Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 28. nóvember 2012 Miðvikudagur B orghildur Guðmundsdótt- ir þurfti að berjast fyrir for- ræðinu yfir börnum sínum þegar bandarískur barns- faðir hennar krafðist þess að fá börnin aftur út. Borghildur lýsir reynslu sinni í bókinni Ég gefst aldrei upp. Lögmaður hennar hér á Íslandi, Sveinn Andri Sveinsson, kemur þar við sögu en Borghildur sakar hann um að sofna á fundi með sér, mæta illa undir- búinn í dómsal og senda sér smáskila- boð með niðurstöðu Hæstaréttar; að henni væri gert að snúa til Bandaríkj- anna með syni sína, níu og fjögurra ára. Kemur enn á óvart „Sms-ið kemur mér enn á óvart,“ segir Borghildur. „Ég held að það sé það allra ópersónulegasta sem nokkur maður hefur nokkurn tímann gert mér og langt í frá að vera í lagi. Að lögmað- urinn sem átti að verja mig og börnin mín hafi ekki haft það í sér að hringja eitt símtal og segja: „Því miður Bogga mín, því miður staðfesti Hæstiréttur héraðsdóm.“ Það hefði ekki tekið hann lengri tíma en að senda skilaboðin.“ Borghildur telur að Sveinn Andri hafi brugðist henni með margvíslegum hætti. Hún segir að hann hafi til dæmis ekki sótt um gjafsókn líkt og hún óskaði eftir, fengið málinu vísað frá eins og hún telur að hefði átt að vera hægt að gera eða lagt sönnunargögn fyrir dóminn sem hún lét hann fá, eins og upptökur af samtölum hennar við barnsföður sinn. „Samkvæmt Haag- samningnum hefði málið þurft að vera komið inn á borð héraðsdóms innan tólf mánaða frá komu drengjanna til Íslands. Þess vegna hefði hann getað farið fram á frávísun, því börnin væru þegar búin að aðlagast nýju umhverfi. En hann gerði það ekki.“ Blóraböggull Sveinn Andri var staddur erlendis þegar blaðamaður náði tali af honum og hafði ekki séð bók Borg- hildar eða þær ásakanir sem í henni koma fram. „Ég hef ekkert um það að segja,“ sagði Sveinn Andri og sagð- ist engan áhuga hafa á því að svara þessu. „Hún verður bara að eiga þetta við sjálfa sig.“ Aðspurður hvort það væri rétt að hann hefði sofnað á fundi sagði hann að það væri fráleitt: „Það er bara lygi,“ og kvaddi. Hann svaraði hins vegar fyrir sig árið 2009 þegar Borghildur var í viðtali við Morgunblaðið. Þar sagði hann að þegar mál færu illa þyrftu málsaðilar oft blóraböggul og í þessu tilfelli væri það hann. Spurður um sms-sendinguna sagðist hann hafa verið í fríi og ekki í aðstöðu til að ræða við hana en viljað koma skila- boðunum sem allra fyrst til Borghild- ar. „Sannleikurinn er að ég reifaði öll þessi mál fyrir héraðsdómi,“ sagði hann. En þegar of langur tími liði frá málflutningi og fram að úrskurði væri gjarna eingöngu stuðst við skrif- leg gögn. „Það er ekki orð af því sem kom fram í hálfsdagsflutningi, sem fer inn í sjálfan úrskurðinn.“ Sveinn Andri sagði það rétt hjá Borghildi að símtölin við föðurinn hefðu ekki verið lögð fram við flutn- ing málsins í héraðsdómi. Hins vegar hafi þau verið lögð fram með kærunni til Hæstaréttar. „Það kom í sjálfu sér ekki mikið fram í þessum símtölum en Borghildur vildi að þau færu með. Í greinargerð minni til Hæstaréttar lagði ég áherslu á þau og annað sem stutt gæti málið. Það sem greinilega vó þyngst var að Borghildur fór frá Banda- ríkjunum án samþykkis föðurins.“ Þess ber að geta að Borghildur hélt baráttu sinni fyrir börnunum áfram úti í Bandaríkjunum þar sem hún vann málið. Treysti honum fullkomlega Þrátt fyrir að Borghildur greini ítarlega frá samskiptum sínum við lögmann- inn í bókinni kallar hún hann ekki sínu rétta nafni heldur notar hún dulnefnið Önundur. Aðspurð um ástæður segir hún: „Maður dansar á tánum í kring- um svona.