Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2011, Síða 26
26 | Fólk 24. ágúst 2011 Miðvikudagur
Litríkur
Bingi
„Nei, ég er ekki kominn með
neinn nýjan stíl. Ég hef oft
verið í ansi skrautlegum fötum
í gegnum tíðina. Ég er nú orð-
inn öllu vanur þegar kemur að
því að fólk sé að velta því fyrir
sér hvað ég sé að gera,“ segir
Björn Ingi Hrafnsson, fyrr-
verandi borgarfulltrúi og nú-
verandi eigandi Vefpressunn-
ar, aðspurður hvort hann væri
kominn með nýjan fatastíl.
Björn Ingi vakti athygli gesta
Menningarnætur er hann
spígsporaði um bæinn, reffi-
legur í litríkum fötum. Haft
var á orði að hann væri búinn
að breyta um fatastíl en hann
hlær að þeim orðrómi í sam-
tali við DV og svarar að bragði:
„Nei, ég er bara ég.“ Ekki náð-
ist mynd af borgarfulltrúanum
fyrrverandi í Menningarnæt-
ur- „dressinu“ en á meðfylgj-
andi mynd má sjá Björn Inga
í hressilegri bleikri peysu sem
er einkennandi fyrir litríkt
fataval hans.
Lögleg á
mótorhjóli
Kvikmyndagerðar- og söng-
konan Vera Sölvadóttir er
komin með mótorhjólapróf.
Þetta tilkynnti hún á Face-
book-síðu sinni á mánudag-
inn. Vera er mikill töffari og
óhrædd við að prófa nýja
hluti. Hún hefur þó ekki fjár-
fest í eigin hjóli ennþá en
býr svo vel að búa nánast við
hliðina á Ingólfstorgi þar sem
mótorhjólakappar borgarinn-
ar koma jafnan saman með
hjólin sín. Það eru því hæg
heimatökin fyrir Veru að skella
sér út og fá ef vill að bregða sér
á bak á einhverju tryllitækinu.
Selja
aleiguna
Litríka parið Jói Kjartans ljós-
myndari og Hildur Her-
manns, grafískur hönnuður,
selja aleiguna í Kolaportinu
um helgina í tilefni af flutning-
um þeirra til Óslóar.
Á markaðnum segjast þau
selja heilt fjall af fatnaði, heil-
an hól af húsbúnaði, heila brú
af bókum, vörðu af veggmynd-
um, mergð af myndavélum,
dyngju af DVD og sæti af CD.
Þ
etta var skemmtilegasta
æfing sem ég hef farið á
lengi,“ segir veðurfrétta-
og hlaupakonan Soffía
Sveinsdóttir sem tók þátt í rosa-
legri bootcamp-æfingu á dög-
unum þar sem hópurinn var
látinn stinga sér til sunds í Naut-
hólsvík. „Annan hvern laugar-
dag er tveggja tíma útiæfing
allt árið um kring. Þetta er við-
bótaræfing en ég reyni að mæta
þegar ég get því þetta eru upp-
áhaldsæfingarnar mínar. Þær
eru miserfiðar, á meðan sum-
ar eru sjúklega erfiðar eru aðr-
ar léttari. Þarna vorum við látin
mæta í sundfötum innan undir
og áttum svo að koma okkur yfir
víkina eins hratt og við gátum,“
segir hún og bætir við að sumir
hafi synt á meðan aðrir hafi
gengið í vatninu sem náði alla
leið upp að brjóstum.
Aðspurð segir hún æfinguna
í sjónum hafa kveikt löngun til
að fara í sjósund. „Sjósund hef-
ur verið á stefnuskránni lengi og
vonandi verður af því fljótlega.
Þetta var meiriháttar skemmti-
legt. Ekki beint erfitt en það
var talsverð áskorun að demba
sér út í kalt vatnið.“ Soffía tekur
undir að það ríki ákveðið lík-
amsræktaræði á Íslandi í dag.
„Það eru allir að hreyfa sig sem
er frábært og ég held að þessi
aukning sé meðal annars ár-
angri Annie Mistar að þakka.
Hún veitir fólki hvatningu til
að byrja að hreyfa sig.“ Svo var
frábært hve margir tóku þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu, það
var fjölgun í öllum flokkum,“
segir Soffía sem sjálf fór tíu kíló-
metra í hlaupinu á Menningar-
nótt en hún er að koma sér aft-
ur af stað eftir nokkurra mánaða
meiðsli og stefnir á hálft mara-
þon í Torontó í október.
