Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Side 27
Vikublað 14.–16. janúar 2014 Lífsstíll 27
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
Verslunin Belladonna
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
RFF haldið í fimmta sinn
Þátttakendur kynntir til leiks
R
eykjavík Fashion Festival fer
fram í fimmta sinn dagana
27. til 30 mars næstkomandi
samhliða HönnunarMars.
Tískuáhugafólk fyllist jafnan mikilli
spennu þegar hátíðin nálgast enda
einn stærsti tískuviðburður lands
ins.
Nú hafa verið kynntir þeir þátt
takendur sem koma til með að sýna
hönnun sína á hátíðinni í ár. Það eru:
Cintamani, Ella, Farmers Market,
JÖR by Guðmundur Jörundsson,
Magnea Einarsdóttir, REY og Sigga
Maija. Í fréttatilkynningu frá hátíð
inni segir: „Þessir sjö hæfileikaríku
hönnuðir mynda sterkan hóp þar
sem fjölbreytileiki og sköpunargáfa
ræður ríkjum.“
Reykjavík Fashion Festival var
stofnað árið 2009 og síðan þá hefur
hátíðin vaxið og dafnað. Undanfarin
ár hefur hún verið haldin í Hörpu.
Markmið RFF er að markaðssetja og
vekja athygli á íslenskri fatahönnun
og þeirri þróun og tækifærum sem í
henni felast.
Fjöldi fólks sækir hátíðina og
meðal annars koma margir erlendir
blaðamenn til landsins auk þess sem
hátíðinni er ætlað að veita áhuga
fólki innsýn inn í spennandi heim
íslenskrar tísku. n viktoria@dv.is
Mikil spenna Tískuáhugafólk er spennt fyrir sýningunni.
Í
upphafi nýs árs ætla margir að
taka sig á, bæði líkamlega og and
lega. Rithöfundurinn, heimspek
ingurinn, plötusnúðurinn og tón
listarmaðurinn Paul Hudson býr
á Manhattan og skrifar fyrir vefritið
EliteDaily.com. Oftar en ekki fjalla
skrif hans um það hvernig við getum
hámarkað hamingju okkar og árang
ur. Hér er listi yfir 20 atriði sem and
lega sterkir forðast og Hudson mælir
með að við hin gerum einnig.
1 Dvelja í fortíðinni Sterkir einstaklingar einbeita sér að
núinu og nánustu framtíð. Þeir vita
sem er að við stjórnum
ekki fortíðinni og
að framtíðin er jafn
óútreiknanleg og
veðrið í vetur.
2 Dvelja innan þæginda-rammans Þægindaramminn
er hættulegur staður. Þeir sem
gleyma sér þar of lengi geta hrein
lega týnt sjálfum sér. Ekki gefast
upp á lífinu með því að hanga inni í
þessum litla óspennandi ramma.
3 Hlusta ekki á skoðanir annarra Aðeins bjálfar trúa
því að þeir einir séu
bestir í öllu. Góð
hugmynd er góð
hugmynd; sama
hver fékk hana.
Ekki láta egóið
stjórna þér; ef
einhver kemur með
góða ábendingu skaltu taka henni
fagnandi.
4 Forðast breytingar Það sem þeir sterku skilja en hinir
veikburða ekki er að breytingar
eru óhjákvæmilegar. Ekki reyna að
stjórna hinu óumflýjanlega, slíkt
tekur einungis frá þér tíma og orku.
5 Tileinka sér þröngsýni Þú
veist ekki allt. Meira
að segja það sem
þú heldur að þú vit
ir gæti vel verið vit
laust. Ef þú opnar ekki hugann fyrir
nýjum og ferskum hugmyndum
muntu ekki læra neitt nýtt. Og ef þú
hættir að læra hættirðu að lifa.
6 Láta aðra taka ákvarðanir Aðeins þú átt að taka þínar
eigin ákvarðanir. Ekki láta aðra bera
ábyrgðina. Ef þú hefur ekki hugrekki
til að gera mistök hefurðu ekki held
ur hugrekki til að ná langt.
7 Öfundast út í velgengni annarra Þú átt að gleðjast
þegar öðrum gengur vel. Ef þeir
geta þetta, þá getur þú það líka.
Velgengni annarra kemur ekki í veg
fyrir velgengni þína. Ef eitthvað, ætti
góður árangur annarra að hvetja þig
áfram til góðra verka.
8 Hugsa um möguleika á mistökum Hugsanir okkar
stjórna yfirsýn okkar og yfirsýnin
stjórnar svo útkomunni. Þeir
andlega sterku skilja þetta og nota
það sér til framdráttar. Auðvitað
eru alltaf einhverjar líkur á að þér
mistakist en svo lengi sem það eru
möguleikar á árangri þá er það þess
virði að reyna.
9 Vorkenna sjálfum sér Lífið er ekki alltaf leikur. Fólk
slasast, aðrir týna lífi sínu. Þetta eru
víst ekki bara rósir og
fiðrildi. Þú munt
misstíga þig
aftur og aftur.
Spurningin er;
hefur þú styrk
til að standa upp
aftur og halda áfram?
10 Einblína á veikleikana Þótt það að vinna í veikleikunum
hafi sína kosti er mikilvægara að
einblína á styrkleikana. Þú nærð
ekki langt í lífinu með því að vera
ágæt/ur í mörgu. Þú gætir hins
vegar skarað fram úr ef þú einbeittir
þér að því sem þú ert góð/ur í.
