Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 28. nóvember 2012 Miðvikudagur
Nýtt ókeypis
strætóforrit
Á þriðjudag kynnti Strætó bs nýja
þjónustu fyrir farþega sína, nýtt
forrit eða app fyrir Android- og
iPhone-síma. Innan skamms er
væntanleg útgáfa fyrir Windows
Mobile-síma.
Forritið er hannað til að auð-
velda viðskiptavinum Strætó að
komast leiðar sinnar. Þannig er
til dæmis hægt að finna bestu
og stystu leiðina á áfangastað,
sjá staðsetningu vagna í raun-
tíma, leita eftir brottför vagna frá
ákveðnum biðstöðvum – í raun-
tíma – og margt fleira.
Farþegar geta enn fremur
vistað í forritið þær biðstöðvar
sem þeir notar mest og þá birtir
appið á skýran hátt hvaða vagnar
eiga leið um þær biðstöðvar og
hversu langt er í næsta vagn.
Í náinni framtíð geta farþegar
nýtt forritið til að fá nýjustu fréttir
af því sem Strætó þarf að koma
á framfæri hverju sinni, eins og
breytingum á áætlun, til dæmis
vegna vegaframkvæmda eða
veðurs.
Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs sagði við þetta
tilefni: „Það er stefna Strætó bs
að auðvelda aðgengi farþega að
ferðatengdum upplýsingum sem
eru mikilvægur liður í reglu-
bundinni notkun okkar þjónustu.
Nú þegar hefur vefurinn okkar
sannað gildi sitt sem slíkur mið-
ill og nýja appið okkar er þannig
enn ein leiðin til að nálgast þess-
ar upplýsingar með því einu að
hafa snjallsíma við höndina. Fyrir-
hugað er að þróa og efla bæði
þessi viðmót enn frekar. Þannig
er ráðgert að bjóða upp á kaup á
fargjöldum með snjallsímanum
á næstu misserum ásamt öðrum
nytsamlegum nýjungum.“
Forritið er ókeypis og er hægt
að sækja það á heimasíðu Strætó.
Ofurölvi með
son sinn í
bílnum
Karlmaður var dæmdur til 250
þúsunda króna sektar í Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir að aka
ofur ölvi með þriggja ára son
sinn í bílnum. Maðurinn var
einnig sviptur ökuréttindum til
þriggja ára. Í dóminum kemur
fram að maðurinn hafi mælst
með 3,0 prómill vínanda í blóði
en leyfilegt hámark er 0,5 pró-
mill. Maðurinn ók syni sínum
heim úr leikskóla en starfsmenn
leikskólans höfðu þá tilkynnt
lögreglu að hann væri augsýni-
lega ölvaður. Í vitnisburði þeirra
kom meðal annars fram að
maðurinn hefði þurft hjálp við
að festa son sinn í bílstólinn.
Faðirinn neitaði sök og kvaðst
hafa verið timbraður þennan
dag vegna þess að hann hefði
drukkið áfengi kvöldið áður.
Ú
tgerðarfélag Akureyringa,
sem Samherji keypti af Brimi
í fyrra fyrir 14,5 milljarða
króna, skilaði tæplega millj-
arði króna í hagnað á síðasta
ári. Þetta kemur fram í ársreikningi
félagsins sem skilað var til ríkis-
skattstjóra þann 12. nóvember síð-
astliðinn. Í ársreikningnum kemur
fram að eignir félagsins séu metn-
ar á nærri 17 milljarða króna. Eign-
irnar sem Samherji keypti af Brimi
voru fiskvinnsla á Akureyri og Laug-
um, tveir ísfisktogarar og veiðiheim-
ildir í þorski, ýsu, steinbít og skar-
kola, 5.900 þorskígildistonn.
Orðrétt segir um þetta í skýrslu
stjórnar í ársreikningnum: „Hagn-
aður af rekstri félagsins nam 960,5
millj. kr. árinu 2011 samkvæmt
rekstrarreikningi. Eignir félagsins
námu 16.683,0 millj.kr. og eigið fé
nam 4.561,6 millj. kr. í árslok sam-
kvæmt efnahagsreikningi að með-
töldu hlutafé að fjárhæð 360,0 millj.
kr. Eiginfjárhlutfall félagsins í árslok
var 27,3%.“
Nærri tveggja milljarða munur
Kaupverðið á eignum Útgerðar-
félags Akureyringa nam um 14,5
milljörðum króna og var aðallega
greitt með yfirtöku skulda Brims við
Landsbankann. Yfirtaka skulda nam
nærri 11 milljörðum króna en eigin-
fjárframlag Samherja í viðskiptun-
um nam 3,6 milljörðum króna. Í árs-
reikningnum kemur fram að skuldir
Útgerðarfélags Akureyringa sé að
langmestu í erlendum myntum, að-
allega evrum. Í tilkynningu um við-
skiptin sem Samherji sendi frá sér
kom fram að eiginfjárframlagið
hefði verið fjármagnað með sölu á
erlendum eignum. Ekki var tekið
fram hvaða eignir það voru sem
voru seldar. Rúmlega tveggja millj-
arða króna munur er því á kaup-
verðinu á þessum eignum Brims og
verðmati Samherja á þeim.
