Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 26. júlí 2011 Þriðjudagur
Davíð Oddsson er launahæsti fjölmiðlamaðurinn annað árið í röð:
Davíð með fjórar milljónir
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun-
blaðsins, var með 3,9 milljónir króna
í laun á mánuði árið 2010, sam-
kvæmt álagningarskrá ríkisskatt-
stjóra sem gerð var opinber á mánu-
dag. Þetta er sama upphæð og Davíð
var með árið 2009. Davíð er launa-
hæsti fjölmiðlamaðurinn.
Ætla má að stór hluti af þessum
launum séu eftirlaun sem Davíð
þiggur en hann gegndi meðal ann-
ars embætti forsætisráðherra og
seðlabankastjóra eins og frægt er
orðið. Til samanburðar má geta þess
að kollegi hans á Morgunblaðinu,
ritstjórinn Haraldur Johannessen, er
með 1.434 þúsund krónur í mánað-
arlaun.
Helgi Seljan, sjónvarpsmað-
ur í Kastljósinu, var annar á listan-
um í fyrra með 1.223 þúsund krón-
ur á mánuði. Árið 2010 var Helgi
hins vegar með 868 þúsund krónur á
mánuði, en hann hefur stundað sjó-
mennsku samhliða störfum sínum
fyrir Sjónvarpið.
Björn Ingi Hrafnsson, eigandi
Vefpressunnar sem meðal annars á
Pressuna, var með 805 þúsund krón-
ur á mánuði árið 2010. Árið á undan
var Björn Ingi með mun hærri laun,
eða 1.885 þúsund krónur. Steingrím-
ur Sævarr Ólafsson, fréttastjóri Press-
unnar, var með litlu minna en Björn
Ingi í laun í fyrra, eða 758 þúsund
krónur.
Reynir Traustason, annar rit-
stjóra DV, var með 913 þúsund krón-
ur á mánuði árið 2010 á meðan Jón
Trausti Reynisson, sem einnig er rit-
stjóri DV, var með 816 þúsund krónur
á mánuði.
Af öðrum fjölmiðlamönnum
má nefna Pál Magnússon útvarps-
stjóra með 1.109 þúsund krónur á
mánuði, Ólaf Stephensen, ritstjóra
Fréttablaðsins, með 1.415 þús-
und krónur og Jón Kaldal, ritstjóra
Fréttatímans, sem var í öðru sæti
á listanum yfir fjölmiðlamenn.
Hann var með 1.650 þúsund krón-
ur í laun á mánuði.
Hefur það
huggulegt Davíð
Oddsson hefur það
gott í ritstjóra stóli
Morgunblaðsins með
tæpar fjórar milljónir á
mánuði.
Brotinn og
blóðugur eftir
strákúst
Ósætti ölvaðra manna leiddi til þess
að annar sló hinn með strákústi eitt
högg í höfuð og annað í hönd. Atvik-
ið átti sér stað á Selfossi aðfaranótt
laugardags. Fórnarlamb árásarinnar
hlaut skurð á höfði sem sauma þurfti
saman. Auk þess brotnaði bein í
framhandlegg mannsins. Í dagbók
lögreglunnar á Selfossi kemur fram
að sá brotni hafi verið búinn að taka
í sína vörslu tölvur og annan búnað
þess sem sló með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Lögreglan á Selfossi stöðvaði
þrettán ökumenn fyrir of hraðan
akstur í liðinni viku. Karlmaður á
sextugsaldri ók hraðast en bifreið
hans mældist á 139 kílómetra hraða
þar sem hámarkshraði er 90 kíló-
metrar á klukkustund. Verður hann
vart talinn góð fyrirmynd yngri öku-
manna í umferðinni.
Sofnaði undir
stýri og ók á
Ungur ökumaður sofnaði undir stýri
á Ísafirði um helgina. Bíllinn hafnaði
á húsi Orkubús Vestfjarða á Ísafirði
en ökumanninn og farþega bílsins
sakaði ekki. Að sögn Önundar Jóns-
sonar, yfirlögregluþjóns lögreglunn-
ar á Vestfjörðum, sagðist ökumaður-
inn hafa sofnað undir stýri. Kannaði
lögreglan hvort áfengi eða önnur
vímuefni hefðu komið við sögu. Frá
þessu var greint á vef ísfirska frétta-
miðilsins Bæjarins besta en þar segir
að ökumaðurinn og farþegar bílsins
hafi sloppið með skrámur. S
igmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, er langríkasti nú-
verandi þingmaður Íslands
samkvæmt upplýsingum um
opinber gjöld einstaklinga á Íslandi
sem gerð voru opinber á mánudag-
inn. Hrein peningaleg eign Sigmund-
ar Davíðs sem einstaklings nemur 600
milljónum en eign hans og eiginkonu
hans, Önnu Kristínar Pálsdóttur, nem-
ur samtals rúmum 1.150 milljónum
króna.
