Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2013, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2013, Page 20
20 Sport 25. mars 2013 Mánudagur Mike Pyle fer mikinn í viðtölum n Næsti andstæðingur Gunnars Nelson borubrattur M ike Pyle ætlar að komast í sögubækurnar og verða fyrsti maðurinn til að leggja Gunnar okkar Nelson að velli í bardaga. Þetta kom fram í máli kappans um helgina þar sem hann tjáði sig í fyrsta skipti um Gunnar og bardaga þeirra sem fram fer í Las Vegas í Bandaríkjunum í maí. Eins og fram hefur komið þykir Gunnar of flottur og góður til að sitja á bekknum of lengi og vildu forráða- menn UFC-bardagakeppninnar fá Íslendinginn fljótt til leiks á ný eftir sigur hans á DeMarques Johnson og Jorge Santigo í London. Gunnar tók þeirri áskorun þrátt fyrir að venjan sé að hvíla lengur milli bardaga en nú verður raunin. Það er gorgeir í Pyle í viðtalinu þar sem hann segist ekki hafa of miklar áhyggjur af bardaga sínum við Gunnar þó hann fallist á að Gunnar sé verðugur andstæðingur. Hann hafi þó áður tekist á við bar- dagakappa með svipaðan stíl og Ís- lendingurinn og þá alla hafi hann af- greitt hingað til. „Gunnar hefur marga veikleika og þótt hann sé sterkur í gólfinu er ég öflugri þess utan og tel mig geta ráð- ið við hann í kýlingum og spörkum. Gunnar er ekki fyrsti maðurinn með fjölda sigra á bakinu sem ég mæti í hringum og ég hef hingað til sett stopp á það.“ Stelpurnar okkar standa í stað n Kvennalandsliðið áfram í fimmtánda sæti styrkleikalistans Þ rátt fyrir miður góð úrslit kvennalandsliðsins okkar á Al- garve-mótinu í byrjun mánað- arins þar sem liðið tapaði þrem- ur af fjórum leikjum sínum stendur liðið í stað á nýbirtum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins. Þar er liðið það fimmtánda besta í heiminum samkvæmt útreikningum FIFA-manna en staða 20 efstu liða breytist lítið frá fyrri lista. Banda- ríska landsliðið er enn það besta en þær íslensku töpuðu 3–0 fyrir þeim á bandarísku á Algarve-mótinu. Þá lutu stelpurnar feitt í gras gegn Svíum 6–1 en þær sænsku teljast vera sjötta besta landsliðs heims. Verst var 1–0 tap fyrir Kína sem er neðar en Íslands á lista FIFA eða í því sautjánda. Eina þjóðin sem við höfðum betur gegn í Algarve, Ungverjaland, situr í 37. sætinu. Stelpurnar spila þrjá æfingaleiki til viðbótar áður en boltanum er spark- að í Evrópukeppninni í sumar og vart vanþörf á miðað við orð þjálfarans Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar sem kvartaði undan almennt lélegu formi í Portúgal. Það eru leikir gegn Svíþjóð, Skotlandi og Danmörku. Keppnin í Svíþjóð hefst 21. júlí og mun íslenska liðið leika sína leiki í B-riðli í bæjunum Växjö og Kalmar. Andstæðingar Íslands í riðlinum eru heimsmeistarar Þjóðverja, Norðmenn og Hollendingar. Allar þjóðirnar eru fyrir ofan Ísland á nýjasta heimslistan- um. Þýskaland í öðru sæti, Noregur í ellefta sæti og Holland í því fjórtánda. Miðar á viðburðinn fóru í sölu í síð- asta mánuði og er bæði hægt að verða sér úti um staka miða og eins miða á alla leiki sama landsliðs. Sjaldan hefur verið jafn auðvelt að gera sér ferð til að styðja stelpurnar og nú og um að gera að kýla á flugmiða og verða sér úti um miða á leiki liðsins. Ódýrasti miðinn á alla leiki Íslands í riðlinum fæst á að- eins níu þúsund krónur eða svo. n 69 fyrir Massa Þetta er vart góður tími fyrir brasil- íska ökuþórinn Felipe Massa í Formúlu 1. Honum hlotnaðist sá lítt eftirsóknarverði heiður í fyrstu keppni ársins í Ástralíu að bæta met yfir þá ökumenn sem keppt hafa lengst án þess að komast á verðlaunapall. Þrátt fyrir góða til- burði um helgina er fjöldi keppna hans án þess að gera neitt af viti nú kominn í 69 alls og fimm ár síðan hann sást síðast fíflast með kampa- vín og bikar að lokinni keppni. Gea hundsar Barcelona Það þarf eitthvað sérstakt til að hundsa áhuga frá stórliðinu Barcelona. Það gerir samt mark- vörðurinn David de Gea hjá Manchester United sem fullyrt er að hafi engan áhuga á að spila fyrir Katalónana. Forráðamenn Börs unga sjá hann sem fínan kost til að leysa af Victor Valdez sem ætlar ekki að endurnýja samning við liðið og fer líklega strax að lok- inni leiktíðinni. Samt er fullyrt í enskum miðlum að Alex Ferguson sé á höttunum eftir öðrum og betri markverði en Gea. Spurning um