Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Blaðsíða 26
26 24.–26. maí 2013 Helgarblað myrti Jodi Arias eiginmann sinn. Hún fór fram á það í vikunni að dauðadómi yfir henni yrði aflétt og hún fengi þess í stað sitja fyrir lífstíð í fangelsi. Hún hafði áður sagt opinberlega að hún vildi frekar deyja en að sitja í fangelsi til æviloka en breytti um skoðun fjölskyldu sinnar vegna.2008 BlóðBræðurnir n Annar valdi fórnarlömbin n Í sameiningu sendu bræðurnir þau yfir móðuna miklu„Á sama tíma og Robert og Deni hímdu eymdarlegir og úthrópaðir í grjótinu var verið að myrða fólk í Mið- Ohio. Þ eir voru ekki merkilegur pappír eða félegir karakterar bræðurnir Thaddeus og Gary Lewingdon. Þeir lögðu fyrir sig raðmorð og fengu fyrir vikið nafngiftina 22 kalíbera­ morðingjarnir í bandarískum fjöl­ miðlum. Þeir voru einnig kallaðir Blóðbræðurnir og voru nokkuð af­ kastamiklir 1977 og 1978 í Ohio­fylki þar sem veiðilendur þeirra voru og þeir völdu fórnarlömb sín af handa­ hófi. Fórnarlömb bræðranna eru talin vera tíu og notuðu þeir hinum ýmsu skotvopnum við iðju sína, skotvopn­ um sem þó áttu 22 kalíbera hlaup­ vídd sameiginlega. Skeytingarleysi og hrottaskapur einkenndi ódæði bræðranna. Löng sakaskrá Lítið er vitað um yngri ár Thaddeusar og Gary. Thaddesus fæddist 1936 og Gary árið 1940. Gary var sinnti her­ skyldu skamma hríð í Víetnam en var leystur undan herþjónustu 1962. Í gegnum árin var hann handtekinn fyrir hina ýmsu glæpi – flesta minni­ háttar eins og þjófnaði, vörslu tækja og tóla sem gögnuðust vel til glæpa og að hafa falið vopn í fórum sínum. Hann flutti inn til móður sinn­ ar í viðleitni til að halda sig á beinu brautinni, en árið 1977 kvæntist hann þjónustustúlku og fluttu þau inn í íbúð í Kirkersville í Ohio. Þar fékk Gary vinnu. Reyndar bjó Thaddeus ekki langt frá bróður sínum – í Glenford. Hann hafði útskrifast í rafmagnsfræðum, var fráskilinn þriggja barna faðir, þegar hér er komið sögu, og hafði eins og Gary fjölda afbrota á bakinu. Hafist handa Bræðurnir hófust handa aðfaranótt 10. desember, 1977, með því að myrða tvær konur á Forker‘s­kaffi­ húsinu í Newark í Ohio. Þar var um að ræða Joyce Vermilion, 37 ára, og Karen Dodrill, 33 ára, og voru þær báðar skotnar mörgum skotum. Í kjölfarið lágu notuð 22 kalíbera skot­ hylki eins og hráviði um gólf kaffi­ hússins. Tveimur mánuðum síðar, þann 12. febrúar, 1978, nánar til tekið, létu Blóðbræðurnir til skarar skríða á ný. Þeir voru þá staddir rétt utan við Col­ umbus­borg í Franklin­sýslu í Ohio. Fyrir valinu urðu næturklúbbs­ eigandi, Robert „Mickey“ McCann að nafni, móðir hans háöldruð, Dorothy Marie McCann, og 26 ára dansari á klúbbi Roberts, Christine Herdman. Þau fundust öll látin á heimili Roberts og ljóst að skotfærin höfðu ekki verið spöruð við morðin á þeim – og um að ræða 22 kalíber. Málið upplýst – eða hvað? Lögregla taldi sig himin höndum hafa tekið þegar gógódansarinn og þjónustustúlkan Claudia Yasko tjáði þeim að hún hefði verið í félagi með tveimur mönnum þegar þeir frömdu morðin. Í kjölfarið var Claudia handtekin og að auki tveir karlmenn; kærasti hennar Robert „Ray“ Novatney og vinur hans Deni Politis – ójá, Politis. Saksóknari Franklin­sýslu beið ekki boðanna og gaf fyrirmæli um að allt kapp yrði lagt á að afla sönnunar­ gagn og að kærur yrðu lagðar fram á hendur þremenningunum. Var það mat manna á þeim bæ að morðin væru upplýst og ódæðismennirnir komnir á bak við lás og slá þar sem þeir áttu heima. En það var einn galli á gjöf Njarð­ ar – á sama tíma og Robert og