Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2012, Síða 23
Fólk 23Miðvikudagur 28. nóvember 2012
„Hengir ekki
upp þvott með
gerviaugnhár“
n Sigrún Ósk er hálfnuð með meðgönguna
O
furkonan Sigrún Ósk Krist-
jánsdóttir, einn stjórnenda
þáttarins Ísland í dag, hef-
ur í nógu að snúast þessa
dagana. Ekki er nóg með að hún
stjórni einnig þáttunum Neyðar-
línunni, sem sýndir eru á Stöð
2, og hafi verið að senda frá sér
bókina Gleðigjafa, því hún ber
einnig barn undir belti. Hún er
nú hálfnuð með meðgönguna og
birti af því tilefni bumbumynd af
sér á Facebook. Segist hún hafa
gengið 20 vikur á mettíma. „Ekki
bara söguleg mynd fyrir það held-
ur er þetta fyrsta iphone sjálfs-
myndin. Mhm. Ég lofa að fara ekki
að stunda þetta. Jón var bara ekki
heima og ég sminkuð og greidd.
Hvað átti ég annað að gera? Mað-
ur hengir ekki upp þvott með
gerviaugnhár,“ skrifaði Sigrún.
„Fræg í Kína!“
F
yrrverandi
varaþing-
maður Sam-
fylkingar-
innar og formaður
Ungra jafnaðar-
manna, Anna Pála
Sverrisdóttir,
starfar nú sem
sérfræðingur í
auðlinda- og um-
hverfismálum hjá
utanríkisráðu-
neytinu. Hún
sótti á dögun-
um ráðstefnu
um loftslagsmál
í Doha, höfuð-
borg Katar, á
vegum Sam-
einuðu þjóðanna. Kínverski frétta-
miðilinn xinhuanet.com gerði
opnunardegi ráðstefnunnar skil
og náði að ná ansi skemmtilegri
mynd af Önnu Pálu þar sem hún
fylgdist með af athygli. Á vef-
síðu Xinhuanet er tekið fram að
þarna sjáist í fulltrúa Íslands á
ráðstefunni. Anna Pála
birti hlekk á umfjöll-
un fréttamiðilsins á
Facebook-síðu sinni
undir yfirskriftinni:
„Fræg í Kína!“
n Kínverskur fréttamiðill náði mynd
af fulltrúa Íslands á loftslagsráðstefnu
Þ
að vita það fáir að apann
í Hveragerði sem gladdi
margar barnssálirnar keypti
ein dáðasta söngkona þjóðar-
innar, Elly Vilhjálms, í skemmtiferð
til Spánar árið 1958 og smyglaði til
landsins.
Elly hafði farið út til að hitta
eigin mann sinn, Eyþór Þorláksson,
en hjónabandið var á enda og söng-
konan í sárum. Sér til gamans ákvað
hún að kaupa sér lítinn, sætan apa.
Í nýrri ævisögu Margrétar Blöndal
um Elly er þessu ljóstrað upp. Í kafla
bókarinnar segir frá smyglinu ævin-
týralega:
„Apinn sem fékk nafnið Bongó
fylgdi Elly vandræðalaust milli
landa og var vandlega falin í kassa
á daginn. Starfsmenn hótelsins grun-
aði ekkert og á kvöldin fékk hann
að leika lausum hala. Bongó nýtti
frelsið til fulls, sveiflaði sér í glugga-
tjöldunum og var hinn kátasti. Hann
reyndist hins vegar ekki sérlega
þrifinn og hunsaði gjörsamlega sal-
ernisaðstöðu hótelsins.
Elly kom apanum framhjá
tollvörðum í Keflavík og leiddi hún
víst ekki hugann að því að um marg-
þætt lögbrot var að ræða.“
Í bókinni eru svo örlög apans
rakin. Apinn hændist mjög að Elly en
varð sífellt óstyrkari í skapi. Hún kom
honum því fyrir hjá Sigríði Ragnars-
dóttur, frænku sinni, og eiginmanni
hennar, Paul Michelsen garðyrkju-
meistara, sem ráku saman Blóma-
skála Michelsen. n kristjana@dv.is
T
ónlistarmaðurinn Magnús Jónsson
sparar ekki stóru orðin. Lag hans All My
Love kemur út hjá litlu útgáfufyrirtæki í
Berlín eftir áramót og hann splæsti í Face-
book-stöðufærslu af því tilefni og segist búinn að
„meika“ það:
„All my love“ er að koma út í Þýskalandi eftir
áramót!!!
