Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Blaðsíða 54
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
gildir fram að verslunarmannahelgi
Hér er aðeins brot af úrvalinu í tjaldalandi útilífs við Hliðina á tbr-Höllinni við glæsibæ.
TilBOð: 22.990 / 27.990 Kr.
HigH Peak Como
4 og 6 manna
tvískipt innratjald með fortjaldi
á milli. vatnsvörn 2.000 mm.
Yfirlímdir saumar. Hæð 190/200 cm.
almennt verð: 32.990 / 39.990 Kr.
TilBOð: 20.990 Kr.
HigH Peak ikaria 4 manna
braggatjald með áföstum dúk. stöðugt
í vindi. vatnsvörn 3.000 mm. Yfirlímdir
saumar. 2 inngangar. Hæð 130 cm.
almennt verð: 29.990 Kr.
TilBOð: 11.890 Kr.
HigH Peak nevada 3 manna
sígilt 3 manna kúlutjald með fortjaldi.
vatnsvörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar.
Hæð 120 cm.
almennt verð: 16.990 Kr.
TilBOð: 13.990 / 16.790 Kr.
HigH Peak Cave
2 og 3 manna
göngutjald sem er auðvelt í uppsetningu
og aðeins 2,9 kg. vatnsvörn 2.000 mm.
Yfirlímdir saumar. fíbersúlur. Hæð 90 cm.
almennt verð: 19.990 / 23.990 Kr.
TilBOð: 38.490 Kr.
THe norTH FaCe
TadPole 2 manna
létt göngutjald 2,4 kg. vatnsvörn
1.500 mm taffeta. botn 5.000 mm
taffeta. álsúlur. Hæð 100 cm.
almennt verð: 54.990 Kr.
TilBOð: 45.490 Kr.
HigH Peak denali 3 manna
göngutjald með góðu fortjaldi. vatns-
vörn 4.000 mm. botn 5.000 mm.
álsúlur. Hæð 120 cm. Þyngd 4,35 kg.
almennt verð: 64.990 Kr.
TilBOð: 38.490 Kr.
HigH Peak anCona 5 manna
rúmgott fjölskyldutjald. vatnsvörn 3.000
mm. Yfirlímdir saumar. dúkur
í fortjaldi. 2 inngangar. Hæð 200 cm.
almennt verð: 54.990 Kr.
TilBOð: 69.990 Kr.
aCadia 5-7 manna
rúmgott fjölskyldutjald með áföstum
gólfdúk. auðvelt í uppsetningu miðað við
stærð. vatnsvörn 3.000 mm. Yfirlímdir
saumar. 2 inngangar. Hæð 190 cm.
almennt verð: 99.990 Kr.
afsláTTur
af öllum Tjöldum
Konan á
allt, konan
á allt!
Kom í land með
nokkra „gula“
n Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, skellti sér
á sjó á mánudag. Ráðherrann fór
frá Drangsnesi í stuttan túr úti fyrir
ströndum landsins og kom til baka
með nokkra „gula“, eins og þorsk-
urinn er kallaður af reyndari fiski-
mönnum, í farteskinu. Engum
sögum fer af því hvort hann hafi
eld- að sér fiskmetið í
kvöldmat en
það verður
nú að teljast
líklegt að
ráðherrann
hafi gætt sér á
sjávarfanginu.
Óboðinn gestur
á heimili Lilju
n Blaða- og leikkonunni Lilju Katr
ínu Gunnarsdóttur brá heldur betur
í brún eftir verslunarferð í IKEA
á dögunum. „Opnaði kassa frá
IKEA með látlausri skóhillu og út
úr skreið stærsta könguló sem ég
hef séð á Íslandi,“ segir Lilja Katrín
á Facebook-síðu sinni. Fjölmargir
kommentuðu við status Lilju Katr-
ínar og sögðu henni sambærilegar
hryllingssögur. Örlög köngulóar-
innar voru þó þau að enda ævi
sína á heimili Lilju. „Dóttir mín var
pollróleg en ég fríkaði út og drap
hana með skál...
finnst enn eins
og eitthvað sé
að skríða á
mér,“ segir Lilja
Katrín sem sló
í gegn í vetur
í þáttunum
Makalaus.
