Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 25. mars 2013 Mánudagur
Hestafréttir Fjölnis í þrot
n Einn vinsælasti hestavefur Íslands um árabil í bobba
E
kkert fékkst upp í tæplega
þriggja milljóna króna kröfur
í þrotabú Hestafrétta ehf. sem
var í eigu athafnamannsins
og hestaunnandans Fjölnis Þor
geirssonar. Engar eignir fundust
í þrotabúi félagsins sem hafði þá
aðalstarfsemi að halda utan um
vinsælan vef með sama nafni.
Vefurinn hestafréttir.is var
stofnaður árið 2005 og hefur ver
ið vinsælasti hestavefur landsins
allar götur síðan.
Þrátt fyrir að félagið Hestafréttir
ehf. hafi verið úrskurðað gjald
þrota þann 29. ágúst 2012 þá
virðist gjaldþrotið ekki hafa haft
nein áhrif á vefsíðuna þar sem
Fjölnir hefur haldið ótrauður
áfram að dæla inn fréttum, fróð
leik og skemmtiefni tengdu hesta
mennsku.
Tilkynnt var um skiptalok fé
lagsins í Lögbirtingablaðinu í lok
síðustu viku.
Fjölnir hefur áður komist í frétt
irnar vegna gjaldþrots félaga í
hans eigu, eða tengdum honum.
Pressan.is greindi frá því 24. jan
úar í fyrra að skiptastjóri félagsins
SPOT ehf. hefði kallað Fjölni fyrir
dóm til að svara fyrir gjaldþrot
þess félags þar sem ekki tókst með
nokkru móti að hafa upp á mann
inum sem félagið var fært yfir á
áður en það fór í þrot í desember
2011. Sá heitir Guttormur Sigurðs
son og gerði Pressan því skóna að
sá náungi, sem samkvæmt þjóð
skrá var skráður til heimilis í „út
löndum“ væri svokallaður útfarar
stjóri. Það er aðili sem tekur við
gjaldþrota félögum í dauðaslitrun
um, oft gegn þóknun, og fer niður
með þeim. n
Hestafréttir gjaldþrota Fjölnir
Þorgeirsson átti vefsíðuna Hestafréttir ehf.,
sem úrskurðuð var gjaldþrota í ágúst í fyrra.
E
ftir því sem þú vilt kaupa
meira/ganga lengra leyfi ég
meiri snertingu við mig sjálfa.
Ef þú vilt bara nudd vil ég ekki
að þú snertir mig en ég er nak
in,“ segir íslensk kona sem heldur
úti vefsíðu undir því yfirskini að hún
bjóði upp á erótískt nudd. Sé eitthvað
að marka það sem er sagt á síðunni
þá kemur fljótlega í ljós að líklega
er meira en erótískt nudd innifalið í
þjónustunni.
Kynlífsþjónusta af ýmsum toga
DV fjallaði á miðvikudaginn í síð
ustu viku um heimasíðu þar sem
var boðið upp á kynlífsþjónustu ís
lenskra kvenna undir því yfirskini að
um fylgdarþjónustu væri að ræða.
Ljóst var þó þegar maður skoðaði
síðuna nánar að þar var boðið upp á
kynlífsþjónustu af ýmsum toga. Síð
unni var lokað í kjölfar umfjöllunar
innar. Eftir umfjöllun um síðuna hafa
DV borist fjölmargar ábendingar um
sam bærilegar síður þar sem boð
ið er upp á kynlífsþjónustu og yfir
leitt undir því yfirskini að um erótískt
nudd eða fylgdarþjónustu sé að ræða.
Síðurnar virðast flestar miða að því að
selja ferðamönnum kynlífsþjónustu
en sumar eru þó ætlaðar Íslending
um. Ekki er vitað hver stendur að baki
síðunum eða hvort í öllum tilfellum
séu um raunverulegar síður að ræða.
Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir
lögregluþjónn segir lögreglu berast
ábendingar um slíkar síður og þetta
sé meðal leiða sem fólk noti til þess að
selja vændi. „Þetta er ein leiðin alla
vega. Svona síður hafa verið í gangi.
