Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Síða 18
18 Lífsstíll 28. nóvember 2012 Miðvikudagur
Framleiða súkkulaði sem bráðnar ekki
n Vísindamenn þróa súkkulaði sem hentar heitari löndum
M
atvælafræðingum hjá Cad
bury‘s hefur tekist að búa
til súkkulaði sem bráðnar
ekki í hita líkt og venjulegt
súkkulaði. Þeir fullyrða að súkkulaðið
haldist stíft eftir að hafa legið í þrjá
tíma í um 40 gráðu hita. Þetta kemur
fram á vef fréttastofu BBC.
Súkkulaðið er framleitt til að
bregðast við því hvimleiða vandamáli
sem íbúar í heitari löndum glíma við,
að geta ekki gætt sér á súkkulaði án
þess að það bráðni og klínist út um
allt. Til að byrja með verður það ein
göngu selt á Indlandi og í Brasilíu.
Hefur sú ákvörðun Kraft, sem tók
yfir Cadbury‘s fyrir tveimur árum,
ekki fallið í góðan jarðveg hjá Bretum
sem vilja allavega hafa súkkulaðið í
sölu þar í landi yfir sumartímann.
Venjulegt súkkulaði fer að bráðna
við 34 gráðu hita en vísindamenn irnir
breyttu framleiðsluferlinu örlítið til
að það veitti meira viðnám gegn hita.
Helstu innihaldsefnunum; kakó
smjöri, olíu, mjólk og sykri er bland
að saman með nýrri aðferð. Málm
kúlur eru settar út í blönduna og þær
hrærðar með, en að sjálfsögðu fjar
lægðar áður en framleiðsluferlinu
lýkur. Með þessari aðferð brotnar
sykurinn niður í smærri agnir sem
eru ekki jafnmikið húðaðar fitu og í
venjulegu blöndunni. Þetta gerir að
verkum að súkkulaðið bráðnar síður.
Tony Bilsborough, talsmaður
Kraft, viðurkennir að umrætt
súkkulaði sé ekki alveg jafn bragðgott
og gamla góða Cadbury‘ssúkkulað
ið en það leysi ákveðinn vanda í heit
ari löndum. Hann telur að það myndi
ekki seljast vel í kaldari löndum. n
Franskar konur
horfa á klám
Nærri því 82 prósent franskra
kvenna segjast hafa að minnsta
kosti einu sinni horft á klámmynd
samanborið við 99 prósent
franskra karlmanna, samkvæmt
nýlegri rannsókn. Fjöldi franskra
kvenna hefur aukist. Árið 2006
horfðu 73 prósent kvenna á klám.
62 prósent kvennanna segjast
horfa á klám til að krydda kynlífið
með makanum og helmingur
þeirra horfir einnig á klám í ein
rúmi. Ekki fylgir sögunni hvers
konar klám um er að ræða. En
konur sögðust þó aðspurðar vilja
horfa á klám þar sem leikarar hafa
náttúrulegt útlit.
10 helstu
gróðrar-
stíurnar
Nýleg rannsókn ABCfréttastof
unnar leiddi í ljós að sýkla var að
finna á óvæntum stöðum veitinga
húsa. Liðsmenn fréttastofunnar
tóku tíu sýni á tíu veitingastöðum í
óvæntum heimsóknum og komust
að því að mest er af sýklum í sæt
um veitingahúsa.
Eftir frekari greiningu raðaði
fréttastofan gróðrarstíum sýkla í
sæti.
Hér eru tíu mestu gróðrarstíur
veitingahúsa.
10. Salattangir á salatbar
9. Tómatsósuflöskur
8. Klósettsetur
7. Hurðarhúnar á salernishurðum
6. Glasabrúnir
5. Borð
4. Salt- og piparstaukar
3. Sítrónusneiðar
2. Matseðlar
1. Sæti
Coca Cola með
nýja tískulínu
Það mætti halda að stórfyrirtækið
Coca Cola léti sér nægja að hugsa
um eitt verðmætasta vörumerki
veraldar. Það kemur því mörgum
á óvart að risinn framleiðir einnig
tískufatnað og hefur gert nokkrum
sinnum áður.
