Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2013, Blaðsíða 6
Þ að voru bara nokkrir dagar í að ég fengi peningana mína,“ segir Snjólfur Gíslason, fyrrverandi tryggingataki hjá Sam- vinnutryggingum og íbúi á Breið- dalsvík á Austurlandi, sem segir að hann hafi fengið bréf þess efn- is árið 2007 að hann ætti 500 þús- und krónur inni hjá fjárfestinga- félaginu Gift vegna áralangra viðskipta við Samvinnutryggingar sálugu. Snjólfur heyrði svo ekkert meira af málinu. „Þetta var bara rétt að koma.“ Hann íhugar að leita réttar síns út af endalokum Gift- ar, líkt og Þórmar Jónsson sem var í viðtali við DV á miðvikudaginn í síðustu viku. Gift var stofnað utan um eignir tryggingataka Samvinnutrygginga árið 2007. Félagið var með 30 millj- arða í eigið fé og stóð til að greiða 20 milljarða af þessum 30 út til um 40 þúsund tryggingataka sem átt höfðu í viðskiptum við Samvinnu- tryggingar á árum áður. Þessir fjár- munir voru hins vegar ekki greidd- ir út til tryggingatakanna heldur voru fjármunir félagsins notaðir til fjárfestinga í hlutabréfum, meðal annars í Kaupþingi. „Ég var búinn að tryggja allt mitt drasl þarna ævi- langt. Mér skildist á bréfinu að, þessir dyggustu þjónar þeirra, ættu þennan aur þarna,“ segir Snjólfur. ,,Þeir hafa bara gleymt þessu“ Snjólfur segir að líklega hafi stjórnendur Samvinnutrygginga bara gleymt að greiða peningana út. „Þeir hafa líklega bara gleymt þessu; kassinn sem þeir hafa geymt peninga í hefur bara verið orðinn lélegur.“ Hann telur að Giftarmálið sé hvergi nærri upplýst: „Þetta er bara púra þjófnaður.“ Hann segist vita um fleira fólk sem fengið hafi slík bréf vegna fjármuna sem það átti inni hjá Samvinnutryggingum. Snjólfur segist vera að íhuga réttarstöðu sína vegna Giftarmáls- ins. „Mér finnst bara allt í lagi að stefna þessum mönnum.“ Nauðasamningar í kyrrþey Gift var í eigu Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga sem stýrt var af fulltrúaráði sem í sátu með- al annars Finnur Ingólfsson, Val- gerður Sverrisdóttir, Helgi S. Guð- mundsson, Ólafur Friðriksson og Ingólfur Ásgrímsson, bróðir Hall- dórs Ásgrímssonar. Stærstu hlut- hafar Samvinnutrygginga á þeim tíma sem Gift varð til voru Sam- vinnusjóðurinn, Samband ís- lenskra samvinnufélaga og KEA. Líkt og DV hefur greint frá fékk Gift nauðasamninga við kröfuhafa sína eftir hrunið 2008. Þegar geng- ið var frá nauðasamningunum árið 2011 lá fyrir að afskrifa þyrfti um 57 milljarða króna af skuldum félags- ins. Félagið á í dag eignir upp á 2,8 milljarða króna en átti, líkt og áður segir, um 30 milljarða króna eignir í lok árs 2007. Eignir félagsins rýrn- uðu því um meira en 25 milljarða króna frá því að Gift var stofnað árið 2007 og þar til gengið var frá uppgjöri á nauðasamningum fé- lagsins. Líkt og DV hefur greint frá var gengið frá nauðasamningum Giftar á sama stað, hjá lögmannin- um Kristni Hallgrímssyni, og félag- ið var stofnað á árið 2007. n 6 Fréttir 11. febrúar 2013 Mánudagur Afvopnaði óðan hnífamann n „Ég bara negldi hann, ég kýldi hann kaldan“ S igurður Auðberg Davíðsson yfirbugaði árásarmann í miðbæ Reykjavíkur á að- faranótt föstudags eftir að maðurinn hafði ógnað fólki með hníf og sært félaga sinn alvarlega. Sigurður vinnur