“ Hún bætir því við að þetta sé viðkvæmt. Bókina skrifaði hún hins vegar til þess að benda á atriði eins og þessi, það sem betur mætti fara fyrir hjá fólki sem stendur í þessari baráttu. „Mig langaði til dæmis að beina því til fólks sem telur sig í öruggum hönd- um að það er ekki alltaf allt sem sýnist. Ef ég vissi það sem ég veit í dag hefði ég til dæmis aldrei ráðið þennan lög- fræðing, ég hefði aldrei treyst honum fyrir mér og börnunum mínum. Ég hafði ekki hugmynd um það hver þessi maður var, ég hafði bara heyrt að hann væri algjör nagli og taldi mig svo heppna því hann ætlaði að verja mig. Hann sem væri vanur að verja allt og alla og gæti meira að segja varið menn sem varla væri hægt að verja. Þannig að ég treysti honum fullkomlega, jafnvel þegar hjarta mitt sagði mér að gera það ekki. Enda átti ég að geta treyst honum fyrir lífi mínu og barnanna, við áttum það skilið að hann tæki okkur alvarlega.“ Kærður til siðanefndar Hún segist fyrst hafa áttað sig á áhuga- leysi hans þegar hann sofnaði á fundi með henni. „Ég þekkti ekki lögin þannig að ég treysti dómgreind hans. En ég þarf ekki að vera mjög gáfuð til þess að átta mig á því að það er eitt- hvað að þegar lögmaðurinn dottar á fundi,“ segir Borghildur sem bætir því við að þegar málinu var lokið hefði hún tjáð honum reiði sína og sagt að hann hefði átt að gera betur. „Hann svaraði því til að eflaust væri alltaf hægt að gera betur. Lögfræðingur sem tekur svona mál að sér á aldrei að gera minna en hann getur. Ég hélt að hann væri einn harðasti lögmaður landsins en hann var það ekki. Hann hafði það orð á sér en stóð ekki undir því.“ Að endingu kærði hún framgöngu Sveins Andra til úrskurðarnefndar Lögmannafélags Íslands. „Ég þurfti að ýta á eftir því að málið yrði tekið þar fyrir, það gerðist ekkert fyrr en ég hót- aði fjölmiðlaumfjöllun um málið. Þá hafði hann sjálfur samband við mig og bauðst til þess að fella niður allan málskostnað ef ég félli frá kærunni. Þannig að ég vildi afsökunarbeiðni og hreinan skjöld. Þessar samninga- viðræður fóru fram í gegnum lög- mannafélag Íslands og að lokum felldi hann niður reikninginn og dró fjár- námskröfuna til baka. Þar með var málinu lokið.“ Óvænt aðstoð Hér á eftir birtum við brot úr bókinni. Þar segir Borghildur meðal annars frá því að hver lögmaðurinn á fætur öðr- um hafi neitað að taka málið að sér og hún hafi verið við það að fyllast von- leysi þegar Sveinn Andri Sveinsson svaraði skilaboðum frá henni og hr- ingdi. Hún lýsir þessu svona, en eins og fyrr segir gaf hún lögmanninum dulnefnið Önundur: „„ Borghildur. Hver er kennitalan þín?“ spurði hann. Mér brá við þessa spurningu. „Af hverju viltu kennitöluna mína?“ spurði ég strax. „Ég tek alltaf niður kennitöluna hjá nýjum skjólstæðing- um.“ Ég brast í grát. Hann ætlaði að hjálpa okkur. Einn þekktasti, harðasti lögfræðingur þjóðarinnar ætlaði að hjálpa okkur. Ég útskýrði málin fyrir honum og hann bað mig um að mæta á fund til sín strax daginn eftir.“ Hún segist hafa verið fullviss um að hjá honum væri hún í öruggum hönd- um. Hins vegar hafi annað komið á daginn: „Mér fannst óþægilegt hvað hann hljómaði alltaf upptekinn í sím- anum, svona eins og hann þyrfti að troða mér inn í sitt annasama líf. Mér fannst ég alltaf vera að trufla hann þegar ég loks náði tali af honum, hvort sem það var í síma eða á fundi á lög- fræðiskrifstofunni hans. Þessir fundir, allir nema einn, voru styttri en þrjátíu mínútur. Þá stóð Önundur alltaf upp og gerði sig kláran í að ljúka fundinum og undantekningarlaust fór ég heim, eitt stórt spurningarmerki.