að halda dyrunum opnum kannski. Adu endar í Brasilíu Það er ekkert til að skammast sín fyrir að spila með liði Bahía í efstu deild í Brasilíu en einhvern veginn er það samt dapurt fyrir leikmann sem lengi vel var talinn efnilegasti knattspyrnumaður sem fram hafði komið um áratugaskeið. Þannig var Bandaríkjamanninum Freddy Adu lýst á sínum tíma en sá var kominn á atvinnumannasamning aðeins fjórtán ára að aldri og var yngsti leikmaðurinn til að sprikla í MLS- deildinni bandarísku. Síðan hefur leiðin legið niður á við og hvorki Benfica í Portúgal né Mónakó í Frakklandi gátu notað stráksa Á heimleið Meðal aðdáenda Atlético Madrid er Fernando Torres þjóðhetja hvað sem tautar og raular og ítrek- að hafa aðdáendur liðsins kallað kappann til baka frá Englandi. Þau köll hafa aukist til muna nú þegar gengi Torres fellur og fellur en flestir eru sammála um að hann finni sig lengur hjá Chelsea enda aðeins skorað fjórtán sinnum í 74 leikjum með liðinu. Nú loks hefur þjálfari Atlético opnað opinber- lega á að hann snúi aftur til Spán- ar og vill kanna möguleikann á að fá kappann aftur heim í sumar. Gunnar Nelson Næsti and- stæðingur hans segist nógu öflugur til að stöðva sigurgöngu Íslendings- ins í bardagahringnum. Þ að gerist ekki oft að persónu- legar skoðanir fréttamanna læðist inn í fregnir ríkis- fréttastofunnar BBC en það gerðist svo sannarlega um helgina eftir að enska landsliðið pakkaði landsliði San Marínó saman 0–8 á útivelli í H-riðli undankeppni Heimsmeistarakeppninnar í knatt- spyrnu. Stærsti sigur enska lands- liðsins á andstæðingi í tæp 30 ár. Leikurinn var svo ójafn að meira að segja dómari leiksins flautaði leikinn af áður en tíminn var í raun úti til að bjarga San Marínó frá frekari niður- lægingu. Leiðinlegt, leiðinlegt og leiðinlegt Vel getur verið að gallharðir að- dáendur enska landsliðsins hafi skálað sig fulla og blásið blöðrur eft- ir stórsigurinn og farið mikinn en lík- lega eru þeir fleiri sem ypptu bara öxlum. Þrjú stig telja vissulega og átta mörk í plús er fínasta veganesti en spurningin er hver vilji í raun og veru sjá slíkan leik í undankeppni stærstu keppni fótboltans? Með öðrum orðum; leikurinn var þrautleiðinlegur eins og glögg- lega má sjá á tísti aðdáenda enska liðsins í kjölfar leiksins. Þeim fannst ekki mikið til koma þrátt fyrir met- sigur og margir tóku undir með ein- um sem sagði leikinn bara brandara. Hvaða aðdáandi knattspyrnu getur skemmt sér yfir leik stórliðs gegn liði sem hefur tapað 58 landsleikjum í röð og ekki skorað eitt einasta lands- liðsmark í tæp fimm ár? Hvaða að- dáandi getur notið leiks þar sem leik- menn Englands eru meira og minna að dúlla sér í 90 mínútur og voru samt með boltann 80 prósent leiks- ins á stórum kafla? Ákall um breytingar Fyrirliði austurríska landsliðsins vakti athygli fyrir skemmstu fyr- ir að gera lítið úr landsliði Færeyja sem er í sama riðli. Hann sagði ber- um orðum að endurskoða þyrfti reglur um smærri lið sökum þess að margir þeir leikir væru vart boð- legir í undankeppni HM. Undir þetta tóku þarlendir miðlar og um helgina steinlágu Færeyingar 6–0 í Vín. Vinir okkar Færeyingar hafa núll stig eftir fjóra leiki í riðlinum, hafa skorað tvívegis og fengið á sig fimmtán mörk. Austurríkismenn eru fjarri því fyrstir til að setja spurningarmerki við slíka leiki. Leikmenn Ítala voru ófeimnir að gagnrýna leiki við Fær- eyinga og leikmenn Spánar eru sekir um það sama á árum áður. Ekki þar fyrir að smærri landslið, eins og Færeyingar, geti ekki á stund- um komið á óvart en hitt er öllu al- gengara. Hvað finnst þér? Á vef DV.is er að finna skoðana- könnun um málið þar sem spurt er hvort breyta þurfi fyrirkomulaginu á einhvern hátt. Eru of margir leikir í undankeppninni bara formsatriði sem setja blett á spennandi keppni eða eiga öll landslið allra landa alltaf að keppa á jafnréttisgrundvelli? Taktu þátt. n Leikur San Marínó og Englands brandari n Kröfur um sérstaka undankeppni slakari liða fyrir HM Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is Enskir fagna Átta marka útisigur Englands á San Marínó vekur upp spurningar um erindi slíkra smá- þjóða í undankeppni HM. Enn meðal þeirra bestu Sigurður Ragnar Eyjólfsson, lands- liðsþjálfari Íslands, má vel við una.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.