Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Síða 15
Vikublað 14.–16. janúar 2014 Fréttir Viðskipti 15
Finni Ingólfssyni ýtt út úr Frumherja
Í
slandsbanki hefur eignast 80
prósenta hlut í Frumherja. Í til
kynningu frá bankanum kemur
fram að þetta sé niðurstaða fjár
hagslegrar endurskipulagningar á
fyrirtækinu. Frumherji skilaði rúm
um milljarði í hagnað í árið 2012,
samkvæmt nýjum ársreikningi fé
lagsins. Viðsnúningur félagsins
frá 2011 ári er mikill, en þá tapaði
Frumherji 370 milljónum króna.
Frumherji, sem hefur verið í eigu
Finns Ingólfssonar og viðskiptafé
laga hans í gegnum eignarhaldsfé
lagið Spector, er með 32 starfsstöðv
ar um allt land. Hjá fyrirtækinu
vinna rúmlega 100 manns – á sex
mismunandi sviðum. Fyrirtækið
gefur sig út fyrir að vera „sérfræði
fyrirtæki sem veitir alhliða þjónustu
á sviði ýmiss konar skoðana og próf
ana ásamt annarri starfsemi“. Flest
starfssvið félagsins eru rekin sam
kvæmt viðurkenndum gæðastöðl
um.
Bókfærður gengishagnaður fé
lagsins er upp á 1.461 milljón króna
sem útskýrir hagnað þess. Sam
kvæmt efnahagsreikningi nema
eignir samstæðunnar 2.867 milljón
um króna, eða tæpum þremur millj
örðum og er eigið fé neikvætt sem
nemur 334 milljónum.
Finnur Ingólfsson, fjárfestir og
fyrrverandi þingmaður, hefur hætt
öllum afskiptum af félaginu sam
kvæmt Ásgeiri Baldurs, stjórnarfor
manni. Finnur hefur ekki selt hlut
sinn, heldur var hann afskrifaður
frá félaginu og nýtt hlutafé er komið
í staðinn. Í ársreikningi Frumherja
fyrir árið 2011 kom fram að Finnur
hafi haldið fyrirtækinu eftir að hafa
staðið í áralöngum samningavið
ræðum við Íslandsbanka um fram
tíðareignarhald þess.
Í skýrslu stjórnar, skrifaðri af Orra
Hlöðverssyni, framkvæmdarstjóra
Frumherja, kemur fram að tveir
hluthafar eru í félaginu og í árslok á
Spector ehf. 99,9 prósent af hlutafé
félagsins. Þá hafa skattyfirvöld tek
ið til skoðunar samruna félagsins
við Bil árið 2007 og yfirtekinn fjár
magnskostnað. „Ljóst er að ef frá
drætti vegna þessa fjármagnskostn
aðar verður hafnað mun það hafa í
för með sér verulegar skattgreiðsl
ur vegna áranna 2007–2011 sem
og veruleg neikvæð áhrif á fjár
hagsstöðu félagsins og getu þess til
áframhaldandi reksturs,“ stendur í
ársreikningnum varðandi málið.
Hreinsibílar ehf. er eina dóttur
félag Frumherja. n
ingolfur@dv.is
Bílaskoðunarfyrirtækið Frumherji skilaði milljarði í hagnað árið 2012
Keypti fyrirtækið árið 2007
Finnur Ingólfsson er genginn út.
Hluthafi Moggans
kaupir félag 365
n Leggst vel í Póstdreifingu að losna úr viðjum 365 miðla
F
yrirtækið Traðarsteinn ehf.
er í viðræðum um kaup á
Póstdreifingu, dótturfélagi
365 miðla, og er áætlað að
gengið verði frá kaupunum í
mánuðinum. Þetta staðfestir Hann
es Hannesson, framkvæmdastjóri
Póstdreifingar, í viðtali við blaða
mann DV.
„Það er rétt,“ segir Hannes. „Það
eru þreifingar á milli aðila um þessi
mál og þetta leggst vel í okkur.“
Þorsteinn Már stór hluthafi í
Morgunblaðinu
Traðarsteinn er einkahlutafélag sem
var stofnað í maí 2010 og er, sam
kvæmt heimildum DV, stýrt af Þor
steini Má Baldvinssyni og Malcolm
Walker, þótt það sé í eigu son
ar hans, Þorsteins Baldvinssonar,
og fyrrverandi eiginkonu, Helgu S.
Guðmundsdóttur. Malcolm Wal
ker er stofnandi og forstjóri bresku
matvörukeðjunnar Iceland Foods
og Þorsteinn Már Baldvinsson er
forstjóri Samherja og er jafnframt
hluthafi í Morgunblaðinu. Malcolm
Walker er einnig gamall viðskiptafé
lagi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Því má segja að með kaupun
um séu eigendur Morgunblaðsins
að læðast bakdyramegin inn í 365
miðla.
Krossanes ehf. sem er í eigu
Þorsteins Más er næststærsti út
gerðarhluthafinn í Morgunblaðinu.
Hluturinn nemur um 18,5 prósent
um. Þá á Síldarvinnslan í Neskaup
stað liðlega sex prósenta hlut í
blaðinu, en hún er í helmingseign
Samherja, fyrirtæki Þorsteins. Því
má segja að Samherji eigi saman
lagt um 23 prósenta hlut í Morgun
blaðinu.
