Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 24. ágúst 2011 MIðvikudagur
Afskrifa milljarða
skuld hjá Róberti
R
úmlega 15,5 milljarðar
króna af skuldum eignar-
haldsfélags Róberts Wess-
mann, Salt Investments,
gjaldféllu í fyrra. Þetta kem-
ur fram í ársreikningi eignarhalds-
félagsins fyrir árið 2009 sem skilað
var til ársreikningaskrár í lok mars
á þessu ári. Heildarskuldir félags-
ins námu þá tæpum 19 milljörðum
króna. Eigið fé félagsins er neikvætt
um 12,5 milljarða króna.
Róbert er fyrrverandi forstjóri
samheitalyfjafyrirtækisins Actavis
og auðgaðist umtalsvert sumarið
2007 þegar hann seldi hlutabréf sín
í lyfjafyrirtækinu til Björgólfs Thors
Björgólfssonar fyrir meira en 10
milljarða króna. Um þessar mundir
starfar Róbert að uppbyggingu
bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvo-
gen Group.
Keypti í Glitni fyrir rúma 12
milljarða
Salt Investments er móðurfélag
nokkurra annarra eignarhalds-
félaga í eigu Róberts, svo sem eins
og Salt Properties og Salt Financi-
als. Salt Financials er meðal annars
þekkt vegna fjárfestingar félagsins í
Glitni árin 2007 og 2008. Glitnir fjár-
magnaði hlutabréfakaupin. Félagið
keypti meðal annars hlutabréf í
Glitni fyrir 5,7 milljarða króna þann
26. september 2008, nokkrum dög-
um fyrir fall bankans, og varð í kjöl-
farið sjöundi stærsti hluthafi hans.
Félagið hafði fyrr á árinu, í janúar
2008, einnig keypt hlutabréf í Glitni.
Í ársreikningi Salt Financials fyrir
árið 2009 kemur fram að kaupverð
bréfanna í Glitni hafi verið tæplega
12,5 milljarðar króna. Þar kemur
einnig fram að við fall Glitnis hafi
félagið afskrifað þennan eignarhlut
sinn í bankanum. „Við þetta afskrif-
aði félagið eignarhlut sinn í bank-
anum að fullu,“ segir í ársreikningn-
um. Eftir stóðu umræddar skuldir
við Glitni.
Afskrifað eftir fall Glitnis
Í ársreikningi Salt Financials kem-
ur fram að félagið skuldi rúmlega
20 milljarða króna og að allar þessar
skuldir séu gjaldfallnar. „Skuldir við
lánastofnanir eru allar gjaldfallnar,“
segir í skýringu í ársreikningnum.
Eigið fé Salt Financials er neikvætt
um sömu upphæð. Salt Financials
bíður því fátt annað en að fara í gjald-
þrot á næstunni.
Þá kemur fram í ársreikningnum
að tengd félög hafi gengist í ábyrgð-
ir vegna skulda Salt Financials að
fjárhæð tæplega þriggja milljarða
króna. Önnur félög í eigu Róberts er
því ábyrg fyrir hluta af skuldum Salt
Financials og deila því ábyrgðinni á
þeim.
Stærsta eignin lán til tengds
aðila
Á móti þessum milljarða skuldum
þessara tveggja félaga Róberts eru
litlar eignir sem eru mikils virði. Salt
Investments er skráð fyrir eignum
upp á tæplega 6,2 milljarða króna
en rúmlega 6,1 milljarður af þeim
er lán til tengdra aðila. Þá á Salt Fin-
ancials eignir upp á um 900 þúsund
krónur á móti þessum rúmlega 20
milljarða króna skuldum.
Ljóst er út frá þessum ársreikn-
ingum Róberts að félaga hans bíður
fátt annað en gjaldþrot með tilheyr-
andi tugmilljarða króna afskriftum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Róbert Wessmann keypti í Glitni fyrir rúma 12 milljarða n Eignarhaldsfélög
hans skulda tugi milljarða n Litlar sem engar eignir eru á móti skuldunum
Félögum Róbert bíður
gjaldþrot Tvo af stærstu
eignarhaldsfélögum Róberts
Wessmann fjárfestis eru
tæknilega gjaldþrota með
tugmilljarða skuldir á bakinu.„Skuldir við
lánastofnanir
eru allar gjaldfallnar
Jón Gnarr borgarstjóri vill afnema
skólaskyldu. Í Morgunútvarpi Rásar
2 á þriðjudaginn sagðist hann vilja
afnema skólaskyldu og sagði börn
vera þvinguð til að gera það sem
þau hefðu ekki áhuga á og það skil-
aði engu.
