Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2013, Page 36
36 Lífsstíll 24.–26. maí 2013 Helgarblað Í fyrstu skímu síðastliðins laugardagsmorguns lagði hópur 66 kvenna og manna upp í göngu á Hvanna- dalshnúk á Öræfajökli. Skyggnið virtist ekki ætla að verða gott en veður var annars meinlaust. Gangan reyndist seinleg í djúpum krapakenndum snjónum. Eftir ellefu stunda göngu var snúið við úr tæplega tvö þúsund metra hæð. Ljósmyndari DV, Sigtryggur Ari Jóhannsson, slóst í för með hópnum.  Dumbungur Það var heldur dimmt yfir jöklinum þegar lagt var af stað.  Leiðsögufólk Það var vaskur hópur leiðsögufólks sem stýrði hópnum. Snúið niður af Hvannadalshnúk  Á Sandfelli Þegar löng ganga er framundan er reynt að halda hægu m og jöfnum hraða til að spara orkuna. Úts ýnið frá Sandfelli er glæsilegt. Fljótt lá leiðin inn í skýjaþykkn ið.  Brottför klukkan 4 Lagt var af stað frá Sandfelli klukkan fjögur á laugar- dagsmorgni. Við bestu aðstæður getur tekið um átta stundir að klífa á fjallið, og fjórar að koma aftur niður.  Skátarnir Í förina slóst hópur frá Hjálparsveit skáta í Reykjavík í þjálfunarferð. Hér sjást skátarnir koma að svonefndu línustoppi. Þar eru allir bundnir saman í öryggislínu til þess að verjast jökulsprungum. Þegar á jökulinn var komið tók skyggnið að daprast og átti með fáum undan- tekningum eftir að versna þegar leið á daginn.  Rofar til Stuttlega rofaði til. Hópurinn nýtti tækifærið til að taka myndir og fínstilla klæði og búnað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.