Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2014, Side 36
Vikublað 14.–16. janúar 201436 Fólk
É
g ætla að kýla Harry í nefið þegar
ég sé hann,“ sagði bandaríski
leikarinn Mark Wahlberg í
viðtali hjá Conan O‘Brian
á dögunum og átti þá við breska
One Direction-söngvarann Harry
Styles. Ástæðan er sú að dætur
Wahlberg, sem eru tíu og fjögurra
ára, eru yfir sig hrifnar af stráka-
bandinu og þá sérstaklega Harry og
Wahlberg sagði á léttu nótunum í við-
talinu að honum litist engan veginn á
blikuna.
„Sú yngri dregur fram myndir af
honum, og hún felur myndir í her-
berginu sínu, og ég þykist ætla að rífa
þær og verða afbrýðisamur. En ef ég
sé þennan litla fávita þá mun hann fá
að kenna á því,“ sagði Wahlberg sem
sló á létta strengi og sagðist ætla að
plata strákana í One Direction á frum-
sýningu nýjustu myndar hans, Trans-
formers 4, og lemja þá svo alla í klessu.
Sagðist hann ætla að reyna að kynna
dætur sínar fyrir meðlimum stráka-
bandsins, enda væri betra að gera það
núna meðan þær eru enn ungar.
„Og það verður í eina skiptið sem
ég mun nokkurn tímann kynna þær
fyrir strák. Eftir það verða þær læstar
inni,“ sagði hann og hló. n
Harry Styles
Dætur Marks
Wahlbers eru
yfir sig hrifnar af
söngvaranum
úr stráka-
bandinu One
Direction.
Ekki sáttur Wahlberg er ekki par
sáttur við þá ást sem dætur hans hafa
fengið á söngvara One Direction.
Wahlberg ósáttur við Styles
n Talaði í gríni um að berja söngvara One Direction
Góðhjartaðar
stjörnur
1 Macklemore og Ryan Lewis Tónlistarmennirnir komu ekki
aðeins lögunum „Thrift Shop“ og „Can’t
Hold Us“ á topp vinsældalista heldur
notuðu aðstöðu sína til að dreifa kærleik
til aðdáenda sinna. Dúóið hlaut VMA-
verðlaun fyrir Besta myndbandið með
jákvæðum skilaboðum (e. Best Video
With a Social Message).
2 Paul Walker Því er oft
haldið fram að þeir
góðu deyi ungir og
Paul Walker var
einn af þeim bestu.
Leikarinn, sem lést
í lok nýliðins árs, gaf
mikið af sér til þeirra sem áttu erfitt
vegna náttúruhamfara og stofnaði
meðal annars góðgerðasjóðinn Reach
Out WorldWide.
3 Beyoncé Hún er ekki
kölluð Queen B fyrir
ekki neitt. Þrátt fyrir
að hafa gefið út plötu
í laumi toppaði salan
öll fyrri afrek. Beyoncé
gerði sér svo lítið fyrir og hélt eitt stykki
góðgerðatónleika í London til að vekja
athygli á réttindabaráttu kvenna.
4 One Direction
Þegar við héldum
að það væri ekki
hægt að elska þessa
drengi meira þá gefa
þeir ágóða eins lags til
fátækra í Afríku og Bretlandi. Auk þess
sem þeir styrktu krabbameinsrannsókn-
ir um dágóða upphæð.
5 Talyor Swift
Tay Tay hélt upp
á 24 ára afmæli
sitt á árinu þar
sem hún afþakkaði
gjafir en gaf í
staðinn 100.000 dali til
Nashville Symphony en sinfónían hefur
átt í gífurlegum fjárhagserfiðleikum
upp á síðkastið. Swift vann einnig með
Vilhjálmi Bretaprins og Kate eiginkonu
hans til að hjálpa heimilislausum.
topp 5
Þau bestu heiðruð
n Golden Globe-verðlaunin veitt um helgina í sjötugasta og fyrsta sinn
Þ
að var mikið um dýrðir í
Beverly Hills um helgina er
Golden Globe-verðlaunin
voru afhent í 71. sinn á sunnu-
dagskvöldið. Verðlaunahá-
tíðin fór fram með pomp og prakt
á Beverly Hilton-hótelinu þar sem
sannkallað stjörnulið var saman kom-
ið til að heiðra það besta í bandarísku
sjónvarpi og kvikmyndum á árinu sem
leið.
Hlutu aðeins ein verðlaun
Það var kvikmyndin 12 Years a Slave
sem var valin besta kvikmyndin í flokki
dramamynda. Myndin var alls tilnefnd
til sjö verðlauna á hátíðinni en hlaut
þó aðeins ein. Verðlaunin voru þó ekki
af verri endanum svo aðstandendur
myndarinnar ættu að vera meira en
sáttir. 12 Years a Slave byggir á endur-
minningum Solomon Northup frá ár-
inu 1853, en Northup var frjáls maður
sem hnepptur var í þrældóm, og þykir
hún afar líkleg til Óskarstilnefningar
og jafnvel -verðlauna.
Kvikmyndin American Hustle var
valin sú besta í flokki gaman-
mynda en hún er skipuð ein-
valaliði frægra leikara. Auk
þess að vera valin besta
myndin voru
leikkonurn-
ar Amy Adams
og Jennifer
Lawrence verð-
launaðar fyrir leik sinn í myndinni;
Adams sem besta leikkona í aðalhlut-
verk í gamanmynd og Lawrence besta
leikkona í aukahlutverki.
