Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2011, Page 6
6 | Fréttir 24. ágúst 2011 MIðvikudagur
M
enntaskólinn Hraðbraut
tekur inn í nýnema í skól-
ann í trássi við tilmæli
menntamálaráðuneytis.
Ráðuneytið hefur ítrekað
tilkynnt Ólafi Johnson, eiganda og
skólastjóra Hraðbrautar, að skólinn
hafi einungis viðurkenningu til að
kenna á öðru námsári. Þetta kemur
fram í svari menntamálaráðuneytis-
ins við fyrirspurn DV um stöðuna á
málefnum Hraðbrautar.
Ólafur Johnson hefur ekki farið
að tilmælum ráðuneytisins og held-
ur áfram að taka nýja nemendur inn
í skólann þrátt fyrir að menntamála-
ráðuneytið hafi ekki heimilað hon-
um að gera það. Ekki liggur því fyrir
hvort þeir nemendur sem teknir eru
inn á fyrra skólaárið í Hraðbraut geti
lokið námi sínu við skólann.
Hraðbraut er einkaskóli sem út-
skrifar nemendur með stúdentspróf
á tveimur árum í stað fjögurra. Skól-
inn er að mestu fjármagnaður með
opinberu fé en að litlum hluta með
skólagjöldum. Skólinn er því ekki
rekstrarhæfur nema hann fái fram-
lög frá hinu opinbera á fjárlögum.
Kolsvört skýrsla
Líkt og DV greindi frá í júní í fyrra
hefur Ólafur tekið tugi milljóna í
arð út úr skólanum á liðnum árum,
lánað tugi milljóna út úr honum til
fasteignaverkefna sem hann hef-
ur sjálfur komið að, auk þess sem
kennarar skólans hafa fengið laun
sem eru langt undir kjarasamnings-
bundnum töxtum. Fjáraustrið út úr
skólanum var svo mikið að viðlíka
mál hefur aldrei áður komið upp í
íslenskri skólasögu.
Ríkisendurskoðun gerði ítarlega
úttekt á skólanum eftir umfjöllun
DV og var skýrsla stofnunarinn-
ar áfellisdómur yfir Ólafi og rekstri
hans á Hraðbraut. Vegna hátternis
Ólafs ákvað menntamálaráðuneytið
að endurnýja ekki þjónustusamn-
ing við Hraðbraut heldur einungis
veita skólanum leyfi til að kenna eitt
skólaár til viðbótar. Með því móti
átti að verja hagsmuni þeirra nem-
enda sem luku fyrri hluta námsins
á síðasta skólaári. Ólafur hefur hins
vegar ákveðið, þrátt fyrir þetta, að
taka inn nýja nemendur þó svo
að ekki liggi fyrir að þeir geti lokið
námi í skólanum. Á annað hundrað
nýnemar sóttu um inngöngu í skól-
ann.
Bent á að upplýsa nýnema um
stöðuna
Í svari menntamálaráðuneytisins
kemur fram að ráðuneytið hafi sent
Hraðbraut bréf þann 8. júní síðast-
liðinn þar sem skólinn var hvattur
til að láta þess getið á heimasíðu
sinni að starf hans eftir skólaárið
2011–2012 væri ekki tryggt þar sem
menntamálaráðuneytið hefði ekki
endurnýjað samstarfssamninginn
við skólann. Ástæðan fyrir því að
bréfið var sent var sú að ráðuneyt-
inu höfðu borist fyrirspurnir vegna
innritunar nýnema á fyrra skóla-
ár í Hraðbraut, samkvæmt svari
menntamálaráðuneytisins.