365 opið fyrir
sölu á Póstdreifingu
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, seg
ir viðskiptin enn þá vera í vinnslu og
vildi því ekki hafa mörg orð um þau.
Hins vegar viðurkennir Ari að 365
miðlar hafi verið opnir fyrir því að
selja Póstdreifingu.
„Það er rétt að við höfum verið
opnir fyrir þeirri hugmynd að selja
Póstdreifinguna frá okkur,“ segir Ari
Edwald, en 365 miðlar eru að stærst
um hluta í eigu Ingibjargar Pálma
dóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs. „Í
sjálfu sér er ekki nauðsynlegur hluti
af okkar starfsemi að vera eigendur
að dreifingunni, ekki frekar en við
erum eigendur að prentsmiðjunni
sem prentar blaðið,“ útskýrir Ari enn
fremur.
Ari þvertók hins vegar fyrir þann
orðróm að 365 miðlar hafi verið til
sölu í þónokkurn tíma. „Það er ekki
inni í neinum kortum,“ segir Ari um
hugsanlega sölu fyrirtækisins. „Þetta
er rangt, þrátt fyrir að einhverjir
endurtaki í sífellu að 365 sé til sölu.
Það er það ekki.“
Gæfuspor fyrir Póstdreifingu
Hannes hjá Póstdreifingu telur rétt
skref fyrir fyrirtækið að losna undan
viðjum 365 miðla. Póstdreifing hef
ur séð um dreifingu Fréttablaðsins
undanfarin ár og er áætlað að þau
viðskipti haldi áfram þrátt fyrir yfir
vofandi sölu 365 miðla á fyrirtækinu.
„Ég held að þetta gæti orðið gæfu
spor fyrir fyrirtækið,“ segir Hannes.
„Í raun og veru verðum við sjálf
stæð, en ekki dótturfélag lengur, og
það gefur okkur svigrúm til athafna
og að sækja á okkar markmið.
Við erum búin að vera í
samkeppni við Íslandspóst í mörg
ár og við ætlum bara að efla þá
samkeppni.“
Heldur að Eiríkur sé að grínast
Eiríkur Jónsson segist á fréttavef sín
um hafa góðar heimildir fyrir því
að kaup Traðarsteins ehf. á Póst
dreifingu sé fyrsta skref Morgun
blaðsins til að yfirtaka 365 miðla.
Þar fullyrðir Eiríkur einnig að fjöl
miðlafyrirtækið hafi verið til sölu
um nokkurt skeið. Ari Edwald segir
orðróminn fráleitan og ályktanir Ei
ríks vera fjarri raunveruleikanum.
Þegar blaðamaður spyr Ara hvort
hann hafi lesið umrædda frétt Eiríks
segist hann ekki kannast við hana.
„Ég veit ekki hvernig ég ætti að
vita það,“ segir Ari. „Það sem felst
í mínu svari er að ég hafi annað að
gera heldur en að fylgjast með því
hvað hann er að skrifa. Ég held að
þetta sé nú meira grín hjá honum
Eiríki.“
Hannes hafði heyrt af frétt Eiríks,
en gefur lítið fyrir orðróminn.
„Ég legg ekki nokkurn trúnað á
það,“ segir Hannes. „Ég kannast ekk
ert við þetta plott sem hann er að
leggja upp.“
Í samtali við blaðamann seg
ist Eiríkur Jónsson standa við sinn
fréttaflutning. n
„Höfum verið opn-
ir fyrir þeirri hug-
mynd að selja Póst-
dreifinguna frá okkur.
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
365 Hafa verið
opnir fyrir því
að selja Póst-
dreifingu.
Marel styrkir
nýsköpun
Frumkvöðlasetur Klak Innovit og
útflutningsfyrirtækið Marel hafa
skrifað undir áframhaldandi
samning um hugmynda
samkeppni framhaldsskólanna
sem nefnist Snilldarlausnir
Marel. Keppnin, sem fer fram á
hverju ári, gengur út á að virkja
ímyndunaraflið. Marel hefur
verið ötull bakhjarl keppninnar
frá árinu 2009. Útflutningsfyrir
tækið mun eiga fulltrúa í dóm
nefnd og jafnframt halda lokahóf
fyrir þátttakendur í lok keppn
innar.
Marel er alþjóðlegt fyrirtæki
með yfir fjögur þúsund starfs
menn um allan heim og er með
dótturfyrirtæki í meira en 30
löndum.
Umdeildur
RIFF-styrkur
Borgarstjórnarflokkur
Sjálfstæðis flokksins vill halda
áfram að styrkja alþjóðlegu kvik
myndahátíðina RIFF, sem haldin
hefur verið á Íslandi við góðan
orðstír. „Okkur finnst illa farið
með samstarfsaðila til margra
ára og ákvörðun meirihlutans
í þessu máli ekki nógu vel
ígrunduð,“ segir Áslaug Friðriks
dóttir borgarfulltrúi. Meirihluti
Besta flokksins og Samfylkingar
vill hætta að styrkja hátíðina.
RIFF hefur iðulega verið stökk
pallur fyrir unga kvikmynda
gerðarmenn, hérlenda sem
erlenda. Óvíst er hvort rekstrar
grundvöllur sé nægjanlegur til
að hátíðin verði að veruleika á
þessu ári, en hún er vanalega
haldin á haustin, slíti borgaryfir
völd samstarfinu.