Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2011, Síða 15
Neytendur | 15Þriðjudagur 24. ágúst 2011
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Skiptu út óholla matnum
*Vörur og Verð í Bónus
Hreinir ávextir í stað sulta
Ert þú einn af þeim sem færð þér ristaðar brauðsneiðar með osti og marmelaði á morgnana?
Ef þú vilt tileinka þér heilsusamlegri lífsstíl væri ekki úr vegi að borða hreina ávexti eða
hreinar sultur í stað þeirra sykruðu. Margar tegundir sultu eru yfirfullar af sykri og sætu-
efnum en í ávöxtum er aðeins náttúrulegur ávaxtasykur, sem gefur þér þó sæta bragðið sem
þú ert að leita að. Hitaeiningarnar eru færri og í ávöxtum eru engin rotvarnarefni.
Sætar kartöflur í
stað hefðbundinna
Jafnvel þó kartöflur séu ágætlega næringarríkar eru sætar kartöflur
líklega betri valkostur. Sykurstuðull sætra kartaflna er mun lægri en
hefðbundinna og þú upplifir því síður nístandi sykurþörf eftir að hafa
borðað sætar kartöflur. Þær innihalda flókin kolvetni og eru hlaðnar
steinefnum og vítamínum, meðal annars beta-karótíni sem rannsóknir
benda til að geti minnkað líkur á sumum krabbameinum. Þess má
þó geta að ekki hefur verið staðfest að andoxunarefni ein og sér geti
komið í veg fyrir sjúkdóma. Prófaðu að baka sæta kartöflur eða skera
þær niður í báta og elda.
Brún hrísgrjón
fyrir hvít
Brún hrísgrjón sem ekki hafa verið
afhýdd hafa fjölda æskilegra næringar-
og steinefna fram yfir hvít hrísgrjón.
Þau þurfa reyndar lengri suðu en hvít
(hýðislaus) grjón og meira vatn þarf á
þau. Í hýðinu eru prótín, járn, kalk og
B-vítamín sem tapast ef grjónin eru
afhýdd. Bragðið er nánast eins.
Frystu jógúrt
eða ávexti
fyrir rjómaís
Ís er einn vinsælasti eftirréttur sem
völ er á en er því miður inniheldur
rjómaís mikinn sykur og mikla fitu.
Ef þú getur ekki án eftirréttar verið
en þarft að passa hitaeiningarnar
ættir þú að prófa að frysta fitusnauða
jógúrt sem þú hefur blandað berjum
og sítrusávöxtum saman við. Gott
er að bæta einnig við ósöltuðum hnet-
um. Slíkur eftirréttur er ekki aðeins
gómsætur heldur einnig auðmeltan-
legur, fitusnauður og sykurlítill.
Ávextir í stað
súkkulaðistykkis
Eins og áður sagði er morgunkorn gjarnan kynnt sem megrunar-
fæði og það sama gildir um mörg kornstykki sem seld eru við
hlið hefðbundinna súkkulaðistykkja og annars sælgætis. Þau
eru oft yfirfull af sykri, maíssýrópi og mettaðri fitu og innihalda
sjaldnast færri hitaeiningar en súkkulaðistykki eða kexpakki.
Ferskir ávextir eru miklu hollari valkostur og fullnægja oftar en
ekki sykurþörfinni sem fólk finnur fyrir.
77 kr.*
Poppkorn í stað snakks
Ef einhver hefur velkst í vafa þá er rétt að upplýsa að hefðbundnar kartöfluflögur eru alls
ekki hollur valmöguleiki þegar þig langar í eitthvað á milli mála eða á kvöldin. Þær eru oftast
ríkar af mettuðum fitusýrum, sem geta meðal annars aukið líkur á hjartakvillum, þær eru
oftast mikið saltaðar og innihalda nánast engin næringarefni. Ef þig dauðlangar í eitthvað
bragðgott eftir kvöldmat skaltu skipta út kartöfluflögunum og velja poppkorn. Gættu þess
bara að velja ekki örbylgjupopp sem er stútfullt af salti og fitu. Best er að poppa sjálfur og
skera saltið heldur við nögl. Úr poppmaís færðu andoxunarefni, trefjar og næringarefni. Þú
getur „sparað þér“ um 200 hitaeiningar á 25 gramma skammti.
249 kr.* 198 kr.
*
345 kr/kg.*