Æfing í köldum sjónum
n Veðurfréttakonan Soffía Sveinsdóttir synti í sjónum á bootcamp-æfingu
Sundfataæfing Veðurfrétta-
konan Soffía sést hér fremst í flokki
en myndin var tekin á bootcamp-
æfingu í Nauthólsvík.
Hlaupagikkur Soffía stefnir á að taka þátt í hálfmaraþoni í Torontó í október.
É
g er að flytja til Suð-
ur-Afríku eftir 10 daga
og var að borga flug-
miðann, hann kost-
aði hálfa milljón,“
segir sunddrottningin Ragn-
heiður Ragnarsdóttir sem
er á leiðinni í þjálfunarbúð-
ir í Pretoríu í Suður-Afríku.
Ragnheiður undirbýr sig nú
fyrir Ólympíuleikana á næsta
ári og þjálfunarbúðunum í
Pretoríu fær hún góðan und-
irbúning fyrir leikana. „Þarna
er virkilega góð aðstaða, góð
þjálfun og ég trúi að þetta sé
það sem til þarf til að ná góð-
um árangri,“ segir hún.
Ragnheiður þarf að fjár-
magna þjálfun sína fyrir Ól-
ympíuleikana að mestu sjálf
en hún er á svokölluðum B-
styrk hjá ÍSÍ. Sá styrkur dug-
ar henni til að keppa á fáein-
um mótum á ári. Hún þarf þó
alltaf að velja og hafna.
Nú er það allt eða ekkert
„Það er dýrt að sinna at-
vinnumennsku í sundi,“ seg-
ir Ragnheiður. „Ég þarf að
borga fyrir keppnisferðir og
ég þarf að æfa alla daga og
því get ég ekki stundað laun-
aða vinnu. Mamma og pabbi
standa þétt við bakið á mér.
Ég hefði aldrei náð svona
langt án þeirra. Atvinnu-
mennskunni fylgja miklar
fórnir. Ég er þeim afskaplega
þakklát fyrir stuðninginn. Nú
er ég að fara út og það verður
mjög dýrt. Ég get ekki treyst
alfarið á stuðning foreldra
minna mikið lengur. Það er
hreinlega of mikið. Ég ræddi
þetta við foreldra mína og
mamma sagði einfaldlega:
Nú er það allt eða ekkert. Við
gerum allt sem þarf. Þú selur
bílinn þinn og allt sem þú átt
og þú ferð út. Ekki það að ég
eigi miklar eigur. Ég hef eytt
öllu mínu fé í sundið. En ég
mun gera allt sem þarf.“
Hlakkar til að flytja
Ragnheiður segist ekki setja
það fyrir sig að sitja fyrir til
þess að afla fjár til þjálfun-
ar. „Sundið er mín ástríða
og mig langar til þess að ná
langt á Ólympíuleikunum.
Úti í heimi er það algengt
fyrirkomulag að íþróttafólk
tryggi sér auglýsingasamn-
inga, bakhjarla og að það sitji
fyrir. Það er ekkert athuga-
vert við það að íþróttamenn
sem hafa ástríðu fyrir íþrótt-
inni leiti sér styrkja með öll-
um ráðum. Ég fæ töluvert af
styrkjum, mest í formi vöru-
úttekta en þá styrki er ég líka
þakklát fyrir. Því þá minnka
fjárútlátin. Ég hlakka til þess
að flytja út og takast á við æf-
ingarnar sem eru framund-
an. Ég er viss um að þetta fer
allt saman mjög vel.“
n Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottning flytur til Suður-Afríku n Fer í hágæða-
þjálfunarbúðir n Flugmiðinn kostaði hálfa milljón n Situr fyrir til að afla fjár
Hefur eytt öllu
sínu fé í sundið
M
y
N
d
S
ig
tR
y
g
g
u
R
A
R
i
Stefnir á góðan árangur á Ólympíuleikunum
Ragnheiður segist gera allt sem þarf til að standa sig vel
á Ólympíuleikunum. Hún safnar nú fé til þess að komast
í þjálfunarbúðir í Suður-Afríku. MyNd guNNAR guNNARSSoN