Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2013, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2013, Síða 21
S é eitthvert eitt merki til um sannar íþróttahetjur hlýtur það að gilda um þá íþrótta- kappa sem ná á toppinn, falla þaðan fyrr en seinna en hafa nægan styrk, áræðni og stuðning til að komast bara aftur á toppinn, þvert á spár. Dæmin eru kannski ekki mörg og kannski ekki góð heldur en upp í hugann koma íþróttamenn á borð við Lance Armstrong sem þrátt fyrir svindl kom sterkur til baka eftir krabbameinsmeðferð. Michael Jordan átti misheppnaða tilraun í hafnabolta um skeið en lét háðs- glósur ekki á sig fá og snéri frábær til baka. Fleiri dæmi má nefna en mest áberandi í dag og ískalt vatn á nánast hvern einasta golfsérfræðing heims er Tiger nokkur Woods á leið á toppinn í sinni íþrótt eftir að hafa lent á botnin- um með skelli. Þegar þetta er skrifað er lokadegin- um á Bay Hill-mótinu á PGA-mótinu í golfi ólokið en Woods var orðinn efstur eftir þrjá hringi og geislaði af slíku öryggi að fátt benti til annars en hann kláraði mótið með stæl. Þegar haft er í huga að Woods var með eina allra verstu tölfræði leik- manna sem komust gegnum niður- skurðinn á laugardaginn var er hreint makalaust að hann hafi komist svo langt. Af 75 leikmönnum alls sem leik hófu á þriðja hring var hann með 76 verstu upphafshöggin og í 74. sæti að komast á grín í tilskildum högga- fjölda. En hann kann að pútta á ögur- stundu og það sem meira er; hann er kominn í samband við stúlku og það vilja margir meina að sé heila málið. Hann og skíðastjarnan Lindsay Vonn opinberuðu loks samband sitt í síðustu viku en það var eitt verst geymda leyndarmál í golfinu. Merki- legt nokk bárust fyrst fregnir af sam- drætti þeirra tveggja um svipað leyti og Woods hóf að leika á ný eins og hann gerði þegar hann var upp á sitt besta. Enga fræðinga þarf til að vita að þegar ástin er annars vegar verður líf- ið allt auðveldara og skemmtilegra og það virðist sannast í Woods á golfvell- inum. Munurinn á honum nú og allt þetta ár miðað við ruglið sem hann var í eftir að hann hóf að spila á ný eftir grimman skilnað við fyrrverandi eiginkonu sína er eins og á svörtu og hvítu. Finnist einhverjum þetta frá- leitt gæti sá hinn sami einnig kíkt á árangur Woods þegar hann var að hefja tilhugalífið með fyrrverandi eiginkonu sinni, Elin Nordegren. Þá var hann algjörlega óstöðvandi og á hátindi ferilsins. Þann tind gæti hann svo gott sem klifið á ný fljót- lega enda tryggir sigur á Bay Hill- mótinu að hann hendi Rory McIlroy af stalli sem besta kylfingnum nú um stundir. n Ástin gerir kraftaverk og það Á golfvellinum Sport 21 Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is Mánudagur 25. mars 2013 n Flestir voru búnir að afskrifa Tiger Woods sem toppmann í golfi n Svo varð hann ástfanginn Velkomin heim Tiger Woods er svo um munar að finna sig á nýjan leik og leikgleðin skín af kappanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.