Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Page 20
n Laug að viðhaldinu í tvö ár að hann væri bílasali frá Gana
É
g trúði öllu sem hann sagði. Ég
er miður mín og afar ringluð
yfir þessu öllu saman. Kannski
ætlaði hann að gera mig að
annarri eiginkonu sinni, ég
veit ekki. En nú skil ég fullkomlega
allt það undarlega við hegðun hans.“
Þetta hefur breska götublaðið Mirr
or eftir 22 ára fyrirsætu, Kessel Kasu
isyo. Hún taldi sig hafa dottið í lukku
pottinn fyrir um tveimur árum þegar
hún kynntist vellauðugum bílasölu
manni sem kom fram við hana
eins og prinsessu og keypti handa
henni allt sem hún óskaði sér. Þessi
bílasölumaður reyndist hins vegar
við nánari athugun vera Kolo Toure,
kvæntur varnarmaður og fyrrverandi
fyrirliði Manchester City. Breska
blaðið Mirror afhjúpaði um helgina
tveggja ára lygasögu Toure sem virð
ist hafa lifað tvöföldu lífi um skeið og
svikið báðar konurnar í lífi sínu.
Francois frá Gana
Kessel segir að Toure hafi sagst heita
Francois og vera frá Gana og þannig
þekkti hún hann allar götur þar til
upp komst um hið forboðna ástar
samband. Fram að því hafði Kessel
verið gjörsamlega grunlaus. Þau
höfðu kynnst fyrir utan næturklúbb
inn Bijou í Manchester í septem
ber 2010. Þá hófst Toure handa við
að spinna sinn lygavef. „Ég sagði að
hann væri kunnuglegur en hann hló
það af sér. Sagðist vera bílasölumað
ur í Afríku og sinna góðgerðamálum
þess á milli.“
Svo forhertur var Toure í framhjá
haldinu að hann kvæntist unnustu
sinni til níu ára á meðan hann hélt
við Kessel.
Toure og eiginkona hans eiga
saman tvö börn en hann hefur alla
tíð leikið hlutverk tryggs fjölskyldu
manns. Það kom því flatt upp á
marga þegar Toure féll á lyfjaprófi í
mars 2011. Hlaut hann sex mánaða
keppnisbann fyrir vikið. Eiginkona
Toure komst reyndar í fréttirnar í
tengslum við það mál því Toure lýsti
því yfir að hann hefði laumast í fitu
brennslutöflur eiginkonunnar til að
koma sér í form. Þær hefðu reynst
innihalda efni á bannlista og því fór
sem fór.
Google kom upp um lygina
Það var ekki fyrr en einn af vinum
Kessel bar kennsl á Toure að upp
komst um framhjáhaldið og hið tvö
falda líf varnartröllsins frá Fílabeins
ströndinni. Sá sagði Kessel að slá
raunverulegu nafni kærastans upp í
Google og með því fyrsta sem hún sá
í leitarniðurstöðunum voru myndir
frá brúðkaupi kappans. Bílasölu
maðurinn Francois reyndist heims
frægur knattspyrnumaður sem
þénar tugmilljónir á mánuði. Kessel
fylgdist ekkert með fótbolta og vissi
því ekkert hver Kolo Toure er.
„Ég er miður mín. Á sumum
brúðkaupsmyndunum má sjá hann
gráta af gleði en aðeins nokkrum
vikum áður var hann í rúminu með
mér,“ segir Kessel. „Um það leyti sem
hann kvæntist hringdi hann og sagð
ist vera kominn aftur til Afríku og
hefði nýlokið við að selja tvo bíla.“
Ástarsamband Toure og Kessel
var að hennar sögn af og á. Eftir að
þau kynntust í september 2010 hitt
ust þau nokkrum sinnum en í des
ember það ár hætti hún að heyra
frá honum. Níu mánuðum síðar hr
ingdi hann aftur og þá héldu þau
áfram að hittast með hléum. Kessel
lýsir því að Toure hafi alltaf hringt
úr leyninúmeri þannig að hún gat
aldrei hringt í hann. „Mér fannst það
skrýtið en hann sagði bara að hann
vildi ekki að ég væri að eyða pening
um í að hringja í hann.“
Keypti dýrar gjafir
Í fyrrahaust fór hann síðan að kaupa
alls konar gjafir fyrir Kessel að
hennar sögn.
„Hann gaf mér afmælisgjöf.
Gullúr og 18 karata demantseyrna
lokka. Hann gaf mér 500 pund til
að senda móður minni í Simbabve.
Síðan gaf hann mér 200 pund til að
kaupa mat því ísskápurinn minn var
tómur. Ég fór að fyllast grunsemdum
og spurði hvað hann gerði en þá
sagði hann alltaf að hann seldi bíla.“
Í janúar síðastliðnum dró svo til
tíðinda þegar hann vildi að þau yrðu
kærustupar að sögn Kessel en það
fylgdi reyndar sögunni að hann væri
að fara í viðskiptaferð til Afríku. Síð
an heyrði hún ekkert í honum fyrr en
í maí. Þá var hann aðeins nokkrum
vikum frá því að ganga í hjónaband.
Þá hittust þau aftur og hann færði
henni demantshring.
