Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Page 28
Vikublað 14.–16. janúar 201428 Lífsstíll
Skartgripalína í anda Mean Girls
Stella and Bow framleiða skartgripi myndinni til heiðurs
Þ
ótt ótrúlegt megi virðast eru í
ár liðin tíu ár síðan hin geysi
vinsæla grínmynd Mean
Girls var frumsýnd. Myndin
hefur notið gríðarlegra vinsælda
í gegnum árin, sér í lagi hjá ung
lingsstúlkum, og í tilefni af þessum
áfanga hafa hönnuðir hjá banda
ríska merkinu Stella and Bow nú
hannað skargripalínu sem byggir á
innblæstri frá myndinni.
Línan ber heitið The Burn Book
Collection sem, líkt og aðdáend
ur myndarinnar vita, er tilvísun í
hina alræmdu Burn Book, bók sem
plastskvísurnar nota til að skrifa
í ljóta hluti um skólasystur sínar,
og heitir hver skartgripur eftir ein
hverri persónu myndarinnar – allt
frá Aaron Samuels til Glen Coco.
Engan ætti að undra að liturinn
bleikur er áberandi í línunni (von
andi nógu bleikur fyrir miðviku
daga) auk þess sem frægar setn
ingar úr myndinni eru áletraðar á
skartgripina. Meðal skartgripa sem
finna má er bleikt armband með
áletruninni „Wednesday“, silfur
eyrnalokkar, í laginu eins og brot
ið hjarta, með áletruninni „Best
Bitches“ sem og hárspenna sem
á stendur: „Full of secrets“. Frasa
á borð við „You can‘t sit with us“,
„Fetch“ og „Boo, you whore“
má einnig finna á skartgripum í
línunni. Línan verður fáanleg á vef
síðu Stella and Bow í byrjun febr
úar en áhugasamir geta lagt inn
forpöntun nú í janúar. n
hörn@dv.is
„Best Bitches“ Fallegir eyrnalokkar í
anda Mean Girls.
Bleikir dagar Þetta armband ætti að
henta plastskvísunum vel á miðvikudögum.
„Fetch“ Meira að
segja Regina George
gæti ekki sagt nei
við þessu hálsmeni.
Djöfullinn klæðist Prada
n Anna Wintour hefur einstakt tískuvit n Þykir einstaklega erfiður yfirmaður
A
nnað hvort kanntu á tísku
eða ekki,“ á Anna Win
tour eitt sinn að hafa sagt.
Wintour kann svo sannar
lega á tísku en hún hefur
verið ein áhrifamesta manneskjan
í tískuheiminum um langt skeið og
þykir búa yfir einstöku tískuviti.
Breytti skólabúningunum
Wintour hefur verið ritstjóri
bandaríska Vogue síðan árið
1988 og hefur haft ómæld áhrif á
heimstískuna í hátt í þrjá áratugi.
Hún er fædd og uppalin í London
og hefur verið viðloðandi tísku
bransann síðan hún var fimmtán
ára. Sem unglingur sat Wintour
nokkra kennslutíma í tísku en
hætti og á þá að hafa látið fyrr
greind orð falla
um bransann. Hún
hafði þó ómældan
áhuga á tísku og
las tískutímarit
sem amma henn
ar sendi frá Banda
ríkjunum af mikl
um móð. Áhugi
Wintour sýndi sig
meðal annars í því
að hún var gjörn
á að breyta skóla
búningunum sín
um á ýmsan máta
– þvert á reglur skól
ans. Hún var líka
einungis fjórtán ára
þegar hún klippti
hár sitt í stutta
„bob“greiðslu, en
greiðslan hefur ver
ið hennar helsta
kennimark allar
götur síðan.
Kjarnorku-
Wintour
Árið 1970 hóf Win
tour feril sinn sem
tískublaðamaður
á tímaritinu
Harper‘s &
Queen. Þar starf
aði hún sem að
stoðarmaður
ritstjóra og lík
aði vel í starfinu
en hætti í kjöl
far stanslauss
ósættis við sam
starfskonu sína.
Wintour flutti þá
til New York þar
sem hún fékk
vinnu sem aðstoðarritstjóri tísku
hlutans hjá tímaritinu Harper‘s
Bazaar. Hún var þó rekin eftir að
eins níu mánuði
í starfi fyrir að
skipuleggja
óhefð bundnar
og öðruvísi
myndatökur en
fékk fljótlega
sína fyrstu vinnu
sem tískuritstjóri
á ljósbláa tímaritinu Viva.
