Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Side 13
Erlent 13Miðvikudagur 28. nóvember 2012
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
M
aria Santos Gorrostieta,
fyrrverandi bæjarstjóri
Tiquicheo í Mexíkó, öðl-
aðist heimsfrægð fyrr á
þessu ári fyrir að standa
uppi í hárinu á harðsvíruðum glæpa-
gengjum borgarinnar. Nú er þessi
„hetja 21. aldarinnar“, eins og hún
var kölluð af löndum sínum, fallin
í valinn eftir að hafa verið numin á
brott, pyntuð og myrt af sömu glæpa-
gengjum og hún barðist gegn.
Króuð af
Það var að morgni 12. nóvember að
Maria var á leið með unga dóttur sína
í skólann í borginni Morelia. Vopn-
aðir menn á bifreið króuðu hana af
og skipuðu henni að stíga út úr bif-
reið sinni. Þegar hún lét undan réð-
ust mennirnir að henni, börðu hana
í götuna á meðan fjöldi fólks stóð og
horfði á. Vitni lýstu því í samtali við
mexíkóska dagblaðið El Universal að
Maria hefði grátbeðið þá um að veita
dóttur hennar miskunn gegn því að
hún færi með þeim. Dóttir Mariu grét
á meðan hún sá á eftir móður sinni
í bifreið misyndismannanna. Næstu
daga beið fjölskylda Mariu eftir því
í örvæntingu að símtal bærist og að
krafist yrði lausnargjalds. En ekkert
gerðist og átta dögum síðar fannst
illa útleikið lík Mariu í vegkanti í San
Juan Tararameo. Hún hafði verið
stungin, brennd og bundin á hönd-
um og fótum. Maria, sem var 36
ára, skildi eftir sig dóttur, tvo syni og
eigin mann.
Eiginmaðurinn lést
Maria var kjörin bæjarstjóri
Tiquicheo, strjálbýlu héraði vest-
ur af Mexíkóborg, árið 2008. Nán-
ast um leið og hún tók við embætti
bárust henni hótanir enda hafði hún
gefið það út að dópgengi yrðu ekki
tekin neinum vettlingatökum. Fyrsta
morðtilraunin var gerð í október 2009
þegar byssumenn hófu skothríð að
bifreið hennar og eiginmanns hennar
í bænum El Limone. Eiginmaður
hennar lést í árásinni en Maria lifði af
þótt litlu hefði mátt muna. Hún varð
fyrir kúlnahríðinni en lét það ekki á
sig fá og snéri aftur til vinnu um leið
og hún hafði heilsu til.
Aðeins þremur mánuðum síðar
var aftur reynt að drepa hana þegar
hópur byssumanna króaði hana af
og hóf skothríð með vélbyssum á bif-
reið hennar. Hún varð fyrir þremur
kúlum og í þetta skipti voru meiðsl
hennar alvarlegri en í fyrri árásinni.
En rétt eins og í fyrra skiptið lét hún
árásina ekkert á sig fá og hélt baráttu
sinni gegn glæpagengjum ótrauð
áfram.
Sýndi örin
Þegar efasemdarmenn héldu því
fram að hún hefði ekki verið skotin
steig Maria fram og sýndi örin eft-
ir byssukúlurnar. Við sama tækifæri
sór hún að gefast aldrei upp. „Ég sýni
ykkur þetta því ég skammast mín
ekki fyrir það að líkami minn hafi
verið eyðilagður,“ sagði hún og bætti
við að hún ætlaði að halda baráttu
sinni áfram í minningu eiginmanns
síns og fyrir fólkið sem hún þjón-
aði, íbúa Tiquicheo. „Þrátt fyrir að
mínu öryggi sé stefnt í hættu ber ég
mikla ábyrgð gagnvart fólkinu mínu,
börnunum, konunum, gamla fólk-
inu og karlmönnum sem vinna baki
brotnu til að sjá börnum sínum far-
borða.“ Eftir þessar tvær byssuárás-
ir giftist Maria öðru sinni árið 2011
og sóttist eftir endurkjöri í embætti
bæjar stjóra, en hafði ekki erindi sem
erfiði. n
Hetja drepin
af dópgengi
„Írland er
kaþólskt land“
n Hafði verið skotin margsinnis n Missti eiginmanninn í árás
Síðan Felipe Calderon, forseti Mexíkó,
lýsti yfir stríði á hendur fíkniefnagengjum
árið 2006 hafa yfir 50 þúsund manns
verið myrt. Maria Santos Gorrostiete er
ekki eini bæjarstjórinn sem orðið hefur
fyrir barðinu á þessum dópgengjum því
á annan tug bæjarstjóra í Mexíkó hefur
verið drepinn. Frá janúarbyrjun 2011 og til
loka september sama ár voru tæplega
þrettán þúsund manns drepnir í árásum
sem tengjast fíkniefnagengjum. Inni í
þessum tölum eru lögreglumenn og her-
menn sem hafa misst lífið í baráttu við
glæpagengin, meðlimir þessara gengja
og saklausir borgarar sem voru á röngum
stað á röngum tíma.
Yfirvöld í Mexíkó halda því fram
að sigur sé að vinnast í stríðinu við
fíkniefnagengin en hvað sem því líður er
ekkert lát á hrottalegum morðum.
Fleiri bæjarstjórar drepnir
n 50 þúsund manns fallið í dópstríðum í Mexíkó frá 2006
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Ég sýni
ykkur
þetta því ég
skammast
mín ekki fyrir
það að líkami
minn hafi ver-
ið eyðilagður
Sýndi áverkana Maria steig fram og sýndi
áverka eftir byssukúlur. Við sama tækifæri
sagðist hún aldrei ætla að gefast upp.
Óttaðist ekkert Maria missti eiginmann sinn í
skotárás. Hún hélt þó baráttu sinni ótrauð áfram.