Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 28. nóvember 2012 Miðvikudagur Framlög til Sinfó hækkað n Fá mest af helstu listfélögum á framfæri ríkisins F ramlög íslenska ríkisins til Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa hækkað um 84,7 milljónir króna vegna hækkunar á leigu- greiðslum við flutning hljómsveitar- innar í Hörpu. Sinfóníuhljómsveitin fær árlega tugi milljóna króna úr ríkis sjóði til að standa undir rekstri sínum. Íslenska ríkið á sjálft fimmtíu prósenta hlut í Hörpu á móti Reykja- víkurborg og endar því leigupen- ingurinn í vissum skilningi aftur hjá ríkinu. Þetta kemur fram í svari Katrín- ar Jakobsdóttur, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, við fyrirspurn þingmannsins Sigmundar Ernis Rúnarssonar á Alþingi. Þar kemur einnig fram að til standi að hækka framlög til hljómsveitarinnar enn meira á næsta ári. Í fjárlögum árið 2013 er gert ráð fyrir að framlög ríkis- ins vegna leigugreiðslna hljómsveit- arinnar á næsta ári hækki um 4,7 milljónir króna. Spurning Sigmundar Ernis snérist að hinum ýmsu listfélögum en voru Listasafn Íslands, Íslenski dansflokk- urinn, Þjóðleikhúsið og Íslenska óperan nefnd sérstaklega auk Sin- fóníuhljómsveitarinnar. Í saman- burðartöflu sem sett er fram í svari Katrínar sést að hljómsveitin fær mest af peningum ríkisins af þess- um listfélögum í ár og á næsta ári. Til að mynda er gert ráð fyrir að hljómsveitin fái tæpum 33 milljón- um meira en Þjóðleikhúsið úr ríkis- sjóði í ár. Helstu skýringar á hækkun fram- laga ríkisins til Sinfóníuhljómsveit- arinnar eru leigukostnaður og launa- og verðlagsbreytingar. Á milli fjárlaga 2011 og 2012 hækkaði framlagið um 101,9 milljónir vegna launa- og verð- lagsbreytinga. n adalsteinn@dv.is Kostar sitt Sinfóníuhljómsveitin borgar tals- vert meira í leigu eftir að hafa flutt sig í Hörpu. Réðst á ungan mann með dúkahníf Þrír karlmenn eru ákærðir fyrir meiriháttar, og sérstaklega hættu- lega líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur. Tveir mannanna, átján og tuttugu ára, eru ákærð- ir fyrir að hafa gengið í skrokk á þeim þriðja, sem er átján ára, fyrir utan Kolaportið í mars síðast- liðnum. Sá þriðji, eða fórnarlambið úr fyrra málinu, er síðan ákærður fyrir að ráðast á jafnaldra sinn sem hefur verið ákærður fyrir að ganga í skrokk á honum sjálfum ásamt tvítugum félaga sínum, eins og fyrr segir. Sá á, sama kvöld, að hafa veist að jafnaldra sínum á sama stað með því að skalla hann í höfuð, slá hann ítrekað í líkama og höfuð og hafa með blaði úr dúkahníf veitt honum rúmlega 40 sentímetra skurðarsár á kvið sem náði frá vinstri rifjaboga lóðrétt niður að vinstri mjaðmarspaða og þaðan aftur á við. Málið hefur verið þingfest. Elvu Brár enn saknað Enn hefur ekkert spurst til Elvu Brár Þorsteinsdóttur, 22 ára. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu sendi frá sér tilkynningu þann 23. nóvember þar sem hún óskaði eftir því að þeir, sem hafi vitneskju um hvar Elva er niðurkomin, hafi sam- band. Elva er 165 sentímetrar á hæð, grannvaxin og dökkhærð. Síðast þegar vitað var um hana var hún klædd í svarta kulda- úlpu með hettu en hettan er úr skinni. Almenningur er beðinn um að hafa samband í síma 444 1000. Bíður ákvörðunar um ákæru hjá lögreglu M ál Jóns Snorra Snorra- sonar, lektors í viðskipta- fræði við Háskóla Ís- lands og fyrrverandi stjórnarformanns iðn- fyrirtækisins Sigurplasts, er kom- ið til lögfræðisviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan íhugar nú hvort gefa eigi út ákæru í því. Arion banki kærði Jón Snorra fyrir veðsvik fyrr á árinu og greindi DV frá því í júní síðastliðinn að rannsókn málsins væri lokið. Þá hafði lögreglan tekið skýrslu af nokkrum aðilum vegna málsins, meðal annars starfsmönnum Arion banka. Kári Ólafsson, saksóknarfull- trúi hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, sem annast hafði rannsókn málsins, sagði í júní að rannsókn málsins væri lokið. „Ég get staðfest það að mál tengt honum [Jóni Snorra Snorrasyni, innsk. blm.] hefur verið til rann- sóknar hér. Rannsókn er lokið og það tengist því félagi sem þú nefn- ir [Sigurplasti, innsk. blm.]