Hafðu það Sigur Rós! Éttu það sem úti frýs
Björk! Farðu ekki að grenja Jón Jónsson!!!“
„Farðu ekki
að grenja Jón“
n Magnús Jónsson gefur út lag í Berlín
Smyglaði apanum
Bongó til Íslands
n Apann landsþekkta í Hveragerði keypti Elly á Spáni
Elly og apinn Elly og Bongo á heimili sínu í Vesturbænum. Hún hafði ekki tíma til að
sinna apanum og kom honum fyrir hjá frændfólki sínu.
É
g reið ekki feitum hesti frá
þessum kosningum en ég legg
ekkert árar í bát. Enda, miðað
við aldur, þarf ég að fara í
svona tíu prófkjör í viðbót til
að komast þarna að,“ segir Bergvin
Oddsson, betur þekktur sem Beggi
blindi sem bauð sig fram í þriðja
sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi fyrir framboðslista
flokksins fyrir næstu Alþingiskosn-
ingar.
Beggi segir úrslitin vonbrigði en
að hann sé hvergi hættur afskiptum
af pólitík. „Það er ekki eins og ég sé
í sjálfsvígshugleiðingum út af þessu
eða að pæla í að fara í annað fram-
boð, svona er þetta bara. Ég hef alltof
gaman af þessu til að hætta. Pólitíkin
er mitt líf. Maður er svo mikill félags-
málamaður, er í nefndum á vegum
flokksins, í stúdentaráði og öðru
starfi,“ segir Beggi sem er þessa dag-
ana að byrja í prófum en hann er á
öðru ári í stjórnmálafræði í Háskóla
Íslands.
Beggi er með tvær útskýringar á
slæmu gengi sínu í flokksvalinu. „Í
fyrsta lagi bý ég í Reykjavík og þrátt
fyrir sterk tengsl í kjördæminu voru
menn ekki til í að fá boðflennur úr
borginni. Hin skýringin og sú dapr-
ari að mínu mati, er sú staðreynd að
ungt fólk fær ekki tækifæri í þessum
prófkjörum, það fær ekki einu sinni
varaþingsætin. Ég hef áhyggjur af
því hvernig Samfylkingin ætlar að
laða til sín ungt fólk í næstkomandi
alþingiskosningum ef ekkert ungt
fólk er á framboðslistum. Þessi þró-
un er mjög slæm því flokkurinn mun
deyja út ef unga fólkið fær engan
séns.“
Beggi hefur um annað og meira
að hugsa en úrslit flokksvalsins því
hann var að láta gamlan draum ræt-
ast. „Ég var að kaupa hús á Súðavík
og skrifaði undir kaupsamninginn
á afmælisdegi konunnar minnar.
Það má því segja að húsið hafi verið
afmælisgjöfin hennar. Við kon-
an fórum í brúðkaupsferð vestur á
firði vorið 2011 og þaðan kom hug-
myndin að því kaupa sumarhús
á Vestfjörðum. Þótt það hafi alltaf
verið gamall draumur að eiga hús
á landsbyggðinni þá var þessi ferð
vestur hvatning til að láta draum-
inn verða að veruleika. Við fengum
húsið á góðu verði en það er statt á
snjóflóðasvæði og þess vegna má
aðeins dvelja þar hálft árið. Það er
yndislegt að sitja úti á palli og heyra
ekki neitt. Nema kannski í fuglun-
um,“ segir Beggi en hann og eigin-
konan eiga einn son, Odd Bjarna,
sem er að verða fjögurra ára. „Hann
er fyrir löngu búinn að fatta að pabbi
hans er blindur. Það er ekkert mál að
stelast í kexskúffuna þegar pabbi sér
ekki til.“
Vegna snjóflóðahættu má aðeins
dvelja í húsinu frá fyrsta maí til fyrsta
nóvember. Beggi segist vel geta beðið
vorsins til að fara í nýja húsið. „Við
fengum afhent fyrsta september og
því er ég búinn að fara þangað tvisvar.
Ég dvaldi þar til að mynda eina
nótt þegar ég var í Bolungarvík að
skemmta,“ segir hann og bætir við að
þótt það geti verið kósí að dvelja yfir
hávetur í bústað sé hann alsáttur. „Ég
veit líka ekki hversu margir myndu
nenna að keyra þessa sex tíma í snjó,
slabbi og stórhríð. Við bíðum bara
spennt eftir vorinu.“ n
indiana@dv.is
Beggi blindi lét
drauminn rætast
n Komst ekki á þing en gefst ekki upp
„Það er
ekki eins
og ég sé í sjálfs-
vígshugleiðing-
um út af þessu
Feðgar Beggi segir soninn fyrir löngu búinn að fatta að pabbi sinn sé blindur.