Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2011, Side 26
26 | Fólk 17. ágúst 2011 Miðvikudagur
Hleypur til
minningar
um Sjonna
Rakel Garðarsdóttir framleið
andi hleypur 10 kílómetra í
Reykjavíkurmaraþoni Íslands
banka fyrir Heilaheill. Heila
heill er félag sem samanstend
ur af þeim sem hafa fengið slag,
heilablóðfall, heilablæðingu,
blóðtappa eða súrefnisþurrð af
einhverju tagi. „Því meira sem
heitið er á mig, því hraðar hleyp
ég,“ lofar Rakel. „Tvær mann
eskjur á dag verða fyrir þessum
heilsubresti og ég vil taka þátt í
því að vinna bug á þessu meini.
Ég þekki nokkra sem hafa feng
ið slag og heilablóðfall sem því
miður hafa látist út af því. Ég
mun þó tileinka hlaupið mitt
honum Sjonna Brink – en hann
varð bráðkvaddur 17. janúar
2011 eftir heilablóðfall.“
Fékk ekki þátt
DV sagði frá því á mánudag
inn að María Lilja Þrastardótt
ir hefði sent dagskrárstjóra
Skjás eins bréf vegna nýs sjón
varsþáttar Ellýjar Ármanns
og Tobbu Marinós á stöð
inni. María Lilja var ósátt við
hversu þröngt þær flokkuðu
áhugasvið kvenna og vildi fá
þátt þar sem hún myndi fjalla
um áhugamál kvenna í víðara
samhengi. Hún fékk svar frá
Hilmari Björnssyni sjónvarps
stjóra Skjásins og greinilegt er
á svari hans að hún fær ekki
þátt á stöðinni. Þar segir hann
meðal annars: „Takk fyrir póst
inn. Leiðinlegt að heyra hvað
þér finnst um nýja þáttinn
okkar en vonandi verður þú
ekki fyrir vonbrigðum. Ég hef
fulla trú á stelpunum. Eins og
alltaf í sjónvarpi skiptir áhorf
miklu máli og það verður síð
an að koma í ljós hvort þáttur
inn skilar góðum áhorfstölum
til okkar. Takk sömuleiðis fyrir
hugmyndina, hún er komin í
bankann hjá okkur í dagskrár
deildinni.“
Núðlustrákar
eignast
dóttur
Sigurður Jónas Eysteinsson
og Kristján Jörgen Hannes
son sem eiga og reka Núðlu
skálina á Skólavörðustíg eru
lukkulegir þessa dagana. Þeir
eru nýbakaðir feður því þeir
eignuðust litla stúlku í byrjun
ágústmánaðar með aðstoð
góðrar vinkonu.
É
g hef ræktað rósir í þrjú
ár,“ segir Bubbi Morthens
sem hefur vakið athygli
fyrir fallegar Dornrósir í
fallegum garði sínum við heim
ili þeirra Hrafnhildar í Kjós
inni. Hann segir Dornrósirnar
toppa aðrar tegundir sem hann
hefur nostrað við í garðinum og
eru þær fjölmargar og af ýms
um tegundum. „Dornrósirn
ar mínar eru fallegastar, og í ár
blómstruðu á milli fimm og sex
hundruð knúppar. Ég get ekki
hætt að dást að rósunum og nú
þegar haustið sækir að er gott
að hafa ilm sumarsins fyrir vit
um sér.“
Hann segir galdurinn við fal
legar rósir vera góða vökvun og
hann virðist vera með galdur
inn á hreinu því rósaræktin er
viðamikil. Bubbi er með fjölda
rósarunna í garðinum og í ár
fékk hann í kringum fimmtán
hundruð rósir, dimmrauðar,
gular og hvítar fyrir utan Dorn
rósirnar fögru.
