Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Blaðsíða 51
Fólk | 51Þriðjudagur 26. júlí 2011
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
Amy
Winehouse
minnst
Grínistinn Russell Brand er einn þeirra fjölmörgu sem
hafa heiðrað minningu söngkonunnar Amy Winehouse
eftir að hún lést á laugardag aðeins 27 ára. Talið er að
Amy hafi dáið úr of stórum skammti eiturlyfja en hún
hafði um áraraðir barist við mikla eiturlyfjafíkn.
Í greininni, sem Brand skrifaði á heimsíðu sína rus-
sellbrand.tv, segir hann frá því hvernig hann kynnt-
ist Winehouse skömmu eftir að hann kom úr meðferð.
Hann hafi heillast af söngkonunni en fljótlega áttað sig
á því að þau ættu einn skelfilegan hlut sameiginlegan –
fíknina.
„Þegar maður elskar einhvern sem þjáist af þeim sjúk-
dómi sem fíkn er vonast maður til að fá símtal. Það mun
koma. En í einlægni vonast maður til að símtalið verði frá
fíklinum sjálfum til að segja að hann hafi fengið nóg, vilji
hætta og reyna eitthvað nýtt. En maður óttast hitt símtal-
ið. Hið sorglega frá vini eða ættingja sem segir manni að
það sé um seinan. Hún sé farin.“
Brand þekkir fíknina vel en hann var í mikilli neyslu
á sínum tíma. Hann var meðal annars háður heróíni en
Brand tókst að snúa við blaðinu á meðan Winehouse
reyndi ítrekað en án árangurs.
Russell Brand minnist vinkonu sinnar sem lést á laugardag:
Russell Brand og
Amy Winehouse
Voru lengi góðir
vinir og hann minnist
vinkonu sinnar á
russellbrand.tv.
Leikkonan íðilfagra Rachel Bilson
skellti sér á rúntinn með móður
sinni og nokkrum félögum sínum
um helgina. Komu þær við í mat-
vörubúð áður en þær settust að
snæðingi á vinsælum veitingastað í
Los Angeles. Bilson fannst hún eitt-
hvað illa til höfð og reyndi að forðast
papparassana með því að skýla and-
litinu með veskinu sínu. Þeir náðu
henni þó frá öllum sjónarhornum
og var það allt í lagi enda Bilson
alltaf flott. Bilson ræddi um dag-
inn við AOL TV um hvernig karakt-
erinn hennar í nýja þættinum Hart
of Dixie líkist Summer, persónunni
sem hún lék við góðar undirtektir í
unglingasápunni The O.C. „Sum-
mer var alveg einstök. Ég reyndi
nú að halda mig frá búkhljóðunum
hennar sem voru eins konar kenni-
merki Summer. Nýja persónan er
aðeins eldri og meiri ég,“ segir Rac-
hel Bilson.
Úti að borða
með mömmu
Rachel Bilson reynir að forðast papparassana:
Frá öllum
hliðum
Það er ekki
hægt að
verjast
papparöss-
unum.
Einu sinni vinsæll
Myndin er frá þeim
tíma þegar Vanilla Ice
var á toppi ferils síns.
Ráðleggur
Justin Bieber
Rapparinn Vanilla Ice, sem heitir
Robert Matthew Van Winkle, hefur
upplifað tímana tvenna sem tónlist-
arstjarna en hann var um tíma einn
vinsælasti tónlistarmaður heims. Í
dag er öldin önnur og hann er að-
hlátursefni um allan heim. Hann
segir að Justin Bieber muni upplifa
sömu örlög. Vanilla Ice varar Bieber
við og segir honum að njóta
þess sem hann hefur – eins
lengi og hann getur.
Vanilla Ice, sem var
fyrstur til að koma
hip hop-lagi á
topp banda-
ríska vin-
sældar-
listans
Billboard,
tjáir sig um
þetta í viðtali
við bandaríska netblaðið Huffing-
ton Post. „Ég meina, ég gerði Ice Ice
Baby þegar ég var 16 ára,“ segir hann
í viðtalinu. „Svo ég kannast við þetta.
Seldi yfir 100 milljón plötur. Ég upp-
lifði helgi í þrjú ár, ég vissi ekki hver
ég var.“
Vanilla Ice spáir í framtíð Justins
Bieber: „Hann var svo vinsæll strax
sem barn. En bráðum mun ein-
hver annar koma fram á
sjónvarsviðið og hann
mun gleymast. Hann get-
ur reynt að komast aftur
á toppinn og það á eft-
ir að verða athyglis-
vert að fylgjast með
því.“
Rapparinn Vanilla Ice hefur upplifað tímana tvenna: