Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Side 14
14 Fréttir Vikublað 14.–16. janúar 2014 Nýtir kosti maníunnar n Jóhann Valbjörn datt út af vinnumarkaði en náði fótfestu að nýju með góðri aðstoð Á síðustu dögum hefur DV fjallað um aðstæður geð- sjúkra á vinnumarkaði og þá staðreynd að þeir upplifa ótta og minna starfsöryggi, fordóma og búa við lítið sjálfstraust. Sigursteinn Másson opnaði um- ræðuna og sagði frá erfiðri reynslu sinni af uppsögn á Stöð 2 vegna veikinda og nú fylgja fleiri í kjölfarið til að varpa ljósi á umræðuna. Jóhann Valbjörn Long Ólafsson er yfirmaður í póstþjónustunni í Færeyjum. Hann veiktist af geð- hvörfum fyrir áratug og flæmdist af vinnumarkaði vegna veikinda sinna og hefur góða reynslu af því að vera opinskár um stöðu sína. Í dag nýtir hann kosti veikindanna og varast gall- ana og segir marga þætti í geðhvörfum til framdráttar í viðskiptum. Fékk leyfi til að vera veikur „Ég hef alltaf verið ör en glímdi ekki við nokkur veikindi af geð- rænu tagi fyrr en í kringum 2003–2004. Þá fór ég að veikjast. Á þessum tíma bjó ég í Kanada og sótti mér læknisað- stoð. Upphafið var brösugt, ég fékk þunglyndislyf sem er alls ekki gott fyrir maníusjúklinga og á sama tíma missti ég tök á áfengisneyslu minni. Það var lán í óláni að ég skyldi á þessum tíma vinna hjá mjög góðu fyrirtæki þar sem vel var hugað að starfsmannamálum. Ég fékk leyfi til að vera veik- ur og veit að trúnað- arlæknirinn ræddi við geðlækni minn og fékk hjá honum nauðsynlegar upplýsingar. Ég var aldrei lagð- ur inn á þessum tíma, þótt ég hafi oft verið ansi ná- lægt því. En um- fram allt fékk ég ráðrúm til að vinna í mínum mál- um. Að veikjast á þennan hátt er erfitt því maður áttar sig alls ekki á því að maður sé að veikjast. Það má líkja þessu við bilun í stýrikerfi tölvu.“ Með gardínur í vinnunni Jóhann fékk fæ fína vinnu í Lett- landi og hélt þangað. „Ég á enda konu þaðan og flyt út. Allt er að virka fínt nema hvað æxlismyndun í heila er farin að hafa veruleg áhrif á mig án þess þó að ég geri mér gerin fyrir því. Ég er síðan skorinn upp í febrúar 2009 og þá tekur við löng og ströng endurhæfing þar sem geðhvörfin koma fram aftur og þá sérstaklega þunglyndið. Sem kannski er ekkert óeðlilegt m.v. að stæður. Þau bitnuðu frekar á fjöl- skyldunni. Ég náði að vera með einhverjar gardínur í vinnunni en þegar heim var komið þurfti ég að draga frá.“ Afleiðingin var sú að Jóhann var lagður inn á geðspítala í Lettlandi í heilan mánuð. Hann telur að veikindin hafi verið erfiðari vegna feluleiksins. „Ég endaði á geðspítala í Lett- landi í heilan mánuð eftir erfið- an heilauppskurð. Ég var á opinni deild og þetta var ekki eins hroða- legt og maður hélt. En ég var lengi veikur og lá hreinlega í rúminu í heil tvö ár,“ segir hann frá og lýsir árunum sem þeim verstu í sínu lífi. Viðsnúningur á Íslandi Jóhann flutti heim til Íslands, upp- gefinn á sál og líkama. Fyrir tilvilj- un fékk hann veður af starfsemi Hugarafls, félagasamtaka sem berjast fyrir réttindum og betra lífi geðsjúkra. Kynnin urðu til þess að viðsnúningur varð á lífi hans. „Ég gafst upp og fór til Íslands í júlí 2011, þá er ég andlega og móralskt búinn. Ég hafði keypt mér hús en missti það. Kom heim og flutti til mömmu. Þá sagði ein- hver mér frá Hugarafli og þeirri þjónustu sem þar er boðið upp á. Ég var þá byrjaður í MBA-námi í háskóla í Sviss og var að reyna að ná fótfestu. Ég var brotinn og leið ekki vel. Ég heimsótti Hugarafl