„Hann kallaði mig prinsessu og
mætti með þúsund punda dem
antshring. Þetta var ekki trúlof
unarhringur en hann sagði hringinn
táknrænan fyrir hvað honum þætti
vænt um mig. Hann fór niður á ann
að hnéð og sagði að honum væri
alvara með sambandi okkar.“
Ringluð en ástfangin byrjaði
Kessel að segja vinum sínum frá
sambandinu. „En alltaf þegar ég bað
um að fá að taka mynd af honum þá
vildi hann það ekki, sem mér fannst
skrýtið.“
Fékk nóg – leið eins og fífli
Í júní hafði Toure farið aftur til
heimalandsins að kvænast núver
andi eiginkonu sinni í höfuðborginni
Abidjan. Nokkrum vikum eftir brúð
kaupið var Toure mættur aftur í íbúð
Kessel. „Hann sagðist vilja fara til
Parísar og vildi hitta mig þar. Ég sagði
honum að áður en ég gerði það yrði
ég að hitta foreldra hans. Hann sagði
að ég yrði að gefa því tíma því ég
væri ekki múslimi og foreldrar hans
myndu ekki samþykkja mig.“
Í september síðastliðnum fékk
hún svo nóg af undarlegri hegðun
„Francois“.
Þegar hann hringdi þá skellti hún
á hann og hefur hún ekki heyrt í hon
um síðan. Það var svo ekki fyrr en
fyrir tveimur vikum sem Kessel upp
götvaði hið sanna. Hún sýndi vini
sínum myndir af „Francois“ sem hún
hafði tekið honum að óvörum. Með
al annars þar sem hann sést koma
úr sturtu. Sá sagði henni að leita að
Kolo Toure á Google og þá kom allt
í ljós.
„Mér leið eins og fífli. Nú veit ég
af hverju hann faldi andlit sitt þegar
hann fór úr bílnum og í íbúðina mína
og hvers vegna hann notaði leyni
númer. Ég vil tryggja að hann geri
ekki annarri konu þetta.“
Mirror hefur eftir heimildar
manni nánum Toure að hann neiti
því að hann þekki stúlkuna. n
TvöfalT líf
Kolo Toure
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Toure í bobba Mirror
afhjúpar tveggja ára
ástarsamband Kolo Toure
við 22 ára fyrirsætu um
helgina. Sjálfur neitar hann
að þekkja stúlkuna.
Miður sín Kessel Kasuisyo þekkti Toure
sem Francois, velstæðan bílasala frá Gana.
Gripinn glóð-
volgur? Kessel
náði þessari mynd
af Toure í íbúð
sinni þar sem
hann er að koma
úr sturtu.
20 Sport 28. nóvember 2012 Miðvikudagur
Wenger stað-
festir áhuga
á Zaha
Arsene Wenger, knattspyrnu
stjóri Arsenal, hefur staðfest að
félagið hafi áhuga á að krækja
í ungstirnið Wilfried Zaha hjá
Crystal Palace. Þessi tvítugi leik
maður hefur vakið mikla athygli
fyrir frammistöðu sína og lék
hann sinn fyrsta landsleik fyr
ir Englendinga á dögunum.
Wenger var spurður út í Zaha á
dögunum og svaraði Wenger því
til að hann væri einn af nokkrum
leikmönnum sem félagið hefði
áhuga á að ná í. Breskir fjölmiðlar
hafa áður greint frá því að Man
chester United sé í fararbroddi í
baráttunni um þennan unga og
efnilega leikmann. Wenger var
einnig spurður hvort eitthvað
væri að frétta af samningaviðræð
um Arsenal við Theo Walcott, en
samningur hans rennur út næsta
sumar. Svaraði Wenger því að
„ekkert nýtt“ væri að frétta.
Gylfi hefur spilaði í 811 mínútur
á leiktíðinni hjá Tottenham:
Tækifærum
Gylfa fækkar
Tækifæri landsliðsmannsins
Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá
Tottenham hafa verið af afar
skornum skammti að undan
förnu. Hann kom inn á í
uppbótar tíma hjá liði sínu um
helgina þegar liðið bar sigurorð
af West Ham United 3–1 í ensku
úrvalsdeildinni. Situr lið hans í
sjöunda sæti nú þegar þriðjungur
er liðinn af tímabilinu.
Þó Gylfi hafi um helgina fengið
einar sex mínútur í blálokin hafa
tækifæri hans á leiktíðinni verið
fá. Sérstaklega þegar tekið er tillit
til þess að Gylfi sagðist hafa valið
Tottenham fram yfir önnur lið þar
sem þjálfari liðsins hefði lofað
honum að hann fengi að spila
reglulega og sagst hafa mikla trú
á íslenska landsliðsmanninum.
Þrátt fyrir það hefur Gylfi
einungis einu sinni fengið að
spila heilan leik með liði sínu
í úrvalsdeildinni en oftast er
honum þó skipt út af eða inn á
eftir atvikum. Sé tölfræðin tek
in saman sést að Gylfi hefur í
heildina spilað 462 mínútur í
þeim leikjum sem hann hefur
komið við sögu. Það gera samtals
7,7 klukkustundir eða sem svarar
til þess að hann hafi leikið heila
fimm leiki liðsins af þeim þrett
án sem Tottenham hefur leikið í
deildinni hingað til.
Gylfi hefur þó einnig spilað í
fjórum Evrópuleikjum og tveimur
leikjum í deildarbikarkeppninni
og alls komið við sögu í 811 mín
útur í heildina með Tottenham.
Samtals í öllum leikjum
hefur Gylfi skorað tvívegis og átt
tvisvar stoðsendingar sem leiddu
til marks. Hann hefur tekið alls
24 skot en þar af hafa þrettán
ekki hitt markrammann. Totten
ham tekur á móti Liverpool í
ensku úrvalsdeildinni í kvöld og
verður spennandi að sjá hvort
Gylfi fær tækifæri í byrjunarliði
Tottenham.