Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2013, Side 44
44 Sport 22.–24. mars 2013 Helgarblað
Þ
að er létt yfir hópnum og all-
ir ferskir,“ segir Heimir Hall-
grímsson, aðstoðarþjálfari
íslenska landsliðsins í
knattspyrnu, í samtali við
DV. Íslenska karlalandsliðið mætir
því slóvenska í mikilvægum leik ytra
í dag, föstudag.
Íslenska liðið er sem stendur í
fjórða sæti síns undanriðils fyrir HM
í Brasilíu á næsta ári. Liðið vann
Noreg, sælla minninga, á Laugar-
dalsvelli í september, 2–1, en tapaði
svo fyrir Kýpur á útivelli fjórum dög-
um síðar, 1–0. Í október var liðið svo
stálheppið að leggja Albaníu af velli,
1–2, þar sem Gylfi Þór Sigurðsson
skoraði sigurmarkið seint í leiknum.
Tveir leikir gegn Slóveníu
Framundan eru tveir afar mikil-
vægir leikir gegn Slóveníu. Fyrst í
kvöld, föstudag, þegar liðin eigast við
í Slóveníu en í sumar mætast liðin aft-
ur, þá á Laugardalsvelli. Óhætt er að
fullyrða að þessir tveir leikir geti skor-
ið úr um hvort Ísland muni berjast
um efstu sætin í riðlinum eða ekki. Öll
liðin hafa leikið fjóra leiki. Sviss hefur
unnið þrjá þeirra og virðist vera með
sterkasta liðið í riðlinum. Baráttan
gæti orðið hörð um annað sætið. Nor-
egur er þar núna, með sjö stig, en Ís-
land og Albanía með sex. Slóvenía og
Kýpur hafa þrjú stig hvort en hagstæð
úrslit í næstu leikjum gegn Slóveníu
myndu skilja Slóvena eftir í barátt-
unni um umspilssætið. Ef Íslandi
tekst ekki að sigra, að minnsta kosti
annan leikinn, verður framhaldið að
líkindum erfitt.
Vonbrigði heimamanna
Heimir segir í samtali við DV að liðið
telji sig geta unnið leikinn. Eftir því
sé spilað. „Við erum ekki með neina
minnimáttarkennd og vitum að þetta
er „make or brake“ fyrir Slóvena. Þeir
eru nánast úr myndinni ef þeir tapa,“
bendir hann á. Hann segir að það
gæti verið góð staða fyrir Ísland fyr-
ir seinni leikinn gegn þeim, sem leik-
inn verður á Laugardalsvelli í júní.
„Eitt stig í þessum leik myndi þýða
að við yrðum áfram í myndinni hvað
annað sætið varðar.“
Slóvenar hafa, eins og orð Heimis
gefa til kynna, ekki staðið undir
væntingum þjóðar sinnar í fyrstu
leikjum riðilsins. Liðið tapaði fyrsta
leik sínum í undankeppninni, gegn
Sviss á heimavelli, 0–2. Þá fór liðið til
Noregs og tapaði naumlega 2–1. Sig-
ur gegn Kýpur vannst á heimavelli,
2–1, en liðið tapaði svo fyrir Albaníu
0–1 á heimavelli. Liðið hefur síð-
an leikið tvo æfingaleiki. Einn gegn
Makedóníu, sem tapaðist 2–3, þar
sem Nejc Pecnik, leikmaður Shef field
Wednesday, skoraði bæði mörkin.
Slóvenar ráku þá þjálfarann sinn og
réðu nýjan, Srecko Katanec. Í fyrsta og
eina leik hans með liðið hingað til tap-
aði það fyrir Bosníu og Hersegóvínu
0–3. Slakt gengi liðsins er orsök þess
að ekki er búist við nema sex eða sjö
þúsund manns á völlinn í kvöld.