„Á næsta ári verð ég með í
kringum tvö til þrjú þúsund
blómstrandi rósir í garðinum,“
segir hann stoltur. Bubbi var
reyndar svo stoltur af rósunum
að hann setti myndir af þeim
á Facebooksíðu sína og fékk
fljótt athugasemd þar sem ýjað
var að því að það að rækta rós
ir væri eitthvað sem færi sam
kynhneigðum. Bubbi var skjót
ur til svars og sagði þá sem
héldu að rósaræktin ætti eitt
hvað skylt við samkynhneigð
eiga erfitt með að staðsetja sig
sem kynverur.
Rósabóndi í hjáverkum
n Bubbi er stoltur af rósunum sínum„Þeir sem
halda að rósa-
rækt sé gay eiga erf-
itt með að staðsetja
sig sem kynverur.
Getur ekki hætt að
dást að rósunum Bubbi
og Hrafnhildur rækta fagrar
rósir í garði sínum við heimili
sitt í Kjósinni.
Þ
að þarf bara eitt fífl til að
skemma skemmtunina.
Þetta var alveg stórkost
legt ball og það skemmtu
allir sér vel en í seinni
hálfleik hefur einhver óprúttinn
náungi farið inn í starfsmanna
aðstöðuna og gripið það sem
þar var,“ segir tónlistarmaður
inn Magni Ásgeirsson sem lenti
í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu
að vera rændur þegar hljóm
sveit hans, Á móti sól, skemmti á
Blómaballinu á Hótel Örk í Hvera
gerði um síðustu helgi.
„Jakkinn minn með símanum
og lyklunum mínum var tekinn
og líka græna hliðartaskan mín
en í henni voru fötin mín. Svo var
handtösku í eigu starfsmanns líka
stolið en í henni var veskið henn
ar og öll kort. Sjálfum er mér alveg
drullusama um símann og allt það
en það er pirrandi að vera rændur
bíllyklunum. Sérstaklega þar sem
varalyklarnir eru löngu horfnir en
þeir gufuðu upp einhvern tímann
í flutningum,“ segir Magni sem
varð að láta draga bílinn frá Hvera
gerði til Reykjavíkur.
Magni biðlar til Sunnlendinga
að hafa augun opin eftir grun
samlegum fötum eða tösku sem
einhver hefur hent frá sér. „Það
eru allar líkur á að sá sem hef
ur tekið þetta hafi svo bara hent
þessu frá sér enda kemur þetta
engum að notum nema mér. Því
bið ég fólk um að tala við lögg
una eða senda mér tölvupóst á
magni@amotisol.is ef það finnur
eitthvað af þessu,“ segir Magni og
bætir við að sá seki eða sú seka
megi líka fyrir alla muni skila
starfsstúlkunni skilríkjunum sín
um.
Magni segir engan hafa tekið
eftir grunsamlegum ferðum ná
lægt starfsmannaaðstöðunni á
meðan á ballinu stóð. „Það var
svo mikið að gerast á þessu balli
og allir bara fullir að skemmta
sér. Ég hef nú spilað á nokkr
um skemmtunum yfir ævina en
aldrei áður lent í einhverju svona.
Þetta er alveg hundfúlt. Það eru
aðallega lyklarnir sem mig vant
ar. Síminn og fötin eru hlutir sem
maður endurnýj
ar en það er leiðin
legt að þurfa að skipta um
skrá heima hjá sér af því að
það er einhver fáviti með
húslykilinn,“ segir Magni
fúll en á lyklakippunni
stendur King of the Road.
Kippan fylgdi bifreiðinni,
sem er af gerðinni Toyota,
þegar Magni keypti hana.
„Ég væri ævinlega þakk
látur og lofa að spila í
afmæli þess sem getur
skilað mér þessu!“
indiana@dv.is
Magni
rændur
á balli
n Söngvarinn Magni Ásgeirsson lofar að
spila í afmæli þess sem finnur bíllyklana
Svekktur
Magni segir
hundfúlt
að þurfa
að skipta
um skrá
heima hjá
sér þar sem
einhver
ókunnugur
sé með
húslyklana.