Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Qupperneq 26
Vikublað 14.–16. janúar 201426 Lífsstíll
Í
nýrri breskri rannsókn kemur
fram að nærri helmingur karla
og 22 prósent kvenna hafa sofnað
undir stýri. Í niðurstöðum rann-
sóknarinnar er talað um míkrós-
vefn eða „micro-sleeping“ á ensku,
stuttan svefn sem varir í fimm til tíu
sekúndur.
Ein mínúta lágmark
Prófessorinn Jim Horne sem starfar
við Loughborough-háskóla útskýrir
míkrósvefn sem á sér stað gegn vilja
viðkomandi. „Augnlokin síga og þú
missir samband við raunveruleik-
ann. Svo sofnarðu í örskamma stund
og vaknar aftur við það að höfuðið
rykkist til,“ segir Horne sem segir
höggið segja okkur að við höfum
sofnað þar sem heilinn muni ekki
eftir svo stuttum svefni. „Svefn þarf
að vara að í minnsta kosti eina mín-
útu svo heilinn muni eftir honum.
Þegar við vöknum úr míkrósvefni
vitum við ekkert hvort við erum að
koma eða fara.“
Ungir ökumenn í áhættuhópi
Í rannsókninni, sem fjallað er um
meðal annars á vef BBC, kemur
fram að míkrósvefn stafi, skiljanlega,
af þreytu og ef ekkert sé að gert geti
ástandið endurtekið sig aftur og aftur
og jafnvel þróast yfir í lengri svefn.
Hins vegar geti kippurinn sem verð-
ur til þess að við vöknum komið í veg
fyrir að ástandið endurtaki sig. Sér í
lagi ef svefninn átti sér stað í hættu-
legum eða óviðeigandi aðstæðum,
líkt og við akstur eða á fundi, því þá
sjái adrenalín til þess að halda við-
komandi vakandi.
Í rannsókninni kemur fram að
míkrósvefn sé algengari seinnipart
dags þegar þreyta sé farin að segja til
sín sem og á nóttu þegar flestir ættu
að vera sofandi. Einnig kemur fram
að ungir ökumenn séu í sérstökum
áhættuhópi þar sem þeir þurfi á meiri
svefni að halda en þeir sem eldri eru.
Sterkt kaffi til bjargar
Samkvæmt breskum tölum er talið
að næstum 20 prósent bílslysa
tengist svefni á einhvern hátt en að
sögn Horne hafa ökumenn enga af-
sökun: „Svefnþörf kemur ekki upp úr
þurru. Þú ert ekki glaðvakandi eina
stundina en sofandi hina. Það er
alltaf þessi tími á milli sem þú ættir
að geta gert þér grein fyrir hættunni.“
Að sögn Horne er besta ráðið,
þegar þreyta gerir vart við sig við
akstur, að leggja bílnum á öruggum
stað og drekka sterkt kaffi. „Koffín
hefur áhrif eftir 20 mínútur svo það
er gott að nota tímann og leggja sig
í korter eftir drykkinn. Þá ættirðu að
geta haldið áfram ferðinni.“ n
Helmingur karla
sofnar við stýrið
Svokallaður míkrósvefn er hættulegur ökumönnum
Stig svefns
Svefn er nauðsynlegur til að viðhalda
eðlilegum vitrænum hæfileikum svo
sem til að tala, muna og hugsa. Svefn
sleikur einnig stórt hlutverk í þróun
heilans.
Á 60–100 mínútna fresti förum við
í gegnum fjögur stig svefns áður en við
komust í draumsvefn.
Stig 1 Syfjan er allsráðandi – afslapp-
andi ástand á milli svefns og vöku.
Stig 2 Tímabil létts svefns þar sem
hjartslátturinn hægir á sér og líkamshiti
lækkar.
Stig 3 og 4 Djúpsvefn sem erfitt er að
vakna upp frá því starfsemi heila og
líkama er í lágmarki. Eftir djúpsvefninn
kemur stig 2 aftur og svo hinn svokallaði
draumsvefn.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Svefn þarf að vara
að í minnsta kosti
eina mínútu svo heilinn
muni eftir honum
Augnlokin síga Að sögn Jim
Horne prófessors á þreytan ekki
að koma neinum á óvart þar
sem nægur tími er á milli þess
að vera glaðvakandi og sofandi.
1 Óþægilegt eða hávaðasamt umhverfi
Þegar við erum að sofna slaknar á
vöðvum og við finnum fyrir syfju.
Samt sem áður er heilinn enn
vakandi svo lítil hljóð eða önnur
truflun hindrar að við sofnum.
