Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2011, Qupperneq 18
18 | Umræða 24. ágúst 2011 MIðvikudagur
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
kristjana guðbrandsdóttir, kristjana@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Þjóðernissinninn
Leiðari Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar
Bókstaflega
Björn fattaði
samsærið
n Björn Bjarnason, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, er afar næmur
á pólitískt baktjaldamakk, enda var
hann lengi í fram-
línu íslenskra
stjórnmála.
Björn fullyrðir á
heimasíðu sinni
að Guðmundur
Steingrímsson hafi
nýtt meint sam-
bönd sín til að
tryggja að fréttir
af úrsögn hans úr Framsókn myndu
ýta fréttum af óorðnu falli Gaddaf-
is Líbíuleiðtoga til hliðar. Auk þess
hefði verið tryggt að afsögnin kæmi
samflokksmönnum hans í opna
skjöldu, þegar hún var sögð í kvöld-
fréttum RÚV. Það eina sem skemm-
ir samsæriskenninguna er að DV
greindi fyrst fjölmiðla frá málinu, og
það löngu fyrir kvöldfréttir, eða rétt
eftir hádegi. „Enginn leki af þessu
tagi er tilviljun,“ skrifar Björn hins
vegar. Vera má að hann hafi reynslu
af því að nýta sér RÚV, sem aðrir
hafa ekki, enda þykir hin svokallaða
„skrímsladeild“ Sjálfstæðisflokks-
ins standa öllum öðrum framar í
almannatengslum.
Vel fóðraður formaður
n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var
tiltölulega grannur og spengilegur
þegar hann byrjaði í Framsóknar-
flokknum. Í byrjun vikunnar var
honum hins vegar orðið nóg um,
enda orðinn 108 kíló að þyngd. Á
Facebook-síðu Sigmundar má sjá
myndasafn sem sýnir formann-
inn misgildan við íslensk náttúru-
undur, við ræðuhöld og svo í ýmsu
flokksstarfi Framsóknar. Þar kemur
í ljós að flokksstarf Framsóknar
felur gjarnan í sér vöfflubakstur,
trakteringar, matarveislur og neyslu
ýmissa kræsinga, enda eru bændur
landsins þekktir fyrir að veita vel.
Þetta gæti útskýrt mikinn þvermáls-
vöxt formannsins í embætti. Mynd-
irnar varpa hins vegar ekki grun á
erlend matvæli.
Orðljótur
sjónvarpsstjóri
n Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarps-
stjóri ÍNN, hefur vísað því á bug að
hann hafi sýnt fordóma með því að
kalla Guðmund
Steingríms-
son flóttaþing-
mann „fram-
sóknarhomma“.
„Hvernig datt
ykkur það í hug?“
svaraði hann út-
varpsmönnum
Bylgjunnar, sem
spurðu. Þeir sem þekkja til sögu
Ingva Hrafns vita að uppnefni hans
beinast að öllum þjóðfélagshópum.
Hann kallaði Ólaf Ragnar Grímsson
„forsetafíflið“ á sínum tíma fyrir að
synja fjölmiðlalögum staðfestingar.
Í nærmynd DV af Ingva Hrafni fyrr
í sumar kom fram að honum hefði
verið kennt í æsku að blóta ekki,
en fljótlega eftir að hann hóf sjó-
mennskuferil umbreyttist orðfæri
hans. Minnisstæð var beiðni hans
við matarborðið er hann kom heim
af sjó 17 ára gamall, en þá sagði
Ingvi við fróman föður sinn: „Slak-
aðu helvítis tómatsósunni.“
Sandkorn
O
ft gerist það í barnaskóla að
vinsælustu krakkarnir ákveða
að gera eitthvað, en vilja ekki
að hinir fái að vera með. Þess
vegna ljúga þeir að hinum krökkun-
um og villa um fyrir þeim þegar þeir
spyrja.
Þ
egar tónlistarhöllin Harpa var
formlega opnuð um síðustu
helgi og milljarða króna gler-
hjúpurinn tendraður ákváðu
stjórnendur Hörpu að leigja sérstakt
veisluskip til þess að sjá herlegheit-
in frá nýju sjónarhorni, enda byrgði
múgurinn uppi á landi þeim sýn.
Blaðamaður DV ákvað að hringja
í Steinunni Birnu Ragnarsdóttur,
tónlistarstjóra Hörpu, síðla dags
á sunnudeginum og spyrja hana
hvernig málunum hefði verið hátt-
að, það er að segja hverjir fengu að
fara með í veisluskipið og svo fram-
vegis. Hann gerði þetta í veikri von,
enda höfðu stjórnendur Hörpu með-
al annars neitað að gefa upp hverjir
fengu frían aðgang að opnunarhátíð
Hörpu í vor.