Deni hímdu eymdarlegir og úthrópaðir í grjótinu var verið að myrða fólk í Mið­Ohio. Eitthvað var ekki sem skyldi. Fórnarlömb átta og níu Hinn 8. apríl, 1978, fannst lík 77 ára manns, Jenkin T. Jones. Hann hafði verið myrtur á heimili sínu í Gran­ ville í Licking­sýslu. Morðið bar öll einkenni hinna morðanna – Jenkin hafði verið skotinn mörgum sinnum af dauðafæri og 22 kalíbera skothylki lágu á víð og dreif á vettvangi. Tæpum þremur vikum síðar fannst séra Gerald Fields og ljóst að hann myndi ekki predika framar, enda sundurskotinn og ljóst að morðvopnið var 22 kalíbera byssa af einhverju tagi. Þann 21. maí fundust lík hjón­ anna Jerry L. og Mörthu Martin. Þau höfðu verið skotin ótal sinnum í höf­ uðið og safnaði lögreglan, sem fyrr, tómum 22 kalíbera skothylkjum upp af gólfinu. Þegar hér var komið sögu fór lög­ regluembættum um gervallt Ohio­ fylki að gruna að um væri að ræða raðmorðingja og tóku höndum saman. Það er alveg með ólíkindum hvað samvinna getur haft í för með sér því innan tíðar var ljóst að öll 22 kalíbera skothylkin sem höfðu fund­ ist á vettvangi allra morðanna komu úr sömu byssunni. Hlé á morðum Í júní voru felldar niður allar ákærur á hendur Claudiu, og síðar fóru ákærur á hendur Robert og Deni sömu leið. Lögreglan var komin á rétta slóð en þá tóku morðingjarnir upp á því að leggjast í híði. Lögreglan hafði ekki fundið neina ástæðu sem hægt væri að heimfæra upp á öll morðin og ekkert gerðist í hálft ár. Málið lá í láginni en í desem­ berbyrjun 1978 en þá var Joseph Annick, 56 ára, sendur yfir móðuna miklu í Columbus. Morðvopnið var 22 kalíbera, en um annað vopn var að ræða en í fyrri morðunum. Allt annað var kunnuglegt; Joseph hafði verið skotinn af dauðafæri og skot­ færi ekki spöruð. En fleiru var ekki til að dreifa og taldi lögreglan ekki loku fyrir það skotið að um hermikráku væri að ræða. Lögreglan átti eftir að skipta um skoðun. Bræður í böndum Þann 9. desember tók afgreiðslu­ maður verslunar í Columbus eftir því að kreditkort eins viðskiptavinar verslunarinnar var á lista yfir stolin kort. Á meðan afgreiðslumaðurinn tafði korthafann hafði kollega hans samband við lögregluna sem kom skömmu síðar. Gary Lewingdon hafði gert þau afdrifaríku mistök að framvísa korti Josephs Annick. Við yfirheyrslur ját­ aði Gary á sig morðið á Joseph og varpaði sök á níu öðrum morðum á sig og Thaddeus sem var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Thaddeus lýsti ódæðum bræðr­ anna í smáatriðum og sagði Gary hafa valið fórnarlömbin. Allt hefði gengið eins og í sögu, þangað til kom að morðunum á Martin­hjónunum. Bræðurnir hefðu orðið ósammála um val á fórnarlömbum. Thaddeus fullyrti að hann vissi ekkert um morðið á Joseph – Gary hefði verið einn að verki þar. Lífstíðardómar Af nógu var að taka fyrir saksóknara og réttað var yfir Gary vegna tíu morða. Réttarhöldin hófust 14. maí, 1979, og var hann sakfelldur fyrir átta morð, fékk átta samfellda lífstíðar­ dóma og var gert að greiða 45.000 Bandaríkjadali. Thaddeus stóð frammi fyrir tvennum réttarhöldum vegna níu morða og var sakfelldur fyrir þrjú morð 19. febrúar 1979. Fyrir vikið fékk hann þrjá samfellda lífstíðar­ dóma. Þann 17. apríl, 1989, andað­ ist Thaddeus 52 ára að aldri. Bana­ mein hans var lungnakrabbi. Árið 2004 fylgdi Gary í fótspor bróður síns og því óhætt að segja að þeir hafi af­ plánað lífstíðardóma sína til fulls. n Thaddeus og Gary Saman myrtu bræðurnir tíu manns og fengu fyrir vikið viðurnefnið Blóð- bræðurnir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.