Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2014, Blaðsíða 4
Vikublað 25.–27. mars 20144 Fréttir
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Erfitt að svara um ráðherrabústað
Hafa tekið sér átta daga í að bregðast við fyrirspurn DV
Þ
eir Sigurður Már Jónsson,
upplýsingafulltrúi ríkisstjórn-
arinnar, og Jóhannes Þór
Skúlason, aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, hafa tekið sér átta
virka daga í að svara fyrirspurn DV
er snýr að forsætisráðherrabústaðn-
um á Þingvöllum og notkun á hon-
um. DV spurði meðal annars hverj-
ir hefðu heimsótt Sigmund Davíð
Gunnlaugsson í forsætisráðherra-
bústaðinn það sem af er kjörtímabili
og hvort Davíð Oddsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og núverandi rit-
stjóri Morgunblaðsins, hefði verið á
meðal gesta. Fyrirspurnin var fyrst
lögð fram hinn 13. mars og síðast
ítrekuð í gær, mánudag. Þá fengust
þau svör frá Jóhannesi að málið væri
í vinnslu.
Það vakti nokkra athygli á dögun-
um þegar Sveinn Andri Sveinsson
hæstaréttarlögmaður fullyrti að Sig-
mundur og Davíð hefðu nýverið
dvalist næturlangt í sumarbústað
forsætisráðherra á Þingvöllum þar
sem þeir hefðu meðal annars gætt
sér á viskíi sem Ólafur Thors hélt
mikið upp á. Jóhannes Þór, aðstoðar-
maður Sigmundar, sagðist ekki vita
hvað væri hæft í þessu en ítrekaði þó
að Sigmundur drykki ekki viskí. Síð-
ar birtust nafnlaus skrif í Stakstein-
um Morgunblaðsins þar sem full-
yrt var að Davíð hefði ekki dvalið
nætur langt á Þingvöllum síðan hjá
Þorsteini Pálssyni árið 1987. DV bíð-
ur eftir svörum við spurningum sín-
um en þær snúast meðal annars um
það hversu mikið forsætisráðherra
hefur nýtt sér forsætisráðherrabú-
staðinn á yfirstandandi kjörtímabili
og hversu mikill kostnaðurinn hefur
verið. n jonbjarki@dv.is
Andar köldu á milli
Bjarna og Sigmundar
Bjarni Benediktsson vissi ekki af ferð Sigmundar Davíðs forsætisráðherra til útlanda
A
far stirt er á milli leiðtoga
ríkisstjórnarflokkanna
tveggja. Samskipti á milli
Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar forsætisráð-
herra og Bjarna Benediktssonar,
fjármála- og efnahagsráðherra,
eru í lágmarki. Þetta herma heim-
ildir DV innan úr ríkisstjórnar-
flokkunum.
DV hefur áður greint frá vax-
andi óánægju með samstarfið inn-
an Sjálfstæðisflokksins
en Evrópusambands-
málið hefur reynst
vatn á myllu hinna
óánægðu. Litlar lík-
ur eru hins vegar
taldar á því að það
slitni upp úr ríkis-
stjórnarsamstarfinu
en lítill grundvöllur
er til annars kon-
ar ríkis-
stjórnarmynsturs eins og þingið
er samsett í dag. Eini möguleik-
inn væri samstarf Framsóknar
eða Sjálfstæðisflokks með tveimur
öðrum flokkum.
Vissi ekki af ferðinni
Til marks um hálfgert kul í sam-
skiptum ríkisstjórnarleiðtoganna
tveggja má nefna að Bjarni hafði
ekki hugmynd um að Sigmund-
ur væri á leið til útlanda í frí í síð-
ustu viku. Bjarni fékk vitneskju um
ferðina þegar Sigmundur var lagð-
ur af stað þrátt fyrir að hann eigi að
leysa þann síðarnefnda af sem for-
sætisráðherra. Þá sleppti ríkis-
stjórnin að funda í fjarveru
Sigmundar Davíðs en
fundir eru jafnan haldn-
ir einu sinni í viku. Það
er ekki eina skiptið sem
ríkisstjórnarfundum hef-
ur verið frestað eða sleppt
í fjarveru forsætisráðherra
en DV greindi frá því í síð-
ustu viku að enginn fundur
hafi verið dagana 4.–11. mars
síðastliðna þegar Sig-
mundur Davíð var
staddur í Kanada í
boði Icelandair.