og gladdist yfir móttökunum. Þar fékk ég aðstöðu til að læra og mætti þangað eins og ég væri að mæta til vinnu. Þar byrjaði ég að tala við fólk sem hafði sömu reynslu. Í Hugar- afli eru allir jafnir, enginn að segja þér fyrir verkum eða tala niður til þín. Þarna komst ég í góðan gír og það má segja í gamni að ég hafi ver- ið þarna með 40 aðstoðarmenn,“ segir hann um þá sem sóttu starf- semina. Hefði ekki fengið vinnu á Íslandi Sjálfsvirðing Jóhanns dafnaði á nokkrum mánuðum og áður en hann vissi var hann farinn að líta í kringum sig eftir atvinnu. Hann nefnir að á Íslandi hafi ekki blas- að við margir möguleikar. Staða á atvinnumarkaði var ekki blómleg. Leitin bar árangur og á þessu sama ári, 2011, flutti hann til Færeyja og tók við stöðu framkvæmdastjóra fraktdeildar póstsins í Færeyjum. „Ég myndi ekki segja að ég hafi læknast, en ég veit hvað ég get, hvað ég get ekki, hvað ég má og hvað ég má ekki. Þetta er ferli sem maður þarf að ganga í gegnum hægt og ró- lega. Ég er búinn að þyngjast um 50 kíló síðan ég byrjaði á þessu lífi en funkera samt ágætlega. Ég þarf að passa mig þegar ég verð of ör, taka mér tíma. Passa svefninn, sem er miklu mikilvægara en maður held- ur, og hafa einhvern til að ræða við. Þetta er ekkert leyndarmál hjá mér. Í Færeyjum þekkja mig margir, ég var hér oft vegna vinnu minnar fyr- ir Eimskip. Það fer svo mikil orka í að fela þetta. Ég ímynda mér að ég hefði ekki fengið vinnu á Íslandi á veikinda- tímabili mínu. Til þess var staðan of slæm.“ Manían nýtist í viðskiptum Jóhann nýtir sér kosti maníunnar í starfi. „Það sem skiptir máli er að ég lít ekki á mig sem veikan, þótt að ég sé með þennan sjúkdóm. Konan mín segir að ég geti kom- ið heim og verið með allt á hornum mér en næsta dag sé ég allt öðru- vísi. Þannig sér hún veikindin. Maður getur líka verið svakalega ör og nánast agressífur, maður þarf einhvern veginn að sætta sig við þetta, fá hjálp og finna jafnvægið. Ég nota líka kosti maníunnar en leyfi henni ekki að brjóta sér alla leið upp á yfirborðið. Hún er góð í því að ná árangri í viðskiptum. Ég get verið einbeittur í því að ná ár- angri og áhugasamari en flestir aðrir um lausn vandamála. Ef ég fæ góða dellu, þá fer ég alla leið. Ég held að það sé mikilvægt fyrir fólk að nýta kostina við veikindin, þeir eru margir. Maður verður svo brothættur þegar maður veikist að kostirnir virðast fjarri, en þá má greina með tímanum og auknu sjálfstrausti. Ég veit ekki hvort mér hefði tekist það án þess að kynnast starfi Hugarafls.“ n „Ég ímynda mér að ég hefði ekki feng- ið vinnu á Íslandi á veik- indatímabili mínu. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Fékk yfirmannsstöðu í Færeyjum Jóhann hefur góða reynslu af því að vera opinskár um veikindi sín. Hann hefði ekki fengið vinnu á Íslandi, telur hann, en landaði góðri stöðu í Færeyjum þar sem hann nýtir kosti geðhvarfanna. Mikill fórnar- kostnaður n Kostnaður vegna elli- og örorkulífeyris var yfir 40 milljarðar fyrir árið 2011. n Ef 25 ára einstaklingur fer á örorku og nær meðalaldri er kostnaður TR og lífeyrissjóðanna yfir 40 milljónir. n Rúmlega helmingur þeirra sem fara á örorku fer vegna geðrænna kvilla eða stoðkerfisvandamála. n Margir sem eiga við stoðkerfisvanda- mál fást einnig við geðræn vandkvæði. Opnaði umræðuna Sigursteinn Másson opnaði umræðu um fordóma fyrir geðsjúkum á vinnumarkaði og þann ótta sem þeir búa við. Mynd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.