Umræðan í þættinum hófst á því
að Jón Gnarr sagði grunnskólana
geta verið leiðinlega. „Það hentar
ekki öllum,“ sagði Jón sem sagðist
hafa átt gífurlega erfitt í skólakerf-
inu frá ellefu ára aldri. „Þá fór þetta
að verða mér alveg gríðarlega erfitt
og lagðist gríðarlega þungt á sálina í
mér. Mér leið ofboðslega illa,“ sagði
Jón Gnarr sem hafði ekki áhuga á
neinu í skólanum nema að vera í frí-
mínútum.
„Ég fékk kvíðahnút vegna þess að
mér fannst ég standa frammi fyrir
verkefnum sem ég gæti ekki leyst.
Ef ég gat ekki leyst þau þá væri ég
einskis virði og væri mánudags-
barn. Það er vont fyrir barn að líða
þannig. Mér var sagt að ég yrði að
læra þetta og hitt, annars yrði ekk-
ert úr mér. Ég var í mikilli mótstöðu
gegn skólakerfinu,“ segir Jón Gnarr
„Ég er ekki að segja að skólakerf-
ið sé lélegt, það er margt mjög gott
í því. Ef við ætlum að laga og bæta
það þá verðum við að vera heiðar-
leg í því hvernig við tölum um það.
Þetta skiptir öllu máli um framtíð
okkar að skólakerfið sé gott,“ sagði
Jón Gnarr.
Þegar Jón var spurður hvern-
ig væri hægt að laga það ástand að
drengjum liði illa í skóla sagði hann:
„Bara gefa þetta frjálst. Það á að gefa
skólakerfið algjörlega frjálst og með
svipuðu sniði og það er víðs veg-
ar um Bandaríkin. Að foreldrum sé
boðið upp á heimakennslu. Þú mátt
vera með heimakennslu ef annað
foreldrið er með kennaramenntun.
Leggja niður skólaskyldu.“
Jón Gnarr „Ég er ekki að segja að skólakerfið sé lélegt, það er margt mjög gott í því. Ef við
ætlum að laga og bæta það þá verðum við að vera heiðarleg í því hvernig við tölum um það.“
Jón Gnarr kynnir róttækar skoðanir á skólamálum:
„Gefa skólakerfið algjörlega frjálst“
Össur blæs
á kenningar
Össur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra hefur vísað á bug sögusögnum
þess eðlis að hann eða aðrir í ríkis-
stjórninni hafi haft áhrif á ákvörðun
Guðmundar Steingrímssonar um að
segja sig úr Framsóknarflokknum.
Þetta kom fram á RÚV. Össur segir
að Guðmundur sé velkominn í Sam-
fylkinguna, en Guðmundur hyggst
hins vegar stofna nýjan frjálslyndan
og grænan stjórnmálaflokk á miðju
stjórnmálanna. Guðmundur hafði
sjálfur lýst því yfir að hann hefði
hvorki talað við Össur né aðra ráð-
herra um að styðja ríkisstjórnina.
Tóku sér stöðu
í ráðuneytinu
Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands
tóku sér stöðu í anddyri mennta-
og menningarmálaráðuneytisins á
þriðjudag. Hópurinn ákvað að taka
sér mótmælastöðu til að berjast fyrir
því að samningar náist um áfram-
haldandi rekstur skólans.
Þegar kom að því að vinnudeg-
inum lyki hjá starfsfólki ráðuneytis-
ins segir Ari Birgir Ágústsson, nemi í
skólanum, að starfsfólkið hafi lokað
á eftir sér og kvikmyndaskólanem-
endur sitji þar enn. „Við erum læst
inni. Það kemst enginn út né inn,“
sagði Ari við DV á þriðjudagskvöld-
ið. „Okkur var sagt að það kæmi
maður frá Securitas síðar í kvöld til
að tékka á okkur.“
Ari Birgir segir aðspurður
að Svandís Svavarsdóttir, settur
mennta- og menningarmálaráð-
herra, og aðstoðarmaður mennta-
málaráðherra hafi rætt við hópinn
fyrr um daginn en hann undirstrikar
þá afstöðu nemenda að það sé ekki
þeirra að standa í samningavið-
ræðum. „Við erum hér til að vekja
athygli á þessari alvarlegu stöðu sem
upp er komin.“
Ölvaðir og
próflausir
Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir
ölvunarakstur á höfuðborgarsvæð-
inu um helgina að því er segir í til-
kynningu frá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Ellefu þeirra voru
stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópa-
vogi og Garðabæ. Sex ökumenn voru
teknir á laugardag og níu á sunnu-
dag. Þetta voru tíu karlar á aldrinum
20–62 ára og fimm konur, 24–58 ára.
Fjórir þessara ökumanna höfðu þeg-
ar verið sviptir ökuleyfi.