S
teinunn heyrði fyrstu spurn-
inguna og svaraði svo: „Já,
heyrðu, ég er að rjúka hérna
bara inn á smá fund, en ég
skal senda þér smálínu sem þú mátt
nota, bara upplýsingar til baka á net-
fangið,“ svaraði hún blaðamannin-
um fróðleiksfúsa. Örstutt stund leið.
Steinunn byrjaði að tala við einhvern
annan og virðist hafa haldið að hún
hefði slitið símtalinu. „Núna nota ég
trikkið sko,“ sagði hún ábúðarfull við
þann nærstadda um blaðamanninn
hnýsna. „Þeir eru að fara að blása
þetta upp, að það hafi verið eitthvað
elítuboð á Hafsúlunni,“ sagði hún
hálfhneyksluð. „Hvort þetta sé rétt,
þessi orðrómur,“ hélt hún áfram. „Þá
nota ég trikkið sem Andrés kenndi
mér, bara að segja þeim að senda
þér, að þú sért að rjúka inn á fund,
bara að senda tölvupóst.“ Hún var
sem sagt ekki á leið á fund, heldur
vildi hún ekki þurfa að svara spurn-
ingunum.
Þ
að er gott að vita að stjórnend-
ur Hörpu eru búnir að æfa sig
í því að svara almenningi um
útgjöld í tengslum við Hörpu,
útgjöld sem almenningur borgar á
endanum, ofan á allt annað. Hug-
hreystandi er að hugsa til þess að
Steinunn Birna býr yfir brellum til
að villa um fyrir þeim sem spyrja
hverjir fá sérstaka þjónustu, sem
almenningur borgar fyrir. Var
þetta ekki nákvæmlega það sem
talað var um eftir hrun, að við þyrft-
um að fá fólk til áhrifa, sem kann
að villa um fyrir öðrum þegar það
er spurt hvað efsta lag samfélagsins
aðhefst á kostnað almennings? Nú
kemur í ljós hvort yfirvöld staðfesti
að þetta sé þeirra stefna, með því að
halda henni að störfum.
Á
sama tíma á öðrum stað: Gler-
höllin Perlan auglýst til sölu.
Almenningur í Reykjavík þarf
að niðurgreiða rekstur henn-
ar. Tekjur af Perlunni duga ekki einu
sinni til að borga fasteignagjöld. Svo
virðist sem það hafi verið galin hug-
mynd hjá Davíð Oddssyni að reisa
rándýra diskóhálfkúlu ofan
á hitaveitutönkum
í Öskjuhlíðinni.
Algerlega mis-
heppnað glys.
En sendið
okkur endi-
lega reikn-
inginn og
segið ekki
orð!
H
ann er hættur að borða útlensk-
an mat. Hann vill hætta við-
ræðum við Evrópusambandið.
Honum finnst tíðarandi breyt-
inga vera hættulegur. Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson hefur stigið fram fyr-
ir skjöldu sem óskoraður forsprakki
íslenskra þjóðernissinna.
Hugmyndafræði Sigmundar er
ekki ný hjá formanni Framsóknar-
flokksins. Jón Sigurðsson, sem var for-
maður í tæpt ár frá 2006 til 2007, þar
til hann náði ekki kjöri á þing, kynnti
til sögunnar svokallaða „þjóðhyggju“.
Hún var ekki ólík stefnu Sigmund-
ar, nema hvað hún var ótímabær því
stríðið um Evrópusambandið var
ekki byrjað. Áður hafa frammámenn
í Framsóknarflokknum verið áber-
andi þjóðræknir, allt frá tímum Jón-
asar frá Hriflu. Guðni Ágústsson tjáði
ást sína á öllu íslensku við flest tilefni.
Meðal annars tók hann þátt í að borða
stærstu pylsu heims, sem var íslensk.
Nokkru síðar var hann fluttur á sjúkra-
hús með verki í kviðarholi.
Sigmundur Davíð hefur kunn-
gjört að hann muni einungis borða
íslenskan mat, af heilsufarsástæðum.
„Ég hitti meltingarlækni sem sagði
mér að íslenskur matur væri sá holl-
asti í heimi,“ útskýrði hann á heima-
síðu sinni. Þetta var næsta færsla á
eftir áskoruninni „Leggjum ESB-um-
sóknina til hliðar“. Hann kallar þetta
„íslenska kúrinn“. Þótt Sigmundur
hljóti að vera að grínast, upp að ein-
hverju marki, eru skilaboðin einhver
mesta þjóðernishyggja sem um getur í
íslenskri pólitík. Þessar öfgar eru hins
vegar eins og toppurinn á ísjakanum á
hugmyndafræði þjóðernissinna, sem
nú kraumar í fullri mótun í andsvari
við alþjóðahyggju sambandssinna.
