Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Blaðsíða 11
Vikublað 14.–16. janúar 2014 Fréttir 11
Fjöldahandtökur og harka lögreglunnar
n Hvert hneykslismálið á fætur öðru n Harka áberandi í garð hælisleitenda n 32 kærur gegn lögregluþjónum n Lögreglustjóri sæmdur fálkaorðunni
Konu kastað á bekk
8. júlí Myndband af harkalegri handtöku á
Laugaveginum vekur mikla athygli í netheimum,
en þar má sjá lögreglumanninn Kristján Örn Krist
jánsson stugga við ölvaðri konu, kasta henni á
bekk og draga eftir götunni með hjálp kollega síns.
Kristján var dæmdur til að greiða konunni skaða
bætur, en konan dæmd til þrjátíu daga skilorðs
bundinnar fangelsisvistar fyrir að hrækja á hann.
Nokkrir lögreglumenn stukku Kristjáni til varnar og
fullyrtu að handtakan hefði verið eðlileg.
Í ljós kom að Kristján hafði áður verið til rann
sóknar vegna brota í starfi. Meðal annars hafði
hann verið staðinn að því að afturkalla aðstoð
lögreglu eftir að unnusta hans ók á ungan dreng,
auk þess sem hann hafði þrýst á kollega sína að
hlífa unnustu sinni eftir að hún var tekin fyrir ölv
unarakstur. Aldrei virtist hafa komið til álita að
leysa Kristján frá störfum.
Lögreglan skemmir
brúðkaupsferð
24. júlí DV greinir frá því að sérsveit
ríkislögreglustjóra hafi ráðist inn í sumar
bústað nýgiftra hjóna sem voru í brúð
kaupsferð, snúið þau niður og frelsissvipt
í dágóðan tíma á meðan leitað var í bú
staðnum án heimildar. „Þeir sögðu bara
að þetta væri „major fuck up“ hjá þeim
og við hefðum alla vega um eitthvað
að tala í kvöld,“ sagði brúðguminn, en
aðgerðin tengdist leit lögreglunnar að
brotamanninum Stefáni Loga Sívarssyni.
26. september Sérsveit ríkislögreglu
stjóra ræðst inn á heimili hælisleitenda
í Auðbrekku í Kópavogi. Aðgerðin var
umfangsmikil, tugir lögreglumanna
tóku þátt í henni og notuðust þeir meðal
annars við fíkniefnahunda. Sérsveit
armenn brutu upp dyr á herbergjum
heimilisins og handtóku heimilismenn,
alls fimmtán manns. Mennirnir fengu
ekki að klæða sig áður en lögregla
færði þá í varðhald á lögreglustöðinni
Hverfisgötu, né heldur að taka með sér
föt til skiptanna. Sumir þeirra voru því á
nærbuxum einum fata þegar þeim var
sleppt úr varðhaldi sex klukkustundum
síðar. Þá fengu þeir ekki að ráðfæra sig
við lögmenn þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir
þess efnis. Um var að ræða hælisleit
endur sem komu meðal annars frá Gana,
Sómalíu, Sýrlandi, Albaníu og Palestínu.
Í lögregluskýrslum kemur fram að ein af
ástæðum aðgerðanna hafi verið „eftirlit
með útlendingum“.
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður
manns sem handtekinn var í aðgerðinni,
lýsti frásögn hans svona í samtali við DV:
„Hann var handtekinn á nærbuxunum
og handjárnaður niður í gólf þar sem
hann var látinn liggja í klukkutíma. Á
meðan hann lá þarna var öskrað á hann
og fleiri: „Hver á þessa tölvu og hvaða
skór eru þetta? Stalstu þessum skóm
auminginn þinn?“ Eftir það var hann
leiddur á nærbuxunum út í bíl og geymdur
í fangaklefa í sex klukkutíma án þess
að fá að tala við lögmann eða túlk eða
nokkurn einasta mann.“ Fleiri íbúar sem
DV ræddi við lýstu atburðum þessa dags
með svipuðum hætti. Guðbrandur Árni
Ísberg, sálfræðingur hjá Sálfræðiráðgjöf
inni, veitti einum mannanna áfallahjálp
í kjölfar árásarinnar. Maðurinn sem um
ræðir upplifði mikið ofbeldi í heimalandi
sínu en hann endurupplifði atburði úr for
tíð sinni þegar sérsveitarmenn stormuðu
inn á heimilið.
