Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Qupperneq 30
30 Menning 24.–26. maí 2013 Helgarblað
Hasar á sterum
N
ýjasta bók Jóns Atla Jónas
sonar er ekki stór í sniðum.
Börnin í Dimmuvík er
löng smásaga, eins konar
novelette. Bókin fjallar um
eldri konu sem
heldur á æsku
slóðirnar til að
vera viðstödd
jarðarför bróð
ur síns. Meðan
hún situr í
kirkjunni leit
ar hugurinn á
slóðir minning
anna. Þegar þau voru lítil börn og
þurftu að glíma við hungur og kulda
á íslensku sveitabýli á þriðja áratug
síðustu aldar.
Jón Atli lætur söguna gerast á
óræðum stað. Víkin sem sveita
bærinn stendur við hefur ekkert
nafn. En í huga barnanna þriggja á
bænum heitir hún Dimmuvík. Að
stæður barnanna eru skelfilegar.
Hungrið lamar allt líf á bænum.
Eftir minnilegar eru lýsingar Jóns
Atla af því þegar bóndinn þarf að
slátra kindum sínum eða þegar
hundur gerir sig heimakominn en
hverfur svo skömmu síðar.
Hungur og sóttir herja á börnin
og stundum verður erfitt að greina
á milli þess sem er raunverulegt
og ímyndun. Börnin í Dimmuvík
er á stundum eins og hreinræktuð
hrollvekja. Oft er nógu lítið sagt til
að hugur lesandans fari á flug. Þá
er hlutverk móðurinnar í sögunni
sérstaklega átakanlegt og örlög litlu
systurinnar sem heldur upp á heiði
létu kalt vatn renna milli skinns og
hörunds undirritaðs.
Börnin í Dimmuvík er kröftug
saga eftir Jón Atla. Frásagnarstíll
inn og andi bókarinnar minnti
mig á stundum á langar smásögur
hrollvekjumeistarans Stephens
King og vona ég að Jón Atli taki því
sem hrósi. Örlög fátæklinga á ís
lenskum sveitabæjum eru einnig
klassískt viðfangsefni í íslenskum
skáldskap. Skýrasta dæmið eflaust
Sjálfstætt fólk.
Þess vegna finnst mér klókt af
Jóni Atla að halda sig innan ramma
smásögunnar. Efniviðurinn býður
upp á mun fleiri útúrdúra, en sagan
heldur í þessu formi frá upphafi til
enda. Fyrir aðdáendur smásögunn
ar er útgáfa bókarinnar fagnaðar
efni – oft er lítil áhersla lögð á þetta
frásagnarform og það verður undir í
heimi stóru skáldsögunnar.
Börnin í Dimmuvík er hins vegar
falleg bók þrátt fyrir hryllinginn
sem þar er að finna. Það er gott fyrir
okkur Íslendinga að vera minnt
ir á þá erfiðu lífsbaráttu, sársauka
og hungur sem fólk þurfti að upp
lifa hér fyrr á tímum. Það setur lífs
kjarabaráttu dagsins í dag í annað
samhengi. n
Martraðakenndur
fortíðartryllir
Börnin í Dimmuvík eftir Jón Atla Jón-
asson. Útgefandi JPV
Bækur
Símon Birgisson
simonb@dv.is
E
inverra hluta vegna hef ég
alltaf endað með að horfa á
hverju einustu mynd í Fast and
Furiousseríunni. Án þess þó
nokkurn tíman að hafa ætlað
mér það sérstaklega. Það er eitthvað
örlítið hallærislegt við þessa seríu en
á sama tíma hafa myndirnar sérstakt
aðdráttarafl.
Það kveður við nýjan tón í nýj
ustu myndinni í seríunni. Þeirri
sjöttu í röðinni. Gömlu myndirnar
fjölluðu um bílamenningu í ákveðn
um heimshlutum; hvort sem það var
Los Angeles, Tókýó eða Rio de Jan
eiro. Þessi myndar gerist eingöngu í
Evrópu og fyrir vikið verður nálgunin á
bílamenninguna almennari. Í staðinn
fyrir hreinræktaða bílamynd er Fast
and the Furious 6 hálfgerð njósna
mynd.
