Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Side 18
Vikublað 14.–16. janúar 201418 Fréttir Erlent Draugabæirnir í Fukushima Þ rátt fyrir að þrjú ár séu liðin frá hörmungunum í Fukus- hima í Japan, þegar flóð- bylgja reið þar yfir í kjölfar gríðarlegs jarðskjálfta, eru íbúar á svæðinu enn að glíma glíma við afleiðingarnar. Þar munar mest um hættuna sem enn stafar af kjarnorkuveri bæjarins, en í kjölfar náttúruhamfaranna varð eitt stærsta kjarnorkuslys sögunnar þegar geislavirk efni komust út í and- rúmsloftið. Yfirvöld girtu af tæplega 20 kílómetra radíus út frá kjarnorku- verinu og fyrirskipuðu um 80.000 íbúum svæðisins að yfirgefa það. Þessir íbúar hafa ekki enn fengið að snúa aftur heim, en um 20.000 íbú- ar í bænum Naime mega fara heim til sín einu sinni í mánuði en hafa þó ekki leyfi til að vera þar yfir nótt. Í bænum Futaba voru bæjarbú- ar eitt sinn svo stoltir af kjarnorku- verinu sínu að þeir reistu skilti sem á stóð: „Kjarnorka - Orkan fyrir betri framtíð.“ Bærinn er hins vegar rústir einar núna og yfirgefinn. Sumir íbú- ar á svæðinu fá ekki að snúa aftur heim fyrr en að fimm árum liðnum, aðrir þurfa að bíða í áratug og sumir fá jafnvel aldrei að snúa aftur til síns heima. 400 tonn af úraníum Fyrirtækið Tepco, eigandi kjarn- orkuversins, sér um hreinsunarstörf en þó eru ekki allir sem treysta því til verksins. Þeir hafa reynt að gera lítið úr óhappinu og þá ríkir nokkur leynd yfir svæðinu. Þeirra verk felst meðal annars í því að færa 400 tonn af úraníum úr geymslutanki og yfir á öruggt svæði. Gert er ráð fyrir því að það muni taka ár en verkið er afar vandasamt. Þá liggja hundruð poka á svæðinu, fullir af geislavirk- um jarðvegi, sem erfitt hefur reynst að fjarlægja vegna andstöðu frá þeim sem búa utan svæðisins. „Kjarnorku-skilnaður“ Nautgripabóndinn Masami Yoshi- zawa gat ekki hugsað sér að fara frá 330 kúm þrátt fyrir skipan- ir yfir valda um að allir ættu að yf- irgefa Naime, heimabæ Masami. „Ég heyrði dýrin öskra, hvert sem ég leit var eins og gáttir helvítis hefðu opnast. Ég gat ekki gert dýr- unum mínum það að fara frá þeim,“ sagði Masami. Hann varð fyrir geislun og á tímabili virtist hann vera í lífshættu. Reglulega var fylgst með honum en nú hefur geislunin minnkað. „Auðvitað hafði ég áhyggjur, en ég ákvað að verða ekki móðursjúk- ur eða brotna niður andlega vegna þess.“ Ekki eru allir svo sterkir, líkt og Masami. Hugtakið „kjarnorku-skiln- aður“ er oft notað þegar fólk skilur á svæðinu, en þó eru engin tölfræði sem sýnir fram á að skilnuðum hafi fjölgað í kjölfar kjarnorkuslyssins. Sögðu engin tengsl á milli veikinda og geislunar Kaori Saito bjó í Fukushima-borg þegar slysið varð, ásamt eigin- manni sínum og tveimur sonum. Hún hafði stöðugar áhyggjur af geislun og heilsu drengjanna tveggja. Hún telur að eiginmaður hennar hafi haldið að hún væri að gera of mikið úr málinu, þar sem yfir völd sögðu að þau þyrftu ekki að yfirgefa heimili sitt, að borgin væri örugg. „Drengirnir veiktust undar- lega, en allir læknar sem ég fór til sögðu að það væru engin tengsl á milli geislunar og veikindanna.“ Eiginmaður hennar gerði lítið úr þessu og vildi ekki flytja frá bæn- um, eins og hún bað hann um. Hún óskaði því eftir skilnaði og flutti með drengina til Matsumoto, fjarri Fukushima. „Hefði ég ekki gert það, þá hefði mér fundist eins og ég gæti ekki verndað börnin mín. Þess vegna flutti ég.