Ósamstiga í
umdeildum
málum
Ríkisstjórnar-
samstarfið hef-
ur að miklu
leyti verið
framsóknar-
mönnum
hagfelldara
en sjálfstæð-
ismönnum, í
það minnsta
hingað til. Strax
þegar stjórn-
arsáttmálinn
var kynntur á
Laugarvatni kom í
ljós að sjálfstæðis-
menn höfðu þurft
að setjast í far-
þegasætið. Hver
nefndin á fætur
annarri var kynnt
til sögunnar að-
eins stuttu eftir að
Bjarni hafði far-
ið mikinn á lands-
fundi og lofað
engum nefndum
heldur aðgerðum
strax. Flokkurinn hefur líka þurft
að bakka í stórum, veigamiklum
málum eins og afnámi verð-
tryggingar og skuldaniður-
fellingu stjórnvalda. Bæði
málin voru forsenda sam-
starfsins en þingmenn Sjálf-
stæðisflokks hafa margir ver-
ið gagnrýnir á þær, bæði fyrir
og eftir kosningar.
Samskiptaleysið í stjórn-
arliðinu hefur líka sett mark sitt
á Evrópumálin. Ekki er
einhugur um mál-
ið innan Sjálf-
stæðisflokksins
þrátt fyrir að
flestir séu sam-
mála um að
vilja standa
utan sam-
bandsins. Á
meðan hver
sjálfstæðis-
maðurinn á
fætur öðr-
um hefur
stigið fram
og reynt
að opna á
breytingar
á málinu
hefur lítið
heyrst
frá Sig-
mundi
annað
en rétt-
lætingar
á
ákvörðun-
inni. Það er
þó með þetta
mál eins og önn-
ur að ólíklegt er að
það muni kljúfa stjórn-
ina. n
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Kuldi Heimildir DV
herma að kuldi sé í
samskiptum Bjarna og
Sigmundar. Það verður
þó ekki til þess að upp úr
slitni. MynD Þorri
Lítið annað í boði
Annað mynstur kallar á fjóra flokka
n Framsóknarflokkur, 19 þingmenn
n Sjálfstæðisflokkur, 19 þingmenn
n Samfylkingin, 9 þingmenn
n Vinstri græn, 7 þingmenn
n Björt framtíð, 6 þingmenn
n Píratar, 3 þingmenn
Ekki væri hægt að mynda ríkisstjórn án aðkomu annaðhvort Framsóknar eða Sjálfstæð-
isflokks. Samanlagt mynda flokkarnir sterkan 38 manna meirihluta á þingi. Hvor flokkur
gæti myndað meirihluta með þátttöku tveggja úr Samfylkingu, Vinstri grænum og Bjartri
framtíð. Fjögurra flokka stjórn þyrfti til að Píratar ættu aðgang að stjórnarborðinu.
Í vinnslu Jóhannes Þór Skúlason sagði í
samtali við blaðamann á mánudag að málið
væri í vinnslu.
Þjófur gripinn
með bjór
Rétt fyrir klukkan þrjú að-
fararnótt mánudags var tilkynnt
um innbrot í austurborginni.
Farið hafði verið inn á veitinga-
stað með því að brjóta rúðu í
hurð baka til. Í dagbók lögreglu
kemur fram að einn maður hafi
verið handtekinn á vettvangi og
var hann búinn að taka út bjór
úr kæli er öryggisverðir komu
að honum á vettvangi. Maður-
inn var vistaður í fangageymslu
lögreglu.
Þessa sömu nótt var öku-
maður stöðvaður í Breiðholti
vegna gruns um akstur undir
áhrifum fíkniefna. Þá var bifreið
stöðvuð á Vesturlandsvegi við
Kollafjörð, en ökumaður henn-
ar er grunaður um akstur undir
áhrifum áfengis.
Forseti
á snjóflóða-
æfingu
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og Dorrit Moussaieff
forsetafrú, tóku þátt í snjóflóða-
æfingu hjá Björgunarhunda-
sveit Íslands í Steingrímsfirði á
Ströndum á sunnudag. Héraðs-
miðillinn BB.is greindi frá þessu
en þar kom fram að þátttak-
endur á æfingunni hefðu meðal
annars verið björgunarhund-
ar og björgunarsveitarmenn frá
Ísafirði og Hnífsdal. Forseta-
hjónin voru síðan á Hólmavík á
mánudag þar sem þau heim-
sóttu meðal annars Grunn- og
tónskóla Hólmavíkur, leikskól-
ann Lækjarbrekku sem og Þró-
unarsetrið á Hólmavík.