Orðrétt segir um þetta í bréfinu:
„Á heimasíðu Menntaskólans Hrað-
brautar er nú boðið upp á innritun
nýnema á fyrra námsári en athygli
vekur að ekki er gerð grein fyrir
framangreindu, þ.e. að skólinn hafi
ekki viðurkenningu ráðuneytisins
til slíks náms. Ráðuneytið mælist
til þess að skólinn veiti skilmerki-
lega þær upplýsingar í hvers konar
kynningu og opinberri umfjöllun
um nám á fyrra námsári að það hafi
ekki hlotið viðurkenningu ráðu-
neytisins.“
Óskaði eftir skýringum
Ólafur Johnson var ekki sáttur við
þetta erindi menntamálaráðuneyt-
isins og óskaði eftir skýringum á
inntaki bréfsins. Ráðuneytið svar-
aði honum bréfleiðis í lok júní. Í
bréfi ráðuneytisins kom fram að
menntamálaráðuneytið sæi sér ekki
fært að veita Hraðbraut viðurkenn-
ingu til kennslu á fyrra námsári,
meðal annars þar sem Ólafur hefði
ekki sýnt fram á að rekstraröryggi
skólans væri tryggt. Orðrétt segir
um þetta í bréfinu til Hraðbrautar
sem menntamálaráðuneytið vísar
til í svari sínu við fyrirspurn DV:
„Að mati ráðuneytisins hefur Hrað-
braut ehf. ekki uppfyllt skilyrði um
rekstraröryggi þannig að tryggt sé
að nemendur sem hefja nám á fyrra
námsári geti lokið stúdentsprófi eft-
ir tvö ár.“
Inntakið í bréfinu er því það að
Hraðbraut starfi í reynd án viður-
kenningar menntamálaráðuneytis-
ins og að starfsemi hans sé því ekki
lögum samkvæm. Orðrétt segir um
þetta í bréfinu: „Skólar geta starf-
að án viðurkenningar en starfsemi
þeirra fellur þá ekki undir undir lög
um framhaldsskóla, aðalnámskrá
framhaldsskóla eða aðrar reglur
sem stoð eiga í lögunum.“
Þrátt fyrir þetta fór skólasetning
Menntaskólans Hraðbrautar fram
11. ágúst síðastliðinn og hófst skóla-
starf í byrjun síðustu viku. Tveir
bekkir verða á fyrra námsári og þrír
á því síðara. Ekki er útséð með að
nemendurnir í bekkjunum tveimur
á fyrra ári geti lokið námi í skólan-
um ef marka má svör menntamála-
ráðuneytisins.
Nýnemar teknir inn Menntaskólinn Hraðbraut, sem er í eigu Ólafs Johnson, tók inn tvo
bekki af nýnemum í trássi við fyrirmæli menntamálaráðuneytisins. Ekki er útséð með að
nýnemarnir geti lokið námi í skólanum.
n Ólafur Johnson fór ekki að fyrirmælum menntamálaráðuneytisins
n Tveir bekkir nýnema teknir inn í skólann n Kolsvört skýrsla um Hraðbraut„Að mati ráðuneyt-
isins hefur Hrað-
braut ehf. ekki uppfyllt
skilyrði um rekstraröryggi.
Ólafi bannað að
taka inn nýnema
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Mikil ólga er í grasrót Framsóknar-
flokksins eftir að Guðmundur Stein-
grímsson þingmaður sagði sig úr
honum á þriðjudag. Hugmyndir Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Framsóknarflokksins, um
að draga til baka umsókn Íslands að
Evrópusambandinu munu hafa verið
eins blaut tuska í andlit margra flokks-
manna. Þetta segir heimildarmaður
DV innan úr Framsóknarflokknum.
Guðmundur er sömu skoðunar og
voru þessi ummæli Sigmundar korn-
ið sem fyllti mælið hjá honum. Fleiri
munu fylgja Guðmundi úr flokknum
á næstunni en varaformaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna,
Hlini Melsteð Jóngeirsson, sagði sig
úr flokknum skömmu eftir fund Guð-
mundar og Sigmundar.
„Andstaðan við frjálslyndi er með-
al annars forræðishyggja, sérhags-
munagæsla og þjóðernishyggja. Þetta
þrennt veður uppi í þjóðfélaginu að
mínu mati. Ég tel því miður Fram-
sóknarflokkinn vera orðinn um of
vettvangur slíkra afla,“ skrifar Guð-
mundur á vefsíðu sína á þriðjudag.