“ n Geislavirkur jarðvegur Í Naime er unnið að því að fjarlægja geislavirkan jarð- veg. Það er erfitt verk, og umdeilt er hvað eigi að gera við mengaða moldina. n Rústir eftir stærsta kjarnorkuslys sögunnar n „Heyrði dýrin öskra“ Rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is „Drengirnir veiktu- st undarlega, en allir læknar sem ég fór til sögðu að það væru engin tengsl á milli geislunar og veikindanna. Futaba Við yfirgefna verslunargötu í bænum Futaba stendur skilti með áletruninni: „Kjarn- orka - Orkan fyrir betri framtíð.“ MyndiR ReuteRS Afleiðingar flóðbylgju Á svæðinu, sem enn er lokað, má greinilega sjá afleiðingar flóð- bylgjunnar sem reið yfir svæðið í kjölfar jarðskjálftans. Smíða Titanic í Kína Til stendur að byggja nákvæma eftirlíkingu af einu frægasta skipi heims, Titanic, í Kína. Fjár- festingarsjóðurinn Seven Star In- vestment Group hefur þegar lagt milljarð kínverskra yuan, jafnvirði 19,38 milljarða íslenskra króna, í verkefnið. Skipið á að vera stað- sett á ánni Qi og á að hýsa safn um Titanic-slysið en það er byggt eftir teikningum af systurskipi Titanic, Olympic. Eitt helsta aðdráttar- afl safnsins á að vera „6D“-herm- ir sem gefur hundruð manna í einu færi á að upplifa hvern- ig var að vera um borð í skipinu þegar það sigldi á ísjakann. „Þegar skipið siglir á ísjakann mun það hristast og veltast,“ segir forstjóri fjárfestingarsjóðsins í samtali við breska blaðið The Guardian. „Við munum gefa fólki þá upplifun að vatn sé að flæða inn með ljósum og hljóðum. Fólkið mun hugsa: „Ég mun drukkna, ég verð að kom- ast undan til að bjarga lífi mínu“.“ Njósna „óvart“ um Kanada Stjórnendur kanadísku þjóðar- öryggisstofnunarinnar CSE hafa viðurkennt að stofnun- in njósni stundum „óvart“ um borgara. Þetta kemur fram í nýbirtum svörum CSE vegna samstarfs við bandarísku þjóðaröryggisstofnunina NSA. Í svörunum kemur fram að CSE fylgist með samskiptum sam- taka og hryðjuverkasamtaka sem gætu haft áhrif á öryggi, varnir eða málefni Kanada. Þá bendir stofnunin á að ólöglegt sé að njósna um kanadíska rík- isborgara, bæði að frumkvæði NSA eða að ósk samstarfsríkis, með þeirri undantekningu ef grunur leikur á að viðkomandi tengist ólöglegu athæfi. Lenti á röngum flugvelli Boeing-þota bandaríska flugfé- lagsins Southwest lenti á röngum flugvelli í Missouri-ríki á sunnu- dagskvöld. Vélin, sem var af gerðinni Boeing 737-700, lenti á litlum flugvelli um ellefu kílómetra frá flugvellinum sem áætlað var að hún myndi lenda á. Flugvöllur- inn sem flugvélin lenti á er um helmingi minni en áætlunarflug- völlurinn og er ekki gerður fyrir jafn stórar flugvélar og Boeing 737. Farþegum vélarinnar var svo ekið yfir á réttan flugvöll. Einn farþeg- anna segir í samtali við Forbes að lendingin hafi verið harkaleg og að fundist hefði lykt af brenndu gúmmíi inni í vélinni þegar flug- stjórinn bremsaði í kjölfar henn- ar. Flugstjóranum tókst að stöðva vélina um 100 metra frá brautar- endanum en hefði það ekki tekist hefði vélin lent á þjóðvegi sem er handan brautarinnar. Ekki liggur fyrir af hverju flugvélinni var lent á röngum flugvelli en enginn yfir- lýsing hefur borist frá flugfélaginu. Málið er til rannsóknar hjá flug- málayfirvöldum vestanhafs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.