2 Óregluleg rútína Inn-byggð líkamsklukka lætur
vita hvenær við erum þreytt og
hjálpar til við að samstilla þús-
undir líkamsfruma í takt við dæg-
ursveifluna. Þar skiptir ljós einna
mestu máli. Augun bregðast við
ljósi og myrkri. Líka þegar þau
eru lokuð. Í dagsljósi framleiðir
heilinn minna af svefnhormón-
um svo við erum betur vakandi.
3 Örvandi efni Koffín heldur áhrifum í nokkrar klukku-
stundir og getur valdið því að
við náum síður djúpum svefni.
Áfengi lætur marga hrjóta meira
en hrotur geta skert öndun sem
svo skilar sér í verri svefni. Matur
sem inniheldur tyramine, eins
og beikon, ostur, hnetur og rauð-
vín, getur haldið okkur vakandi.
Brauð og pasta hafa hins vegar
öfug áhrif.
4 Rangur líkamshiti Lík-amshiti okkar lækkar þegar
við sofum. Ef of heitt er í svefn-
herberginu getur líkaminn ekki
kælt sig niður sem veldur svo
eirðarleysi og pirringi.
5 Andlegt álag Stress er versti óvinur svefnsins. Ef
við förum að hafa áhyggjur af
svefnleysi er andvaka nánast
óumflýjanleg. Sérfræðingar mæla
með því að við förum úr rúminu
og gerum eitthvað allt annað,
eins og til dæmis að púsla, áður
en við leggjumst upp í rúm aftur.
5 ástæður
svefnleysis
Senda SMS í svefni
Þú getur kennt svefnhegðunarröskun um glötuð skilaboð
S
amkvæmt nýlegum tölum þjást
yfir 30 prósent bresku þjóðar-
innar af erfiðleikum tengdum
svefni. Ákveðinn hluti þeirra
gengur um sofandi og framkvæm-
ir hin ýmsu verkefni en slíkt ástand
kallast „parasomnia“, svefnhegðunar-
röskun. Ekki er mikið vitað um það
sem gerist í heilanum á meðan. Lítið
af rannsóknum hefur verið fram-
kvæmt enda er erfitt að safna saman
upplýsingunum.
„Vandamálið við rannsóknir á
svefnhegðunarröskun er að þátttak-
endur gera sjaldnast eitthvað í svefni
undir eftirliti líkt og á við á rann-
sóknarstofu,“ segir dr. Chris Idizkowski
sem sérhæfir sig í svefnvandamálum.
Samkvæmt Mental Health
Foundations hefur aukin tækni mikil
áhrif á það sem fólk gerir ómeðvitað
í svefni. Svefnhegðunarröskun getur
verið allt frá því að opna augun upp í
hættulega hluti eins og að aka bíl. Að
sögn dr. Kristie Anderson er algengast
að fólk sem þjáist af svefnvandanum
framkvæmi hluti sem það er vant að
gera vakandi, til dæmis senda SMS,
enda sofa margir með síma á nátt-
borðinu. Samkvæmt Anderson inni-
halda þessi smáskilaboð sem send
eru að nóttu yfirleitt algjört bull því
þótt að þeir sem þjást af kvillanum
framkvæmi yfirleitt það sem þeir eru
vanir að gera að degi til gera þeir það
mun verr þegar þeir eru sofandi.
Sjálf hefur Anderson fengið til sín
skjólstæðinga sem hafa framkvæmt
hina ótrúlegustu hluti á meðan þeir
áttu að liggja í rúmi sínu. Einn tók
til að mynda vekjaraklukku afa síns í
sundur steinsofandi. n
SMS Þeir sem þjást af svefnhegðunar-
röskun eru líklegastir til að fram-
kvæma hluti sem þeir eru vanir að gera.
Osbourne-
mægður
fyrir MAC
Bresku rokkaramægðurnar
Sharon og Kelly Osbourne hafa
hannað snyrtivörulínu í sam-
starfi við bandaríska snyrtivöru-
merkið MAC Cosmetics. Þetta
tilkynnti Kelly á Twitter-síðu
sinni í vikunni ásamt mynd af
lillabláum varalit sem verður
hluti af línunni sem kemur í
verslanir MAC í júní næstkom-
andi. Að sögn John Stapleton,
yfirförðunarfræðings hjá fyrir-
tækinu, mun línan einkennast
af hreinum línum og áreynslu-
lausum eiginleikum. Lögð verð-
ur áhersla á flóknar og dramat-
ískar línur í kringum augun
og mikil augnhár en einfalt og
frjálslegt gloss við.