Næstefnaðasti þingmaðurinn þar á
eftir er Álfheiður Ingadóttir, þingkona
Vinstri grænna, en peningaleg eign
hennar er skráð sem nærri 108 millj-
ónir króna. Þar á eftir koma þeir Pétur
Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, með tæpar 99 milljónir í hreina
eign, og Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, með rúmlega
95 milljóna eign. Einungis einn ann-
ar núverandi þingmaður kemst á lista
yfir þá sem greiða auðlegðarskatt –
skatt sem lagður er á eignir sem nema
75 milljónum krónum eða meira – en
það er er Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sem á eignir upp
á rúmar 80 milljónir króna.
Auðgaðist á sölu Toyota
Auðlegð Sigmundar Davíðs og Önnu
Kristínar Pálsdóttur er þannig tilkom-
inn að faðir Önnu, Páll Samúelsson, er
sterkefnaður og eru peningar þeirra
hjóna því að öllum líkindum á end-
anum komnir frá honum, sama með
hvaða hætti það er. Hugsanlegt er að
um sé að ræða fyrirframgreiddan arf
frá Páli til Önnu en slíkt er stundum
gert þegar börn sterkefnaðra einstak-
linga eiga í hlut.
Hugsanlegt er að Anna hafi feng-
ið arfinn í kjölfar þess að Páll, fað-
ir Önnu, seldi Toyota-umboðið á Ís-
landi til Magnúsar Kristinssonar fyrir
um sjö milljarða króna árið 2005. Ekki
er ólíklegt að Páll hafi skipt peningun-
um sem hann fékk fyrir söluna á To-
yota-umboðinu á milli barna sinna,
en bróðir Önnu, Bogi Pálsson, var
nokkuð stórtækur á hlutabréfamark-
aðnum á Íslandi á árunum fyrir efna-
hagshrunið 2008 og var álitinn einn af
auðmönnum Íslands.
Margir fyrrverandi þingmenn á
listanum
Auk núverandi þingmanna eru marg-
ir fyrrverandi þingmenn sem greiða
auðlegðarskatt. Meðal þeirra má
nefna Sólveigu Pétursdóttur, fyrr-
verandi ráðherra og eiginkonu Krist-
ins Björnssonar fjárfestis, Ingibjörgu
Pálmadóttur, fyrrverandi ráðherra,
Hjörleif Guttormsson, fyrrverandi
ráðherra, og Guðrúnu Agnarsdóttur,
fyrrverandi þingmann.
Þá eru Davíð Oddsson, núver-
andi ritstjóri Morgunblaðsins og fyrr-
verandi forsætisráðherra, og Björn
Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, það
einnig. Davíð á tæplega 200 millj-
ónir króna, ásamt eiginkonu sinni,
og Björn er skráður fyrir tæpum 138
milljónum króna. Geir H. Haarde,
arftaki Davíðs á formannsstóli Sjálf-
stæðisflokksins, er skráður fyrir rúm-
um 140 milljónum króna ásamt konu
sinni. Geir mun meðal annars hafa
auðgast nokkuð vegna íbúða í Reykja-
vík sem hann fékk í arf og seldi á sín-
um tíma, samkvæmt heimildum DV.
Sigmundur
auðugastur
n Eiginkona Sigmundar Davíðs á sterkefnaðan föður n Faðir hennar seldi Toyota-um-
boðið á sjö milljarða n Margir núverandi og fyrrverandi þingmenn greiða auðlegðarskatt
„Hugsan-
legt er að
Anna hafi feng-
ið arfinn í kjölfar
þess að Páll, fað-
ir hennar, seldi
Toyota-umboðið
á Íslandi.
Næstríkust Álfheiður Ingadóttir í
Vinstri-grænum er næstríkasti núverandi
þingmaðurinn.
Vel giftur
Sigmundur Davíð er afar vel giftur, eins og sagt er,
en Anna Pálsdóttir, eiginkona hans, á sterkefnaðan
föður, Pál Samúelsson í Toyota. Ætla má að eignir
þeirra hjóna séu komnar frá honum enda seldi hann
Toyota-umboðið fyrir um 7 milljarða árið 2005.
Eldsupptök óljós
Eldsupptök í Eden í Hveragerði eru
ókunn og stendur rannsókn lögreglu
enn yfir, samkvæmt tilkynningu sem
lögregla sendi frá sér á mánudag.
Lögreglan á Selfossi og tæknideild
lögreglunnar vinna að rannsókninni
ásamt sérfræðingum í rafmagns-
bruna. Lögregla lauk störfum á vett-
vangi á mánudag. Úrvinnsla úr þeim
gögnum og munum sem teknir voru
af vettvangi tekur nú við og lög-
regla segir að það muni taka tíma að
vinna úr þeim, því er frekari upplýs-
inga ekki að vænta á næstunni.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Skattar 2010