Guðmundur afhenti Sigmundi Dav-
íð Gunnlaugssyni úrsagnarbréf sitt
úr Framsóknarflokknum á fundi sem
þeir áttu á þriðjudag. Guðmundur og
Sigmundur ræddu á lokuðum fundi
um hugsanlegt samstarf Guðmund-
ar við Framsóknarflokkinn í einhverj-
um málum á þinginu. Guðmundur
segir að hann hafi ekki séð sér fært
að ganga aftur til liðs við Samfylk-
inguna. Áður en hann gekk til liðs við
Framsóknarflokkinn var hann vara-
þingmaður Samfylkingarinnar. Telur
hann sig ekki getað unnið að mark-
miðunum sem hann vill vinna að inn-
an Samfylkingarinnar.
Fyrir fund Guðmundar og Sig-
mundar sagði Guðmundur að hann
vissi um marga flokksmenn Fram-
sóknarflokksins sem ætluðu sér á
næstu dögum að segja skilið við
flokkinn. Aðrir þingmenn Framsókn-
arflokksins sögðust koma af fjöllum
þegar upplýstist um úrsögn Guð-
mundar. Margir innan flokksins vilja
meina að það sé lýsandi fyrir vanda-
mál flokksins að þingmenn hans viti
ekki hvað er að gerast bæði innan
flokksins og í kringum hann.
adalsteinn@dv.is
Ólga í grasrót Framsóknarflokksins:
Margir munu fylgja Guðmundi
Fyrsti þingmaðurinn Guðmundur er fyrsti þingmaðurinn sem segir sig úr flokknum núna
en fjölmargir framsóknarmenn sem starfað hafa með flokknum í áraraðir hafa sagt skilið við
flokkinn. MyNd SIgTryggur ArI
Eldur í gámi
í Sundahöfn
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
slökkti eld í safngámi á gámasvæði
milli Samskipa og Eimskipa í Sunda-
höfn á fimmta tímanum á þriðju-
dag. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
var dekk í ruslahrúgunni. Þegar það
brann lagði mikinn reyk yfir svæðið
en engin hætta var á ferðum. Elds-
upptök eru ókunn og var slökkviliðið
ekki lengi að slökkva eldinn.
Tap á Rocky
Horror
Sjötíu milljóna króna halli varð á
rekstri Leikfélags Akureyrar síðasta
leikár. Þetta hefur Akureyri vikublaði
eftir heimildarmanni sínum sem er
kunnugur fjármálum leikfélagsins.
Í samtali við vikublaðið sagðist leik-
hússtjóri Leikfélags Akureyrar, María
Sigurðardóttir, ekki geta svarað fyrir-
spurn blaðsins um þetta mál á þess-
um tímapunkti. Hún neitaði að tjá
sig þegar hún var spurð hvort heim-
ildir blaðsins væru rangar.
Akureyri vikublað greinir frá að
tap hefði verið á hverri einustu sýn-
ingu á söngleiknum Rocky Horror á
síðasta leikári vegna launakostnaðar
og umfangs sýningarinnar.
Þá er greint frá því að mun minni
innkoma hafi fengist af farsa sem
settur var upp hjá leikfélaginu í
fyrra en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Segir vikublaðið að kostnaðurinn af
starfseminni hafi verið hátt í annað
hundrað milljónir króna, sé tekið
tillit til 92 milljóna króna opinbers
framlags og stuðnings hollvina og
tekna af miðasölu.
Útskýrðu hvað
„framsóknar-
hommi“ þýðir
Guðmundur Helgason, formaður
Samtakanna ´78, og Anna Jonna Ár-
mannsdóttir varaformaður, hafa
óskað eftir því að sjónvarpsmaður-
inn Ingvi Hrafn Jónsson útskýri hvað
hann átti nákvæmlega við þegar
hann kallaði Guðmund Steingríms-
son alþingismann „framsóknar-
homma“ í útvarpsviðtali í vikunni.
Í pistli á heimasíðu samtakanna
spyrja þau: „Hvað í ósköpunum á
maðurinn eiginlega við?“ Þau telja
Ingva Hrafn reyna að gera lítið úr
karlmennsku Guðmundar. „Að nota
orðið hommi árið 2011 í tilraun til
að gera lítið úr öðrum er í besta falli
tímaskekkja og sýnir bara á hvílíkum
villigötum þessi umræða er.“
Ekki náðist í Ingva Hrafn til að
gefa honum tækifæri til að útskýra
hvað hann átti við með því að kalla
Guðmund „framsóknarhomma“.