Árið 1985 flutti Wintour aftur
heim til Bretlands til að taka yfir
breska Vogue. Þar gerði hún miklar
breytingar, bæði á efni tímaritsins
og starfsfólkinu, og hlaut fyrir það
viðurnefnið Nuclear Wintour, eða
KjarnorkuWintour. Þremur árum
síðar varð hún ritstjóri bandaríska
Vogue og þeirri stöðu gegnir hún
enn þann dag í dag.
Djöfullinn klæðist Prada
Það var fyrst á tímaritinu Viva sem
sögur fóru að heyrast af því að Win
tour væri einstaklega kröfu
harður og erfiður yfirmaður.
Árið 2003 kom svo út bók eft
ir fyrrverandi aðstoðarkonu
hennar, Lauren Weisberger,
sem nefnist The Devil Wears
Prada. Í bókinni, sem að hluta til
er skálduð, skrifar Weisberger um
reynslu ungrar konu af því að starfa
sem aðstoðarkona tískuritstjórans
Miröndu Priestly og þykir enginn
vafi leika á því að Priestly eigi að
vera fyrrverandi yfirmaður Weis
berger, Anna Wintour. Bókin náði
miklum vinsældum og árið 2006
var svo gerð samnefnd kvikmynd
með Meryl Streep í aðalhlutverki. n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
„Annað
hvort
kanntu á
tísku eða ekki
Með gleraugun
Kennimerki Önnu
eru sólgleraugun
og „bob“-greiðslan.
Mynstruð Wintour
er óhrædd við að klæð-
ast litum og mynstrum
af öllum gerðum.
Svart og hvítt Wintour
er mikil smekkmanneskja.
Mætt fremst Wintour fær ávallt sæti
á besta stað á tískusýningum.
Glæsileg
í gráu
Einfalt og
elegant.
Kjarnorku-Wintour Wintour
þykir einstaklega ströng og
kröfuhörð sem yfirmaður.
Transkona situr
fyrir í ELLE
Jenna Talackova, 25 ára, sat fyrir
í margra síðna tískuþætti hjá
kanadíska tímaritinu ELLE á
dögunum en myndaþátturinn
birtist í janúarhefti tímaritsins.
Þetta væri kannski ekki í frásögur
færandi nema af því að Talackova
fæddist sem drengur, en ekki er
algengt að transfólk sé notað sem
fyrirsætur hjá helstu tískublöðum
heims. Talackova er frá Kanada
og vakti mikla athygli þegar hún
varð fyrst transkvenna til að taka
þátt í fegurðarsamkeppninni Miss
Universe Canadaí fyrra, en það
tókst henni eftir harða baráttu
við skipuleggjendur keppninnar.
Talackova þykir einstaklega fög
ur og hefur nú unnið stóran sigur
fyrir transfólk í tískuheiminum.
Photoshop-
lögin innleidd
Yfirvöld í Ísrael hafa gripið til
aðgerða gegn myndvinnslu í
auglýsingum og tískutímarit
um. Samþykkt hafa ver
ið svokölluð Photoshoplög.
Þau kveða á um að fyrirsæt
ur sem sitja fyrir í auglýsing
um eða taka þátt í tískusýn
ingum í Ísrael verði að geta
sýnt fram á að BMIstuðull
þeirra sé ekki lægri en 18,5
auk þess sem þær auglýs
ingar sem breytt hefur verið
með myndvinnsluforriti verði
að merkja sérstaklega. Hið
síðara á þó ekki við um auglýs
ingar sem gerðar eru erlendis.
Ástæða laganna er sú að jafn
margar konur þjást af átrösk
unum í Ísrael og í öðrum vest
rænum ríkjum.
Lítið var fjallað um þetta
vandamál fyrr en árið 2007
þegar þekkt, ísraelsk fyrirsæta
lést úr átröskun.
Systir Kate
Moss semur
Lottie Moss, litla systir ofurfyrir
sætunnar Kate Moss, hefur fengið
samning hjá módelskrifstofunni
Storm Model Management en
það er einmitt sama módelskrif
stofa og Kate er á mála hjá. Lottie
er sextán ára en henni var fyrst
boðinn samningur þegar hún
var þrettán ára, eftir að hún vakti
athygli sem brúðarmær í brúð
kaupi systur sinnar árið 2011.
Þrátt fyrir að vera „einungis“ 165
sentímetrar á hæð þykir Lottie
eiga mikla möguleika í tísku
bransanum og margir bíða þess
nú spenntir að sjá hana spreyta
sig fyrir framan myndavélarnar.