Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Blaðsíða 40
40 Lífsstíll 22.–24. mars 2013 Helgarblað
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
É
g var svo stálheppinn að fæð-
ast í borgfirskum dal þar sem
sjá má eina fegurstu fjallasýn
á Íslandi. Í þá daga bjuggu afi
minn og amma á
Búrfelli í Hálsa-
sveit og þar
hófst mitt líf.
Fyrstu fimm
æviárin man
ég ekki til þess
að hafa séð sjó.
Heimur minn af-
markaðist af Búrfelli og næstu
bæjum. Og ef horft var fram eftir
dalnum blöstu við Eiríksjökull og
Strútur í allri sinni fegurð.
Fyrir ungan dreng var þessi
miðja lífs hans í Hálsasveit stór-
kostleg. Lífið var einfalt og gott.
Jörðin Búrfell kúrir undir sam-
nefndu felli. Í þá daga náði jörðin
hans afa upp á Kaldadal. Þegar ég
stækkaði fór ég
stundum upp á
fjallið ofan við
bæinn til að sjá
endimörk þess
heims sem ég
ólst upp við. Af
Búrfellinu mátti sjá
stolt jarðarinnar, sjálft Okið sem
er um 1.000 metra hátt. Barnið
á Búrfelli var með þá hugmynd
framan af að handan við Okið
væri eiginlega ekki neitt. Seinna
með viti og árum uppgötvaði ég
Kaldadal. En þangað var svo mikil
óraleið að mér datt ekki einu sinni
í hug að reyna að komast þangað.
Það var dálítið sport að fara
upp á Búrfell og sjá Okið og
Sléttafell. Mig dreymdi um að
komast þangað en sá ekki hvern-
ig það væri mögulegt. Á sama hátt
lét ég mig dreyma um að komast
einn góðan veðurdag upp á Strút
og Eiríksjökul. Það var enn fjar-
lægara markmið en hið dular-
fulla Ok.
Æskuárin liðu hjá án þess að
ég kæmist lengra en á Búrfell og
Sléttafell. Okið var óklifið. Leiðin
lá vestur á firði og árin geystu-
st hjá og urðu að áratugum. Alltaf
dúkkaði reglulega upp þetta
magnaða fjall sem afi minn og
amma höfðu átt land að. Í mínum
huga var þetta ættarstoltið. Seinna
fór jörðin úr ættinni. En Okið hélt
áfram að hvíla á
mér.
Það var svo
árið 2010 sem
ég lét draum-
inn rætast.
Við fórum
þrír saman á
Kaldadal og hófum
gönguna upp fjall drauma minna.
Það vakti í raun undrun mína
hve létt var að ganga upp á þetta
1.000 metra háa fjall. Að vísu lögð-
um við upp í 700 metra hæð. En
þetta var eins konar pílagrímsför
mín. 58 árum eftir að hafa fæðst á
Búrfelli var loksins komið að því
að láta drauminn rætast. Af Ok-
inu opnaðist dýrðarinnar útsýni.
Þarna var Eiríksjökull og öll helstu
djásn Borgarfjarðar. Upplifunin
var mögnuð. Ég var mættur á
fjallið hans afa.
Ferðaplanið var þannig að við
gengum á Okið og þaðan áfram
áleiðis að Búrfelli. Þetta var 25
kílómetra leið og við vorum með
tjald til að gista í miðja vegu frá
Oki að Búrfelli. Nóttin var köld en
innra var ólýsanleg hlýja sem kom
til vegna þess að ég lét drauminn
rætast. Það var stór stund þegar
við stóðum á Búrfelli og horfðum
yfir fæðingarstað minn. Þar mætti
miðaldra maður barninu í sjálfum
sér. Hringnum var loksins lokað.
Ég hafði sigrað fjallið hans afa
míns.
Fjallið hans
afa míns
H
eilsutímaritið Health hefur
tekið saman lista yfir 16 at-
riði sem gætu bent til HIV-
smits.
HIV-veiran getur valdið
alnæmi eða AIDS. Þegar HIV-
veirunni hefur tekist að brjóta
ónæmiskerfi líkamans niður er það
kallað alnæmi.
Í tímaritinu kemur fram að 40–
90% einstaklinga upplifi eftirfar-
andi einkenni innan tveggja mánaða
eftir að HIV-veiran hefur komist inn
í líkamann. Stundum finna smitað-
ir einstaklingar ekki fyrir neinu fyrr
en tveimur árum og allt upp í áratug
eftir að smit hefur átt sér stað.
„Á fyrstu stigum HIV-smits
eru engin algeng einkenni,“ segir
Michael Horberg hjá HIV/AIDS-
samtökunum í Oakland í Banda-
ríkjunum. Að sögn Horbergs veit
fimmtungur smitaðra einstaklinga
ekki að hann er HIV-jákvæður. Þess
vegna sé svo mikilvægt að mæta í
HIV-próf. Sérstaklega hafir þú stund-
að óvarið kynlíf með fleiri en einum
ból félaga eða sprautað þig með not-
aðri sprautu.
Þótt þessi listi sé góður og gild-
ur er hann einungis til viðmiðunar.
Eina leiðin til að vera viss er að fara
í próf.
Hiti
Eitt fyrsta merkið er hiti, allt að 39
stigum. Þeir sem finna fyrir hita finna
vanalega fyrir öðrum ein-
kennum einnig, líkt og
þreytu, bólgnum kirtl-
um og sárum hálsi.
