Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Page 25
Umræða 25Helgarblað 22.–24. mars 2013
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
S
kúli Helgason, þingmaður
Samfylkingarinnar, skrifaði
mikla grein í DV þann 20.
mars 2013 um að tryggja ætti
þjóðareign í stjórnarskrá.
En hvað er þjóðareign í stjórnarskrá
sem aðeins fáir útvaldir fá að nýta
með gríðarlegum hagnaði „þjóðinni
til heilla“, eða hvað?
Gegn þjóðarvilja
Skúli ber við að ekki sé samstaða í
þinginu um frumvarp stjórnlagaráðs
en að sjálfsögðu er ekki samstaða
um stórt atriði eins og auðlindamál
in, sérstaklega þegar krafa er um
að „fullt gjald“ sé greitt fyrir afnot á
auðlindum eins og kvótanum. Fjór
flokkurinn, ásamt Bjartri framtíð,
hefur ákveðið að fara gegn skýrum
þjóðarvilja sem kom fram í þjóðar
atkvæðagreiðslu um nýja stjórnar
skrá og neita þjóðinni um nýja
stjórnarskrá. Þetta er alvarleg atlaga
við lýðræðið í landinu og sýnir að
sterk hagsmunaöfl ráða för á Al
þingi. Hagsmunasamtök sem hugsa
fyrst og fremst um eigin gróða sinna
félagsmanna og fyrirtækja þeirra,
eins og álver og útgerðarfyrirtæki
innan LÍÚ.
„Fullt gjald“ tekið út
Stór hagsmunasamtök eins og LÍÚ
munu aldrei sætta sig við orðalagið
„fullt gjald“ fyrir að nota kvótann
þegar LÍÚ hefur ávallt fengið að
greiða það gjald sem LÍÚ hefur talið
ásættanlegt fyrir sig. Samfylkingin,
VG, Framsókn, Sjálfstæðisflokkur og
Björt framtíð með Guðmund Stein
grímsson innanborðs vilja að „fullt
gjald“ verði fjarlægt úr drögum að
nýrri stjórnarskrá sem stjórnlagaráð
hafði samþykkt einróma. Breytingar
tillaga Samfylkingarinnar og VG
um að bæta við auðlindaákvæði í
stjórnarskrána á síðustu metrum
núverandi kjörtímabils er forkastan
leg og í beinni andstöðu við drög
stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá
sem kvað á um að „fullt gjald“ yrði
tekið fyrir afnot af náttúruauðlind
um og þar á meðal fiskveiðikvóta
Íslands. Breytingatillaga um „eðli
legt gjald“ frá Samfylkingunni og VG
er í beinu samhengi við frumvarp
til nýrra laga um stjórn fiskveiða
hjá Steingrími J. Sigfússyni. En í því
frumvarpi fær LÍÚ einkarétt á 95% af
fiskveiðikvóta Íslands áfram og það
til 20 ára gegn „eðlilegu gjaldi“.
„Eðlilegt gjald“
Orðalagið „eðlilegt gjald“ býður
hættunni heim á að spilling ráði
áfram för við auðlindanýtingu í
íslensku samfélagi. Samfylkingin
og VG eru að upphefja pilsfalda
kapítalisma og skapa frjóan jarð
veg fyrir pólitíska spillingu eins
og viðgengst á Íslandi í dag við
auðlindanýtingu og sérstaklega í
sjávarútveginum. VG og Samfylk
ingin eru að kalla eftir óbreyttu
kvótakerfi. Nema Samfylkingin og
VG vilja festa það í sessi næstu 20
árin og binda þannig næstu ríkis
stjórnir gegn „eðlilegu gjaldi“ að
mati LÍÚ.
Með sömu stefnu
í auðlindamálum
Samfylkingin og VG hafa tekið upp
stefnu Framsóknar og Sjálfstæðis
flokksins í auðlindamálum frá ár
inu 2000 þegar auðlindanefnd
starfaði. Björt framtíð hefur líka gert
það. Það hlýtur að vera áhyggju
efni fyrir flokksmenn og stuðnings
menn Samfylkingarinnar og VG að
flokkarnir séu komnir með stefnu
Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins í
auðlindamálum. Hafa ber í huga að
Jóhann Ársælsson í Samfylkingunni
og Árni Steinar Jóhannsson í VG
höfnuðu á sínum tíma leið Fram
sóknar og Sjálfstæðisflokksins í auð
lindanefndinni. Hér eru um algjöran
viðsnúning að ræða hjá Samfylk
ingunni og VG í auðlindamálum og
vekur furðu að tekin sé upp stefna
í auðlindamálum sem fellur vel að
gróðamarkmiðum LÍÚ og álfyrir
tækja.
Jafnræðið út og inn með
einokun fárra aðila
Samfylkingin ásamt VG leggur
höfuð áherslu á að ljúka við umrætt
nýtt auðlindaákvæði um nýtingu
gegn „eðlilegu gjaldi“ á þessu þingi.
Hótar að þingi verði ekki slitið fyrr
en þá. Þetta festir í sessi einokun LÍÚ
á kvótanum og jafnræðissjónarmið
um er hent út í hafsauga þegar kem
ur að nýtingu fiskveiðiauðlindarinn
ar sem er sjálfsagt eðlilegt í augum
fjórflokksins og Bjartrar framtíðar.
Lýðræðisvaktin stendur
vaktina
En það er enn von. Lýðræðisvakt
in er komin á kreik og mun bjóða
fram í öllum kjördæmum. Lýð
ræðisvaktin mun gera allt sem í
hennar valdi stendur til þess að
„fullt gjald“ verði tekið fyrir nýt
ingu náttúruauðlinda sem eru í
sameign þjóðarinnar, í samræmi
við ný drög stjórnlagaráðs að nýrri
stjórnarskrá. Við ítrekum að það
er óábyrgt með jafnmiklar skuld
ir hins opinbera og raun ber vitni
ásamt því að heilbrigðis kerfið er
að molna innan frá og vegakerf
ið að molna í sundur að hafna
því að greitt sé „fullt gjald“ þ.e.
markaðsvirði fyrir nýtingu á kvót
anum og festa frekar í sessi að
málamyndagjaldtaka undir yfir
skriftinni „eðlilegt gjald“ verði
áfram stunduð í gjörspilltu og
óréttlátu kvótakerfi.
Finnbogi Vikar er viðskiptalög-
fræðingur og sjómaður
Þórður Már er lögmaður.
Báðir eru í Lýðræðisvaktinni.
Tryggjum að LÍÚ eigi ekki kvótann
„Orðalagið „eðlilegt
gjald“ býður hætt-
unni heim á að spilling
ráði áfram för við auð-
lindanýtingu í íslensku
samfélagi.
Aðsent
Finnbogi
Vikar
Aðsent
Þórður Már
Jónsson
20. mars 2013