Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Side 17
Vikublað 14.–16. janúar 2014 Fréttir Erlent 17
B
reskur sjónvarpsþáttur þar
sem skyggnst er í líf þeirra
sem lifa á bótum hefur vak-
ið hörð viðbrögð. Í þættin-
um er fylgst með lífi nokkurra
fjölskyldna við James Turner-stræti í
Birmingham þar sem stór hluti íbú-
anna reiðir sig á bætur frá breska rík-
inu til að lifa af. Samkvæmt breskum
fjölmiðlum eru um 90 prósent íbúa
við götuna með bætur á bilinu 95–170
þúsunda króna á mánuði.
Hafna gagnrýninni
Stjórnendur Channel 4-sjónvarps-
stöðvarinnar sem framleiðir og sýn-
ir þættina hafa opinberlega hafnað
því að hafa blekkt íbúa í götunni til að
taka þátt í gerð þáttanna líkt og þeir
hafa verið sakaðir um. Breska götu-
blaðið Mirror hefur haft eftir einum
íbúa, hinni 23 ára Becky Howe, að
framleiðendur Benefits Street hafi
mútað sér með sígarettum og skyndi-
bita og öðrum íbúa með bjór. Stjórn-
endur stöðvarinnar segjast hafa fylgt
öllum lögum og reglum um fjölmiðla
þótt þeir hafi í einhverjum tilfellum
aðstoðað íbúa með mat.
Einn af stjórnendunum, Ralph
Lee, svaraði fyrir þáttinn í viðtali í
sjónvarpsþættinum Newsnight á
BBC nýverið og sagði framleiðendur
Benefits Street hafa verið við tökur í
um ár. „Þeir voru mjög skýrir og opin-
skáir við alla á götunni um eðli þátt-
anna, af hverju þeir væru þarna og
hvernig þættirnir ættu að vera,“ sagði
hann. Þá hafnaði hann einnig full-
yrðingum sumra íbúa um að þeim
hefði verið sagt að nafn þáttanna væri
Community Spirit.
Þrjátíu þúsund undirskriftir
Boðað hefur verið til mótmæla gegn
Channel 4 auk þess sem kallað hef-
ur verið eftir opinberri rannsókn á
því efni sem þar birtist. Helstu gagn-
rýnendur þáttanna segja þá til þess
fallna að auka á fordóma gagnvart
þeim sem þurfa að treysta á greiðsl-
ur úr velferðarkerfinu. Segja þeir
þættina vera grófa árás á kerfið
og mála bótaþega sem afætur og
aumingja. Yfir þrjátíu þúsund undir-
skriftum hefur verið safnað þar sem
þess er krafist að Channel 4 hætti sýn-
ingu þáttanna og styrki góðgerðastarf
til að reyna að bæta fyrir skaðann sem
það hefur valdið með sýningu þeirra.
Það eru þó ekki allir sem eru sam-
mála þessari gagnrýni og hefur stofn-
andi Big Issue-tímaritsins, sem rekið
er til að fjármagna aðstoð við heim-
ilislausa, sagt Benefits Street sýna
hvernig hin raunverulega staða er í
velferðarmálum í Bretlandi. „Stað-
reyndin er sú að Benefits Street, þrátt
fyrir vilja sinn til að hneyksla, hefur
varpað kastljósinu á þá menningu
sem hefur fengið að verða til vegna
gallaðs kerfis sem leggur engar kröf-
ur á notendur sína og fer ekki fram á
neinn metnað frá þeim,“ segir John
Bird í grein sem hann skrifaði fyrir
Daily Mail. n
S í m i : 5 5 5 -70 3 0 / F l at a h r au n 5 a , H a f n a r f i rð i
S í m i : 5 5 5 -70 3 0 / F l at a h r au n 5 a , H a f n a r f i rð i
Fjölskyldu- tilboðin vinsælu og bíla- borgarinn
Fylgjast með bótaþegum
í raunveruleikasjónvarpi
n Tugþúsundir mótmæla sýningu þáttanna n Channel 4 hafnar því að hafa blekkt fólk
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
„Þeir voru mjög
skýrir og opinskáir
við alla á götunni um eðli
þáttanna.
Íbúar Mark Thomas og
Becky Howe. Í samtali við
Mirror sakaði Howe fram-
leiðendur þáttanna um að
múta henni með sígarettum
og mat. Mynd CHAnnel 4