Í lögregluskýrslunum kemur fram að
lögreglan hafi lagt hald á síma, ljósmynd
ir og fartölvur en þessir munir reyndust
vera í eigu mannanna, en ekki þýfi eins
og lögreglan gaf til kynna í tilkynningu
til fjölmiðla. Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, hefur nú staðfest
að ekkert þýfi hafi fundist. Rannsókn
málsins er lokið og enginn mannana
verður ákærður. Hins vegar hafa þrír
mannanna kært starfsmenn lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Kærurnar þrjár
byggja á því að lögreglan hafi með athæfi
sínu brotið gegn stjórnarskránni, mann
réttindasáttmála Evrópu, lögreglulög og
sakamálalög. Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra lýsti afstöðu sinni til
málsins þegar hún var spurð út í aðgerð
irnar á Alþingi í nóvember. „Það er ekkert
sem bendir til þess að mannréttindabrot
hafi átt sér stað,“ sagði ráðherrann.
Eldri borgurum
hrint í hrauni
21. október Lögreglan beitir
mótmælendur við Gálgahraun hörku.
Að minnsta kosti tuttugu manns voru
handteknir í viðamiklum aðgerðum
sem tugir lögreglumanna tóku þátt í.
Á meðal þeirra handteknu var kona á
sjötugsaldri sem dregin var eftir hrauninu
þar sem hún neitaði að hlíta fyrirmælum
lögreglunnar um að yfirgefa svæðið. Þá
var annarri konu á sjötugsaldri hrint af
lögreglumönnum þar sem þeir reyndu
að komast áfram með eldri mann sem
þeir höfðu handtekið. Blaðamaður varð
vitni að því þegar ýtt var við konunni með
þeim afleiðingum að hún féll ofan í gjótu
og skall á hörðum steinum. „Þeir bara
ýttu mér hér niður,“ sagði konan. „Það er
í lagi með mig, en maður verður bara svo
reiður.“ Á meðal þeirra sem handteknir
voru á grundvelli 19. greinar lögreglulaga
voru Ómar Ragnarsson og Eiður Svanberg
Guðnason. „Tökum hann, tökum hann,“
sagði fílefldur lögregluþjónn um leið
og hann og félagi hans hrintu mér yfir
ímyndaða línu milli tveggja keilna í
Gálgahrauni í morgun,“ skrifaði Eiður á
bloggsíðu sína og furðaði sig á hörku lög
reglunnar. Hinn gríðarlegi fjöldi lögreglu
þjóna sem mætti á vettvang vakti athygli
í ljósi þess að lögreglan skýlir sér oft á bak
við manneklu þegar kvartað er undan að
gerðarleysi hennar í vissum málum. Ætla
má að öryggi fólks á Reykjavíkursvæðinu
hafi verið stefnt í hættu við það að svo
margir lögreglumenn hvaðanæva að voru
sendir að Gálgahrauni.
Sérsveitin ræðst inn á heimili
hælisleitenda Harkaleg
handtaka olli
hjartastoppi
28. desember Ungur maður segir frá
því í viðtali við DV hvernig lögreglumenn
réðust að honum þar sem hann var í
sturtu og rykktu honum í gólfið með þeim
afleiðingum að hjarta hans stoppaði.
Ástæða handtökunnar var sú að hann
hafði hlaupið nakinn um nágrennið eftir að
hafa tekið inn of stóan skammt af fæðu
bótarefnum. Við handtökuna skertist sjón
hans og hreyfigeta og er hann hættur að
geta sinnt sínum helstu áhugamálum.
Í skugga alvarlegra ásakana um lög
regluofbeldi hefur lögreglan „tweet“að
og notast við Facebook meira en nokkru
sinni fyrr á undanförnum árum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð
inu vann ConnectedCOPS AWARDS
verðlaunin í september í fyrra, en þau
eru veitt þeim sem skara fram úr þegar
kemur að notkun samfélagsmiðla.