Þá var haft Þorsteini Má
Baldvinssyni, forstjóra félags-
ins, í tilkynningunni að eiginfjár-
framlagið hefði komið til landsins
erlendis frá. „Við höfum ávallt haft
trú á sjávar útveginum. Þess vegna
höfum við ákveðið að leggja 3.600
milljónir króna í þennan rekstur. Við
gerum okkur grein fyrir því að þessi
ákvörðun felur í sér nokkra áhættu
en við teljum okkur ráða við hana,
ekki síst vegna þess að afkoma af
starfsemi okkar erlendis hefur verið
ágæt að undanförnu. Við munum
selja erlendar eignir til að leggja
fram það eigin fé sem þarf og færa
þannig gjaldeyri inn í landið.“
Í eigu samfélags og
á Afríkuútgerðina
Útgerðarfélag Akureyringa hét áður
Katla Iceland og var stofnað af fé-
lagi í eigu Samherja á Kýpur. Þetta
kemur fram í stofngögnum félags-
ins. Félagið heitir Fidelity Bond In-
vestments Ltd. Líkt og DV hefur
greint frá eiga Fidelity Bond Invest-
ments og annað kýpverskt félag í
eigu Samherja, Miginato Holdings
Ltd., eignir upp á um átta millj-
arða króna en um er að ræða útgerð
Samherja í Afríku sem blaðið hefur
fjallað talsvert um.
Í stofngögnum Útgerðarfélags
Akureyringa kemur fram að hluta-
fé félagsins, rúm milljón króna, hafi
allt verið í eigu Fidelity Bond In-
vestments. „Fidelity Bond Invest-
ment Ltd, skráð á Kýpur, skráir sig
fyrir öllu hlutafénu.“ Eignarhaldið
á félaginu færðist svo yfir til Sam-
herja. Líklegt má telja að fjár-
munirnir sem runnu til Útgerðar-
félags Akureyringa erlendis frá hafi
komið frá Kýpurfélaginu. n
Samherji á nærri
17 milljarða í ÚA
n Hagnaður Útgerðarfélags Akureyringa nam nærri milljarði í fyrra„Við munum selja
erlendar eignir til
að leggja fram það eigið fé
sem þarf og færa þannig
gjaldeyri inn í landið.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Eignirnar metnar
á 16 milljarða
Eignir Útgerðarfé-
lags Akureyringa,
sem Samherji
keypti af Brimi í
fyrra, eru metnar
á nærri 17 milljarða
króna. Þorsteinn
Már Baldvinsson er
forstjóri Samherja.
K
ona að nafni Kolbrún Birgis-
dóttir sótti um jólaaðstoð hjá
Fjölskylduhjálpinni á þriðju-
dag og segist hafa gengið
fram á konur að sprauta sig þar fyrir
utan. „Ég var bara á leiðinni út og
þær voru þarna á bekknum, með
handlegginn uppi og nálina í,“ segir
Kolbrún.
„Mér flökraði bara, ég vil ekki
sjá svona, það eru börn að leika sér
hérna. Þannig að ég spurði hvern
andskotann þær væru að gera og
þá hentu þær sprautunum á bak við
steina með nálinni og umbúðun-
um og blóði og öllu og flúðu. Þetta
er smitandi, ein stunga, einn blóð-
dropi sem fer í sár og þá ertu smit-
uð. Sprauturnar eru þarna við stein-
inn,“ segir Kolbrún.
Sjálf var hún eitt sinn á götunni.
„Ég bjó einu sinni á Konukoti og þar
voru sprautufíklar. Ég þekki þetta
fólk frá gamalli tíð en ég hvæsi á það
í dag. Fólk sem gerir svona kann
ekki einu sinni að skammast sín.
Fjölskylduhjálpin er að hjálpa nauð-
stöddum og má ekki við þessu. Við
komum hingað til þess að sækja um
aðstoð fyrir jólin, konur og börn og
fólk á öllum aldri.“
Ásgerður Jóna Flosadóttir s egir
að þetta sé viðvarandi vandamál við
Fjölskylduhjálpina. „Við erum bún-
ar að líða þetta í heilt ár en við höf-
um ekki viljað gera mál úr þessu því
við vitum að Konukot er þarft úr-
ræði. Hins vegar er þetta er bara
hérna við innganginn hjá okkur og
það er ekki boðlegt. Þetta er algjör
viðbjóður.“ n
ingibjörg@dv.is
„Það eru börn að leika sér hérna“
n Skjólstæðingur Fjölskylduhjálparinnar gekk fram á tvær konur að sprauta sig
Viðvarandi vandamál Ásgerður Jóna Flosadóttir segir sprautunálar við Fjölskylduhjálp-
ina viðvarandi vandamál og skellir skuldinni á konurnar í Konukoti sem er í næsta nágrenni.