Nýjasta línan var kynnt í Rio de
Janeiro nýlega við dræmar undir
tektir.
Hönnuður línunnar er Brasilíu
maðurinn Thais Rossiter og má
segja að hún sé einkar litskrúðug
og grafísk!
Bráðnar ekki Til að byrja með verður súkkulaðið aðeins selt á Indlandi og í Brasilíu.
5 verstu megrunar-
kúrarnir árið 2012
S
amtök breskra næringar
fræðinga hafa gefið út að
einn versti kúrinn í ár sé
próteinkúr sem nefnist
Dukankúrinn. Jennifer
Lopez, Gisele Bünchen og Carol
Middleton hafa allar verið á þeim
kúr.
Hér að neðan er yfirlit yfir verstu
megrunarkúra sem fréttist af á árinu.
1 Dukan-kúrinn Efst á listanum trónir Dukankúrinn þar
sem allt ofantalið kemur saman í
einum heljarkúr. Það er að segja,
vítamínsprautur, áfengisneysla,
fæða í slöngu og köld böð. Þetta er
einn af vinsælustu megrunarkúrum
heims sem er ótrúlegt þegar litið er
til aðferðanna sem virðast kvala
fullar. Dukankúrinn er þróaður af
franska lækninum Pierre Dukan og
líkist nokkuð Atkinskúrnum þar
sem mikils er neytt af próteini. Sam
kvæmt yfirlýsingu samtaka breskra
næringarfræðinga er kúrinn villandi,
tímafrekur, stífur og erfitt að standast
hann. Aukaverkanir af kúrunum eru
hægðatregða, andremma og þrótt
leysi.
2 Ken-kúrinn Kenkúrinn eða „Ken for 10 Days“, er sá allra
strangasti. Þeir sem fara á kúrinn
mega hreinlega ekki láta fæðu inn
fyrir sínar varir. Í staðinn neyta þeir
fljótandi fæðu í gegnum slöngu sem
er fest við nefið. Útbúnaðurinn er
ansi flókinn og þeir sem eru á kúrn
um þurfa að ferðast með lítinn kút
og slöngur í nefi hvert sem þeir fara.
Þeir mega síðan aðeins aftengjast
búnaðinum í einn klukkutíma á dag
til þess að drekka vatn, kaffi, te eða
sykurlaus jurtate.
3 Partíkúrinn – vítamín í æð Fylgjendur þessa kúrs ganga
svo langt að fá B og Cvítamín og
steinefnin magnesíum og kalk í
æð. Ekki sérlega líklegt til árangurs.
Aukaverkanir geta verið miklar og
hamlandi, til að mynda svimi, sýk
ingar, bólgur og ofnæmislost.
4 Áfengiskúrinn Afar vinsæll megrunarkúr sem byggist á því
að neyta sem minnstrar fæðu og lifa
á áfenginu einu saman. Það er ekki
erfitt að sjá að þetta er afleitur megr
unarkúr sem getur leitt fólk á refil
stigu í lífinu.
5 6 vikna OMG-kúrinn Í þessum megrunarkúr er morgun
verðinum sleppt og æft af krafti
eldsnemma á morgnana eftir aðeins
einn bolla af kaffi. Þá er setið í köldu
baði til að hvetja til fitubrennslu til
klukkan 10! Fæðutegundir eru helst
prótein, ávextir og millimálsbitar
á bannlista og af því litla af kol
vetni sem er neytt, er ekki gerður
greinarmunur á til dæmis kóki eða
spergilkáli. n
n Sífellt er gengið lengra í heimskulegum aðferðum til megrunar
Ken-kúrinn Þeir sem eru
á Ken-kúrnum neyta fæðu
eingöngu með slöngu í nef.
Ísbað til 10 Í sex vikna OMG-megrunarkúrnum
byrjar fólk daginn á kaffibolla og með því að ham-
ast í ræktinni. Því næst skellir það sér í ískalt bað
til klukkan 10 sem á að hvetja til fitubrennslu.