Fast and Furiousmyndirnar hafa
sinn eigin stíl. Allt er keyrt í botn.
Gríðarlegt magn ofurkagga, létt
klæddra ofurmódela (sem gæti hafa
verið rænt úr dagdraumum 16 ára
unglings) og ofurmassaðra gaura drífa
myndina áfram. Virkilega flókin og
stórbrotin hasaratriði koma vel út.
Galli myndarinnar liggur hins vegar
í persónusköpuninni. Þegar of miklu
testósteróni er dælt í aðal hetjuna
verður útkoman yfirleitt misheppnuð.
Góð hetja hefur alltaf einhverja bresti
– hvort sem það er málhelti, hálf
lamað andlit eða of há kollvik. Góðri
hasarmyndarhetju blæðir, hún þarf að
ganga á glerbrotum, beinbrotna eða
horfa upp á ástvini deyja.
Hetjurnar í Fast and Furious 6 eru í
raun of miklar ofurhetjur. Bílslys, bar
smíðar og önnur áföll hafa lítil sem
engin áhrif á persónur myndarinnar
og þær verða hálf leiðinlegar fyrir
vikið. Góðir leikarar eins og Dwayne
Johnson (The Rock) í hlutverki ofur
löggunnar og Luke Evans sem leikur
vonda karlinn eru illa nýttir og óeftir
minnilegir.
Hann er þunnur, mannlegi þráð
urinn sem bindur saman þessa mynd
og það verður til þess að myndin er
frekar hallærisleg á köflum. Boð
skapur myndarinnar, um bræðralag
og samheldni, er líka hálf kjánalegur.
En ef horft er framhjá boðskap og
persónusköpun þá stendur hasarinn
fyrir sínu. Stundum er ekkert að því að
slökkva á heilanum og lifa sig inn í vit
leysuna. n
Bíómynd
Leifur Þór Þorvaldsson
Fast and Furious 6
IMDb 7,7 RottenTomatoes 74% Metacritic 57
Leikstjóri: Justin Lin
Handrit: Chris Morgan, Gary Scott Thompson
Leikarar: Vin Diesel, Paul Walker, Dwayne Johnson
130 mínútur
N
emendur fyrsta árs Ljós
myndaskólans opna árlega
vorsýningu sína laugar
daginn 25. maí, klukkan
15.00, í húsakynnum skól
ans að Hólmaslóð 6 í Örfirisey. Í ár
sýna fimmtán nemendur skapandi
ljósmyndir sem eru afrakstur vetrar
ins.
Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir er
á meðal þeirra sem sýna afrakstur
sinn á sýningunni. Bæði ljósmyndir
og vídeóverk. Hún kynnti sér menn
ingu Vesturbæjarlaugar og fór á bók
staflega á bólakaf í verkefnið. „Ég er
hef kynnt mér menningu Vesturbæj
arlaugar, skellti mér í sundleikfimi og
lærði að gera Müllersæfingar,“ segir
Kolfinna um verkefnið en myndirn
ar eru teknar undir yfirborði vatnsins.
Viðfangsefni annarra nemenda
eru af ýmsum toga. Annar nemandi,
Páll Júlíus Gunnarsson tók mynd af
fjögurra ára hjartveikri stúlku, Maríu
Dís. Hún er bæði með gangráð og
sondu og Páll tókst á við myndatök
una til að gera upp minningar um
hjartveiki sonar síns. Sá fór í hjarta
aðgerð aðeins þriggja mánaða en er
heill heilsu í dag og orðinn 14 ára. n
Hjartveikar hetjur og
sundlaugarmenning
n Spennandi vorsýning nemenda Ljósmyndaskólans
María Dís Páll Júlíus
Gunnarsson tók þessa
mynd af Maríu Dís
sem er fjögurra ára og
glímir við hjarta- og
lungnasjúkdóm.
Kona á sundi Kolfinna fór á bólakaf í
sundmenningu Vesturbæjarlaugar og festi
fastagestina á filmu. Á sýningunni verður hún
bæði með ljósmyndir og vídeóverk þar sem
hljóð og umhverfi mynda kraftmikla heild.
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
n Hetjurnar eru ótrúverðugar en bílaatriðin flott