„Á þessu stigi er vírus-
inn að koma sér fyrir í
blóðinu og farinn að fjölga
sér,“ segir Carlos Malvestutto hjá
smitsjúkdómadeild NYU-háskóla-
sjúkrahússins í New York.
Þreyta
Ónæmiskerfi í mik-
illi vörn getur valdið
bólgum og þrota
sem svo leiðir til
þreytu og sljóleika.
Þreyta getur bæði verið einkenni um
HIV á fyrstu og seinni stigum.
Sárir vöðvar og liðamót og
bólgnir eitlar
Oft er talið að um flensu sé að ræða
þegar raunin er eyðnismit. Mörg ein-
kennin eru þau sömu líkt og sár liða-
mót, vöðvar og bólgnir eitlar.
Hálsbólga og höfuðverkur
Eins og með önnur einkenni er sár
háls og höfuðverkur að-
eins talin geta bent til
HIV-smits í samhengi
við önnur einkenni.
Ef þú finnur fyrir ein-
kennunum eftir að
hafa stundað óvarið kyn-
líf skaltu fara í HIV-próf. Samkvæmt
Horberg er HIV mest smitandi á
fyrstu stigunum.
Útbrot
Útbrot á húð geta
komið fram á öllum
stigum HIV-smits.
Útbrot geta verið
merki um að ekki sé
um venjulega flensu að ræða. „Ef
útbrotin eru óútskýrð eða fara ekki
við meðferð skaltu íhuga eyðnipróf,“
segir Horberg.
Ógleði, uppsölur og niðurgangur
Allt frá 30% til 60% smitaðra einstak-
linga finna fyrir óþægindum á borð
við ógleði, uppsölur og niðurgang á
fyrstu stigum HIV-smits.
Þyngdartap
Þyngdartap getur verið merki um
lasleika. Þú gætir hafa lést mikið eftir
alvarlegan niðurgang. Þetta á við um
sjúklinga sem léttast mikið þrátt fyrir
að borða vel.
Þurr hósti
Oft er slæmur þurr hósti merki um
að eitthvað sé að. Ef hóstinn dregst á
langinn og engin ofnæmislyf virka er
ráð að fara í HIV-próf.
Lungnabólga
Hóstinn og þyngdartapið gæti einnig
verið einkenni slæmrar sýkingar
sem líkami þinn myndi berjast gegn
ef ónæmiskerfið væri að virka. „Það
eru til margar tækifærissinnaðar
sýkingar sem koma fram með ólík-
um hætti,“ segir dr. Malvestutto sem
segir sýkingar á borð við lungna-
bólgu oft verða til þess að sjúklingar
leiti á sjúkrahús þar sem þeir eru svo
greindir HIV-jákvæðir.
Nætursviti
Samkvæmt Malvestutto finnur um
það bil helmingur HIV-já-
kvæðra fyrir nætursvita
á fyrstu stigum sjúk-
dómsins. Svitinn
tengist þá ekki líkams-
rækt eða hitastigi í
svefnherbergi. Líkt og
með hitaköst kvenna á
breytingaskeiði er erfitt að taka ekki
eftir svitanum sem getur orðið svo
mikill að rúmfötin verða rennandi
blaut.
Breytingar á nöglum
Einkenni um langt gengið HIV-smit
eru breytingar á nöglum. Neglurn-
ar breyta um lit og lögun og eiga til
að klofna, oft vegna
sveppasýkingar. Sjúk-
lingar með laskað
ónæmiskerfi eru
minna varðir fyrir
slíkum sýkingum.
Sveppasýkingar
Önnur algeng sveppasýking á seinni
stigum HIV-smits eru sveppasýk-
ingar í munni. Samkvæmt Malve-
stutto er sýkingin afar algeng og sú
sama og margar konur finna fyrir í
kringum kynfæri. „Sýkingin kem-
ur sér fyrir í munni eða vélinda sem
verður til þess að það verður sárt að
kyngja.“
Ruglingur
Vitræn vandamál geta verið merki um
HIV-tengda hrörnun, sem oftast kem-
ur í ljós á seinni stigunum. Ruglingur,
klaufska, einbeitingarleysi, minnis-
leysi og breytt skapgerð geta tengst
smiti.
Frunsur og kynfæraherpes
Hvort tveggja getur verið merki um
HIV-smit. Þeir sem eru með herpes
eru líklegri til að sýkjast af HIV. Herpes
fylgja oft sár sem gera veirunni auð-
veldara að komast inn í líkamann við
kynmök. Þeir sem eru með HIV fá svo
öfgakenndari einkenni herpes þar
sem veiran hefur veikt ónæmiskerfið.
Doði og þróttleysi
Langt komið HIV-smit getur valdið
doða og smá stingjum í höndum og
fótum líkt og langt leiddir sykursjúkir
einstaklingar kannast gjarnan við.
„Þetta gerist þegar taugarnar skemm-
ast,“ segir Malvestutto sem segir auð-
velt að meðhöndla einkennin með
lyfjum.
Óreglulegar blæðingar
HIV-smitaðar konur eru líklegri til að
finna fyrir óreglulegum blæðingum,
fara sjaldnar á blæðingar og þá minni.
Þessar breytingar tengjast hugsanlega
þyngdartapi og lélegri heilsu vegna
veirunnar. HIV-smitaðar konur eru lík-
legri til að fara á breytingaskeið fyrr en
aðrar. n indiana@dv.is
16 einkenni
HIV-smits
n Öruggasta leiðin til að vera viss er að fara í eyðnipróf