Lögregluembættið stofnaði Facebook
síðu árið 2010 og eru tugþúsundir manna
vinir lögreglunnar á Facebook. „Með
notkun samfélagsmiðla er hægt að
efla enn frekar upplýsingamiðlun til al
mennings. Twitter, Instagram, Flickr og
YouTube eru líka miðlar sem lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu notar í þessum
sama tilgangi,“ segir á vef lögreglunnar
sem tekið hefur þátt í svokölluðum
„tístmaraþonum“ sem haldin eru víða
um heim.
Um leið og lögreglan hefur eytt
púðri í Facebook og Twitter í nafni
bættrar upplýsingamiðlunar hefur DV
reynst erfitt að nálgast upplýsingar
frá lögreglu um mikilvæg mál er varða
almannahagsmuni. Sú er ekki síst raunin
þegar áleitnar spurningar vakna um
starfshætti lögreglunnar sjálfrar.
Virkni lögreglunnar á Facebook
og Twitter ber að fagna í ljósi þess að
þannig gefst almenningi færi á að fylgj
ast með daglegum störfum lögreglunn
ar. Jafnframt er um gagnvirk samskipti
að ræða þar sem fólk getur kvartað
undan lögreglu og krafið hana svara.
Facebookvæðing lögreglunnar er
fyrst og fremst liður í ímyndarsköpun.
Áhersla á Facebook og Twitter
Falskt gegnsæi og upplýsingagjöf ábótavant
Áreittir og
fangelsaðir að
tilefnislausu
20. nóvember–13.desember
DV greinir frá því hvernig leit lögreglunnar
að Tony Omos, hælisleitenda frá Nígeríu,
var látin bitna harkalega á samfélagi
flóttafólks á Íslandi. Fóru lögreglumenn
meðal annars ítrekað heim til barnsmóð
ur hans, Evelyn Glory Joseph, og tjáðu
henni að lögreglan myndi koma daglega
þar til Tony kæmi úr felum. „Ég vil koma
úr felum vegna þess að lögreglan er farin
að áreita fólk út af mér,“ sagði Tony í
samtali við DV stuttu áður en hann gaf
sig fram við innanríkisráðuneytið. „Ég
vil bara að þeir hætti. Þeir eru farnir að
áreita fólk, sérstaklega konur og konur
með börn. Þeir koma þangað klukkan tíu
á kvöldin,“ sagði Tony við DV.
Lögreglan kom ítrekað
inn á heimili Yusuf
Mahdavi, 23 ára
hælisleitenda frá
Afganistan við leitina
að Tony, en að eigin
sögn þekkir hann Tony
ekki neitt. Tony fannst
ekki heima hjá Yusuf
en hann og félagi hans voru hins vegar
handteknir og færðir í fangageymslur
lögreglunnar þar sem þeir máttu dúsa
í fjórtán tíma án þess að fá að tala við
lögmenn. „Farðu heim til þín, þú tilheyrir
ekki þessum stað,“ bar Yusuf að íslensk
lögreglukona hafi sagt við hann, þar sem
hann sat handjárnaður í lögreglubíl á
leiðinni á lögreglustöðina við Hverfisgötu.
Félagi Yusuf sagðist hafa fengið sömu
skilaboð frá lögreglunni – að hann ætti
að fara heim til sín þar sem hann tilheyrði
ekki Íslandi. „Þeir [lögreglumennirnir]
voru háværir og reiðir þegar þeir leituðu
í hverju einasta herbergi. Við spurðum
hvort þeir þyrftu að vera með svona mikil
læti en þeir svöruðu því til að þeim væri
sama hvað okkur fyndist,“ sagði Yusuf í
viðtali við DV. „Ég bað um að fá að tala
við lögfræðing og þeir sögðu mér að ég
gæti gert það daginn eftir. Ég sagði þeim
að það væri kalt í fangaklefanum en þeir
sögðu mér bara að svona væri Ísland. Mér
leið mjög illa, bara illa og ekkert annað.“
Yusuf hitti síðar starfsmann Rauða
krossins vegna bágrar andlegrar heilsu.
Lögmaður Yusuf, segist telja handtökuna
tilefnislausa og ólögmæta og hefur málið
verið kært til ríkissaksóknara.