“ „Ertu að sofna?“ „Einn fundur okkar Önundar sneri öllu á hvolf fyrir mér gagnvart honum. Við vorum að ræða næstu skref máls- ins og stuttu eftir að ég fékk kaffibolla í hendurnar kom hann inn í fundarher- bergið. Hann heilsaði, brosti og fékk sér sæti. Hann spurði mig hvað væri nýtt í málinu. Ég þuldi upp þó nokkra hluti, talaði um hvað ég væri hrædd við og annað. Í miðjum klíðum leit ég á Önund og snarþagnaði. Hann sat þarna og, að mér sýndist, dottaði. Munnurinn á honum opnaðist aðeins, eins og hann væri í algjörri slökun og augun voru lokuð. „Ertu að sofna?“ spurði ég hátt. Önundi brá greinilega. Hann stóð upp og gekk fram og til baka inni í fundarherberginu eins og hann væri að reyna að vakna og svarið hans var „nei nei“. Ég varð gjörsamlega kjaft- stopp,“ segir í bókinni: „Ég var miður mín. Lögfræðingurinn minn sofnaði á fundinum eins og ég hefði verið að ræða um tyggjópakka við hann en ekki börnin mín – líf mitt.“ Byrjaði illa Forræðismálið var tekið fyrir í héraðs dómi þann 18. júní. Þetta var Sakar Svein andra um að hafa Sofnað Á fundi n Hann segir það vera lygi n Barðist um forræðið við bandarískan barnsföður n Kærði lögmanninn til siðanefndar Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Hún verður bara að eiga þetta við sjálfa sig Blóraböggull Sveinn Andri Sveinsson segir það lygi að hann hafi sofnað á fundi með skjólstæðingi sínum en vildi ekki tjá sig frekar um þessar ásakanir. Áður hefur hann sagt að hann hafi verið gerður að blóraböggli í þessu máli. Hrina óhappa í hálkunni Mörg umferðaróhöpp hafa átt sér stað á Suðurnesjum undanfarna daga, sem flest má rekja til hálku. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Grindavíkurvegi með þeim afleiðingum að hún hafnaði á skilti utan vegar. Önnur bifreið hafnaði á kantsteini af sömu sök- um og urðu skemmdir á hjóla- búnaði hennar. Á Reykjanesbraut missti ökumaður stjórn á bifreið sinni vegna hálku og hafnaði bif- reiðin utan vegar eftir að hafa rekist utan í aðra bifreið. Fjórðu bifreiðinni var ekið á ljósastaur á Grænásvegi. Auk þessa varð minniháttar árekstur í Njarðvík á mánudag og tilkynnt var til lög- reglu um skemmdir á bifreið eftir að ekið hafði verið utan í hana. Sá sem hlut átti að máli lét sig hverfa af vettvangi. Fíkniefnasali handtekinn Lögreglan á Suðurnesjum hand- tók um helgina fíkniefnasala og haldlagði kannabisefni í sölu- einingum sem fundust við húsleit á heimili félaga hans. Í gasgrilli bak við húsið fundust kannabis- efni og við frekari leit fannst á annan tug poka með kannabis- efnum í garði hússins, tilbúnir til sölu. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá lögreglunni á Suðurnesj- um. Maðurinn, sem er innan við tvítugt, játaði að eiga efnin og einnig sölu fíkniefna, eftir að hann hafði verið handtekinn og færður til skýrslutöku á lögreglustöð. Þá haldlagði lögreglan tals- vert magn af sveppum sem fannst við húsleit hjá öðrum karlmanni í umdæminu. Sá síðarnefndi, sem er á þrítugsaldri, var einnig með sýnapoka og vog í fórum sínum. Stal úlpu og veiðivörum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fertuga konu í tveggja mánaða fangelsi fyrir þjófnaða- brot. Konan stal sér vetrarúlpu í verslun í miðborginni í byrjun desember 2010 og úr sameigin- legu þvottahúsi fjölbýlishúss stal hún veiðivörum, leikjatölvu og nokkrum tölvuleikjum í febrúar 2011. Konan játaði sök og hlaut hún tveggja mánaða fangelsi sem fyrr segir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.