Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2012, Page 23
Fólk 23Mánudagur 10. desember 2012
M
ikið var um dýrðir á árlegri
herrafatasýningu Kormáks
og Skjaldar sem fór fram í
Þjóðleikshúskjallaranum á
miðvikudagskvöld. Herrafatasýn-
ingin er ekki eiginleg tískusýning líkt
og fólk á að venjast því hún er ávallt
skreytt ríkulegri skemmtidagskrá
sem jafnvel fer meira fyrir en fötun-
um sjálfum. Sýningin í ár var þar
engin undantekning.
„Við erum alltaf að reyna að stytta
sýninguna en það gengur ekkert því
það er svo gaman hjá módelunum.
Þau geta endalaust leikið sér,“ segir
kaupmaðurinn og vertinn Kormákur
Geirharðsson. „Svo var náttúrulega
farið á Ölstofuna á eftir eins og venju-
lega. Þetta er voðalega skemmtileg
hjá okkur.“
Meðal fyrirsæta á sýningunni voru
þingmennirnir Björn Valur Gísla-
son og Guðmundur Steingrímsson,
en þeir spiluðu og sungu fyrir gesti.
Björn Valur tók einnig hálfgert uppi-
stand á sama tíma og sjónvarpsmað-
urinn Logi Bergmann Eiðsson las upp
úr bók sinni Handbók hrekkjalóms-
ins. Þingmaðurinn gekk yfir sviðið
fyrir framan Loga með skilti sem á
stóð: Ekki fyndið. Gerði Björn Valur
þar grín að sjálfum sér, en í síðustu
viku gekk hann fyrir framan ræðu-
stól með skilti sem á stóð: málþóf, á
meðan Illugi Gunnarsson flutti mál
sitt í annarri umræðu um fjárlögin á
Alþingi. Þingmaðurinn hefur verið
gagnrýndur fyrir uppátækið en lætur
það greinilega ekki mikið á sig fá.
Uppistandarinn góðkunni Ari
Eldjárn var í hópi fyrirsætanna og fór
hann með gamanmál eins og honum
einum er lagið.
Hluti hljómsveitarinnar Retro
Stefson steig einnig á svið og tók
lagið. Þá lét Herbert Guðmundsson
ljós sitt skína bæði í söng og fyrir-
sætustörfum.
Björn Valur gerði
grín að sjálfum sér
n Fyrirsætur fóru á kostum á herrafatasýningu
Ekki fyndið Björn Valur gekk með skilti yfir
sviðið á meðan Logi Bergmann las úr bók sinni.
V
ið giftum okkur með okkar
nánasta fólki og svo ætlum
við að halda veislu í ágúst
næsta sumar,“ segir fyrir-
sætan Ósk Norðfjörð sem
giftist sínum heittelskaða, frjáls-
íþróttakappanum Sveini Elíasi El-
íassyni, þann 5. desember. „Þetta var
voða falleg og einlæg stund,“ bætir
hún við. Ósk vill ekki tjá sig um hvar
eða hvernig athöfnin fór fram en
segir hana hafa verið mjög persónu-
lega.
Ósk klæddist hvítum kjól við
athöfnina en segir hann þó ekki hafa
verið með rjómatertusniði. Hún ætl-
ar að geyma það þangað til næsta
sumar, en brúðkaupsveislan verður
haldin þann 18. ágúst næstkomandi.
Dívan í bleikum brúðarmeyjakjól
„Ásdís Rán krefst þess að fá að vera
í bleikum rjómatertukjól næsta
sumar,“ segir Ósk hlæjandi, en þær
eru góðar vinkonur. Ásdís Rán fær
það mikilvæga hlutvert að verða Ósk
til halds og trausts sem brúðarmey.
„Ég held það verði erfiðast að finna
rjómatertukjól á dívuna til að standa
á hliðarlínunni,“ segir Ósk hlæjandi.
Hún útilokar þó ekki að kjóllinn
muni koma úr smiðju Ásdísar Ránar
sjálfrar, en hún selur bæði fatnað og
snyrtivörur undir merkinu Ice Queen
í verslunum í Búlgaríu og á Íslandi.
Ósk segir allt stefna í að veislan
verði stór og að fagnað verði með
pomp og prakt. „Það verður mikil
veisla og við erum alveg búin að
leggja grunninn að því.“ Ósk er
ánægð með að hafa góðan tíma til
að skipuleggja veisluna og vill horfa í
hvert smáatriði. Það sem skiptir hana
mestu máli er þó að hún og Sveinn
séu hamingjusöm, sem þau eru svo
sannarlega. „Við erum yfir okkur
ástfangin og agalega hamingjusöm.“
Lét húðflúra nöfn barnanna á sig
Töluverður aldursmunur er á hjón-
unum, en Ósk er fædd árið 1978 og er
því 34 ára. Sveinn er hins vegar fædd-
ur árið 1989 og því 23 ára. Þau láta þó
ellefu ára aldursmun lítið á sig fá
Það er annars nóg að gera hjá Ósk
og Sveini þessa dagana en þau eign-
uðust dreng í sumar. Fyrir átti Ósk
fimm börn á aldrinum 2 til 14 ára, en
drengurinn er fyrsta barn Sveins.
Hann hefur tekið eldri börnum
Óskar sem þau væru hans eigin en
fyrr á þessu ári lét hann húðflúra
nöfn allra barnanna á upphandlegg
og brjóstkassa. Ósk er einnig með
nöfn barna sinna húðflúruð á sig. n
„Þetta var
voða falleg og
einlæg stund“
n Ósk Norðfjörð og Sveinn Elías giftu sig á dögunum
n Ætla að halda veislu næsta sumar
Hjónakoss Ósk
Norðfjör segir athöfn-
ina hafa verið fallega
og einlæga.
Vinkonur Ósk segir að Ásdís Rán vilji ólm
klæðast bleikum rjómatertukjól.
Eiginmaðurinn Hjónin láta ellefu ára
aldursmun lítið á sig fá.
Heimsfrægi snjóbrettakappinn Halldór Helgason er á lausu. Halldór var áður á föstu með
fegurðardísinni Stefaníu Ingadóttur
en þau hafa nú hætt saman. Stefan-
ía tók þátt í Ungfrú Norðurland árið
2009 þar sem hún lenti í öðru sæti.
Þau Halldór eru bæði fædd árið 1991
og bjuggu um tíma saman í Mónakó.
Eflaust eru þetta góðar fréttir
fyrir þær ungu stelpur sem fíla síð-
hærða ofurhuga sem virðist eiga
nóg af seðlum en eins og DV sagði
frá gerði Halldór sér lítið fyrir og fór
með 250 þúsund krónur í spilavíti á
dögunum.
Halldór Helga-
son á lausu
Á
sdís Halla Bragadóttir var í
viðtali við Lífið á dögunum
og ræddi um líf sitt og helstu
hugðarefni. Ásdís Halla var spurð
um hvað hún tækist á við þessa dag-
ana og rakti hún verkefni sín, en
hún er að koma af stað dvalarheim-
ili fyrir fólk sem þarf mikla heima-
þjónustu en hefur ekki komist að í
nægilega góð úrræði og þá situr hún
í stjórn Nova. Hún ræddi þó ekki
um eitt verkefna sinna, sem er að
kynna Nuskin-leiðina fyrir fólki. En
á vor- og sumarmánuðum hélt hún
þó nokkra fyrirlestra og kynningar,
jafnvel marga í viku, um Nuskin
og sagði frá miklum fjárhagslegum
ávinningum sem hún hafði haft af
því að gangast til liðs við snyrti- og
heilsuvöruframleiðandann.
Ásdís Halla græðir á Nuskin
Hagfræðingurinn og pistlahöf-undurinn Ólafur Arnarson er nú búinn að vera í svokallaðri
feitabolluleikfimi undir handleiðslu
Jóns Þorbjörnssonar í tvo mánuði og
árangurinn lætur ekki á sér standa.
Fyrstu helgina í desember hafði hann
misst 13 kíló, eftir að hafa mætt á um
50 æfingar. Ólafur var orðinn feita-
bolla, eins og hann orðaði það sjálfur
í viðtali við DV í október þegar átak-
ið var nýhafið. En þegar vigtin sýndi
138,4 kíló ákvað hann að fara að gera
eitthvað í sínum málum. Til að veita
sjálfum sér aðhald hefur hann skrifað
um átakið á vefmiðli sínum Tímarími.
Kílóin hrynja af Ólafi