Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Qupperneq 25
Neytendur 25Vikublað 14.–16. janúar 2014
Finndu þinn eigin fatastíl
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Metár lækkar ekki verðið
Orkuveitan sér ekki fram á að lækka verð til neytenda í bráð
E
kki má vænta lækkunar á
gjaldskrá Orkuveitu Reykja-
víkur þrátt fyrir að árið í fyrra
hafi verið margfalt metár hjá
fyrirtækinu en í frétt á vef fyrirtæk-
isins segir: „Árið 2013 fer í bækur
Orkuveitu Reykjavíkur sem marg-
falt metár í hitaveiturekstrinum.
Heitvatnsnotkun á ári hefur aldrei
verið meiri, aldrei hefur mánaðar-
notkun verið meiri en í desember
og 6. desember var klukkustundar-
rennsli á við meðalrennsli í Elliða-
ánum.“
Eiríkur Hjálmarsson upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitunnar segir
þessa miklu notkun ekki skila sér til
viðskiptavina í lækkuðu orkuverði
en samdráttur í orkusölu hefur þó
verið notaður til að réttlæta hækk-
un á orkuverði hjá fyrirtækinu.
„Það eru örfá ár síðan menn
lögðu hér í verulega miklar fram-
kvæmdir við nýja hitaveitu frá
Hellis heiðarvirkjun og það þarf
einfaldlega að borga af henni,“ segir
Eiríkur. „Það eru nógir reikningar
að borga á þessum bæ.“
Aðspurður hvað þyrfti að gerast
til að notendur fengju að sjá lækk-
aðar gjaldskrár sagði hann að það
þyrfti að vera búið að borga tals-
vert af skuldum. „Við höfum dreg-
ið töluvert úr endurnýjun svo það
er hugsanlegt að það sé að byggjast
upp þörf fyrir aukið viðhald í kerf-
unum þannig að ég sé ekki fram á
að geta lofað lækkaðri gjaldskrá
neitt á næstunni,“ segir hann. n
fifa@dv.is Orkuveitan Verð lækkar ekki.
Okurvakt Dv Opnuð
n Verum á verði gagnvart verðhækkun á vörum og þjónustu
D
V hefur hleypt af stokkunum
sérstakri okurvakt þar sem
ætlunin er að halda utan
um hækkun verðs á vörum
og þjónustu auk þess að
segja fréttir af óeðlilegri verðlagn-
ingu. Mikill fjöldi ábendinga hefur
nú borist og verða þær kannaðar og
birtar bæði í prentútgáfu blaðsins og
á vefnum DV.is. Lesendur eru hvatt-
ir til að vera vel á verði og senda
ábendingar á netfangið okur@dv.is.
Þá sagði DV frá fyrirvaralausri
þreföldun á stöðumælagjaldi í bíla-
stæðahúsum um áramót, sem Bíla-
stæðasjóður dró til baka fyrir helgi.
N1, Emmessís, Brúnegg, Kaupfé-
lag Skagfirðinga og Bílastæðasjóð-
ur tilkynntu öll um verðhækkun um
áramót en hafa nú dregið ákvörðun
sína til baka. Kemur þetta í kjölfar
mikils þrýstings frá neytendum og
eins frá Alþýðusambandi Íslands
en ein helsta forsenda þeirra kjara-
samninga sem gerðir voru 21. des-
ember er að verðbólga verði lág,
þannig að kaupmáttur í landinu auk-
ist. Til þess að þetta takist er mikil-
vægt að opinberir aðilar og verslun-
ar- og þjónustufyrirtæki haldi aftur af
verðhækkunum á næstu misserum.
Nokkur fyrirtæki hafa auk þess til-
kynnt að þau muni ekki hækka verð
þ.m.t. Góa, Matfugl og Flúðasveppir.
Hagkaup og Bónus gáfu út yfirlýs-
ingu um að þau lækki verð á völdum
vörum um 2–3% að meðaltali í versl-
unum sínum. Þá hafa sælgætisgerð-
irnar Nói Síríus og Freyja gefið út að
fyrirhuguð verðhækkun á vörum frá
þeim verði minni en áður var boðað.
DV sagði frá hækkun gjaldskráa
hins opinbera í síðustu viku og
einnig að mörg sveitarfélög hafi hætt
við hækkun á verðskrám.
Í kjarasamningi ASÍ og SA sam-
mæltust atvinnurekendur og launa-
fólk um aðgerðir til að styðja við
markmið um aukinn kaupmátt,
minni verðbólgu og lækkun verð-
bólguvæntinga í efnahagslífinu.
Meðal þeirra er að fyrirtæki og
stjórnvöld gæti ýtrasta aðhalds í
verðákvörðunum sínum. n
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Herjólfur hækkar Ásdís Emilía Björgvinsdóttir sendi ábendingu um hækkun á farmiða-
verði í Herjólf. Eftir hækkunina kostar miði fyrir manninn 1.300
kr. til Landeyjahafnar og 2.090 kr. fyrir bíl en til Þorlákshafnar
kostar 3.460 fyrir manninn og það sama fyrir bíl.
Hreinsunin dýrari Grétar Bernódusson
sendi ábendingu um að Borgarefnalaugin
hefði hækkað verð fyrir hreinsun á herra-
skyrtum. Það var tilboð fyrir þrjár skyrtur
eða fleiri á 330 krónur stykkið en er nú
komið í 390 krónur stykkið sem nemur 18%
hækkun.
Stöð 2 Sport hækkar Jón Davíð sendi inn ábendingu um hækkun á áskrift hjá 365 en
þann 14.2. 2011 borgaði hann 10.283 kr. fyrir Stöð2 og Sport2, ári seinna borgaði hann 11.226
kr., þann 13.2. 2013 borgaði hann 12.768 kr., en þann 22.11. 2013 borgaði hann 16.132 kr.
Síminn hækkar verð Síminn hækkaði verðskrár þann 1. janúar síðastliðinn og er nokkuð
mismunandi eftir vöruflokkum og þjónustu hversu mikil hækkunin er en samkvæmt fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu eru áhrif verðhækkunar 1. janúar 2014 á meðalreikning heimilis 2,3%.
Perlan hækkar kjötsúpu Haraldur Aðalbjörn Haraldsson sendi ábendingu um að kjötsúpan
í Perlunni sem áður kostaði 850 krónur hafi verið hækkuð upp í 990 en það er rúmlega 16%
hækkun.
Sendu
ábendingu
okur@dv.is
Tekið er við ábendingum á netfangið
okur@dv.is og eins á heimasíðunni dv.is/
innsending/okur/