Kylfingar reiðir
í garð RÚV
n Kylfingar eru mjög ósáttir við þá
ákvörðun RÚV að klippa á beina
útsendingu frá Íslandsmeistara-
mótinu í golfi á sunnudag. Mikil
spenna var í loftinu og mjótt á
munum, en þegar tvær holur voru
eftir þurfti að hleypa fréttum í loft-
ið. Á vefnum kylfingur.is er mikið
rætt um þessa ákvörðun og er ljóst
að margir eru mjög ósáttir. „Þetta er
leiðinda uppákoma og vonandi að
eitthvað verði gert í þessu í framtíð-
inni því ekki hefði þetta verið gert
í fótbolta eða handboltaleik um Ís-
landsmeistaratitil,“
segir einn ósáttur
á meðan annar
birtir nafn og net-
fang Páls Magnús
sonar útvarps-
stjóra og hvetur
sem flesta til að
segja honum
til synd-
anna.
Á
rmann Harri Þorvaldsson, fyrr-
verandi forstjóri Kaupþings í
London, gerði kaupmála við
Þórdísi Edwald eiginkonu sína
um miðjan apríl. Kemur þetta fram í
Lögbirtingablaðinu. Í samtali við DV
segist Ármann lítið vilja tjá sig um
ástæður þess að þau hjón gerðu með
sér kaupmála. „Ég er ekki að flýja nein-
ar skuldir eða eitthvað svoleiðis. Er
ekki að fara frá neinum persónulegum
skuldum. Ég held ég tjái mig þó ekki að
öðru leyti um þetta,“ segir Ármann að-
spurður um umræddan kaupmála.
Hann segist ennþá vera búsettur í
London en vildi ekki upplýsa DV um
við hvað hann starfaði þar í dag. Árið
2009 bárust fréttir af því að allt væri
stopp við framkvæmdir hjónanna
við 370 fermetra glæsihýsi þeirra á
Dyngjuvegi 2 sem þau keyptu fyrir 92
milljónir króna árið 2006. Á sama tíma
var sagt frá því að þau hefðu náð að
selja glæsiíbúð sína að Vatnsstíg 21.
Sama dag og Ármann og Þórdís gerðu
með sér kaupmála var glæsihýsi þeirra
að Dyngjuvegi 2 fært yfir á Þórdísi.
Rúmum mánuði síðar fékk Þórdís 35
milljóna króna lán út á umrædda fast-
eign sem fyrir það var óveðsett. Yfirráð
yfir umræddri fasteign að Dyngju-
vegi virðast því vera hluti af kaupmála
hjónanna.
Eins og áður sagði er Ármann enn
búsettur í London. Hins vegar liggur
ekki ljóst fyrir hvar hann býr í dag. Árið
2010 þurfti hann að flytja úr lúxusíbúð
sinni í auðmannanýlendunni Kew
Riverside í London en eins og kunn-
ugt er búa margir Íslendingar tengdir
útrásinni í því hverfi. Ármann og Þór-
dís kynntust í gegnum badminton-
iðkun sína fyrir meira en 25 árum. Þau
voru bæði í íslenska landsliðinu og
hafa unnið Íslandsmeistaratitla í þeirri
íþróttagrein. Þess má einnig geta að
Þórdís er systir Ara Edwald, forstjóra
365. as@dv.is
„Ég er ekki að flýja neinar skuldir“
n Hjónin Ármann Þorvaldsson og Þórdís Edwald gerðu með sér kaupmála
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80
Þriðjudagur
– fimmtudagur
26.–28. JúLí 2011
85. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Vill lítið tjá sig um kaupmálann Hann
segist þó ekki vera að flýja neinar skuldir.