. En sú ákvörðun ætti að liggja fyrir á allra næstu dögum, í síðasta lagi eftir viku,“ sagði Kári. Ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út í málinu liggur hins vegar ekki enn fyrir. DV hafði samband við Kára Ólafsson til að spyrja hann út í málið en Kári benti á yfirmann sinn, Jón H. B. Snorrason. Hann vildi hins vegar heldur ekkert tjá sig um málið. Átta stefnur Líkt og komið hefur fram í DV leikur grunur á að lögbrot; skattalagabrot, skilasvik, veðsvik, umboðssvik og fjárdráttur hafi átt sér stað í rekstri Sigurplasts áður en fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta haustið 2010. DV hefur fjallað ítarlega um starfsemi Sigurplasts síðastliðin tvö ár, meðal annars skýrslu endur- skoðendafyrirtækisins Ernst & Young sem skiptastjóri Sigurplasts lét vinna um starfsemi félagsins. Sú skýrsla varð meðal annars til þess að skiptastjórinn hefur gefið út átta stefnur gegn fyrrverandi stjórnend- um félagsins sem miða að því ná til baka fjármunum sem talið er að þeir hafi hlunnfarið bú Sigurplasts um áður en það fór í þrot. Í skýrslunni er rakið hvernig eignir og fjármunir Sigurplasts voru færðir yfir í nýtt félag, Viðarsúlu ehf., árið 2009 á kostnað kröfuhafa félags- ins, Arion banka. Viðarsúla sérhæfir sig í framleiðslu á alls kyns umbúð- um úr plasti líkt og Sigurplast og er stýrt af sömu aðilum og stýrðu Sigur- plasti. Viðarsúla er í rekstri í dag sem og Sigurplast, eða nýtt fyrirtæki sem stofnað var með sama nafni, og er í eigu Arion banka. Haustið 2010 gáfu eigendur Sigur plasts, Sigurður L. Sævarsson og Jón Snorri Snorrason, fyrirtæk- ið svo upp til gjaldþrotaskipta. Litlar eignir voru þá í búinu en skuldir fé- lagsins við Arion banka námu um 1.100 milljónum króna. Saksóknari rannsakar líka Skiptastjóri Sigurplasts, Grímur Sigurðsson, sendi kæru til efna- hagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra árið 2011 þar sem hann kærði stjórnendur félagsins vegna gruns um margs konar lögbrot. Um þetta sagði í skýrslu Ernst & Young, þar sem vísað var til þess að endurskoðendafyrirtækið ætti að hafa til hliðsjónar: „… kæru sem send hefur verið ríkislögreglu- stjóra vegna meints fjárdráttar og annarra brota í rekstri Sigurplasts ehf.“ Rannsóknin á Sigurplastsmál- inu lenti inni á borði sérstaks sak- sóknara eftir að efnahagsbrota- deildin sameinaðist embættinu í fyrra. Ekkert hefur spurst um niðurstöðuna úr rannsókn sérstaks saksóknara í Sigurplastsmálinu. Því liggur fyrir að Sigurplastsmálið hefur verið til rannsóknar hjá að minnsta kosti tveimur stofnun- um sem fara með ákæruvald, lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu og embætti sérstaks saksóknara. Þá var kæra skiptastjórans einnig send til skattrannsóknarstjóra. n n Sigurplastsmálið hjá sérstökum saksóknara og lögreglunni Veðsvik og átta stefnur Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu á eftir að ákveða hvort Jón Snorri Snorrason verður ákærður fyrir veðsvik. Skiptastjóri Sigurplasts hefur höfðað átta mál út af málefnum Sigurplasts þar sem fyrir liggur að fjármunir hafi verið teknir út úr búinu með óeðlilegum hætti fyrir þrotið. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Lögreglan íhugar nú hvort gefa eigi út í ákæru í því. Enginn dómur Í frétt DV um Sverri Þór Gunnars- son, Svedda tönn eins og hann er kallaður, kemur fram að hann hafi flúið frá Spáni eftir að hann hlaut þar níu ára fangelsisdóm. Guð- mundur St. Ragnarsson, lögmað- ur Sverris á Íslandi, segir Sverri engan dóm hafa fengið á Spáni. Aftur á móti vilji lögreglan á Spáni ná tali af Sverri í tengslum við fíkniefnamál þar í landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.