11 Reyna að þóknast öllum Vel unnið verk er vel unnið
verk, sama hver dæmir. Þú getur
alltaf reynt þitt besta en það er
ekki hægt að ætla að þóknast
öllum.
12 Kenna sér um hluti sem þeir hafa enga stjórn á Þeir
sem skara fram úr eyða ekki tíma í
að reyna stjórna því sem þeir hafa
hvort sem er enga stjórn á.
13 Vera óþolinmóð/ur Þolinmæði er ekki
aðeins dyggð; hún er
dyggðin. Flestum
mistakast ekki
hlutirnir vegna þess
að þeir voru ekki
nógu góðir í þeim.
Flestum mistekt af því að þeir gáfust
of fljótt upp.
14 Eru misskildir Góð samskipti eru forsenda fyrir góðan
árangur. Það er ekki nóg að koma
upplýsingum á framfæri ef líkur
eru á að viðtakendur þeirra
misskilji þær. Þeir
andlega sterku gera
sitt besta til að
koma upplýsing
um á framfæri á
skiljanlegan máta og
hafa þolinmæðina til
að leiðrétta misskilning.
15 Telja sig eiga eitthvað skilið Þú fæddist; restin er
undir þér komið. Lífið
skuldar þér ekkert.
Aðrir skulda þér
ekkert. Ef þú vilt
gera eitthvað í lífinu
skaltu fara út og
framkvæma hlutina.
Ekki bíða eftir að lífið færi þér
ölmusur.
16 Endurtaka mistök Það er í lagi að gera mistök; einu sinni.
Ef þú gerir sömu mistökin þrisvar
sinnum skaltu endurskoða notkun
þína á áfengi og eiturlyfjum. Annað
hvort ertu bjáni eða alltaf í vímu.
17 Gefa óttanum lausan tauminn Heimurinn getur
verið ógnvekjandi staður. Auðvitað
erum við hrædd við ákveðin atriði af
skiljanlegum ástæðum en hræðsla
okkar við margt annað byggist oftar
en ekki á óraunhæfum hugmynd
um. Mundu að ef þú óttast að
mistakast hlýtur góður árangur að
skipta þig miklu máli.
18 Vaða áfram Þeir sterku vita betur en að vaða áfram án þess
að vita hvað er fram undan. Ekki láta
leti stjórna árangrinum. Undirbúðu
þig vel og vertu við öllu viðbúin/n.
19 Neita utanaðkomandi hjálp Þú ert ekki Súperman.
Þú getur ekki gert allt sjálf/ur. Og
jafnvel þótt þú gætir það, af hverju
ættirðu að gera það? Ef aðrir bjóða
fram hjálp sína skaltu þiggja hana.
Vertu félagslynd/ur. Hlustaðu á hug
myndir og horfðu á hvernig aðrir
gera hlutina. Þú gætir lært eitthvað.
20 Gefast uppMesti veikleiki manna er að gefast upp.
Sterkustu einstaklingarnir elta uppi
hluti sem eru þeim mikilvægir en
sleppa öllu öðru. Ef eitthvað skiptir
þig miklu máli skaltu nota alla þína
orku til að láta draumana rætast. n
20 atriði sem andlega
sterkir gera ekki
Ekki dvelja í fortíðinni ef þú vilt skara fram úr
Sterkur karakter Þeir gerast varla sjálfsöruggari en Francis Underwood í þáttunum
House of Cards.
Kaffi bætir
minnið
Koffein bætir langtímaminnið
samkvæmt nýrri rannsókn sem
birtist í Nature Neuroscience.
Niðurstöðurnar eru byggðar á
rannsókn þar sem þátttakend
ur voru látnir muna munstur á
myndum eftir að hafa tekið inn
koffeintöflu. Í næstu umferð fékk
helmingurinn koffeintöflu en
hinn lyfleysu. Hópurinn sem fékk
koffeinið stóð sig 10% betur á
prófinu en viðmiðunarhópurinn.
„Að mínu mati ættum við
að halda áfram að drekka kaffi,“
sagði einn vísindamannanna
sem stóðu að rannsókninni í
viðtali við dagblaðið Guardian.
„Samkvæmt rannsókn okkar
bætir kaffið minni okkar sem og
getuna til að læra.“
Engin dýr í
Harrods
Hinni frægu gæludýradeild
í lúxus versluninni Harrods í
London, hefur nú verið lokað.
Deildin var fyrst opnuð árið 1917
og hefur því verið starfrækt í nær
hundrað ár en rýminu verður nú
breytt í nýja kvenfatadeild. Áður
fyrr gátu viðskiptavinir verslunar
innar keypt framandi dýr á borð
við ljón, fíla og krókódíla í um
ræddri gæludýradeild og hafa
margir frægir einstaklingar keypt
sér dýr í búðinni, svo sem Ronald
Reagan heitinn, Bandaríkjaforseti,
sem festi kaup á fílnum Gertie.
Árið 1976, þegar lög um dýr í út
rýmingarhættu voru innleidd í
Bretlandi, neyddust búðareigend
ur hins vegar til að hætta að selja
framandi dýr í versluninni og hafa
síðan þurft að halda sig við hefð
bundnari heimilisdýr á borð við
ketti, hunda og hamstra.