa. Ég er ekki félags-
lyndur og ætli ég hafi ekki meiri
tíma til þess að sinna áhugamál-
um mínum en margir aðrir.“
skrifaði bókina fyrst á ensku
Elí skrifaði bók sína fyrst á ensku
og reyndi að koma henni á markað
erlendis. „Það var miklu erfiðara
en ég hélt, svo ég snaraði henni yfir
á íslensku. Ég hef svo endurskrifað
hana mjög oft.“
Spurður hvort hann haldi að
heilkennið gefi honum kraft í
skriftirnar, segist hann ekki vita
það. „Mér er stundum sagt það,
en ég veit það ekki sjálfur. Ég þekki
það ekki að vera öðruvísi. Ég þekki
það bara að vera ég.“ n
„Ég þekki það ekki
að vera öðruvísi.
Ógnarmáni Sjálfstætt framhald
Meistara hinna blindu.