Það eru allavega einhver dæmi um
það og þetta er allavega ein birtingar
myndin af þessari milligöngu.“
Birtir myndir af sér
Á síðunni sem nefnd var hér að fram
an er þjónustunni lýst á eftirfarandi
hátt. „Nuddþjónusta sem snýst um
þig og þína drauma, þínar þarfir og
væntingar. Ég legg mikla áheyrslu á
að þér líði vel hjá mér. Aðstöðu hef
ég og er hún mjög heimilisleg, hrein
og fín. Þú þarft ekkert að koma með,
bara mæta til mín og það verður gam
an.“ Konan birtir einnig myndir af sér
á síðunni á nærfötum einum fata og
þar hefur andlit hennar verið hulið.
Því ekki að prófa að gera það sem
fæstir vilja?
Hún biður verðandi viðskiptavini
að senda sér póst eða hringja í sig í
ákveðið númer vilji þeir vita meira og
fá senda verðskrá. DV reyndi að hafa
samband við símanúmer sem var gef
ið upp á síðunni en það var ekki virkt
lengur og ekki fékkst svar við tölvu
pósti sem var sendur á íslenskt net
fang sem var gefið upp.
Á síðunni er að finna reglur um
þjónustuna og spurningadálk þar
sem svarað er spurningum sem virð
ast vera algengar frá viðskiptavinum.
Ein spurningin hljómar svona: „Má
ég fá það oftar en einu sinni á þeim
tíma sem ég er hjá þér?“ og það
stendur ekki á svari: „Já, tíminn er
þinn og ef þú vilt fá fullnægingu aft
ur þá er þér það fullkomlega frjálst.“
Spurningin og svarið gefa í skyn að
um annars konar þjónustu en eró
tískt nudd sé að ræða. Það fæst svo
staðfest í annarri spurningu: „Nú
ert þú í frekar mikilli áhættu, ferðu
reglulega í skoðun?“ Svarið er: „Já,
að sjálfsögðu. Slíkt geri ég þó svo ég
notist við tvöfalda getnaðarvörn.“
Meðal annars talar hún um að ef
nægur tími sé eftir hjá viðskiptavin
inum þá geti hún hugsanlega far
ið með honum í sturtu. Þegar hún
er spurð af hverju hún bjóði upp á
þessa þjónustu þá er svarið skýrt:
„Ég hef gaman að leika mér í kynlíf
inu, nýt þess alltaf ef vel gengur og
því ekki að prófa að gera það sem
fæstir vilja?“
Ekki ólöglegt að stunda vændi
Samkvæmt 206. grein hegningarlaga
er ekki ólöglegt fyrir einstakling að
stunda vændi. Það er hins vegar
ólöglegt að kaupa vændi og hafa
milligöngu um vændi; hver sem
greiði eða heiti „greiðslu eða annars
konar endurgjaldi fyrir vændi“ skuli
sæta sektum eða fangelsi allt að einu
ári auk þess sem það er ólöglegt að
hagnast á vændi annarra. Að sögn
Karls Steinars er einnig ólöglegt að
auglýsa vændi á þennan hátt. „Það
er ólöglegt að auglýsa vændi og hafa
milligöngu um vændi. Það er ekki
ólöglegt fyrir einstakling að stunda
vændi.“
Karl Steinar segir lögreglu
reglulega fá vændismál inn á borð
til sín en hann segist ekki geta full
yrt um það hvort að vændi sé al
gengt á Íslandi. Hans deild tók ný
verið yfir umsjón slíkra mála og
hann treystir sér ekki til þess að
segja nákvæmlega hversu algengt
það sé. „Ég treysti mér ekki til þess
að svara því. Það koma alltaf af
og til ábendingar og við skoðum
málin og athugum hvers eðlis þau
eru.“ n
Vændi auglýst undir
formerkjum nudds
n Algengt að vændi sé auglýst undir formerkjum fylgdarþjónustu eða erótísks nudds
„Nuddþjónusta sem snýst
um þig og þína drauma,
þínar þarfir og væntingar.
20. mars 2013
Erótískt nudd? Á síðunni er auglýst
kynlífsþjónusta undir því yfirskini að um
erótískt nudd sé að ræða. Þegar nánar er að
gáð virðist vera boðið upp á fleira en nudd í
þjónustunni. Mynd sKjásKot
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is