Nýliðinn og reynsluboltinn
Ekkert lát virðist ætla að verða á ár-
angri efnafræðidramans Breaking
Bad en þátturinn var valinn sá besti í
flokki dramaþátta. Þrátt fyrir að hafa
hlotið hver verðlaunin á fætur öðrum
undanfarin ár er þetta í fyrsta sinn sem
þátturinn hlýtur gullhnött sem besti
sjónvarpsþátturinn. Gullhnettirnir
voru þó tveir að þessu sinni, því auk
fyrrnefndra verðlauna var aðalleikari
þáttanna, Bryan Cranston, valinn
besti leikari í sjónvarpsþætti í flokki
dramaþátta.
Í flokki gamanþátta var það
splunkuný þáttaröð, Brooklyn Nine-
Nine, sem var valin sú besta auk þess
sem aðalleikari þáttanna, grínistinn
Andy Samberg, hlaut gullhnött sem
besti leikari í gamanþætti. Brooklyn
Nine-Nine hóf göngu sína um miðjan
september á síðasta ári og hefur þegar
slegið rækilega í gegn vestanhafs en
alls horfðu 6,17 milljónir manna á
fyrsta þátt seríunnar. Þættirnir fjalla
um óreyndar lögreglumann í Brook-
lyn-hverfi í New York, sem leikinn
er af Samberg, og samband hans við
hinn nýja og gríðarlega stranga yfir-
mann sinn, sem leikinn er af Andre
Braugher.
Úrval góðra leikara
Kvikmyndin Gravity vakti mikla athygli
á síðasta ári og var tilnefnd til fjögurra
Golden Globe-verðlauna, þar á með-
al sem besta myndin í flokki drama-
mynda auk þess sem Sandra Bullock
var tilnefnd sem besta leikkona í að-
alhlutverki. Myndin hlaut þó aðeins
ein verðlaun, en leikstjóri hennar, Al-
fonso Cuarón, var valinn besti kvik-
myndaleikstjórinn á hátíðinni.
Ástralska leikkonan Cate Blancett
hlaut sín þriðju Golden Globe-verð-
laun á sunnudaginn, en hún var valin
besta leikkona í aðalhlutverki í drama-
mynd. Fyrri tvenn verðlaunin hlaut
hún árin 1999 fyrir hlutverk sitt í Eliza-
beth og 2008 fyrir myndina I‘m Not
There. Matthew McConaughey þótti
sýna einstakan leik í Dallas Buyers
Club og var verðlaunaður fyr-
ir frammistöðu sína sem besti
leikari í aðalhlutverki.
Í flokki gamanmynda voru
það Leonardo DiCaprio og
Amy Adams sem stóðu uppi
sem sigurvegarar. DiCaprio
hefur fengið mikið lof fyr-
ir leik sinn í myndinni Wolf of
Wall Street og hlaut nú sín önn-
ur Golden Globe-verðlaun,
en árið 2005 hreppti
hann verðlaunin fyrir
frammistöðu sína í
The Aviator. Líkt og
fyrr segir hlaut Ad-
ams sín verðlaun
fyrir leik sinn í
American Hustle
en þetta er í fyrsta
sinn sem hún
hlýtur verðlaunin.
n horn@dv.is
Sigurvegarar hátíðarinnar
Besta dramamyndin: 12 Years a Slave
Besta gamanmyndin: American Hustle
Besti dramaþátturinn: Breaking Bad
Besti gamanþátturinn: Brooklyn Nine-
Nine
Besta teiknimyndin: Frozen
Besta erlenda kvikmyndin: La grande
bellezza (The Great Beauty) frá Ítalíu
Besti kvikmyndaleikstjórinn:
Alfonso Cuarón fyrir Gravity
Besta leikkona í aðalhlutverki í
dramamynd: Cate Blanchett fyrir
Blue Jasmine
Besti leikari í aðalhlut-
verki í dramamynd:
Matthew
McConaug-
hey fyrir
Dallas
Buyers
Club
Besta leikkona í aðalhlutverki í gaman-
mynd: Amy Adams fyrir American Hustle
Besti leikari í aðalhlutverki í gaman-
mynd: Leonardo DiCaprio fyrir Wolf of
Wall Street
Besta leikkona í aukahlutverki í
kvikmynd: Jennifer Lawrence fyrir
American Hustle
Besti leikari í aukahlutverki
í kvikmynd: Jared Leto fyrir
Dallas Buyers Club
Besta leikkona í dramaþætti:
Robin Wright fyrir House of Cards
Besti leikari í dramaþætti: Bryan
Cranston fyrir Breaking Bad
Besta leikkona í gaman-
þætti: Amy Poehler
fyrir Parks and
Recreation
Besti
leikari í
gaman-
þætti: Andy
Samberg fyrir
Brooklyn Nine-
NineEnn ein verðlaunin
Bryan Cranston hefur unnið
til fjölmargra verðlauna
fyrir leik sinn í Breaking Bad.
Ánægð Amy
Adams þykir sýna
afbragðsleik í
kvikmyndinni
American Hustle.
Sigurvegarar
Aðstandendur 12 Years
a Slave voru að vonum
ánægðir með kvöldið.
MyNdir rEutErS