Heimir segir að nýr þjálfari hafi
gert miklar breytingar á liðinu og
þess vegna sé svolítið erfitt að lesa í
það hvaða leikskipulagi þeir muni
beita. Katanec hafi til að mynda
leikið með þrjá miðverði í fyrsta
leik sínum með liðið og gert miklar
mannabreytingar. „Það er erfitt að
leikgreina þá núna.“ Hann segir að
undirbúningurinn miðist við að geta
brugðist við óvæntu útspili í þeirra
röðum. „Þetta er vel spilandi lið, eins
og önnur frá þessum hluta Evrópu.
Þetta eru miklir skotmenn og þeir
vilja spila fótbolta,“ segir Heimir.
Markvörður Inter Milan
Markvörðurinn þrítugi Samir Handa-
novic er vafalítið þekktasti leikmaður
Slóvena. Hann er byrjunarliðsmaður
hjá stórliði Inter Milan á Ítalíu og hef-
ur leikið meira en 200 leiki í Serie A,
efstu deild þar í landi. Hann hefur
60 sinnum verið valinn í landsliðið
og á auk þess að baki 32 Evrópuleiki.
Ljóst að þar fer reyndur markvörður
en tekið skal fram að hann hefur að-
eins leikið einn af leikjunum fjórum í
riðlakeppninni hingað til.
Aðrir leikmenn liðsins eru minna
þekktir. Stór hluti leikmanna liðsins
leikur þó á Ítalíu, en enginn í stórliði
nema Handanovic. Tim Matavz er þó
skeinuhættur framherji PSV í Hollandi
og hefur skorað bæði mörk Slóvena í
keppninni. Aðrir leikmenn eru Bojan
Jokic, Marko Suler og Miso Brecko, en
þessir leikmenn hafa leikið allar mín-
útur allra leikja liðsins í riðlinum.
Heimir nefnir þessa tvo, Mata-
vz og Handanovic, sem öfluga leik-
menn, en segist sjálfur hrifinn af bak-
verðinum Mišo Brecko. Hann spilar
með Köln í Þýskalandi. „Hann hefur
verið gríðarlega áberandi í þeirra leik
og við þurfum að hafa gætur á hon-
um.“ Heimir segir að almennt séð
séu leikmenn liðsins ekki í áberandi
hlutverkum í sínum félagsliðum en
segir þó að þetta séu allt góðir leik-
menn.
Miðvarðastöðurnar vandamál
Þrír leikmenn verða í banni í leikn-
um í kvöld: Grétar Rafn Steins-
son, Kári Árnason og Rúrik Gísla-
son. Heimir segir sárt að hafa þessa
leikmenn í banni. „Lars hefur ver-
ið svekktur yfir fjölda gulra spjalda
sem við höfum fengið. Það þarf bara
tvö gul til að fara í leikbann í þessari
keppni. Við verðum að passa okk-
ur eins og við getum.“ Heimir viður-
kennir að í ljósi þess að Grétar Rafn
og Kári verði hvorugir til taks í vörn-
inni verði vandasamt að fylla þeirra
skörð. „Miðverðirnir eru áhyggjuefni
núna og það verður erfitt að velja í
þessar stöður.“ n
„Ekki með neina
minnimáttarkennd“
n Ísland þarf að ná góðum úrslitum gegn Slóveníu n Mætast aftur í júní
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Öflugur markvörður Þekktasti leikmað
ur Slóvena er markvörður Inter Milan, Samir
Handanovic.
Í baráttu gegn
Albaníu Birkir Bjarnason
verður vafalítið í byrjunar
liðinu gegn Slóvenum.
*SæTI Í MArS
Sæti landanna á heimslista
0
20
40
60
80
100
120
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013*
n Slóvenía
n Ísland
93
77
92
56
*SæTI Í MArS
Staðan
Lið L U J T Skor Stig
Sviss 4 3 1 0 +6 10
Noregur 4 2 1 1 +1 7
Albanía 4 2 0 2 0 6
Ísland 4 2 0 2 0 6
Slóvenía 4 1 0 3 3 3
Kýpur 4 1 0 3 4 3