Ræðan sem Sigmundur hélt fyrir
kirkjunnar menn á Hólum á dögun-
um var gagnárás íhaldsmanna á þau
breytingaöfl sem urðu ríkjandi á Ís-
landi við hrunið. Sigmundur talaði
gegn nýrri stjórnarskrá, varaði við því
að tíðarandinn væri hættulegur og út-
málaði núverandi ástand sem hálf-
gerða upplausn gilda og grunnstoða
samfélagsins. Önnur sýn væri að hug-
myndafræðileg gerjun hefði aldrei
verið jafnmikil meðal almennings.
Hún brýst fram í áherslu á grundvall-
aratriði eins og lýðræði, gegnsæi, rétt-
læti og réttindi almennings. Krafan er
að almenningur ráði meiru og fái að
vita meira um það sem valdafólkið að-
hefst. Sjálfur er Sigmundur holdgerv-
ingur hins gamla valds – auðmaður
og stjórnmálamaður – og sér fyrst og
fremst skrílshegðunina í byltingunni.
Hann segir að nú sé við völd tíðarandi
sem „stuðlar að, og þrífst á, tortryggni,
andúð, heift, rógburði og gremju, og
vegur að grunnstoðum samfélagsins“.
Þjóðernis- eða sjálfstæðissinnar
treysta gömlu, íslensku valdastéttinni
best til að halda utan um mál þjóðar-
innar. Þeir trúa því að hagsmunir for-
ræðismanna gömlu atvinnuveganna
séu leiðin að hagsmunum almenn-
ings. Framsóknarflokkurinn, bænda-
stéttin, Landssamband íslenskra út-
vegsmanna og Sjálfstæðisflokkurinn
eru hjartað í hagsmunaneti þjóðernis-
sinna.
Gömlu, íhaldssömu valdaöflin
kunna bestu brelluna til að vinna gegn
breytingum. Hún er að spila á þjóð-
ernishyggjuna. Hún er límið sem fest-
ir almenning við gömlu valdaöflin.
Árangursríkustu skilaboðin eru að Ís-
land sé sjálfu sér nægt og raunar betra
en önnur lönd. Ísland sé best. Þess
vegna er Sigmundur meira að segja
hættur að borða útlenskan mat.
Svarthöfði
„Hann langaði að
spila með mér og
það var vel þegið.
Hann var bara
fínn þarna en það er
vonlaust að syngja þar
sem er sígarettureykur.“
n Árni Johnsen þvertekur fyrir að hafa
rekið tónlistarmanninn Helga val
Ásgeirsson af sviðinu á bæjarhátíðinni
Blómstrandi dögum í Hveragerði um
síðustu helgi. – DV
„Þetta var bara
alveg hræðilegt
og um tíma mér
leið svo illa að ég
var farin að íhuga að enda
þetta allt saman.“
n Katrín Aðalsteinsdóttir þjáist af
sjúkdómnum HS sem lýsir sér í kýlamynd-
un á líkamanum. – DV
„Lífið er stutt,
ekki koma þér
eða öðrum í
hættu að óþörfu.
Það eina sem þú þarft að
gera er að hægja á þér,
fylgjast vel með öllu í
kringum þig og vera alltaf
í bílbelti, það bjargar.“
n Jónína Bríet Jónsdóttir missti systur
sína, guðrúnu jónsdóttur, í bílslysi en
guðrún var aðeins átján ára þegar hún
lést. – DV
„Þetta hljómar ógeðslega
illa, eins og starfsfólkið
hafi verið blindfullt við
störf en þannig var það
ekki.“
n Karen Elísabet Særún Ingadóttir,
eigandi skemmtistaðarins Langa Manga,
segir af og frá að starfsfólk hennar hafi
verið ölvað við vinnu. – DV
Er þetta ekki efni í
góðan söguþráð?
„Þetta er algjört bíó.“ segir Ari Birgir
Ágústsson, nemandi í kvikmynda-
skólanum
Nemendur og kennarar skólans hafa
mótmælt aðgerða-
leysi ríkisstjórnarinnar
með ýmsum hætti og
á þriðjudag neituðu
nemendur að yfirgefa
menntamálaráðu-
neytið fyrr en
samningar næðust.
Spurningin
Lygar í Hörpu
„Þess vegna er Sig-
mundur meira að
segja hættur að borða
útlenskan mat.