sem barþjónn á skemmtistaðnum Amsterdam við Hafnarstræti en árásin átti sér stað í porti við skemmtistaðinn Dubliner, hinum megin götunnar. „Ég sá að það var eitthvað um að vera þarna fyrir utan og rölti út til að kanna málið og þá var þessi strákur þarna, veifandi hníf og ógnandi fólki. Ég rölti til hans og spurði hvort hann vildi ekki bara láta mig fá hnífinn svo ég þyrfti ekki að hringja í lögregluna en hann brást hinn versti við og vin- ur hans sem stóð við hliðina á hon- um greip í hann. Þá skar maðurinn félaga sinn í höndina og stökk síð- an á mig með hnífinn og reyndi að stinga mig í magann,“ segir Sig- urður sem slapp naumlega með skrekkinn. „Ég rétt náði að víkja mér und- an og hugsaði með mér hvað ég gæti gert til þess að afvopna mann- inn. Og ég bara negldi hann, ég kýldi hann kaldan. Hann fékk bara eitt gott högg og steinlá í jörðinni þannig ég náði af honum hnífn- um. Þetta var enginn vasahníf- ur, þetta var bara svona kjöthníf- ur.“ Þá kom dyravörður af öðrum skemmtistað aðvífandi og aðstoð- aði Sigurð við að halda manninum niðri þangað til lögreglan kom á svæðið, nokkrum mínútum síðar. Þegar tekist hafði að yfirbuga manninn kom í ljós að félagi hans var illa haldinn. „Hann var með svaka- legan skurð á hendinni og hrundi bara niður. En sem betur fer bjarg- aðist þetta, þetta hefði getað farið svo miklu, miklu verr. Eftir á fer mað- ur að hugsa hvað maður var sjálfur heppinn að hann skyldi ekki ná að stinga mann.“ Vinur árásarmanns- ins var fluttur á slysadeild og hafði misst töluvert blóð en árásarmaður- inn nefbrotnaði í áflogunum. olafurk@dv.is „Nokkrir dagar í að ég fengi peningana“ n Annað Giftarlamb íhugar málsókn n Átti 500 þúsund inni hjá Gift„Þetta er bara ,,púra“ þjófn- aður Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Viðskiptin við Finn Finnur Ingólfsson sat í fulltrúaráði Samvinnutrygginga og átti í milljarðaviðskiptum við Gift með bréf í Icelandair síðla árs 2007. Rotaður á Ráðhústorgi Tvær líkamsárásir voru til- kynntar á Akureyri aðfaranótt sunnudags. Í þeirri fyrri var ráðist á mann við Ráðhús- torgið um klukkan þrjú. Þol- andinn var fluttur á slysadeild en árásarmaðurinn hefur ekki fund- ist. Um fjögurleytið var tilkynnt um líkamsárás í heimahúsi. Þol- andi var fluttur á sjúkrahús en árásmaðurinn var handtekinn. Lilja Rafney leiðir VG í Norð- vesturkjördæmi Kjördæmisráðs Vinstri-grænna í Norðvesturkjördæmi samþykkti um helgina framboðslista flokks- ins í kjördæminu. Skipar Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður fyrsta sæti listans. Í öðru sæti er Lárus Ástmar Hannesson, forseti bæjarstjórnar Stykkishólms, og í því þriðja er Þóra Geirlaug Bjart- marsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra vinstri grænna. Í fréttatil- kynningu kjördæmisráðsins er Jóni Bjarnasyni, fráfarandi odd- vita flokksins í Norðvesturkjör- dæmi, þakkað fyrir störf sín og honum óskað alls hins besta. Jafnframt er fullyrt að þörf sé á róttækum vinstriflokki til að vinna áfram að uppbyggingu ís- lensks velferðarsamfélags. Slapp naumlega Sigurður Auðberg Davíðsson slapp naumlega með skrekkinn er hann náði að afvopna ofbeldismann í miðbæ Reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.